Tíminn - 13.06.1974, Qupperneq 10
10
TÍMINN
Fimmtudagur 13. júní 1974
„SÁ SEM SKIPTIR VIÐ
SAMVINNUFYRIRTÆKI,
LEGGUR INN ÖRYGGI
SÉR TIL HANDA"
-hs-Rvik. Aðalfundur
Sambands islenzkra
samvinnufélaga var
haldinn að Bifröst i
Borgarfirði dagana 6. og
7. jiíni s.l. Voru þar
samankomnir á einum
stað á annað hundrað
fulltrúar, margir þeirra
kaupfélagsstjórar utan
af landsbyggðinni.
Timinn greip tækifærið
og ræddi við nokkra af
þessum mönnum, m.a.
u m a f k o m u
kaupfélaganna, fram-
kvæmdir á þeirra veg-
um og framtiðarhorfur,
svo eitthvað sé nefnt.
Fara viðtölin hér á eftir,
en áður hafa frásagnir
af fundinum og
ályktanir hans verið
birtar i blaðinu.
Þorsteinn Sveinsson,
Egilsstöðum
— Afkoman var mjög góð á
siðasta ári, og átti veðurfarið
stóran þátt þar i. Mun meira var
slátrað hjá Kaupfélagi Héraðs-
búa heldur en haustið þar áður
eða 61 þúsund fjár sem mun vera
20% aukning frá árinu áður.
Ekki varð um verulega
aukningu að ræða i framleiðslu
mjólkurvara en aftur á móti jókst
nautakjötsframleiðslan úr 90
tonnum i 120 tonn. Nautakjötið
hefur verið selt mestmegnis á
hótel hér innanlands, en nýlega
hafá um 40 tonn verið flutt út i
gegnum Sambandið.
Þorstcinn Sveinsson Egilsstöðum
Á Egilsstöðum eru 4 sláturhús,
eitt er á Fossvöllum, i Borgarfirði
eystra og á Reyðarfirði. Nú eru
uppi hugmyndir um að byggja
stórt sláturhús á Egilsstöðum og
mjólkursamlag. Mjólkina seljum
við á flesta Austfirðina frá
Borgarfirði eystra suður á
Stöðvarf jörð, og önnumst
flutningana að mestu leyti sjálfir.
Ennfremur má geta þess, að á
vegum kaupfélagsins á Egilsstöð-
um er rekin brauðgerð, sem selur
framleiðslu sina á marga Aust-
fjarðanna.
Þann 26. april s.l. var opnuð ný
alhliða verzlun á Egilsstöðum i
800 fermetra húsnæði.
Byggingárvöruverzlun og fóður-
blöndun er hins vegar á Reyðar-
firði. Kaupfélagið hefur
verzlunaraðstöðu á Egilsstöðum,
Reyðarfirði, Seyðisfirði og
Borgarfirði eystra. 1 heild var út-
koman hjá KHB sæmileg, en hlut-
ur verzlunarinnar var ákaflega
slakur.
Vegna hins aukna ferðamanna-
straums, sem við megum búast
við með tilkomu hins nýja hring-
vegar, hafa komið fram hug-
myndir um að breyta söluskálan-
um, sem kaupfélagið rekur á
Egilsstöðum. Fyrir um 3 árum
útbjuggum við ákaflega
skemmtilegt tjaldstæði á Egils-
stöðum, þar sem gróðursett voru
tré, sem mynda bása fyrir hvert
tjald. Þar er að sjálfsögðu einnig
fullkomin hreinlætisaðstaða. Auk
þess má geta þess, að með hinni
nýju verzlun á Egilsstöðum, sem
ég minntist á áðan, erum við
miklu betur við þvi búnir að veita
ferðafólki fullkomna þjónustu.
Kaupfélag Héraðsbúa rekur tvö
hraðfrystihús á Reyðarfirði og
Borgarfirði eystra, og hafa
miklar endurbætur verið gerðar á
þeim báðum. Auk þess er
kaupfélagið eignaraðili að hálf-
um skuttogara, Hólmanesi.
Ekki verður annað sagt, en að
bjart sé framundan, aldrei hefur
vorað eins vel i manna minnum,
sauðburður aldrei gengið betur,
og vonumst við til að fá margt og
vænt fé af fjalli i haust.
A Egilsstöðum búa um 900
manns en það er bær i örum vexti.
A launaskrá hjá KHB eru 686
manns, á öllum stöðvunum, og
laun greidd á siðasta ári námu
rúmum 82 milljónum króna.
Varðandi samvinnumálin i
heild vill ég segja aðlokum,að
mjólkursamlögum og sláturhús-
um þarf að veita þau skilyrði, að
unnt verði að greiða bændum
fyrir afurðir sinar um leið og þeir
leggja þær inn i kaupfélögin.
Þetta er mikið hagsmunamál
bændanna, sem eru uppistaðan i
samvinnuhreyfingunni — og mál,
sem berjast verður fyrir, þótt
búast megi við að róðurinn verði
þungur.
Ólafur Sverrisson
Borgarnesi
— Hagur Kaupfélags Borgar-
fjarðar var i heildina bærilegur á
Ólafur Sverrisson Borgarnesi
siðasta ári þó að verzlunin hafi
barizt i bökkum. Útkoman hjá
öðrum fyrirtækjum félagsins var
nokkuð góð, og betri en árið á
undan t.d. hjá viðgerðar- og ný
smiðadeild og hjá sláturhúsinu.
Hjá kjötiðnaðarstöðinni varð út-
koman mjög þokkaleg.
Við erum alltaf með einhverjar
framkvæmdir á ferðinni, — núna
er verið að byggja fóðurvöruhús,
og hafizt verður handa við
byggingu nýs reykhúss i haust.
Seinnihluta sumars munum við
byggja viðbót við viðgerðar- og
nýbyggingaverkstæðið, en þar
eru m.a. smiðaðar bilayfir-
byggingar.
Það sem stærst er á döfinni hjá
okkur núna, er nýtt mjólkursam-
lag, sem risa mun skammt frá
landnámsjörðinni Borg.
Áætlunin hljóðar nú upp á 300
milljónir kr., og verður hafizt
handa i haust eða næsta vor. Að-
staðan i gamla mjólkursam-
laginu er orðin gjörsamlega óvið-
unandi, en búast má við einhverri
vinnsluaukningu i hinu nýja hús-
næði. Framleiðsla mjólkur i
héraðinu hefur aukizt allmikið
undanfarin ár, en um 70% af allri
mjólkinni fer beint i neyzlu, mest
i Reykjavik.
Unnið er að lagfæringu á um-
hverfi og lóðum verzlunarinnar
og sláturhússins á staðnum, og
munum við leggja varanlegt slit-
lag á svæðið.
Ég er bjartsýnn á framtiðina —
horfurnar eru bærilegar og mikil
uppbygging hefur átt sér stað, á
sér stað og er i bigerð. Við i
Borgarnesi vonumst til að fá
þjóðveginn fljótlega til okkar með
brúyfir Borgarfjörðinn. Reiknum
við þá með að geta aukið umsvif
okkar til muna. Brúin er á vega-
áætlun, sem ekki hefur þó verið
endurskoðuð.
Georg Hermannsson
Vestmannaeyjum.
— Ég hóf störf i Vestmannaeyj-
um seinnihluta janúarmánaðar i
fyrra, en hef undanfarin 7 ár séð
um rekstur matvöruverzlunar
Kaupfélags Borgfirðinga i
Borgarnesi. Framundan er gifur
legt verkefni, en varla er hægt að
segja, að miklar framkvæmdir
séu á næstu grösum, við
byggingar og þess háttar.
Fyrir gosið i Vestmanaeyjum
var rekstur kaupfélagsins
erfiður. Þá voru reknar 4 mat-
vöruverzlanir, auk búsáhalda-,
vefnaðar-, byggingarvöru- og
kjötvinnsludeildar. Um það bil
mánuði eftir að gos hófst, opnaði
kaupfélagið eina verzlun að
beiðni Viðlagasjóðs, og var hún
eina opna verzlunin á erfiðleika-
timunum.
Þegar ég kom til Vestmanna-
eyja, var þessi eina verzlun
félagsins opin, en allar fyrri mat-
vöruverzlanir i einkaeign voru
komnar i gagnið. Ég byrjaði á þvi
að opna vörumarkað, sem virðist
ætla að verða vinsæll, en lokaði
jafnframt þeirri einu verzlun,
sem opin hafði verið. Er
markaðurinn i aðalverzlunarhús-
næðinu, og auk þess hafa þar ver-
ið opnaðar vefnaðarvörudeild og
búsahaldadeild.
Eins og gefur að skilja er mikil
þörf fyrir byggingarefni i Vest-
mannaeyjum. Byggingarefnis-
salan komst i gagnið um miðjan
febrúar, en erfitt hefur verið að
útvega nægilegt efni, vegna hins
langa afgreiðslufrests. Við kom-
um of seint inn i myndina til að
geta pantað timanlega.
Ég hef orðið að sniða félaginu
mjög þröngan stakk, þvi raunar
stóð það uppi með tvær hendur
tómar i byrjun þessa árs. Hef ég
orðið að fjármagna viðgerðir,
viðhald og vörukaup jafnóðum út
úr rekstrinum.
— Ég hefði ekki tekið að mér
þetta verkefni nema með svolitilli
bjartsýni. Mörg ljón eru i vegin-
um en ég mæti hvarvetna miklum
skilningi hjá þeim aðilum, sem ég
þarf að leita til.
Vörumarkaðurinn ætlar að
Georg Hermannsson Vestmanna-
eyjum
reynast vel, en æskilegt væri, að
hann væri i stærra húsnæði, þar
sem ennfremur væri hægt að hafa
alla okkar þjónustu á einum stað.
Páll Andreasson
Þingeyri
Kaupfélag Dýrfirðinga rekur
eina verzlun á Þingeyri, hrað-
frystihús, og aðildarfyrirtæki
þess Fáfnir á auk þess skut-
togarann Framnes I, sem kom 1.
september á síðasta ári. Enn-
fremur er einrt bátur i eigu
félagsins.
Útgerðin og rekstur hraðfrysti-
hússins gekk mjög vel. Siðan
Páll Andreasson Þingeyri
togarinn kom, hefur ekki fallið
niður vinna við fiskverkunina 1
einasta- dag. A siðasta ári vél-
væddum við frystihúsið og
stækkuðum, og komum auk þess
upp fullkominni saltfisk-
verkunaraðstöðu . Vegna
ástandsins á Bandarikjamarkaði
söltum við nú allan þorsk, sem
berst á land.
Tilkoma skuttogarans og
stækkun hraðfrystihússins hefur
gjörbreytt öllu atvinnulífi á
staðnum og veitt fólkinu öryggi.
Hugarfar fólksins til staðarins
hefur breytzt, þannig að nú meg-
um við eiga von á þvi, að unga
fólkið, sem fer til náms i þétt-
býlinu, komi til okkar aftur að
námi loknu.
Kaupfélag Dýrfirðinga hefur i
þessum efnum, sem og mörgum
öðrum, verið brautryðjandi og
Þingeyri er eitt ljósasta dæmið
um ágæti landsbyggðarstefn-
unnar, þ.e. hinnar miklu atvinnu-
uppbyggingar, sem átt hefur sér
stað um allt land siðustu árin.
Ég vil að lokum segja það, að sá
sem skiptir við samvinnufyrir-
tæki, leggur inn öryggi sér til
handa. Fólkið sjálft á fyrirtækin,
og engin hætta er á þvi að farið
verði með atvinnutækin af
stöðunum, eins og orðið hefur
vart hér fyrir vestan, þegar um
einkarekstur er að ræða.
Viðtöl við kaupfélagsstjóra og fulltrúa af