Tíminn - 13.06.1974, Side 11
Fimmtudagur 13. júni 1974
TÍMINN
11
flf
: ■ i ■ f \ J|f;'
vL/t, Hn W < ' oflr mW ^rWSt slGm
í f if.'ápB
I .iiá IV ABj ism . fi lai
Séö yfir fundarsalinn i Samvinnuskólanum á Bifröst i Borgarfirði, þar sem aðalfundurinn fór fram.
Myndina tók Mikhael Fransson.
Finnur Kristjánsson
Húsavik
— Kaupfélag Þingeyinga rekur
samtals 10 verzlanir, þar af útibú
i Reykjavik, á Laugum og við
Laxárvirkjun, eitt á hverjum
stað. Siðasta ár var mjög erfitt
verzlunarár, og þrátt fyrir mjög
aukna söluaukningu á árinu,
gerði reksturinn ekki betur en að
sleppa — enginn tekjuafgangur
varð, en rekstrartap varð ekki.
Við erum nokkuð vel settir að
þvi leyti, að við erum búnir með
mest alla uppbyggingu
verzlunarhusnæðis. Ennfremur
er i meginatriðum lokið
uppbyggingu mjólkursamlagsins,
og lokið er nýrri byggingu slátur-
húss. Hjá þetta stóru fyrirtæki
verður ekki komizt hjá einhverri
Finnur Kristjánsson Húsavik
fjárfestingu af og til, en ekkert
mjög stort er framundan i þeim
efnum.
Á föstum launum hjá
Kaupfelagi Þingeyinga voru
siðast liðið ár 120 manns, en
lausráðnir starfsmenn voru
margir á árinu. Samtals greiddi
félagið i laun og vinnu um 80
milljónir króna.
Auk þessara verzlana á kaup -
félagið eignaraðild að Fiskiðju-
samlagi Húsavikur.
Horfurnar i verzlunarmálum
eru ekki sem beztar, vegna þess
hve innfluttar vörur hafa hækkað
mikið á sama tima og bankarnir
draga saman útlán sin. Siðasta ár
var geysimikið framleiðsluár,
veltan var gifurleg, en verzlunin
er frekar illa stæð.
Hermann Hansson
fulltrúi, Höfn.
— Rekstur Kaupfélags A-Skaft-
fellinga stendur traustum fótum,
en siðasta ár var að ýmsu leyti
nokkuð erfitt. Fiskurinn gaf af sér
tiltölulega minna en verið hefur,
og mikið hefur verið fjárfest i
hinu nýja frystihúsi á Höfn, sem
enn er ekki komið i gagnið.
Sláturhúsið verður endurbyggt i
gamla frystihúsinu, þegar hið
nýja verður tekið i notkun, sem
vonandi verður á næstu vertið.
Eftir erað fullgera fiskmóttöku,
koma fyrir vélum o. fl., en að-
staðan verður fullkomin og
möguleikarnir aukast verulega.
Einnig er á vegum kaupfélagsins
saltfisk- og skreiðarverkun.
Auk verzlunar á Höfn er útibú á
Fagurhólsmýri, en nú er verið að
byggja þjónustumiðstöð við
þjóðgarðinn i Skaftafelli i sam-
vinnu við náttúruverndarráð.
Hermann Ilansson Höfn
Verður þar verzlun og veitinga-
salaá smáréttum. Framkvæmdir
hafa dregizt nókkuð vegna óvenju
erfiðs vetrar, en vonir standa til,
að hægt verði að opna þessa þjón-
ustumiðstöð einhvern tima i júli.
Mikið af starfsemi kaupfél-
agsins er i tengslum við sjáv-
arútveginn, en um þriðjungur
veltunnar kemur frá sölu
sjávarafurða — hitt er verzlun og
sala landbúnaðarvara. Á sumrin
hefur talsvert verið byggt á
humarvinnslu, en veiðin hefur
farið minnkandi undanfarin ár.
Fyrstu dagar þeirrar vertiðar,
sem nú fer i hönd, gefa þó tilefni
til aö ætla, að humarvertiðin geti
orðið eitthvað betri, en verið hef-
u r.
Talsverður landbúnaður er i
héraðinu, og á siðasta ári var
tekið i notkun nýtt mjólkur-
samlag. Ennfremur hefur
tankvæðing verið tekin upp, og er
hún til mikilla bóta. Mikil
aukning hefur verið i framleiðslu
mjólkur og mjólkurafurða, eink-
um osts. Er osturinn m a.fluttur
út til Sviþjóðar og Banda-
rikjanna.
Við erum bjartsýnir, en þurfum
að tryggja jafnara hráefni til
vinnslu i hinu nýja hraðfrystihúsi.
Nú er i athugun að kaupa skut-
togara i þvi augnamiði, og verið
er að bæta aila aðstöðu i höfninni
sjálfri, m.a. með viðleguplássi
við nýja frystihúsið.
Árni Jóhannsson,
Blönduósi
— Afkoma Kaupfélags Hún-
vetninga var á siðasta ári heldur
betri en árið 1972. Félagið rekur 5
verzlanir, tvær á Skagaströnd og
þrjár á Blönduósi, ennfremur
söiuskála á Blönduósi. Rekstur
hans hefur gengið ágætlega, þvi
að ferðamannastraumurinn hefur
aukizt ár frá ári, og ég reikna
ekki með neinum verulegum
samdrætti við opnun syðri
leiðarinnar umhverfis landið.
Eitthvað verður að nota allan
þann fjölda af bifreiðum, sem
fluttur hefur verið inn, og löngu
sumarfriin. Þess má geta, að við
erum að byggja nýtt verzlunar-
húsnæði á Skagaströnd, sem er
um 260 fermetrar.
Sölufélag A-Húnvetninga er
aðskilið frá kaupfélaginu, en hef-
ur þó sama framkvæmdastjóra,
svo nokkur tengsl eru að sjálf-
sögðu þar á milli. Sölufélagið sér
um rekstur mjólkursamlags,
sláturhúss o. fl. Stjórnirnar eru
tvær, og hefur þetta fyrirkomu-
lag gefið góða raun. Eingöngu
framleiðendur eru félagar i Sölu-
félaginu, þ.e. bændurnir, og er þvi
engin hætta á þvi, að þeir missi
völdin i sinu félagi.
Sölufélagið er búið að byggja
upp sláturhúsið, og byggingu
kjötfrysihúss er að verða lokið.
Ennfremur er búið að fjárfesta i
tankvæðingu við mjólkur-
flutninga, þannig að við stönd-
um vel að vigi.
Ákaflega erfitt er að segja
Arni Jöhannsson Blönduósi
nokkuð um framtiðarhorfurnar.
Frá sjónarmiði verzlunarinnar er
útlitið ekki gott, t.d. er mjög erfitt
með allt rekstrarfé og litill
hagnaður á þeim vettvangi. Flest
minni félögin eru fremur illa sett
en burtséð frá verzluninni held ég
að útlitið sé nokkuð gott hjá okk-
ur, þvi mikil uppbygging hefur átt
sér stað. eins og ég gat um áðan.
landsbyggðinni á 72. aðalfundi SIS, 1974