Tíminn - 13.06.1974, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 13. júni 1974
TÍMINN
19
' j
Framhaldssaga
FYRIR
BÖRN
Anna Erslev:
FANGI KONUNGSINS.
(Saga frá dögum Loð-
viks XI. Frakkakon-
ungs).
Sigriður Ingimarsdóttir
þýddi.
,,Heyrðu, lagsi, syngdu
eitt lag enn.”
,,Fyrirgef ið, hái
herra, ég get ekki sungið
meira, ég hefði hvorki
bragðað vott né þurrt
óralengi,” svaraði
Georg og hugði nú á
tækifæri til að hressa sig
á matarbita.
,,Strákurinn hefur rétt
fyrir sér,” sagði höfuðs-
maðurinn, óvenju bliður
i máli. ,,Ekki er hægt að
syngja gleðisöngva,
þegar garnirnar gaula
af sulti. ,,Seztu hérna og
éttu með okkur.”
Georg lét ekki segja
sér það tvisvar, settist
við borðið og át þar og
drakk af beztu lyst.
Ræningjarnir horfðu á
hann forviða, og
foringinn sagði: ,,Jæja,
litli vinur, það litur ekki
út fyrir að hræðslan við
dauðann hafi rænt þig
matarlystinni.”
,,Ó, nei,” sagði piltur-
inn djarflega. ,,Það tjáir
ekki að mögla. Bezt er
að gripa gæsina, þegar
hún gefst.”
,,Þú ert ekki fæddur i
gær, lagsi!” sagði
foringinn og klappaði á
herðar hans. ,,En
syngdu nú eitt lag enn.”
Svo söng George ljóðið
um riddarann, sem
frelsaði kóngsdótturina
og drap drekann, um
nornina, sem breytti
jómfrúnni i dádýrshind,
og margar aðrar visur-
gamanvisur og sorgar-
ljóð.
Ræningjarnir
hlustuðu hrifnir, og urðu
æ mildari i skapi.
Að lokum lagði hann
lútuna til hliðar og
r
llMÍiliiii
afTTlll
J8LJJ
Ef þið verðið ekki heima
á kjördag
Kjósendur, sem ekki veröa heima á kjördag, kjósið sem fyrst hjá
hreppsstjóra, sýslumanni eða bæjarfógeta. 1 Reykjavik er kosið
i Hafnarbúðum alla virka daga kl. 10-12, 2-6 og 8-10 á kvöldin.
Sunnudaga kl. 2 til 6.
Skrifstofan I Reykjavik vegna utankjörstaðakosninga er að
Hringbraut 30, símar: 2-4480 og 2-8161.
Akureyringar nærsveitamenn
Almennur stjórnmálafundur veröur haldinn á Hótel KEA föstu-
daginn 14. júni kl. 21. Dagskrá: Ingvar Gisiason flytur ávarp,
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra ræðir stjórnmála-
viðhorfið. Fundarstjóri Ingi Tryggvason. Fjölmennið á Hótel
KEA. Allir velkomnir.
B-listinn.
Kópavogur
Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Kópavogi heldur fund aö
Neðstutröö 4 fimmtudaginn 13. þ.m. kl. 20:30. Dagskrá: 1. Al-
þingiskosningarnar 2. Bæjarmál 3. önnur mál. stjórnin
Kosningaskrifstofa í
Njarðvíkum
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins i Njarvikum er að
Holtsgötu 1 Ytri Njarövik. Hún veröur opin alla virka daga frá
kl. 20 til 22 og um helgar frá kl. 15 til 22. Siminn er 92-3045. Fram-
sóknarfélagið I Njarðvikum
Almennir kjósendafundir
frambjóðenda Framsóknarflokksins i Norður-
landskjördæmi eystra verður i
Félagsheimilinu Ljósvetningabúð fimmtudag-
inn 13. júni kl. 9 e.h.
I félagsheimilinu Laugaborg laugardaginn 15. júni kl. 21.
I félagsheimilinu Kópaskeri sunnudaginn 16. júni kl. 14.
I félagsheimilinu Skúlagarði sunnudaginn 16. júni kl. 14.
1 félagsheimilinu á Þórshöfnþriðjudaginn 18. júni kl. 21.
1 félagsheimilinu á Húsavlk miðvikudaginn 19. júni kl. 21. Stutt
ávörp. Frambjóðendur sitja fyrir svörum fundargesta. Kaffi-
veitingar.
t Víkurröst Dalvik fimmtudaginn 20. júni kl. 21. Stutt ávörp.
Frambjóðendur sitja fyrir svörum fundargesta. Kaffiveitingar.
Frambjóðendur B-listans.
„„ - 1. DEILD
W íslandsmót
KSÍ
Laugardalsvöllur
í kvöld kl. 20 leika:
Fram — ÍA
Knattspyrnudeild Fram
n mein
afköst mea
- stjörnu
Ný tækni. Rakar
i jafna, lausa
múga. Rífur ekki
grassvörðinn. Hreinna hey. KS 80 D. Vinnslubreidd 2,8
m. Lyftutengd. Leiðbeiningabók á islenzku.
ÞÚRHF
Símar skrifstofu
Framsóknarflokksins
SKRIFSTOFUSÍMAR 2-11-80
Ingvar Gíslason 2-24-81
Stefdn Valgeirsson 2-24-80
Ingi Tryggvason 2-24-82
FUF — dansleikur
Dansleikur verður i samkomuhúsinu borgartúni 32.
á fimmtudaginn frá kl. 9 til 1. (FUF I Reykjavík)
Stjórnmálafundur
Framsóknarflokksins
í Skagafirði
t Héðinsminni, Akrahreppi fimmtudag 13. júni kl. 21. Frum-
mælendur Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra, Páll Pétursson
og Guðrún Benediktsdóttir.
Kosningaskrifstofa
Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi vestra
Skrifstofan er I Framsóknarhúsinu, Sauðárkróki og er hún opin
alla virka daga frá kl. 16 til 19 og 20 til 22, en um helgar frá kl. 14
til 22. Siminn er 95-5374.
^Kosningaskrifstofan Hornafirði ^
Kosningaskrifstofan er að Hliðartúni 19, simi 97-8382.Hún er opin
frá kl. 15:30 til 19 (lengur siðar).
Sauðárkrókur
REYKJAVIK SKOLAVORÐU5TIG 25
TRAKTORAR
Framsóknarfélag Sauðárkróks heldur fund i Framsóknar-
húsinu, Sauðárkróki miðvikudaginn 12. júni kl. 21.
Frambjóðendur flokksins, Ólafur Jóhannesson, forsætisráð-
herra, Páll Pétursson og Guörún Benediktsdóttir mæta á fundin-
um.
Framsóknarfélag Sauðárkróks.
Aðalfundur FUF ó Hvammstanga
Aðalfundur Félags ungra framsóknarmanna i Vestur-Hún.
verður haldinn I Félagsheimilinu á Hvammstanga föstudaginn
14. júni kl.21.00. Á dagskrá verða auk aðalfundarstarfa umræður
um stjórnmálaviðhorfiö og starfsemi FUF i V.-Hún.
Nefndin.
Kosningaskrifstofur
Framsóknarflokksins
Vesturland
Borgarnes: simi 93-7480
Kosningastjóri: Jóhanna Valdimarsdóttir
Vestfirðir
ísafjörður: simi 94-3690
Kosningastjóri: Eirikur Sigurðsson
Norðurland vestra
Sauðárkrókur: simi 95-5374
Kosningastjórar: Magnús Ólafsson, Ólafur Jóhannsson
Norðurland eystra
Akureyri: simar 96-21180, 96-22480-81 og 82
Kosningastjóri: Haraldur Sigurðsson.
Austurland
Egilsstaðir: simi 97-1229
Kosningastjóri: Páll Lárusson
Suðurland
Selfoss: simi 99-1247
Kosningastjóri: Guðni B. Guönason
Reykjanes
Keflavik: simi 92-1070
Kosningastjóri: Kristinn Danivalsson.
Hafnarfjörður: simi 91-51819
Kópavogur: slmi 91-41590
Kosningastjóri: Helga Jónsdóttir