Tíminn - 28.06.1974, Page 4
4
TÍMINN
Föstudagur 28. júnl 1974.
stór brjóst. Auðvitað leyfir
trúflokkurinn, sem fékk hinn
hluta peninganna, ekki sllkt, en
Bobby er nú undantekning, og
það er ekki hægt að gera neitt i
þvi, þótt hann hafi gaman af að
skemmta sér með stúlkum. t
hálft ár fór allur timi skák-
meistarans i kvenfólk, að þvi er
sagt er, en nú er þvi lokið, og
hann helgar sig skákinni á ný.
Hið Ijúfa líf
Bobby Fischers
Bobby Fischer varð heims-
meistari i skák, eins og flesta
rekur vist minni til, árið 1972.
Að þvi loknu hvarf hann
umheiminum með alla þá pen-
inga, sem hann hafði unnið til.
Nokkur hluti peninganna fór
þegar til kirkjusamtaka nokk-
urra I Bandarikjunum, sem
hann styður, og eru samtök
þessi talin heldur öfgasinnuð.
Hinn hlutinn fór i stúlkur með
Margt er gert d
dagheimilinu
Þessar skemmtilegu myndir
eru teknar á dagheimili I Pól-
landi. A annarri myndinni sjá-
um við litinn herra vera að
bursta hárið á einni litlu stúlk-
unni á heimilinu. Honum ferst
það vel úr hendi, og gerir það
greinilega af mikilli ánægju. Á
hinni myndinni sjáum við nokk-
ur börn, sem hafa setzt til borðs
með fóstrunni sinni. Hún er að
kenna þeim borðsiðina, og
gengur það eftir þvi sem bezt
verður séð mæta vel. 1 textan-
um, sem myndunum fylgir seg-
ir, að einungis sérhæft fólk gæti
barnanna á barnaheimilunum
og allt kapp sé lagt á að þeim
liði sem bezt, og læri sem mest.
Farfuglaheimili -4É
um allan heim
Farfuglaheimili má finna við
bæði Nil og Ganges, þau eru
einnig i Ástraliu, á Islandi og i
Kenya og Kanada. í 48 löndum
hafa samtök farfugla komið upp
hvorki meira né minna en 300
þúsund farfuglaheimilum, og
þar gista árlega 25 milljónir
unglinga, sem hafa lagt upp i
ferðir I þeim tilgangi að vikka
sjóndeildarhringinn og sá sig
um i heiminum. Nýlega var
haldið upp á 100 ára afmæli
Richards Schirrmanns, þess er
fyrstur fékk hugmyndina að
farfuglaheimilunum. Hann var
kennari og setti á fót fyrsta far-
fuglaheimilið árið 1909 i borg-
inni Altona. Farfuglaheimilið
var til húsa I gömlu húsi byggðu
1874. Þetta elzta farfuglaheimili
er enn við lýði, og þar hittast
ungir farfuglar gjarnan og
dveljast um stund. Hugmynd
Schirrmanns var sú,að fólk gæti
ferðazt um heiminn og hitzt og
rabbað saman, og á þann hátt
mættibæta sambúð þjóða i milli
með vinsemd og auknum skiln-
ingi.Þessi mynd er frá elzta far-
fuglaheimilinu I Altona i Þýzka-
landi.
DENNI
DÆMALAUSI
Er þetta dótið, sem ég mátti ekki
skemma matarlystina fyrir.