Tíminn - 28.06.1974, Side 19
Föstudagur 28. júni 1974.
TÍMINN
19
Jón Helgason
og tryggja fiskimiðin. Við höfum
þó ekki verið settir hjá, stórfram-
kvæmdir eru um allt land núna.
Vil ég þar sérstaklega benda á
St jórnarandstaðan:
mæta til funda fullir
bölsýni. Athugandi er
að þessir dapurlega
hugsandi menn, sem nú
vilja taka við stjórn,
minnast ekki á það
hvernig þeir ætla að
leysa vandann.
hringveginn. Min heimabyggð,
sem verið hefur i hópi afskekktra
byggða þessa lands, tengist nú i
einu vetfangi við ný lönd, og nýtt
fólk á Austurlandi. Vegurinn yfir
Skeiðarársand er stærsta átak,
sem gert hefur verið i vegamál-
um á íslandi og er þá engin önnur
vegaframkvæmd undanskilin.
Framkvæmdum þar er nú að
ljúka eftir aðeins tveggja ára
vinnu.
— Þessi vegagerð gjörbreytir
aðstöðunni á austurhluta Suður-
lands, tengir Austurland við
þessa byggð, Skaftafellssýslur og
mun hafa mikil áhrif á allt i
Suðurlandskjördæmi, að ekki sé
nú minnzt á Austurland og suður-
hluta Austfjarða, sem nú eiga
greiðari samgöngur við önnur
héröð. Það var Framsóknar-
flokkurinn, sem beitti sér fyrir
þessari vegagerð og það er vinstri
stjórnin, sem réðst i þessa stór-
framkvæmd með þjóðina að baH.
Tel ég hringveginn vera eitt bezta
verk rikisstjórnar Ólafs Jó-
hannessonar.
Dapurleg
stjórnarandstaða
— Hvernig ber stjórnarand-
staðan sig á framboðsfundunum?
— Stjórnarandstaðan og hennar
fulltrúar mæta til funda fullir böl-
sýni á öllum sviðum. Ég vil þvi
nota tækifærið til þess að vara
menn sérstaklega við þvi að
leggja trúnað á þeirra málflutn-
ing. Við skulum gera okkur grein
fyrir ýmsum staðreyndum máls-
ins. Það eru aðeins liðnir 3/4 hlut-
ar þess kjörtimabils, er áætlað
var, þegar rikisstjórnin var knúin
til kosninga. Ef kosið hefði verið
siðar, hefði staðan verið önnur.
Togarar eru enn að koma til
landsins og ný atvinnutæki, sem
aflað hefur verið, eru naumast
enn komin i gagnið. Afraksturinn
er aðeins að byrja að skila sér.
Það er t.d. táknrænt, að þorskafli
togaranna á fyrstu fimm mánuð-
um þessa árs hefur tvöfaldazt og
svona er það á ýmsum sviðum.
Framleiðslan er að byrja að auk-
ast og hún mun margfaldast á
þessu ári og hinu næsta.
Ólafur lagði fram
tillögur sem leystu
vandann i
efnahagsmálum
Ólafur Jóhannesson lagði fram
Itarlegar tillögur i efnahagsmál-
um, þar sem efnahagsvandinn
var leystur, en þessir sömu menn
fengust ekki til þess að hlusta og
þvi er gengið til kosninga nú. A
heilu kjörtimabili hefði staðan
verið miklu betri en hún er núna
og ráðin hefði verið bót á efna-
hagsvandanum, sem er smávægi-
legur miðað við annað, sem við er
að etja.
— Það er lika athugandi, að
þessir dapurlega hugsandi menn,
sem vilja nú taka við stjórn,
minnast ekki á það hvernig þeir
ætla sér að leysa þennan mikla
vanda, sem þeir tala um.
— öllum hlýtur að vera það
ljóst, að þegar stórkostlegar
framkvæmdir og sókn I atvinnu-
málum hefst eftir atvinnuleysi og
framkvæmdaleysi, sem ein-
kenndi stjórnartimabil Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokks-
ins, eða „viðreisnina”, þá hlaut
verðbólga að fylgja i kjölfarið.
Næg atvinna var handa öllum og
þjóðin hafði fullar hendur fjár,
sem hún hafði unnið fyrir. Verð-
bólgan hlaut að koma, og það
voru lagðar fram tillögur um
lausn vandans og þær munu koma
til framkvæmda, ef stjórnin held-
ur velli.
«
Að bregðast,
— Ég efast um að menn vildu
skipta, og ég vara alla kjósendur
við úrtölumönnum og bölsýnis-
mönnum, að fá þeim völd i þjóð-
málum. Það verður ekki búið á
íslandi, ef menn nærast á bölsýni.
Varar við úrtölu-
mönnum og bölsýni
— Það hefur aldrei þótt vænlegt
að fela þeim forystu, sem ekkert
sjá annað en ófarir framundan.
— Framsóknarmenn
eru bjartsýnir á fylgis-
aukningu I Suðurlands-
kjördæmi og byggjum
þá bjartsýni á þeim
áhuga, sem fólk hefur
sýnt á að auka fylgi
flokksins og erum við nú
vongóðir um að Guð-
mundur G. Þórarinsson,
verkfræðingur nái kjöri.
Tel ég að það væri af þvi
mikill ávinningur fyrir
Sunnlendinga, sagði Jón
Helgason, bóndi á Segl-
búðum að lokum. JG.
Afhending
prófskír-
teina og
doktorskjör
AFHENDING prófskirteina til
kandidata fer fram við athöfn I
Háskólabiói laugardaginn 29. júni
1974 kl. 14.
Rektor Háskóla tslands, pró-
fessor Guðlaugur Þorvaldsson,
flytur ávarp, en siðan afhenda
deildarforsetar prófskirteini.
Þá verður lýst doktorskjöri og
afhent doktorsbréf. Forseti heim-
spekideildar, prófessor Sigurjón
Björnsson, lýsir kjöri Gunnars
Gunnarssonar, Peters Hallberg
og Þórbergs Þórðarsonar, sem
sæmdir voru heiðursdoktorsnafn-
bót fyrr á þessu ári. Forseti verk-
fræði- og raunvisindadeildar,
prófessor Guðmundur Björnsson,
lýsir doktorskjöri Steingrims
Jónssonar, fyrrverandi raf-
magnsstjóra, er sæmdur var
heiðursdoktorsnafnbót hinn 18.
þ.m.
Tónlist verður flutt undir stjórn
Þorvaldar Steingrimssonar.
Ollum er heimill aðgangur.
skyldi
t bæjarstjórnarkosningunum
26. mai sl. sýndi Framsóknar-
flokkurinn, hversu sterkur hann
er á ströngum stundum. Nokkru
fyrir kosningarnar hafði hópur
manna, sem kallaði sig vinztri
framsóknarmenn skorað opin-
berlega á flokksmenn að kjósa
aðra flokka. Samt sem áður hafði
þetta tilræði við flokkinn engin
sýniheg áhrif.
Tiltæki svokallaðra Möðru-
vellinga, sem nú bjóða fram sér-
staklega gegn Framsóknar-
flokknum er mikið undrunarefni.
Hvers vegna sögðu þeir skilið við
flokkinn einmitt nú eftir að
Framsóknarflokkurinn hefur um
þriggja ára skeið haft á hendi
forystu I vinstri stjórn, em svo
miklu góðu hefur komið til léiðar.
Umskiptin, sem orðið hafa á hag
dreifbýlisins og byggðinni i
kringum landið eru réttilega
nefnd bylting. Þar sem áður hafði
verið áratuga kyrrstaða, er nú &
skammri stund allt orðið iðandi af
bjartsýni og athafnagleði. í
varnarmálunum hefur öll rikis-
stjórnin einnig staðið á bak við
Einar Agústsson og stefnu hans
til lausnar þeim, enda hefur
stefna hans miklu meiri breyt-
ingu i sér fólgna en stefna gömlu
vinstri stjórnarinnar.
Ef rökbundið mat á málefnum
réði afstöðu svokallaðra Möðru-
vellinga, hefðu þeir eftir þriggja
ára farsælt starf rikisstjórnar
Ólafs Jóhannessonar átt að
standa dyggilegar en nokkru
sinni á bak við forystu flokksins.
En eins og kunnug má vera, er
öðru að heilsa. Þessir menn velja
óskiljanlega stund til að rjúfa
samstöðuna með fyrri félögum.
Og fram á málefnaágreining
hefur þeim ekki tekizt að sýna.
Það er vitað af langri reynslu, að
öll klofningsstarfsemi hlýtur að
veikja málstað þann, sem vinstri
menn berjast fyrir. En engin
skynsamleg rök né talandi verkin
um farsælt starf forystu Fram-
sóknarflokksins hafa megnað að
halda aftur af þessum mönnum.
Ef dýpra er skyggnzt verður
bert, að þessir menn hafa ekki
skilið við flokkinn af málefna-
legum ástæðum heldur af annar-
legum hvötum, og kom frama-
girni þeirra þar fyrst og fremst til
í Framsóknarflokknum sóttust
þeir eftir trúnaðarstörfum af
meiri ákefð en aðrir menn, og
varð nokkuð ágengt. Þegar þeir
komust ekki lengra, reyndu þeir
að berja vilja sinn I gegn með
persónulegum árásum á þá menn
sem þeir töldu vera fyrir sér. Og
siðast tóku þeir leynt og ljóst að
beita stofnunum flokksins fyrir
sig, með það fyrir augum að
kljúfa flokkinn.
Af þessum rótum var runnin
hin mikla ákefð þessara manna i
að ná völdum i Félagi ungra
framsóknarmanna i Reykjavik á
liðnu hausti, en það mistókst, eins
og kunnugt er. Eftir ósigurinn
báru þeir þvi við, að þeir hefðu
beðið ósigur af þvi einu, að meiri-
hlutinn hefði beitt ólögum.
Jafnan hafa þeir og hrópað um
lögleysur, þegar þeir hafa ekki
haft vilja sinn fram.
Þess má þó geta, að þessir
sömu menn Elias Jónsson, og
Ólafur Ragnar Grimsson og
nokkrir aðrir, hafa haft á hendi
stjórn SUF með þvi að brjóta lög
SUF. Samkvæmt 5. gr. laga SUF,
eins og þau voru samþykkt á
næstsiðasta þingi SUF skyldu
þeir einir geta orðið félagar I
félögum ungra framsóknar-
manna, sem eru á aldrinum 15-
30. ára, og skyldu ákvæði þetta
taka gildi á siðasta þingi SUF. Af
ótta við að lenda I minnihluta á '
þinginu gerðu þeir ólafur
Ragnar Grimsson og fylgifiskar
hans þó ekkert til að framkvæma
ákvæðið, heldur mættu á þinginu
fulltrúar allt að 36 ára að aldri.
Var slðan ákvæðum laga SUF
aftur breytt i skyndi, — að visu
ólöglega — og hin nýja stjórn SUF
kosin með Elias Jónsson sem for-
mann.
Það var þegjandi samkomulag
framsóknarmanna, á meðan
þessir menn voru innan flokksins,
að forðast eftir megni opinberar
deilur við þá, sem aðeins hlutu að
verða óvinafagnaður. En nú ber
hs-Rvik. Að mati manna, sem
voru á útifundi Sjálfstæðisflokks-
ins I Lækjargötu i gær, munu milli
1500-2000 manns hafa hlýtt á
hvatningarorð Gunnars, Geirs og
Birgis. Þessar fáu manneskjur
stóðu á vlð og dreif um torgið, I
alveg einstöku bliðviðri, og voru
undirtektir þeirra eindæma fá-
legar.
Þessi hópur hefði fyllt sæti Há-
er sízt
nauðsyn til að vekja athygli á fá-
einum vinnubrögðum þeirra, er
þeir hafa sagt skilið við fiokkinn.
Það eru meinleg örlög manna,
sem telja sig vera að berjast fyrir
málstað vinstri stefnu, að verða
andstæðingunum að liði með þvi
að taka að beina spjótunum að
fyrrverandi samherjum. Einna
ömurlegast er þó hlutskipti Frið-
geirs Björnssonar, fulltrúa
Borgardómara i Reykjavlk, að
lenda I þvi að ráðast gegn ólafi
Jóhannessyni forsætisráðherra,
manninum, sem borið hefur hita
og þunga samstarfsins og þess
farsæla árangurs, sem náðst
hefur I vinstri stjórninni.
Friðgeir á jörðina Presthvamm
við Laxá i Aðaldal. 1 Laxár-
deilunni frægu var hann einn af
mögum landeigendum við ána,
sem skrifuðu undir mótmæla-
skjal gegn virkjunarfram-
kvæmdum Laxárvikrjunar. 1
skjalinu segir, að landeigendur
hafi „bundizt órofa samtökum
einn fyrir alla og allir fyrir einn
um að verja rétt vorn og fram-
tlðarvelferð laxár”, og enn
fremur sagði, að yrðu „fram-
kvæmdir hafnar i andstöðu við
oss, munum vér beita okkur til-
tækum ráðum til að hindra þær”.
Ekki liðu þó nema nokkrar vikur
þar til Friðgeir hafði gert samn-
ing við Laxárvirkjun um sölu á
sandi og möl til virkjunarfram-
kvæmdanna. Þótti mörgum Frið-
geir hafast einkennilega að og i
anzi miklu ósamræmi við heit-
strengingar sinar. Raunar þótti
hann bregðast, er verst gengdi og
sizt skyldi sýslungum sinum.
Nú bregzt Friðgeir, enn einu
sinni þeim, er hann hafði bundizt
flokksböndum með, og enn sem
fyrr, þegar minnst var ástæðan
og sizt skyldi. —TK
skólabiós, en ótti Sjálfstæðis-
manna við að fjöldinn kæmist
ekki inn I Laugardalshöll, hefur
með öllu verið ástæðulaus. Ungar
stúlkur gengu þarna milli manna
með bauka, ef vera skyldi að ein-
hver vildi gefa i kosningasjóðinn,
en menn virtust taka þeim jafn
fálega og orðum forkólfanna.
Piltur
óskast í sveit
14-15 ára piltur óskast í
sveit strax. — Upp-
lýsingar í síma 3-52-49.
'FERÐAFÓUv
Munið Hótel
ÞÓRISTÚN
Eina gistihúsið á
< SELFOSSI >
Reglumaður
óskar eftir herbergi
sírax. Er á götunni —
Upplýsingar í síma
13223 kl. 21-22.
Guðmundur
Kristjánsson
Veiting héraðslæknisembættis
í Eyrarbakkahéraði
Athugasemd við greinargerð
Heilbrigöis- og tryggingamála-
ráöuneytisins viö veitingu
héraöslæknisembættis i Eyrar-
bakkahéraöi
1 greinargerð frá ráöuneytinu
dags. 12. þ.m., sem birzt hefur
a.m.k. I dagblaðinu Timanum,
lýsir ráðuneytið yfir þvi, að hlut-
verk stöðunefndar skv. 33. grein
laga um heilbrigðisþjónustu nr.
56/1973, sé ekki að raða um-
sækjendum um læknastöður eftir
hæfni, heldu einungis, að dæma
um, hvort þeir séu hæfir eða ekki
hæfir.
1 33. gr. laganna segir:
„Ráðherra skipar 3 lækna I
nefnd, er metur hæfni um-
sækjenda um stöðu landlæknis,
stöður yfirlækna, sérfræðinga,
héraðslækna og lækna heilsu-
gæzlustöðva. Nefndin skal þannig
skipuð: 1 tilnefndur af Lækna-
félagi Islands, 1. tilnefndur af
læknadeild Háskóla Islands og
landlæknir, og er hann jafnframt
formaður nefndarinnar”. Og enn-
fremur „Þegar um er að ræða
stöður yfirlækna og sérfræðinga,
hefur nefndin heimild til að
kveðja 2 sérfræðinga sér til ráðu-
neytis”.
Nefndinni er vitaskuld fullljós
réttur ráðherra til að skipa I em-
bætti hvern þann umsækjanda,
sem hæfur er talinn. Hins vegar
er nefndin ósammála túlkun
ráöuneytisins á hlutverki hennar
og telur, að sú túlkun geti ekki
verið I samræmi við vilja lög-
gjafans. Fyrir þessu eru eftirtalin
rök.
Lækningaleyfi gerir alla lækna
faglega hæfa til þess að gegna
hverri þeirri læknisstöðu, sem
ekki krefst sérfræðingsviður-
kenningar, svo sem til þess að
vera heilsugæzlulæknar eða
héraöslæknar skv. eldri lögum,
en engu að siður gætu þeir verið
mjög mishæfir.
Sérfræðingsviðurkenning gerir
alla sérfræðinga að auki faglega
hæfa til þess að gegn öllum sér-
fræðingsstörfum i sérgrein við-
komandi læknis, svo sem til þess
að vera yfirlæknir eða sér-
fræðingar á sjúkrahúsum, en um
sérfræðinga gegnir vitanlega
sama máli og um almenna lækna,
og þeir gætu verið mjög mishæfir.
1 reynd er það svo, að læknar
sækja varla um ofannefndar
stöður, nema ofangreindum
skilyrðum sé fullnægt.
Við teljum ótvlrætt, að með
skipun þessarar nefndar, sem þar
að auki hefur heimild til að
kveöja 2 sérfróða menn til ráðu-
neytis, við mat á hæfni um-
sækjenda, hafi löggjafinn ætlað
nefndarmönnum að velja á milli
umsækjenda þ.e. raða þeim
niður eftir faglegri hæfni, ef unnt
reynist.
Guðmundur Jóhannesson læknir,
fulltrúi Læknafélags Islands.
Þorvaldur V. Guðmundsson,
læknir, fulltrúi Læknadeildar Há-
skóla Islands.
Ólafur Ólafsson landlæknir
Sýning í Gallerí SÚM
gb Rvik. — Miövikudaginn 26.
júni var opnuð sýning á verkum
Hreins Friöfinnssonar I Galleri
SÚM viö Vatnsstig. Sýningin
stendur til 10. júli.
Hreinn Friðfinnsson er fæddur
1943 að Bæ i Dölum. Hann hefur
verið búsettir i Amsterdam i Hol-
landi siðan 1971. Fimm einkasýn-
ingar hefur Hreinn haldið I Hol-
landi, og tekið þátt i ýmsum
samsýningum hér á landi og i
Danmörku, Hollandi, Frakklandi
og viðar. Fyrsta samsýningin,
sem Hreinn tók þátt i, var SOM I.
I Asmunardal árið 1965. Hreinn
Friðriksson við eitt verka sinna.
FÁMENNI í FÁ-
DÆMA BLÍÐVIÐRI
— á útifundi Sjólfstæðismanna