Tíminn - 02.07.1974, Side 4
14
TÍMINN
Þriöjudagur 2. jdli 1974.
■
oqq-
Lhæöu
JÓN ALFREÐSSON....
miðvallarspilarinn snjalli frá
Akranesi, kom I veg fyrir þaö, aö
KR-ingum tækist aö stööva sigur
göngu Skagamanna f 1. deildar-
keppninni. Jóni tókst aö skora
jöfnunarmark Skagamanna,
þegar aöeins 10 min. voru til
leiksloka, en þá skallaði hann
knöttinn glæsilega I mark KR-
liösins, eftir aö hann haföi fengiö
sendingu frá Heröi Jóhannssyni
sem tók hornspyrnu. Já, þaö heföi
veriö ósanngjarnt, aö KR-ingar
heföu fariö meö bæöi stigin til
Reykjavikur. Annars var leikur-
inn á laugardaginn mikiil sigur
fyrir hinn unga Karl Þórðarson —
þessi bráöcfnilegi leikmaöur,
sem hefur veriö aö skapa sér nafn
undanfarin tvö ár, er nú oröinn
okkar skeinmtilegasti sóknar-
leikmaöur. Karl hefur allt til aö
bera, til þess aö vera góöur lcik-
maöur — hraöa, tækni, hugsun og
snilldarsendingar.
Karl geröi hvað eftir annaö
mikinn usla i KR-vörninni og
hann lék sér stundum aö varnar-
mönnum KR, eins og köttur aö
mús. Þaö veröur örugglega ekki
langt til þess, að þessi ungi leik-
maöur, tryggi sér landsliössæti.
En nóg um það, snúum okkur þá
að leiknum uppi á Skaga.
Skagamenn byrjuöu leikinn af
miklum krafti og það var greini
legt á þeim, aö þeir ætluöu að
gera út um leikinn strax I byrjun.
Eflaust hefði þeim tekizt þaö, ef
Eyleifur Hafsteinsson, heföi not-
fært sér gulliö marktækifæri á 8.
min. Hann komst þá einn inn fyrir
KR-vörnina og átti ekkert annað
eftir en aö senda knöttinn f netið
framhjá Magnúsi Guðmundssyni,
markveröi KR. Eyleifur fór illa
aö ráöi sinu — Magnúsi tókst aö
bjarga marki á siöustu stundu.
Eftir þetta fór að dofna yfir
Skagamönnúm og KR-ingar fóru
aö færast i aukana og áttu þeir
nokkrar hættulegar sóknarlotur.
Knötturinn hafnaöi i marki
Skagamanna fljótlega, en markiö
var dæmt af vegna rangstööu —
vafasamur dómur. En KR-ingar
létu þessa mótspyrnu ekki á sig
fá, þeir skoruöu aftur og var þaö
mark löglegt. Jóhann Torfason
skoraöi markiö á 25. min. en þá
lék hann á tvo varnarmenn og
sendi knöttinn laglega i netiö,
eftir aö hann hafði fengiö
sendingu frá Alta Þ. Héöinssyni.
í siöari hálfleik tóku Skaga-
menn leikinn I slnar hendur og
fóru aö sækja, en sú sókn uppskar
ekki mark fyrr en 10 min. fyrir
leikslok, eins og fyrr segir. Vafa-
samt atvik átti sér stað í siöari
hálfleik, en þá virtist einn leik-
maöur KR-liösins slá knöttinn
meö hendi inn I vltateig og vildu
Skagamenn fá vitaspyrnu. Ekki
getur undirritaöur dæmt um
þetta, þar sem hann var ekki
nægilega vel staddur á
áhorfendastæðinu, til aö kveöa
upp dóm um þetta atvik.
Knapp
bókaður
TONY KNAPP.... þjálfari KR-
liösins fékk aö sjá gula
spjaldiö uppi á Skaga á
laugardaginn, þegar Akranes
og KR léku þar i 1. deildar-
keppninni. Þaö var Eysteinn
Guömundsson, sem bókaöi
Knapp, en hann lét mikiö aö
sér kveöa viö hliöarlinu
vallarins. Þetta er önnur
bókunin, sem Knapp fær á
keppnistimabilinu, þvi aö
hann var bókaöur I Rcykja-
vikurmótinu I leik KR-Iiösins
gegn Vlking.
-SOS.
Jón Alfreðsson bjargaði henni d síðustu
stundu, með því að jafna 1:1 gegn KR
Leikurinn upp á Skaga var sigur fyrir
Karl Þórðarsson, leikmanninn leikna
Eins og fyrr segir, þá lék Karl
Þóröarson mjög vel I Skagaliöinu.
Þá áttu þeir Þröstur Steíánsson
og Jón Alfreösson, góöan leik.
Haukur Ottesen var bezti maöur
KR-liÖsins, hann var mjög virkur
á miöjunni. Það varö nokkuö áfall
fyrir KR-liöiö, aö Jóhann Torfa-
son varö aö yfirgefa leikvöllinn,
stuttu eftir aö hann skoraöi og viö
þaö fór allur broddur úr framlínu
KR. -SOS.
KARL „litli” ÞÓRÐARSON... sést hér á fullri ferö meö KR-ing á hælunum. (Timamynd Jim).
Ólafur
var
maður
dagsins
— þegar Breiðablik
vann Völsung 3:2
Ólafur Friöriksson var maöur
dagsins, þegar Breiöablik vann
sigur yfir Völsugum 3:2 i Kópa-
vogi á laugardaginn. Hann
skoraöi þrjú mörk „hat-trick”, en
tvö siöustu mörk sin, skoraði
hann á 5. siöustu min. leiksins og
breytti þar meö stööunni úr 1:2 i
3:2. Meö þessum sigri Breiöa-
bliks, hafa öll toppliöin i 2. deild
unniö leiki sina 1 7. umferðinni og
er staðan þvi óbreytt á toppnum.
Hreinn Elliöason, skoraöi bæöi
mörk Völsunga gegn Breiöablik. -
SOS.
2. DEILD
Orslit leikja I 2. deildinni um
helgina fóru þannig:
Þróttur-Selfoss 2:1
Ísafjörður-FH _ 0:2
Haukar-Ármann 2:0
Breiöablik-Völsungur 3:2
FH
Þróttur
Breiöablik
Haukar
Völsungur
Selfoss
Ármann
Isafjöröur
3 2
3 1
3 0
15:2
11:6
8:5
9:7
13:14
8:12
7:19
2:18
Markhæstu menn:
Óiafur Danivalsson, FH
Guömundur Þórðars. Breiðab.
Sumarliöi Guðbjartss. Self.
Guöjón Sveinsson, Haukum
Júiius Bessason. Völsung.
Ólafur Friðriksson, Breiöabl.
Jóhann Hreiöarsson, Þrótti
Leifur Helgason, FH
11
11
10
8
7
6
2
1
6
6
5
4
4
4
4
4
Ákafir Framarar
gleymdu vörninni
þegar þeir töpuðu óvænt fyrir Akureyringum 2:3 ó Laugardalsvellinum
Akureyri vann Fram I
baráttu botnliðanna á
föstudaginn með þrem-
ur mörkum gegn tveim-
ur. Er þvi Fram á
botninum eftir fyrri um-
ferðina i fyrstu deild,
með 4 stig, en Akur-
eyringar eru stigi á
undan. Kemur þetta
mjög á óvart, þvi að
fyrir keppnina var búizt
við, að Framliðið
skipaði eitt af efstu sæt-
um deildarinnar, en að
undanförnu hefur liðinu
hrakað mjög, og það
sem háir þvi mest er, að
ekki virðist nokkur
maður i liði þeirra geta
nýtt marktækifærin,
sem oft skapast.
Sú leikaöferð sem liö Akur-
eyringa notaöi — þó aöallega i
seinni hálfleik — reyndist vel
gegn allt of áköfum Framurum,
sem allir ætluöu sér aö skora, en
gleymdu vörninni nægilega til
þess, aö Akureyringarnir gátu
meö hraöa sinum skoraö tvö
mörk á jafn mörgum minútum,
þvi að ef varnarmenn Framara
hætta sér of langt fram, þá tekur
þaö þá yfirleitt óratima aö koma
sér til baka.
Leikur þessi var annars fremur
þófkenndur og litiö um samspil,
heldur aöallega hugsaö um aö
koma knettinum langt frá sér, og
á þetta aöallega viö um Akur-
eyringa.
Akureyringar hófu leikinn meö
miklum látum og á fyrstu fimm
minútunum fengu þeir fjórar
hornspyrnur og eftir eina þeirra
bjargaöi Agúst á marklinu. Eftir
þetta jafnaöist leikurinn
nokkuð og skiptust liöin á
upphlaupum. A 20. minútu léku
Akureyringar upp vinstri
kantinn, gefið var á Jóhann
Jakobsson, sem. skaut að þvi er
virtist hættulausu skoti að marki,
en boltinn fór I Framara og
breytti stefnu þannig, aö Arni I
marki Fram átti ekki möguleika
á aö verja. Eftir markiö sóttu
Framarar stanzlaust og áttu
nokkur góö tækifæri, en ekkert
eins gott og þegar Jón Pétursson
stóö metra frá mannlausu marki
og þurfti ekki aö gera annaö en
renna knettinum I markiö, en
hann „kiksaði” illilega og rann
boltinn framhjá.
A 53. minútu leiksins gaf
Guðgeir góöan bolta fyrir markið,
þar sem Sigurbergur stóö einn og
óvaldaöur og átti hann ekki I
vandræðum meö aö skalla inn.
Eftir þetta mark ætla Framarar
sér aldeilis að bæta ööru viö, en
viti menn, á 60. og 62. minútu
skora Akureyringar mörk eftir
herfileg varnarmistök hægri bak-
varðar Fram. 1 fyrsta skiptiö
missti hann Sigurbjörn Gunnars-
son inn fyrir sig og skoraði hann
framhjá Arna i markinu, og i
seinna skiptið lét hann hiröa
knöttinn af sér við endamarka-
iinu, boltinn var gefinn fyrir til
Gunnars Blöndal, sem skoraði
meö góðu skoti.
Þrátt fyrir aö Framarar
reyndu mikiö til þess aö jafna, þá
tókst þeim ekki aö bæta nema
einu marki við, en þáö geröi
Kristinn Jörundsson á 83. mlnútu,
eftir aö Jón Pétursson haföi
skotiö i slá.
Hjá Akureyringum voru beztir
þeir nafnarnir Gunnar Austfjörö
og Blöndal, sá fyrrnefndi var eins
og klettur I vörninni, en hinn m jög
fljótur og hættulegur sóknar-
maöur. Framliöiö lék langt undir
getu, eins og i undanförnum leikj-
um. Einu mennirnir, sem komust
nokkurn veginn skammlaust frá
leiknum voru þeir Sigurbergur
Sigsteinsson og Guðgeir Leifsson.
Dómari var Guöjón Finnbogason
og hafði hann ekki nógu góö tök á
leiknum, hann heföi mátt bóka
leikmenn I báðum liöum fyrir
ruddalegan leik.
O.O.