Tíminn - 05.07.1974, Side 4
4
TÍMINN
Föstudagur 5. júli 1974
Slípaðir eðalsteinar sem gleraugu
Þessi mynd er af manni meö
gleraugu er næstum 600 ára
gömul. Málverkið er frá þvi um
1400 og er það eftir meistarann
Konrad von Soest, en málverkiö
hangir i krikju I Bad Wildungen
i Þýzkaland. 1 meira en 2000 ár
hefur fólk gengiö meö gleraugu
af ýmsum ástæöum. Sumir
gera það vegna þess aö þeir sjá
illa, aðrir til þess aö vernda
augun gegn ofbirtu, og enn aörir
til þess eins að fylgjast meö
tizkunni, þvi auövitað er lika til
tizka i gleraugum eins og flestu
ef ekki öllu ööru. Lestrargler-
augu voru fyrst fundin upp i
Evrópu um aldamótin 1200. Þá
notuðu menn reyndar ekki
slipað gler til þess að bæta sjón-
ina, heldur eðalsteina. Sumir
segja að oröiö „briller”, sem
þýðir gleraugu á t.d. Norður-
landamálunum, sé dregiö af
þessum steinum, sem hafi veriö
kallaöir bryll.
• •
Framdi morð út
af skallanum
Maöur nokkur i Salon-de-Pro-
vence I Frakklandi framdi
nýlega morð vegna þess að hon-
um'var stritt á þvl að vera sköll-
óttur. Maöurinn er 37 ára gam-
all og heitir Rahmoudi Mo-
hammed og er frá Tunis, en
starfaöi i verksmiðju I
Frakklandi. Hann hafði oft
oröiö ævareiður vegna þess
• •
aö vinnufélagar hans striddu
honum með þvi, að hann væri
sköllóttur. Meðal Múhameðs-
trúarmanna er það mjög
alvarlegt mál, að vera sköll-
óttur, þar sem það er talið
merki um skort á kyngetu, og
um leið gerir þaö mönnum
ókleift að frelsast. Nýlega sagði
svo annar Tunisbúi, Hamed
Abidi, 29 ára gamall, — Þú
kemst aldrei til Paradisar Rah-
moudi, af þvi að þú ert sköllótt-
ur. Rahmoudi réðist þá gegn
landa sinum og stakk hann
mörgum sinnum með hnifi, en
Hamed dó fáum klukkustundum
siöar. Rahmoudi komst undan,
og þegar siðast fréttist hafði
lögreglan ekki fundið hann.
• •
Vísað úr landi
vegna kaviarkaupa
Moskvu-fréttaritari frönsku
fréttastofunnar AFP hefur verið
rekinn úr landi I Rússlandi fyrir
aö þvi er sagt er, að hafa keypt
eitt kilógramm af kaviar á
svörtum markaði. Ástæðan fyr-
ir brottvisuninni mun þó hafa
verið allt önnur. Fréttamaður-
inn Daniel Saint-Hamont var
kallaður fyrir sovézka stjórn-
endur og honum sagt, að hann
hefði einungis tvo daga til stefnu
til þess að koma sér úr landi.
Yfirboöarinn sagði, að ekki
væri um neinar persónulegar
ástæöur fyrir brottvisuninni að
ræöa, þvi að i rauninni likaði
sovézkum valdamönnum vel við
Saint-Hamont, og töldu þeir
hann réttsýnan fréttamann. En
hópur franskra sjónvarps-
starfsmanna hafði komiö til
Sovétrikjanna undir þvi yfir-
skini, að þeir ætluðu að kvik-
mynda fegurð steppunnar,
sagði Rússinn, en þeir hefðu svo
tekiö viðtal við hinn þekkta
rússneska visindamann Andrei
Sakharov, og smyglað þvi úr
landi. A einhvern hátt urðu yfir-
völdin að láta i ljósi óánægju
sina, sagði Rússinn ennfremur,
og þar sem Saint-Hamont var
Frakki og fréttamaður að auki
varö hann fyrir barðinu á yfir-
völdunum. Saint-Hamont segir,
að honum hafi ekki verið skýrt
frá þvi, að kaviarkaup hafi ver-
ið notuð sem ástæða fyrir brott-
visuninni, en þegar sovézk yfir-
völd gáfu út tilkynningu um
máliö var kaviarinn kominn I
spilið, og sagt að hann væri
ástæða fyrir brottvisuninni.
Allt fró safngripum til nýjustu
Siems-símatölvu
Hér á myndinni sjáið þið fyrsta
simann, sem visindamenn I
Frankfurt I Þýzkalandi fengu að
sjá árið 1861 og sá sem sýndi
þeim þennan merkil. sima var
Phillipp Reis. Visindamenn
þess tima brostu bara góðlát-
lega aö simanum, og töldu hann
tæpast þess virði að athuga
hann nánar, enda væri hann al-
gjörlega tilgangslaust verkfæri.
Neðar á þessari mynd sjáið þið
svo teikningu af stúlku, sem er
að svara I símann, eins og hann
var venjulegastur I útliti um
siðustu aldamót, en þá var hann
orðinn vinsæll og talinn næsta
ómissandi hjá öllum þeim, sem
ráð höfðu og tækifæri til þess að
fá sima. En nú til dags er siminn
til annarra hluta nytsamlegur
heldur en einungis að.ná síma-
sambandi við beztu vini sina.
Menn geta gerzt áskrifendur að
simalinu til tölvu, og þangað
geta þeir svo hringt og fengið
svör við næstum þvi hverju sem
er á örskammri stund. Neðst á
myndinni er stúlka við' eina
slika slmatölvu, sem framleidd
er hjá Siemens-fyrirtækinu I
Munchen. Sá, sem hringir og
biður tölvuna um upplýsingar,
fær svörin aftur til baka vélrituð
eins og sést lengst til hægri á
myndinni.
• •
Sveitabæir til sölu í Pyreneafjöllunum
Stofnun ein I Toulouse I Frakk-
landi hefur tekið upp á þvi að
auglýsa sveitabæi og hjarð-
mannabústaði til sölu, en aðal-
lega eru þessi mannvirki i
Pyraneafjöllunum. Mjög marg-
ir bændur hafa lagt niður bú-
skap á þessum slóðum, og þess
vegna er þarna mikið um ibúð-
arhúsnæði, sem hægt væri að
nýta til dæmis sem sumarbú-
staði. Verðið á eignunum er
mjög misjafnt allt frá 1500
pundum I 30 þúsund pund, eða
aíít frá 3-400 þúsund krónum og
upp I 6-7 milljónir. Fer þetta
auövitað eftir stað og ásigkomu-
lagi bygginga. Oft má reikna
með að miklum peningum þurfi
að eyöa i að lagfæra húsnæðið
og gera það ibúðarhæft aftur, og
i sumum tilfellum er talað um
að kostnaðurinn við endurbæt-
urnar muni ekki vera minni en
kaupverðið. Ef einhvern skyldi
nú langa til þess að frétta um
þessar sölur, þótt reyndar sé
ekki leyfilegt að fjárfesta i hús-
eignum I útlöndum, þá er hægt
að skrifa La Clé des Chamos, 8
place Jean d’ Arc, Toulouse I
Frakklandi.
SERVICE
—Það liggur ekki á. En hann
verður þó að vera tilbúinn þegar
maðurinn minn kemur heim
klukkan fimm!
DENNI
DÆMALAUSI
Hvaða litli sæti drengur er þetta,
sem alltaf er að leika sér i garðin-
um ykkar. Heyröu góða, hefur
einhver nýr drengur flutzt hingað
i nágrennið.