Tíminn - 05.07.1974, Side 6
6
TÍMINN
Föstudagur 5. júli 1974
Norsku tein-
ærlngarnir sem
sigla tll íslands
1
Nýlega var sagt frá I blaðinu af fyrirhugaðri siglingu tveggja norskra
teinæringa til fslands I sumar, en hér er annar báturinn á reynslu-
siglingu i Afjörd i Noregi, þar sem bátarnir eru smiðaðir.
2
Hér vinnur bátasmiðurinn, Magnar Gilde, að smiöi annars
teinæringsins.
3
Hér er teinæringurinn fullsmlöaður og tilbúinn til reynslusiglingar.
Húsmæður
framtíðarinnar
athugið
Þann 12. september i haust hefst fyrra
námstímabil Húsmæðraskólans að Laug-
um S-Þingeyjasýslu og lýkur 15. desem-
ber, en seinna námskeiðið verður frá 9.
janúar til 11. mai 1975.
Aðalkennslugreinar samkvæmt námsskrá
húsmæðraskólanna auk þess valgreinar:
Vélritun, vefnaður, föndur, leðurvinna,
smelti o.fl.
Sækið um skólavist sem fyrst og lærið að
gera heimilisstörfin auðveld og skemmti-
leg.
Nánari upplýsingar veitir skólastjórinn.
Simi um Breiðumýri.
Skólastjóri.
Leiðrétting
S.l. sunnudag var hér
I blaðinu rætt um bætur
til landeigenda vegna
vegagerðar i ölfusi. Þar
varð það mishermi að gerðar-
dómur hefði metið bætur til
annarra en eigenda öxnalækjar.
Rétt er að gerðardómur ákvað
bætur til þeirra á sama hátt og
annarra. Er það hér með leiðrétt
og beðizt afsökunar á mistökun-
um.
Slaufusala Félags
einstæðra foreldra
verður um helgina
Nú um helgina gengst Félag
einstæðra foreldra fyrir fjáröflun
i formi slaufusölu, en slaufurnar
hafa f jölmargir góðir liðsmenn úr
félaginu unnið við að búa til
undanfarnar vikur. Verða þær
seldar hér i Reykjavik og viðar
um landið. Geta má -þess að
Suöurncsjadeild FEF hafði með
höndum slaufusölu i Keflavik á
kosningadaginn og gekk sú sala
með afbrigðum vel.
Allur ágóði af slaufunum, sem
kosta 50 kr. stk. rennur i
Styrktarsjóð Félags einstæðra
foreldra. Sjálfboðaliðar, sem sjá
sér fært að vinna við sölu á sunnu-
daginn eru beðnir að hafa sam-
Hugsum
áðurenvið
hendum m
band við form. fjáröflunarnefnd-
ar Auði Haralds Bergstaðastræti
30 b.
FEF stefnir að þvi að gera það
að árlegum viðburði að selja
slaufur, enda eru þær hinar
smekklegustu að gerð, og heitir á
góðar undirtektir.
Þá má taka fram að i undir-
búningi er einnig hjá FEF barna-
skemmtun i haust, en tvær slfkar
voru haldnar I marz við prýðileg-
ar undirtektir, húsgöngusöfnun
hefur gengið vel og hefur fjár-
öflunarstarf verið með mesta
móti, enda stefnt að þvi að hefja
byggingarframkvæmdir á
Eiðsgranda á lóð þeirri, sem
félagið fær þar, jafnskjótt og
skipulagi þar hefur verið lokið.