Tíminn - 05.07.1974, Síða 7
Föstudagur 5. júll 1974
TÍMINN
7
Þjóðhátíðarátak í
landgræðslumálum
GB-Reykjavik. Sveinn Runólfs-
son, landgræöslustjóri, Gunnars-
holti, sagði i gær i samtali við
blaðið, að báðar áburðarvélarnar
væru nú við landgræðslustörf.
Douglas DC 3, vélin, sem Flug-
félagið gaf i mai i fyrra, byrjaði
áburðarflug seinni hluta mai-
mánaðar, og flaug út frá
Gunnarsholti á landgræðslusvæði
viðs vegar á Suðurlandi. Nú er
Douglas-flugvélin að land-
græðslustörfum I Þingeyjarsýsl-
um, og flýgur frá flugvellinum i
Aðaldal, en eftir viku til tiu daga
kemur hún aftur suður til áfram-
haldandi áburðarflugs á Suður-
landi. Hin flugvélin TF-TÚN, hef-
ur verið i áburðarflugi vlðs vegar
um landið, en er nú við land-
græðslustörf I Borgarfirði. Mun
meira magni af áburði hefur nú
verið dreift heldur en i fyrra.
Flugmennirnir sem fljúga
Douglas-vélinni eru atvinnuflug-
menn og vinna i sjálfboðavinnu.
Þetta eru þrautreyndir og
þjálfaðir flugmenn og er þetta
framlag þeirra til landgræðslu-
mála mjög viröingarvert.
Þekking flugmannanna af
landinu kemur þarna af góðum
notum.
Flugfélag Islands, hefur alltaf
liðsinnt landgræðslumálum mjög
mikið, og óvlst er, hvort Douglas-
vélin væri nú að landgræðslu-
störfum, ef ekki hefði komið til
sérstök velvild i sambandi við
viðhald og skoöanir vélarinnar.
Landhelgisgæzlan hefur annazt
viðgerðir á minni vélinni, TF-
TÚN. Búizt er við, að báðar
vélarnar verði að störfum út júli-
mánuð.
Sveinn Runólfsson skýrði
einnig frá þvi, að i haust er fyrir-
huguð mikil herferð og átak i
melskurði. Siðastliðið ár var
skorið mikið af melfræi, og að
mestu gert i sjálfboðaliðsvinnu.
Vonir standa til, að i haust fáist
sæmil. stór hópur til sjálfboða-
vinnustarfa á þessum vettvangi.
Melfræi, sem safnað er, er slðan
sáð i hættuleg sandflókasvæði
viðs vegar um landið.
Hundurinn, sem hefur verið I óskilum I átta mánuði.
Tlmamynd: G.E.
Voff-voff hver á mig?
— hundur í óskilum í átta mánuði
Gsal-Rvik. Ráðhildur Jónsdóttir,
Hliðarhvammi 11 I Kópavogi kom
að máli við Tlmann og hafði held-
ur undarlega sögu að segja:
Fyrir átta mánuðum kom
Raðhildur inn I biðskýli strætis-
vagna Hafnarfjarðar i Garða-
hreppi, og sá hún þar inni hund
nokkurn, sem illa var haldinn og
ámátlegur ásýndum.
Spurðist hún fyrir um eiganda
hundsins, en enginn vildi kannast
við dýrið, svo hún aumkaði sig
yfir greyið og fór með hann heim.
Enn I dag er hundurinn heima
hjá Ráðhildi og hefur enginn eig-
andi gefið sig fram.
í þessa mánuði hefur konan
margsinnis auglýst eftir eigend-
um og hundavinafélagið einnig —
en alltaf án árangurs.
Það skal tekið fram, að hundur-
inn er einkar vel taminn og
barngóður með ólikindum. Hann
er þrifinn og hefur aldrei verið
hættulegur einum né neinum.
Nú vill Ráðhildur beina þeirri
ósk til allra, er þessar linur lesa,
og kannast við hundinn á
myndinni, að gera sér aðvart til
að hundurinn komist til réttra
eigenda — að öðrum kosti verða
llfdagar hans sennilega á enda,
þvi hún getur ekki herbergjað
hann öllu lengur.
Ekki hafa oröiö stórfelldar framfarir I uppgreftrinum I Suöurgötu. Þó hafa grafarar nú stækkaö gröf
slna aö mun og komiö þar niöur á allstóran hrauk af brunnum viöi. Eru uppi bollaleggingar um, aö hann
kunni aö vera leifar húsganga eöa þaks eöa hvoru tveggja. Bllöviöriö undanfarnar vikur hefur mjög
flýtt fyrir starfinu, þvl aö eins og fólk kannski veit, er ómögulegt aö sinna framkvæmdum, þegar rignir.
Ekki rigndi þegar þessi mynd var tekin eins og sjá má, enda er grafan á myndinni sumarleg.
Timamynd Gunnar.
0 Eimskip
37.500 teningsfet.
Þá festi Eimskipafélagið ný-
lega kaup á tveimur vöru-
flutningaskipum, sem enn eru
ókomin til landsins. Annað skipið
er keypt i Danmörku og er sams-
konar skip og hin fjögur sem þar
hafa verið keypt. Er það væntan-
legt til landsins um miðjan ágúst.
Hitt skipið er keypt I Þýzkalandi,
smiðað árið 1970. Það er 2.725
brúttótonn (4000 DW-tonn).
Lestarrými er 185.000 tonn. Það
er væntanlegt til Reykjavíkur I
október n.k.
0 Viktor Borge
sagði Gunnar Egilsson, en samt
sjáum við ekki neina ástæðu til
þess að fara með tónleikana inn I
Laugardalshöll. Hún er miklu
dýrari en svo að það borgi sig. Við
seljum heldur aðeins dýrara inn i
Háskólabióinu, — þar myndast
einnig mun betri stemming en i
gimaldinu þarna innfrá.
— Hvað dýr? Ætli hann taki
ekki svona milli 250-300 þús. krón-
ur fyrir þetta, — söngkonan inni-
falin, — sagði Gunnar að lokum.
© Útvarp
og kl. 19.40 er Vilmundur Gylfa-
son með þætti, sem hann tekur
saman úr sögu og bókmenntum.
— Föstudagarnir eru heldur
tilþrifalitlir, þáttur Ragnheiðar
Ricther, „Spurt og svarað”, er þó
á dagskrá og kl. 20.15 er búnaðar-
þáttur. Þá er þáttur kl. 20.40, er
við nefnum „Suður eða sunnan”.
— Laugardagsmorgnamir eru
vettvangur óskalaga sjúklinga en
þau eru kl. 10.25. Eftir hádegið er
Páll Heiðar Jónsson með þáttinn
„Vikan, sem var,” siðan koma
miðdegistónleikar, nema þegar
lýst er knattspyrnukeppni.
Umferðarþáttur er svo kl. 15.45.
Dagskrá næstu viku er svo lýst i
þættinum „Horftum öxl og fram
á við”, sem Gisli Halldórsson sér
um.
— Við verðum svo með nokkra
þætti til skiptis á laugardags-
kvöldum, ýmist „landakvöld”,
þar sem lýst verður einhverju
landi, rekin saga þess og helztu
kennileiti og leikin tónlist frá þvi.
Ævar Kvaran hefur svo tekið
saman nokkra þætti um Vestur-
íslendinga og verða þeir fluttir af
og til i sumar, sagði Hjörtur Páls-
son að lokum.
0 Lúaleg árás
það kann að meta slik störf, þar
sem það hefur gert helzta fjár-
aflamann sinn að bankastjóra
Seðlabankans.
Það hljóta margir að velta þvi
fyrir sér, hvað valdi hinni furðu-
legu árás Þjóðviljans á forsætis-
ráðherrann, sem hér er greint
frá. Hún ber sannarlega ekki vott
um, að aðstandendur Þjóðviljans
óski nýrrar vinstri stjórnar, þvi
að annars myndi ekki ráðist
svona harkalega á þann mann,
sem er liklegastur til að geta
myndað hana. Vissulega ýtir
þetta undir þann orðróm, að
gamlir leiðtogar Alþýðubanda-
lagsins, sem stóðu að ný-
sköpunarstjórninni á sinni tið,
vinni nú að þvi öllum árum að
endurreisa hana, og hafi fengið
Magnús Kjartansson til liðs við
sig. 1 þeim tilgangi m.a. hafi ver-
ið leitað eftir sérstökum viðræð-
um við Alþýðuflokkinn, i þeirri
von að þessir flokkar gætu fundið
grundvöll, sem einnig væri að-
gengilegur fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn, en nýsköpunarstjórnin var
mynduð af þessum þremur flokk-
um. En bersýnilegt er eftir þessa
árás Þjóðviljans á Ólaf Jóhannes-
son meðan á stjórnarmyndunar-
tilraunum stendur, að sterk öfl
innan Alþýðubandalagsins hafa
ekki mikinn áhuga á samstarfi
við Framsóknarflokkinn. Þ.Þ.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
ríkisins Mmmm
ORÐSENDING TIL
LÍFEYRISSJÓÐA
Húsnæöismálastofnun ríkisins býður hér með Iíf-
eyrissjóðum til sölu verðtryggð skuldabréf Bygg-
ingasjóðs ríkisins. Er hér um að ræða annuitets-
bréf til 15 ára með 5% vöxtum og er sérhver árs-
greiðsla háð breytingum á vísitölu byggingar-
kostnaðar. Verður grunnvisitala þeirra bréfa, sem
seld verða hér eftir, í samræmi við þá vísitölu bygg-
ingarkostnaðar, sem i gildi er hverju sinni. Bréf
þessi eru til sölu nú þegar og eru því þær stjórnir líf-
eyrissjóða, er hug hafa á umræddum skuldabréfa-
kaupum, beðnar að snúa sér til veðdeildar Lands-
banka íslands, Reykjavík, er veita mun allar nán-
ari upplýsingar um skuldabréf þessi og annast sölu
þeirra.
Reykjavík, 4. júlí 1974,
HÚSNÆÐISMALASTOFNUN ríkisins
LAUGAVEGI77, SÍMI22453
I