Tíminn - 05.07.1974, Page 15
Fimmtudagur 4. júli 1974
TÍMINN
15
Stefán Jónsson prentsmiðjustjóri:
Engin brot á samningum
né lögum af hálfu prent-
smiðjueigenda
t TIMANUM 3. þ.m. er grein með
eftirgreindri fyrirsögn: „Alvar-
legt brot á samningum?” Jafn-
framt er birt ljósmynd af sam-
þykkt, sem gerð var fyrir
skömmu á fundi i stjórnar og trún
aðarmannaráði Hins Isl. prent-
arafélags. Fjallar sú samþykkt
um furðulegar kröfur i sambandi
við orlof prentara. Hefir þessi
samþykkt, samkv. nefndri grein,
verið fest upp I auglýsingaformi i
flestum eða öllum prentsmiðjum i
landinu.
Út af umræddu máli þykir mér,
sem prentsmiðjurekandi, rett að
taka fram það sem hér fer á eftir:
1. Mér er ekki kunnugt um að
samtök prentsmiðjurekenda,
né einstakur aðili þeirra, séu
sekir um „Alvarlegt brot á
samningum”. Að þvi er mig
snertir, vil ég það eitt segja, að
slikt er fjarri minum huga og
vilja.
2. Með samningum umræddra
aðila, sem gerðir voru á árinu
1971, er orlof prentara 24 og 27
dagar eftir starfsaldri, miðað
við heilt starfsár. Giltu þessir
samningar i minnst tvö ár, eða
þar til nýir samningar tækju
gildi. Siðara orlofsári þessara
samninga lauk 30. april s.l. Ný-
ir samningar voru gerðir 8. mai
s.l., og var þá samið um, að or-
lofið á komandi orlofsári
skyldi aukið i 25 og 28 daga
eftir starfsaldri, miðað við fullt
starfsár.
3. Samkvæmt orlofslögunum frá
1971, er lágmarks orlof ákveðið
tveir dagar fyrir hvern unninn
mánuð manna með fulla heilsu,
og dreifist þessi orlofskostnað-
ur vinnuveitenda I samræmi
við þær vinnustundir eða
vinnuvikur, sem atvinnurek-
andinn kaupir. Ljóst er af or-
lofslögunum, að ársorlof
manna fer eftir þeim vinnu-
stundum eða vinnuvikum, sem
vinnufær maður vinnur á árinu.
4. 1 nefndri samþykkt Hins isl.
prentarafélags, virðist felast
áskorun til félagsaðila um
eftirgreinda framkvæmd á or-
lofsréttindum: a. Að taka nú á
þessu ári uppbót á liðið orlofs-
ár, og skuli sú uppbót jafngilda
þeirri orlofsaukningu, sem
samið var um i mai s.l. að veitt
skyldi á hinu nýbyrjaða orlofs-
ári. b. Að taka nú og slðar fullt
orlof fyrir verkfallstima eins og
verkfallstimi væri orlofsskyld-
ur vinnutimi. Á hvorugt þess-
ara atriða var minnzt með einu
orði I nýafstöðnum samning-
um. Hlýtur þó stjórn H.I.P. og
þeim 4 eða 5 samninga-
nefndum félagsins, er siðustu
samninga önnuðust, að hafa
verið ljóst, hvað lög og eldri
samningar sögðu um þessi atr-
iöi.
5. Það er mitt álit og þess lög-
fræðings, sem ég hefi rætt þetta
mál við, að hvorugt af framan
greindum atriðum hafi stoð i
gildandi lögum og samningum.
Sé þvi hér um alvarlega of-
beldishótum að ræða, og einnig
hótun um valdbeytingu gegn
gildandi lögum og samningum.
Það virðist vekja sérstaka um-
hugsun, að hér hvetur stjórn
stéttarfélags aðila sina til
sllkra hluta, þótt félagsstjórnin
sjálf hafi samið um, að öll
ágreiningsmál milli samnings-
aðila um samninga skuli af-
greiðast endanlega i samræmi
við lög og reglur, eða niður-
stöðu viðkomandi dómstóla.
6. Ég tel að framangreind atriði,
annað um orlofsuppbót aftur i
timann án samninga þar um,
og hitt um fullt oflof fyrir verk-
fallstima án samninga þar um,
séu „prinsipmál”, sem at-
vinnurekendur i prentiðnaðin-
um geti ekki og megi ekki
vegna annarra fallast á, heldur
beri þeim að visa þessum
ágreiningi til Félagsdóms,
samanber gildandi lög og
samninga. Væntanlega fæát um
leiö úr þvi skorið, hvort nefnd
og auglýst samþykkt HIP varð-
ar við lög eða ekki.
Reykjavik, 4. júli 1974.
Stefán Jónsson
Frá Samvinnu-
skólanum
Framhaldsdeild
Umsóknir um framhaldsdeild Samvinnu-
skólans i Reykjavik skulu hafa borizt
skrifstofu skólans, Suðurlandsbraut 32,
fyrir 1. ágúst n.k.
Rétt til að setjast i framhaldsdeildina eiga
allir, sem lokið hafa burtfararprófi frá
Samvinnuskólanum.
Framhaldsdeild Samvinnuskólans.
Verktakaþjónusta
Gefum föst
verðtilboð í
efni og vihnu
EINANGRUN
frysti-og kæliklefa
ÞAKPAPPALOGN
í heittasfalt
Armúli
H
VUIKNIf
Vestmannaeyjum • Simi 290 • Reykjavík • Sími 8-54-66
r r
AUGLYSIÐ I TIMANUM
ÞEIR, sem fengið hafa heim-
senda miða, eru vinsamlega
beðnir að gera skil á skrifstofu
happdrættisins að Rauðarárstíg
18, sími 2-82-69, sem er opin frá 9
til 22 í dag — eða á afgreiðslu
Tímans, Aðalstræti 7, frá kl. 9 til
17.
EINNIG taka trúnaðarmenn
happdrættisins úti á landi á móti
uppgjöri og greiða má inn á póst-
gíró-númer happdrættisihs, NR.
34444, í pósthúsum og peninga-
stofnunum um allt land.
Framsó
ms Rn
i vCSfÖVP
Vinningar: ^
1. HraSbátur með 40 ha. utanborðsvél .... 280.000,00
2. Húsvagn Sprite Alpine................. 270.000,00
3. Vatnabátur, Rana 14 fet með mótor .... 120.000,00
4. Utanlandsferð.......................... 50.000,00
5. Kvikmyndavél .......................... 40.000,00
6. Tjald og viðleguútbúnaður frá Sportval . . . 25.000,00
7. -15. Myndavélar, Vashica kr. 15 þús. hver v. 135.000,00
16.-25. Veiðivörur frá Sportval kr. 10 þús. hver v. 100.000,00
26.-50. Sportvörur frá Sportval kr. 5 þús. hver v. 125.000,00
Verðmæti vinninga alls kr. 1.145.000,00
% :
;
i
i