Tíminn - 05.07.1974, Qupperneq 17
Föstudagur 5. júli 1974
TÍMINN
12
Fornaldarknattspyrna
á þjóðhátíðarárinu...
íslenzka landsliðið sigraði naumlega Færeyinga
3:2. Liðið vakti ekki hrifningu í Þórshöfn
ÞAÐ var lítil skemmtun,
sem íslenzka landsliðið í
knattspyrnu sýndi
Færeyingum á miðviku-
dagskvöldið í Þórshöfn,
þegar það rétt marði sigur
gegn Færeyingum 3:2. Já,
það var ekki góð knatt-
spyrna, sem Islenzka liðið
lék — sú sama sem
íslenzkir áhorfendur hafa
verið vitni að hér í 1.
deildarkeppninni.
Sparkað, hlaupið og leikið
fast. islenzka liðið lék svo
grófa knattspyrnu, að
Færeyingar vissu ekki
hvað var á seyði. Gróf
knattspyrna hefur ekki
ráðið ríkjum þegar Islend-
ingar og Færeyingar hafa
leikið landsleiki, en í Þórs-
höfn braut íslenzka liðið út
af þeirri venju, því að þeir
sýndu Færeyingum enga
miskunn, en léku fast,
spörkuðu og hlupu. Leik
íslenzka liðsins, eins og
Færeyingar fengu að sjá
hann er bezt lýst með
orðinu: FORNALDAR-
KNATTSPYRNU. Sú
knattspyrna á ef til vill vel
við islenzka liðið, þegar
það er haft í huga, að við
höldum á þessu ári upp á
1100 ára afmæli Islands-
byggðar
Þaö voru aöcins þrlr leikmenn
af islenzku leikmönnunum, sem
Kiss-
úrslita-
leikinn
í HAA
Meöal áhorfenda á leik Hol-
lands og Brasiliu s.l. miövikudag
var utanrikisráöherra Bandarikj-
anna, Henry Kissinger. Hann er
mikill áhugamaöur um knatt-
spyrnu, og haft er eftir honum, aö
aöeins stjörnmái séu mikilvægari
en knattspyrna. Þar sem hann er
fæddur í Þýzkalandi hefur hann
mestan áhuga á þýzku deildinni,
og á hverjum mánudegi biöur
hans umslag á skrifstofu hans i
Washington meö úrslitum helgar-
innar. Sérstakan áhuga hefur
hann á því hvernig fer hjá ann-
arrar deildar liöinu Furth, en I
þeirri borg fæddist hann.
Kissinger mun einnig sjá úr-
slitaleik HM keppninnar, og þar
mun hann fá aö sjá uppáhalds-
landsliö sitt i keppni.
Ó.O.
reyndu aö leika almennilega
knattspyrnu i þessum leik. Þaö
voru þeir Asgeir Ellasson,
Matthlas Hallgrimsson og
Marteinn Geirsson. Þeir Ásgeir
og Matthias skoruöu mörk
islenzka liösins i fyrri hálfleik, en
staöan var 2:0 I háifleik.
Færeyingar unnu sigur i þeim
siöari, en honum lauk meö sigri
Færeyinga
liösins þá
Björnsson.
2:1. Mark Islenzka
skoraöi Kristinn
Leikurinn var sigur fyrir
Islenzka þjálfarann Eggert
Jóhannesson, en hann biálfar
landsliö Færeyinga. Aftur á móti
var leikurinn mikiil ósigur fvrir
íslenzka landsliösþjáifarann
Tony Knapp og kenningar hans
um, hvernig eigi aö byggja upp
gott knattspyrnuliö
—SOS
Vaðið veq getuleysis
O R S L I T I N f r á
Færeyjum komu ekkert
á óvart, þegar undir-
búningur landsliðsins er
athugaður nánar. Eins
og áður hefur verið bent
á hér á síðunni, þá tóku
nýir menn við lands-
liðinu. — Þessir nýju
menn komu með nýjar
hugmyndir, hugmyndir,
sem verðurað stokka
upp, — þannig að við
getum kinnroðalaust
keppt á erlendum
vattvangi. Eittaf hinum
nýju hugmyndum var,
að sleppa vetrar-
æfingum landsliðsins,
sem þeir Albert Guð-
mundsson, fyrrum for-
maður KSi, og Haf-
steinn Guðmundsson,
fyrrum , „einvaldur",
komu á með góðum
árangri. Það lofaði ekki
góðu, þegar landsliðs-
nef ndin ákvað að sleppa
þessum vetraræfingum
— sem mynduðu lands-
liðskjarna fyrir átök
keppnistímabilsins.
Arangurinn i Færeyjum
sýnir þaö, þvi að það er greini-
legt, aö hér er um almennt
getuleysi vegna ónógs undir-
búnings. Af mörgu þarf aö
hyggja þegar landslið er byggt
upp, ekki einungis, hvort
uppbygging varöandi stööur
er rétt, heldur og hvort horfur
★ Hugmyndir landsliðsnefndarinnar
verður að stokka upp
★ „Nýja” landsliðið er ekki byggt upp
á réttan hátt
★ Ekki lengur heiður að leika með
landsliðinu
LANDSLIÐSNEFNDIN..Tony Knapp, Jens Sumarliöason og
Bjarni Felixson.
séu á þvi, aö leikmenn falli vel
saman. Til þess að leikmenn
verði samæfðir þurfa þeir aö
kynnast, og voru vetrar-
æfingarnar nauðsynlegar til
þess. Þaö er ekki nóg aö velja
beztu leikmenn 1. deildar-
liðanna I eitt lið, ef þeir hrein-
lega ná ekki saman. Því aö
sum 1. deildarliðin leika
frjálsa knattspyrnu og
sóknarleik, en svo leika önnur
kerfisbundinn varnarleik.
Landsliðsnefndin kallar svo
þessa leikmenn saman og
segir við þá, að nú eigi að
byggja upp „nýtt landsliö” og
þurfi þvi að byrja á
byrjuninni, — varnarleik, eins
og landsliðsnefndin hefur
tilkynnt, að sé byrjunin á
(Timamynd Jim)
uppbyggingu knattspyrnuliös.
Fyrir landsleikinn var
landsliðið kallað saman á
þetta 4-5 æfingar og fundi og á
þessum æfingum var sjaldan
þjálfari. Er virkilega hægt að
ætlast til af landsliðsmönnum
okkar, að þeir nái árangri i
keppni við erlend liö, þegar
undirbúningur fyrir keppni er
„akkúrat” enginn. Það þarf
greinilega að fara að gripa i
taumana vegna stefnu lands-
liösnefndarinnar — Þó að það
sé litill timi til stefnu, þá er
hægt að bjarga áliti islenzkrar
knattspyrnu fyrirleikina gegn
Belgiumönnum og A-
Þjóðverjum i Evrópukeppni
landsliða. Ef þaö er ekki
gert, þá má reikna með að is-
lenzkir knattspyrnumenn,
sem verða valdir I islenzka
landsliðið, forðistþað, eða gefi
kost á sér með hálfum hug.
Það hefur greinilega komið
fram, að islenzkir knatt-
spyrnumenn vilja ekki taka
þátt i þeim skripaleik, sem
landsliðsnefndin hefur sett á
svið.
Tvö undanfarin ár hefur is-
lenzka landsliðið verið að
skapa sér nafn i Evrópu þegar
það var undir stjórn Alberts
Guðmundssonar og Hafstejns
Guðmundssonar. Hverjir
muna ekki eftir frábærum
árangri islenzka liðsins gegn
Svium sl. keppnistimabil og A-
Þjóðverjum, liðum, sem eru
nr. 5 og 6 og yfir sterkustu
landsliðum heims. Þá var
árangurinn gegn Hollending-
um ekki til aö skammast sin
fyrir, en Hollendingar hafa nú
þegar tryggt sér rétt til að
leika til úrslita i heims-
meistarakeppninni.
Nú tilheyrir þessi árangur
fortiðinni. Landsliðið, sem
þeir Albert og Hafsteinn voru
búnir að byggja upp með
fórnfýsi sinni og áhuga, 'er
ekki lengur til. Brautin, sem
þeir félagar voru á, er til
ennþá, en hin nýja landsliðs-
nefnd valdi þann veginn, þar
sem þeir gátu falið vinnubrögð
sin. Að lokum vil ég segja
þetta: Annars svo til sæmileg
stjórnKSl! Skipið ykkur ekkii
sveit þeirra sjálfumglöðu
landsliðsnefndarmanna, sem
vaða veg getuleysis með eitt
mesta hneyksli islenzkrar
knattspyrnu.
-SOS.
Þróttarar ætla að endur-
heimta 2. deildarsætið ..
— segir Jón Herman
Þróttarliðið er jaf
//Við ætlum okkur að
endurheimta 2. deildarsæt-
ið"....sagði Jón Hermanns-
son, þjálfari og leikmaður
með 3. deildarliði Þróttar
frá Neskaupstað. Þróttur
hefur nú forustu i sínum
riðli á Austf jörðum og þarf
liðið eitt stig, til að komast
i úrslit í 3. deiidarkeppn-
inni. Jón sagði okkuri að lið
Þróttar væri nú mun jafn-
ara en það var sl. keppnis-
JÓN HERMANNSSON....þjálfari
Þróttar Nes.
nsson, þjálfari Þróttar
nara en sl. keppnistím
tímabil, þegar liðið lék í 2.
deildinni — mikill áhugi
væri hjá leikniönnum liðs-
ins. Þróttur á nú eftir að
leika einn leik i sínum riðli,
það væri úrslitaleikurinn
gegn Leikni, sem færi
fram á Fáskrúðsfirði 20.
júlí n.k.
— Hvernig heldurðu að sá
leikur fari, Jón?
— Það er ekkert vafamál, við
vinnum sigur i honum. Þegar við
lékum gegn Leikni hér á Norð-
firði, þá gerðum við jafntefli 2:2
og máttum þakka fyrir jafnteflið.
Sá leikur var algjör ósigur hjá
okkur og við erum ákveðnir i, að
láta það ekki endurtaka sig.
frá Neskaupsstað.
abil
Staðan er nú þessi i riðlunum á
Austfjörðum:
G-riðill:
Austri, Eskif. 4 4 0 0 13:2 8
Höttur, Egilsst. 4 2 0 2 6:7 4
Huginn, Seyðisf. 4 1 0 3 6:8 2
Einherji, Vopnaf. 4 1 0 3 4:12 2
H-riöill:
Þróttur, Nesk.
Leiknir, Fásk.
Sindri, Hornaf.
Valur, Reyðaf.
5 4 1 0 24:3 9
4310 12:5 7
5104 7:22 2
4004 2:15 0
Eins og sést á þessu. þarf
Austri frá Eskifirði aðeins eitt
stig til að komast i úrslitin. Þá má
sjá. að markatalan hjá Þrótti er
mun betri en markatala Leiknis.
— SOS.