Tíminn - 05.07.1974, Blaðsíða 19
TÍMINN
19
Föstudagur 5.' júli 1974
Anna Erslev:
FANGI KONUNGSINS.
(Saga frá dögum Loð-
viks XI. Frakkakon-
ungs).
Sigriður Ingimarsdóttir
þýddi.
„Nei, en------”
„Ekkert e n !
Drekktu! ”
Georg, tók bikarinn og
lézt tæma hann nauð-
ugur. Höfðinginn fyllti
hann á nýjan leik og
hellti út i vinið úr skál-
inni. Benti hann siðan
hinum að koma til sin og
skipaði þeim að drekka.
Hinrik og Berthold litu
hikandi á Georg, en
hann kinkaði kolli til
þeirra og sagði: „Ykkur
er það óhætt”, og tæmdu
þeir þá sinn bikarinn
hvor.
Stundarfjórðungur
leið, og ræningjarnir
tóku að tygja sig til
brottfarar. Georg þótti
stundarfjórðungurinn
lengi að liða, þvi að nú
var loks komið tæki-
færið, sem hann hafði
beið svo lengi eftir!
Heppnin var með
honum. Mennirnir tveir,
sem áttu að halda vörð,
þeir stóri Hans og
Lúðvik sátu báðir við
ytri enda stóra borðsins.
Það varð þeim félögum
til bjargar.
Þegar Georg gekk
um og skenkti i ,,brott-
fararbikarinn, ” eins og
höfðinginn komst að
orði, gætti hann þess að
koma siðast til fyrr-
nefndra manna, og
þegar hann var i þann
veginn að hella i hjá
þeim, kallaði hann:
,,Hana nú, þar er
kannan tóm. Ég verð að
fylla hana á ný.”
Hann hljóp yfir að eld-
stæðinu, þar sem vin-
brúsinn stóð, hellti á
könnuna, en lét þó vera
nokkuð borð á. Siðan
sneri hann baki við
Umræður um
samninga
ekki hafnar
— segir fulltrúi Coldwater
Blaðinu hefur borizt eftirfar-
andi yfirlýsing frá Sölumiðstöð
hraðfry stihúsanna. Tilefni
hennar eru blaðaskrif um dóttur-
fyrirtæki sölumiðstöðvarinnar,
Coldwater Seafood Corp. I New
York.
„Nýlega hélt erlendur verka-
lýðsfulltrúi blaðamannafund i
Reykjavlk og olli það blaðaskrif-
um um verkalýðsmál Coldwater
Seafood Corp. i U.S.A. Fulltrúi
þessi ásakaði Coldrater um
ýmiss konar óbilgirni. Ásakanir
þessar bera vott um, að hann er
alls ekki kunnugur verkalýðsmál-
um hjá Coldwater.
„Við, sem stjórnum Coldwater,
þekkjum ekki einu sinni þennan
mann, né það verkalýðssamband,
sem hann starfar fyrir. Við höfum
haft samninga við verkalýðsfélag
i mörg ár, og þrátt fyrr all-langar
samningaumræður hverju sinni,
þá höfum við alltaf samið á
grundvelli, sem báðir aðilar hafa
lýst sig fylgjandi, og aldrei hefur
komið til verkfalls.
Núverandi samningur okkar
rennur út I október 1974, viðræður
hafa enn ekki hafizt um endurnýj-
un hans. Staðhæfing fulltrúans
um vandamál i þessum
samningaumræðum er þvi út i
bláinn, þar sem slik vandamál
geta ekki orðið til fyrr en
umræður hefjast.
Svo virðist sem fulltrúi þessi
hljóti að hafa misskilið einhvers
konar beiðni um upplýsingar og
hlaupið til með skakkar
ályktarnir i von um aö hannværi
að aðstoða verkalýðsfélag okkar,
en hann gerði þeim engan greiða
með þvi. Samt fær hann fyrirheit
um stuðning frá islenzkum aðil-
um um að stuðla að hækkun
launakostnaðar, sem islenzkir
aðilar greiða i USA.
Þrátt fyrir hinar röngu
staðhæfingar, sem ollu blaða-
skrifum, liggur ekkert fyrir, sem
bendir til að næstu sataningar
Coldwater við verkalýðsfélag sitt
verði ekki farsælir fyrir alla við-
komandi aðila, eins og alltaf
áður.”
Þorsteinn Gislason
AFSALSBREF
innfærð 24/6-
28/6 — 1974:
Védis Elsa Kristjánsd. selur
Gisla Péturss. hluta I Hraunbæ
192. Jón Pálsson selur Kjartani
Gissurarsyni raðhúsið Laugalæk
52. Helgi Sigurðsson selur British
Airways hluta i Stóragerði 17.
Engilbert Sigurðsson selur Pétri
Haukssyni hluta I Hraunbæ 124.
Kristján ólafsson selur Matthiasi
Kjartanssyni hluta i Sólheimum
30. Guðmundur Helgason selur
Sigurbirni Fanndal hluta i Úthlið
11. Birgir Thorberg selur Jónasi
PétriSigurðss hluta I Kárastig 9A.
Birna Einarsd. selur Iðnnema-
sambandi íslands hluta I Njálsg.
59. Þórdis Ársælsd. selur Heild-
verzl. BÁR hluta I Hallveigarstig
9. Skv. útlagningu 21/6 ’74 varð
Axel Einarss. eigandi að fast-
eigninni nr. 15 við Skólavörðustig.
Guðmundur Ragnarsson selur
Grétari Haraldss. hluta i Bugðu-
læk 11. Guðmundur Þorkelsson
selur Magnúsi Sveinssyni hluta i
Lindargötu 61. Ólöf Magnúsd.
o.fl. selja Ólafi ólafssyni fast-
eignina Kambsveg 14. Árna
Steinunn Röngvandsd. selur Guð-
rúnu Þórðard. hluta I Fálkagötu
23A. Einar Ingvarsson selur Rún-
ari Þ. Jóhannssyni hluta i Alf-
heimum 50. Rut Jónsdóttir selur
Sigurveigu Kristmannsd. hluta i
Háagerði 83. Þórunn Brynjólfsd.
selur Evu Hallvarðsd. og Ásgeiri
Valdimarss. hluta i Blönduhl. 9.
Dóróthea Vilhjálmsd. selur
Georg Thorberg Georgss. hluta i
Eskihlið 10. Miðás s.f. selur
Júliusi Stefánssyni hluta i
Arahólum 2. Þorsteinn Guð-
björnsson selur Þóru Jónsd. hluta
I Drápuhlið 40. S.f. Hreyfill selur
Almennu verkfræðistofunni h.f.
og Almenna byggingarfél. h.f.
hluta i Fellsmúla 26.
Úrval af
REIÐHESTUAA
til sölu
\
J
LANDBÚNAÐARÞJÓNUSTAN
Skúlagötu 63 — Sími 2-76-76
Verzlunar og
skrifstofuhúsnæði
ca 150 fermetrar að stærð óskast til leigu
eða kaups. Æskilegur staður, Laugavegur
eða næsta nágrenni.
Til greina kæmi húsnæði sem væri á götu-
hæð og 1. hæð, þó ekki iminna en 50 fer-
metrar á götuhæð.
Tilboð sendist á afgreiðslu blaðsins
merkt: 1811, fyrir 15. júli.
Kópavogur-Húsnæði
Til leigu er húsnæði á miðbæjarsvæðinu til
ibúðar eða sem skrifstofa.
Upplýsingar i sima 4-15-90 kl. 17-19 næstu
daga.
ORÐSENDING TIL
sumardvalargesta
í Olfusborgum
Af gefnu tilefni skal dvalargestum og öðr-
urn gestum bent á, að svæðið er einungis
opið fyrir bílaumferð á laugardögum þeg-
ar skifti á dvalargestum fara fram.
Á öllum öðrum timum er svæðið algjör-
lega lokað fyrir bilaumferð.
Þá er þeim sem þegar hafa tekið hús á
leigu eða taka hús á leigu bent á, að skifti
á dvalargestum i húsunum á að fara fram
á milli 2-6 siðdegis á laugardögum, geti
gestir af einhverjum ástæðum ekki komið
á þessum tima eru þeir vinsamlegast
beðnir að láta umsjónarmann vita i sima
99-4260.
Stjórn Ölfusborga.
Sundahöfn
Fóðurvöruafgreiösla
okkar er nú öll í Sundahöfn.
Sími 82225 =
Laugavegur
Á Laugavegi 164 er nú þessi starfsemi:
Skrifstofa
Vöruafgreiðsla
giröingarefni, fræ, þakjárn, tæki til J
fugla- og svínaræktar. Sími 11125
Matvörudeild j
Símar 24339 og 24355 l
fóður
grasfrœ
girðingfirefni
MJOLKURFELAG
REYKJAVÍKUR