Fréttablaðið - 12.12.2004, Blaðsíða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
1
2
0
4
ÉG ELSKAÐI HANA
KONUNGUR ÞJÓFANNA, MOLLY MOON STÖÐVAR HEIMINN OG LJÓNADRENGURINN - EFTIRFÖRIN
Bókin er æsispennandi ævintýrabók sem heldur lesandanum föngnum frá fyrstu síðu.
... Það er gaman að lesa spennandi bók sem er laus við hræðilegar verur sem kynnu að
leynast undir rúminu að lestri loknum. Ævintýri sem er svo raunverulegt að lesandinn
getur auðveldlega lifað sig inn í það. – Hildur Heimisdóttir, DV
Ég elskaði hana, rétt eins og hina fyrri og finnst hún vera
algjör skyldulesning fyrir krakka á öllum aldri.
– Þrúður Guðmundsdóttir, kistan.is
Ljónadrengurinn er mjög spennandi og skemmtileg lesning.
Höfundar bókarinna ... flétta listilega vel saman gagnrýni á
samfélag nútímans og spennandi ævintýri í framtíðinni.
– Hildur Heimisdóttir, DV
Bókin er skemmtilega og vel skrifuð, lifandi og kímin.
Persónulýsingar eru sterkar og margar ansi skemmti-
legar persónur koma til sögunnar... Aðdáendur
Mollyar Moon nýir sem gamlir eiga eftir að spæna
þessa bók í sig enda skemmtileg og hryllilega
spennandi, sérstaklega í lokin.
– Hildur Loftsdóttir, Morgunblaðið
Stríðið
um steikina
Orrustur eru tíðar hjá fólki viðupphaf sambúðar, þegar aðilar
eru að leggja drög að samkomulagi
um helstu atriði. Semja þarf hvorum
megin í rúminu aðilar ætla að sofa,
hvaða muni (hann) má koma með í
búið að heiman og hver fær að halda
á fjarstýringunni á kvöldin.
ALLT ERU ÞETTA tiltölulega ein-
föld atriði. Önnur flóknari bíða þó
handan við hornið. Hver fer með
framkvæmdavald í fjármálum,
hvernig á að haga þrifum og hvaða
mál halda áfram að vera aðskilin?
GRUNDVALLARATRIÐI er að
ljúka samningum um húsverk hið
fyrsta. Annað framkallar gróðrarstíu
átaka. Margar konur hafa hins vegar
samið herfilega af sér á þessu sviði.
Lærðar rannsóknir benda til að að-
eins 8% karlmanna sinni þvottum, en
sjái þess í stað um bílinn, sem er verk
sem huga þarf að nokkrum sinnum á
ári. Þessar konur geta þó verið stoltar
af kænsku sinna karla.
AÐRIR HAFA LEYST hluta vand-
ans með því að kaupa besta mögulega
hjálpartæki ástarlífsins, uppþvotta-
vélina. Sumir samningar geta litið vel
út en fela þó í sér snöggan dauða
sambands. Sjónvarp og áskriftir eru
hættusvæði og margar konur hafa
samið sambandið af sér með því að
samþykkja Sýn.
ÁTÖKIN HARÐNA YFIRLEITT
þegar barn er komið í spilið. Sniðugar
mæður ná fram fínum samningum,
hafi þær vit á því að semja strax „á
sæng“. Sanngjörn skipti gætu verið
þannig að kona taki meðgöngu, fæð-
ingu og jafnvel, við bestu samnings-
aðstæður, gyllinæð. Ólaskaður faðir-
inn tekur þá í staðinn kúkableiur,
gubb, andvökunætur og frekjuköst.
ALLAR ÞESSAR upphafsorrustur
eru þó nauðaómerkilegar og nánast
hjákátlegar í samanburði við móður-
bardagann. Litlu daglegu pústrarnir
leggja aðeins línurnar fyrir Stóra
stríðið, sem snýst auðvitað um
jólasteikina. Þyngsti slagur hverrar
sambúðar. Hér gildir að leggja allt í
sölurnar. Vígstöðvarnar eru tvær og
jafnmikilvægar: Hvað á að borða og
hvar á jólamáltíðin að fara fram?
SIGURINN er sá mikilvægasti í
sambúðinni. Að ári er nefnilega hægt
að vísa í hefðina, sem er aldrei sterk-
ari en einmitt yfir jólin.
BAKÞANKAR
ÞORBJARGAR S.
GUNNLAUGSDÓTTUR
» BETRI
SJÓNVARPSDAGSKRÁ
Á MÁNUDÖGUM