Fréttablaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
KVENNAKÓR MEÐ TÓNLEIKA
Kvennakórinn Léttsveit Reykjavíkur heldur
jólatónleika í Bústaðakirkju í Reykjavík
klukkan hálf níu í kvöld. Stjórnandi er Jó-
hanna V. Þórhallsdóttir, Aðalheiður Þor-
steinsdóttir leikur á píanó, Tómas R. Ein-
arsson á bassa og Wilma Young á fiðlu.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
14. desember 2004 – 342. tölublað – 4. árgangur
ALLT Í EINU SKÍÐLOGAÐI Vélsmiðir,
sem voru að sjóða saman rör í vélsmiðju í
Garðabæ í fyrrinótt, lýsa skelfingu sinni eftir
eldsprengingu á staðnum. Slökkvitæki réðu
ekkert við eld sem upp kom þegar neisti
komst í olíutunnu. Tjón nemur tugum millj-
óna króna. Sjá síðu 4
SKATTSVIK SKEKKJA SAM-
KEPPNI Formaður Rafiðnaðarsambands-
ins telur hætt við að hér verði sama þróun
og í Noregi og Svíþjóð þar sem svört at-
vinnustarfsemi hefur aukist. Forsvarsmenn
þriggja verkalýðsfélaga telja að auka þurfi
eftirlit hins opinbera með skattgreiðslum.
Sjá síðu 6
ABBAS ÖRUGGUR UM SIGUR Eftir-
maður Jassers Arafat, sem leiðtogi PLO,
þykir næsta öruggur um að verða forseti
palestínsku heimastjórnarinnar. Helsti
keppinautur hans hefur dregið framboð sitt
til baka. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 30
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
SNJÓKOMA EÐA ÉL EINKUM
NORÐAN OG AUSTAN TIL. Stöku él
annars staðar og bjart með köflum suð-
vestan til. Frost um allt land. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Útflutningur vex:
Hagvöxtur
7,4 prósent
EFNAHAGSMÁL Samkvæmt bráða-
birgðatölum frá Hagstofu Ís-
lands var hagvöxtur á Íslandi 7,4
prósent á milli þriðja ársfjórð-
ungs í fyrra og í ár. Hagöxtur
hefur ekki mælst svo mikill síðan
á fyrsta ársfjórðungi árið 2001.
Útflutningur vex mjög á þrið-
ja fjórðungi í ár miðað við í
fyrra. Þetta veldur því að hag-
vöxturinn er meiri en flestir
gerðu ráð fyrir. Þó slá greining-
ardeildir bankanna þann var-
nagla að tölurnar eru bráða-
birgðatölur.
Samneysla vex mun hægar en
aðrir þættir í efnahagslífinu.
Þetta er ólíkt því sem einkenndi
uppsveifluna um aldamótin þegar
samneyslan jókst mun hraðar. - þk
Sjá síðu 20
HEILBRIGÐISMÁL Á Landspítala - há-
skólasjúkrahúsi eru nú 102 einstak-
lingar sem bíða eftir varanlegri
vistun utan spítalans. Á LSH njóta
þeir hjúkrunar og umönnunar, að
sögn Önnu Lilju Gunnarsdóttur
framkvæmdastjóra sem undir-
strikar mikilvægi þess að fjölga
hjúkrunarrýmum fyrir aldraða og
búsetuúrræðum fyrir geðfatlaða
og unga fatlaða einstaklinga.
Anna Lilja sagði að þessir ein-
staklingar ættu ekki eftir að fara í
dýrar rannsóknir. Engu að síður
væri kostnaður við dvöl þeirra á
LSH meiri heldur en hann myndi
vera á hjúkrunarheimilum. Hún
kvaðst ekki hafa handbærar tölur
um hve mikill hann væri.
Samkvæmt nýjum stjórnunar-
upplýsingum spítalans fyrir janú-
ar-október 2004 sýndi rekstrarupp-
gjör LSH eftir tíu mánuði 188 millj-
ónir umfram fjárheimildir tíma-
bilsins eða 0,8%. Launagjöld eru
0,6% umfram áætlun og rekstrar-
gjöld 1,5% umfram áætlun. Kostn-
aður við S-merkt lyf hefur aukist
um tæp 10% á einu ári en annar
lyfjakostnaður lækkað um 3,5%.
Rekstur flestra sviða er innan áætl-
unar.
Í takt við áherslu spítalans um
eflingu dag- og göngudeilda fjölgar
komum á göngudeildir spítalans
um 5,5% frá fyrra ári. Komum á
slysa- og bráðamóttökur spítalans
hefur fjölgað um 2,9% frá fyrra
ári, þó stefnt hafi verið að fækkun
þeirra. Fjöldi lega/sjúklinga á legu-
deildum stendur nokkurn veginn í
stað en legutími styttist úr 8,8 dög-
um í 8,2 daga og komum á dagdeild-
ir fækkar um 7,9%. Fæðingum
fjölgar um 4,6%. Komum á blóð-
skilunardeild fjölgar um 16,5%.
Notkun á sjúkrahústengdri heima-
þjónustu hefur sífellt verið að
aukast með áherslu á styttri legu-
tíma. Heimsóknum sjúkrahús-
tengdrar heimaþjónustu fjölgar
um 8,3% á einu ári.
Skurðaðgerðum heldur áfram
að fjölga eða um tæpt 1% á fyrstu
tíu mánuðum ársins miðað við
sömu mánuði síðasta árs. Aukning-
in er sem fyrr mest í dagdeildarað-
gerðum á augum en einnig fjölgar
aðgerðum í almennum skurðlækn-
ingum, öðrum augnskurðlækning-
um, barnaskurðlækningum, bækl-
unarskurðlækningum, heila- og
taugaskurðlækningum og æða-
skurðlækningum. jss@frettabladid.is
BRUNI Eldur kom upp á matsölu-
staðnum Kebabhúsinu í Lækjar-
götu 2 í gærkvöld. Slökkvilið höf-
uðborgarsvæðisins var kallað út
klukkan hálf níu og var allt tiltækt
lið sent á staðinn auk þess sem
kallað var á slökkviliðsmenn á
aukavakt þar sem um timburhús í
hjarta miðborgarinnar var að
ræða. Mikinn reyk lagði frá staðn-
um sem barst bæði um Lækjar-
götu og Austurstræti. Þremur
stórum dælubílum, tveimur rana-
bílum og nokkrum sjúkrabílum
var því stefnt á svæðið. Húsið er
samtengt fleiri timburhúsum,
meðal annars Hressingarskálan-
um. Rýma þurfti kaffihús í sam-
liggjandi húsi vegna reyks.
Greiðlega gekk að slökkva eld-
inn. Að slökkvistarfi loknu voru
stokkar og klæðning rifin innan úr
húsinu til að ganga úr skugga um að
glæður leyndust ekki í því. Eldurinn
kom upp í steikingarpotti. - ghg
● disney-fígúra
í biblíusögunum
Jesús á baki Eyrnaslapa
Sunnudagaskólinn:
▲
SÍÐA 34
● heilsa ● jólin koma
Knús er besta jólagjöfin
Hemmi Gunn:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Glæsileg
jólahandbók frá
Sony Center
fylgir blaðinu í dag!
10
Opið í dag
10-22
dagar til jóla
Jólagjafahandbókin
- vinningsnúmer dagsins:
87209
Íslensk framleiðsla
skipar mikilvægan
sess í þjóðlífinu og
mun í vaxandi mæli
standa undir velferð
þjóðarinnar
MINNINGARSTUND Í LÁGAFELLSKIRKJU Ættingjar og vinir Ragnars Björnssonar, sem lést eftir að hafa fengið höfuðhögg á
sveitakránni Ásláki aðfaranótt sunnudags, komu saman í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ í gærkvöld þar sem fram fór bænastund. Fjölskylda
Ragnars heimilaði myndatökur við minningarathöfnina. Hann lætur eftir sig eiginkonu og þrjá syni. Sjá nánar á síðu 2
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L.
Yfir 100 manns fastir
á Landspítalanum
Rúmlega 100 einstaklingar eru innlyksa á Landspítala - háskólasjúkrahúsi þar sem hjúkrunarrými
eða búsetuúrræði skortir fyrir þá. Ekki eru handbærar tölur um dvalarkostnað þeirra á spítalan-
um en framkvæmdastjóri segir hann hærri heldur en ef þeir dveldu á hjúkrunarheimilum.
SLÖKKVISTÖRF VIÐ KEBABHÚSIÐ Í LÆKJARGÖTU
Mikill viðbúnaður var hjá slökkviliðinu í gærkvöld þegar eldur kom upp í timburhúsi.
Miðborgin:
Eldsvoði í gömlu timburhúsi