Tíminn - 10.10.1974, Qupperneq 1
fóðurvörur
ÞEKKTAR
UM
LAND
ALLT
I DAG
Kolmunni
og
spærlingur
nýir
nytjafiskar
— sjá bls. 3
•
Verka-
manna-
flokknum
spáð
sigri
— sjá baksíðu
Hreggviður
Jónsson gegn
Jóni
Hreggviðssyni
— sjá bls. 6
•
Viðtal við
sendi-
fulltrúa
Póllands
— sjá bls. 8 og 9
SLONGUR
BARKAR
TENGI
195. tölublað — Fimmtudagur 10. október — 58. árgangur.
Landvélarhf
Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans rannsakar:
Ólöglegar fasteignir
Islendinga erlendis
OÖ-Reykjavik. Gjaldeyriseftirlit
Seðlabankans hefur nú hafið
rannsókn á hvað hæft er i þvf, að
islenzkir aðilar eigi Ibúðir og
aðrar fasteignir á Spáni. Engin
gjaldeyrisleyfi hafa nokkru sinni
verið veitt til slikra fasteigna-
kaupa, og ef þær fullyrðingar
tveggja blaða, sem nýlega hafa
fjallað um ma'iið, og segja að is-
lendingar eigi fasteignir á Spáni,
reynast réttar, er um lögbrot að
ræða.
Björn Tryggvason, aðstoðar-
bankastjóri Seðlabankans, sagði
Timanum i gær að rannsókn á
málinu væri þegar hafin á vegum
gjaldeyriseftirlitsins, en væri svo
skammt á veg komin, að enn
hefði ekkert áþreifanlegt komið i
ljós um fasteignakaup Islendinga
á Spáni.
öruggt er að gjaldeyrisleyfi
hafa ekki veriö veitt til fasteigna-
kaupa einkaaðila. Sá möguleiki
er fyrir hendi, að áhafnir skipa
aða flugvéla, sem fá hluta launa
sinna i erlendum gjaldeyri, geti
safnað saman nokkrum upphæð- '
um á löngum tima og þannig
eignazt fyrir útborgun á fasteign-
um, séu þær ekki miklar. En
jafnvel þótt sú leið sé farin er
ólöglegt fyrir viðkomandi að
kaupa fasteignir erlendis fyrir
þennan hluta launa sinna án
leyfis, sem reyndar aldrei hefur
verið sótt um, og hefðu enda ekki
verið veitt.
Fyrir nokkrum árum sóttu
stóru islenzku flugfélögin um
leyfi til kaupa á fasteignum á
Spáni, sem ætlaðar voru til afnota
fyrir starfsfólk flugfélaganna i
leyfum sinum. En leyfi til
kaupanna voru ekki leyfð.
Hins vegar eiga flugfélögin og
stærstu útflutningsfyrirtækin i
landinu nokkrar fasteignir i
borgum erlendis fyrir starfsemi
sina. Eru það einu leyfin, sem
bankarnir hafa gefið til fast-
eignakaupa erlendis. Einnig á
rikið nokkrar fasteignir, sem
sendiráðin eru til húsa i.
Björgvin Guðmundsson skrif-
stofustjóri i viðskiptaráðuneytinu
sagði, að ekki kæmi til mála að
neinir íslendingar fengu gjald-
eyrisyfirfærslur til ibúðakaupa
erlendis. Eini möguleikinn fyrir
Islendinga til að eignast fast-
eignir erlendis væri aö vera bú-
settir þar, og hafa tekjur sinar i
erlendum gjaldeyri. Islendingar,
sem flytjast úr landi og setjast aö
erlendis til langframa, fá eigna-
yfirfærslur eftlr mjög ströngum
reglum. Fjölskylda, sem selur
fasteign hér á landi og kaupir
aðra erlendis fær t.d. 100 þúsund
króna yfirfærslu við brottför og
siðan sömu upphæð á ári um
ákveðiö árabil.
Engar gjaldeyrisyfirfærslur
eru leyföartil reksturs fasteigna
erlendis og hefur ráðuneytið ekki
vitneskju um að sótt hafi verið
um slikt leyfi. Ef islenzkur rikis-
borgari eignast fasteign erlendis
á löglegan hátt og flytur siðan til
Islands, en heldur áfram að hafa
tekjur af eigninni, þ.e. leigutekjur
er honum skylt að gera gjald-
eyriseftirlitinu grein fyrir þeim
tekjum, svo og skattayfirvöldum.
Sem fyrr segir fá áhafnir skipa
og flugvéla hluta launa sinna i er-
lendum gjaldeyri. Einnig fá
margir innflytjendur og umboðs-
menn erlendra útflytjenda hluta
af umboöslaunum sinum i erlend-
um gjaldeyri. En hverjum og ein-
um er skylt að gera grein fyrir
þeim gjaldeyristekjum og er ó-
heimilt að ráðstafa þeim til fast-
eignakaupa án vitundar islenzkra
gj aldey risy firvalda.
Staðgreiðsla
útsvara að óri?
HJ-Reykjavik. A fundi bæjar-
stjórnar Kópavogs, var fyrir
skömmu samþykkt tillaga, þar
Úr einum vasa í annan:
Borgareign
á nauðungar-
uppboð?
— að kröfu gjaldheimtunnar
Það eru harðsóttar
innheimtur i BorgarsjóC
Reykjavíkur um þessar
mundir, enda mun ekki al
veita, þvi svo galtómur er
sjóðurinn orðinn, að yfirdrátt-
ur hans er orðinn hátt 1
milljarður króna. Á þvi
sjóðurinn óhægt um vik að
greiöa skuldir sinar, sem
hrannast upp og þeim mun
meiri ástæða er til að iáta
engan bilbug á sér finna viö
innheimtu skulda i hitina.
1 siðasta lölublaði
Lögbirtingablaðsins er
augiýst nauöungaruppboð á
hluta eignarinnar Alftamýrar
52 eftir kröfu Gjald-
heimtunnar I Reykjavik
samkvæmt lögtaki fyrir kr.
81.208.00 auk vaxta og
kostnaöar. Þinglesinn eigandi
eignarinnar er Borgarsjóður
Rey kjavikur.
sem bæjarstjórnin fagnar þvl
ákvæði i málefnasamningi rlkis-
stjórnarinnar að taka beri upp
staðgreiðslukerfi skatta eins í'ljótt
og unnt er.
Bæjarstjórnin skorar á Alpingi
og rikisstjórn að koma á
staðgreiðslukerfi útsvara strax á
næsta ári.
Bæjarstjórnin bendir á það
vandræðaástand, sem nú hefur
skapazt i fjármálum stærri
sveitarfélga, sem þarf að reka
með tilkostnaði ársins, sem er aö
liða, en með tekjustofna miðaöa
við siöasta ár. Á þessu tvennu er
nú gifurlegur munur.
Gunnar Thoroddsen, félags-
málaráðherra, sagði blaðamanni
Tlmans, að sér væri ekki kunnugt
um fleiri slikar ályktanir frá
einstökum bæjarfélögum. A hinn
bóginn hefði, á X. landsþingi
Sambands islenzkra sveitar-
félaga, sem haldið var i byrjun
september, verið samþykkt sam-
hljóða að skora á rikisstjórnina
og Alþingi að koma á
staðgreiöslukerfi skatta hið
fyrsta og byrja á útsvörunum.
Sagði Gunnar, að þessi mál
væru nú i undirbúningi, en á
þessu stigi væri ófært að segja til
um, hvort mögulegt væri að þau
kæmust til framkvæmda þegar á
næsta ári.
LIFANDI HAHYRNINGUR MEÐ
FLUGVÉL TIL FRAKKLANDS?
SJ-Reykjavik. Sjómenn á Höfn I
Hornafirði hafa nú að heita má
gefizt upp við slldveiðar, þótt
mikið virðist vera af „silfri
hafsins” I sjónum úti fyrir Aust-
fjörðum. Háhyrningar eru þar
hundruðum saman og gera þeim
lifið leitt, skemma net og éta
sildina úr netunum. Tekizt hefur
að hrekja háhyrningana burt að
degi til, en þeir koma aftur þegar
dimmir einmitt þegar sjó-
mennirnir leggja net sin og þá
fæst ekki neitt við ráðið. Bezta
veður hefur verið á Höfn,
heiðskirtog fremur bjart um næt-
ur og tilgangslaust aö eiga við
sildveiðar, að sögn Hauks
Runólfssonar skipstjóra á Akur-
ey , sem var eina skipið, sem fór
út til slldveiða aöfararnótt
þriðjudags. Aðkomuskip eru nær
öll farin heim. Franskur maður,
Grandier, að nafni, hefur verið
með sjómönnunum undanfarna
daga, en hann hefur hug á að ná
háhyrningi lifandi fyrir visinda-
stofnunina Circo I Frakklandi,
sem fæst við rannsóknir á
sjávarspendýrum. Skipstjórinn á
Sigurvon hefur gengiö til liðs við
hann og munu þeir næstu viku
freista þess að fanga háhyrning,
að srign Grandiers.
Ef það tekst ekki.kemur
Grandier hingað að ári með sér-
stakt skip, 15 manna áhöfn og
kafara. Grandier hefur heitiö
skipstjóranum 1,2 milljónum Is-
lenzkra króna að launum fyrir lif-
andi háhyrning I góðu ásigkomu-
lagi.
— Ég hafði aldrei komið hingaö
og vissi ekki fyrir vist hvort hér
væru háhyrningar sagði Grandier
þegar viö töluðum við hann i sima
i gær, en hann var þá i Hótelinu i
Höfn — þess vegna kom ég einn
mins liös. Við förum á Sigurvon I
kvöld til Vestmannaeyja til aö
sækja sterk net, en sjómennirnir
hér hafa of veik net til að veiða
háhyrning. Þeir telja þetta létt
verk, en svo er alls ekki fyrir þá,
hins vegar er það auðvelt með
þeim útbúnaði sem er á okkar
skipi. Háhyrningar eru mjög
gáfaðir. Við komum aftur eftir
nokkra daga og freistum þá gæf-
unnar.
Ég hef áhuga á að ná ungum
háhyrningi um 4 1/2 metra á
lengd. Hann verður að vera
hættur að lifa á m jólk og farinn að
borða fisk. Ef við fáum þessa
stærð getur hann lifað i 20-25 ár I
dýrasafni. 1 sjónum verða
háhyrningar hins vegar allt upp i
30-40 ára gamlir. Ég hef veitt
hvers kyns sjávarspendýr, seli,
höfrunga, hvali, en aldrei
háhyrning, og það verður mikill
atburður ef það tekst nú.
Náum við háhyrningi áður en
veiöitiminn er úti færum við hann
upp að ströndinni i neti og geym-
um hann þar i eins konar búri úr
neti. 1 kvöld eða á morgun á ég
Frh. á bls. 15
t dag veröur nýtt varðskip
fyrir tslendinga sjósett við
hátiðlega athöfn I Arósum.
Verður skipinu gefið nafn við
það tækifæri, en nafn nýja
varðskipsins er eðlilega enn
algjört leyndarmál, þó hinu
sé ekki að leyna að flogið
hefur fyrir, a skipinu veröi
gefið nafnið Týr. Þaö ætti al-
tént að konta I ljós slðar i
dag. — Dóra Guðbjarts-
dóttir, kona Ólafs
Jóhannessonar, mun gefa
skipinu nafn.
Ljósmynd: Garðar Pálsson.