Fréttablaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 17
HVAÐ ER? SKATTAPARADÍS ÞRIÐJUDAGUR 14. desember 2004 Síðasti öruggi skiladagur á jólakortum til landa utan Evrópu er miðvikudagurinn á jólakortum til Evrópu er miðvikudagurinn á jólakortum innanlands er þriðjudagurinn 08.12. 15.12. 21.12. www.postur.is Komdu tímanlega Finndu pósthúsið næst þér á ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N E H F. /S IA .I S - IS P 25 98 4 1 2/ 20 04 með jólakortin Loksins, loksins! Sannleikurinn um Ísland / ba gg al ut ur .is Viðeyjardóninn afhjúpaður! Allt um lesbíuna í Sandey! Hvað gerist í F élagi eldri bor gara? Hvaðan kom Brúðubíllinn? * ósýnilega mannsins 30% afsláttur Alfræði Baggalúts Einskis er svifist til að koma efninu á framfæri og engum hlíft. Brot úr lærlegg* fylgir hverri seldri bók! Ísland eins og það er í raun og veru! Öruggt skjól fyrir skattheimtumönnum Höfundum skýrslu um skattsvik sem kynnt var á Alþingi fyrir helgi er tíð- rætt um svonefndar skattaparadísir enda hefur færst talsvert í vöxt að Ís- lendingar færi tekjur sínar á slíka staði. Í skýrslunni eru slíkar paradísir skilgreindar á eftirfarandi hátt. Einkenni? Skattaparadísir er kölluð þau ríki eða svæði þar sem gilda mjög sérstæðar reglur um skráningu félaga í eigu út- lendinga, skattlagningu þeirra og upp- lýsingagjöf um þau. Má þar nefna ríki eins og Bermúda, Bahama, Cayman- eyjar, Bresku Jómfrúreyjar, Ermar- sundseyjarnar, Liechtenstein og fleiri sambærilega staði. Þau eiga það sameiginlegt að skyldur varðandi upplýsingagjöf og framtals- gerð eru með minnsta móti. Flest þeirra landa sem um ræðir tryggja eigendum þessara félaga ríkan trúnað varðandi eignarhald, stjórnendur o.s.frv. Það gerir að verkum að mjög erfitt er fyrir utanaðkomandi aðila að fá framangreindar upplýsingar. Enn fremur er bankaleynd í þessum lönd- um það víðtæk að opinber yfirvöld eiga takmarkaða möguleika á að fá upplýsingar um bankareikninga eða aðrar eignir sem félögin eru skráð fyrir. Hætta? Skattaparadísir og skattavildarreglur geta átt rétt á sér en hafa oftar en ekki viss einkenni sem gera það að verkum að þau eru skaðleg og til þess fallin að draga til sín fjármagn og tekjur af því án þess að þar eigi sér stað nokkur raunveruleg starfsemi né virðisauki og þar með tekjur. Talið er að skattaparadís eða skattavildar- svæði feli í sér skaðlega starfsemi ef boðið er upp á mjög lágan eða engan tekjuskatt ásamt því að eitt eða fleira af eftirtöldu sé til staðar: Reglurnar eru eingöngu fyrir erlenda aðila, upp- lýsingaleynd ríkir og engin raunveru- leg starfsemi fer fram. Aðrar tegundir? Auk skattaparadísa er skaðlega skatta- starfsemi í formi skattavildarreglna einnig að finna í þróuðum löndum með annars heilbrigð skattkerfi. Mörg þeirra hafa af einhverjum ástæðum leiðst út í að lögfesta hjá sér sérreglur um skattlagningu félaga í eigu er- lendra aðila eða almennar reglur um skattlagningu tekna frá öðrum lönd- um. Oft hafa þessar reglur verið settar til að laða að erlent fjármagn. Við slíku er ekki amast frá skattalegu sjónarmiði þótt það kunni að rekast á þær reglur um samkeppni og opin- bera styrki sem kunna að vera í gildi. Þegar reglurnar þjóna eingöngu þeim tilgangi að færa tekjur frá einni skattalögsögu til annarrar til að losna undan sköttum þykir starfsemin skað- leg og hafa reglurnar sætt gagnrýni á þeim grundvelli. ■FRÁ CAYMANEYJUM

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.