Fréttablaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 30
14. desember 2004 ÞRIÐJUDAGUR12 Hvað finnst þér skemmtilegast? Þessa dagana finnst mér allra skemmti- legast að sækja lítinn, tæplega tveggja ára frænda minn á leikskólann. Hann fer alltaf að skellihlæja þegar hann sér mig og kemur hlaupandi í fangið á mér. Ef eitthvað bræðir hjartað þá er það þetta. Hvað finnst þér leiðinlegast? Mér finnst leiðinlegast að raka mig. Ari Sigvaldason fréttamaður á RÚV elskar að sækja litla frænda á leikskólann. SKEMMTILEGAST OG LEIÐINLEGAST Vissir þú ... … að 27% kvenna sem vinna í lottóinu fela vinningsmiðann í brjóstahaldaran- um. … að 53% kvenna í Bandaríkjunum myndu segja upp kærastanum ef þær fengju ekki Valentínusargjöf. … að 66% af fyrirtækjum í heimahúsum eru rekin af konum. … að 75% af öllum rúsínum sem eru étnar í Bandaríkjunum eru borðaðar í morgunmat. … að konur kaupa 96% af seldum kertum í heiminum. … að Bandaríkjamenn eru ábyrgir fyrir 20% af öllu rusli í heiminum. … að börn hlæja 400 sinnum á dag meðan fullorðnir hlæja aðeins 15 sinnum. … að 230 hjúskaparleyfi eru gefin út í Las Vegas á hverjum degi. … að á hverri mínútu eru 0,7 prósent jarðarbúa drukkin. Litirnir að vetrarlagi geta verið einstaklega fallegir þótt ekki séu þeir eins bjartir og að sumri/Fréttablaðið: Stefán SJÓNARHORN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.