Fréttablaðið - 14.12.2004, Blaðsíða 36
FÓTBOLTI Efnilegasti leikmaður
Landsbankadeildarinnar á síðasta
tímabili, Emil Hallfreðsson, er á
leið til enska stórliðsins Totten-
ham Hotspur. Samkomulag náðist
á milli FH og Tottenham í gær um
kaupverð á Emli og því á Emil
sjálfur aðeins eftir
að semja við
félagið en
hann á ekki
von á að það
verði mikið
vandamál.
„Það liggja
fyrir drög
að samn-
ingi sem ég er
sáttur við og því má
mikið gerast ef ég sem
ekki við liðið á næstu
dögum,“ sagði Emil við
Fréttablaðið í gær en
hann mun gera tveggja
og hálfs árs samning við
félagið með möguleika á
eins árs framlengingu ef
vel gengur.
FH-ingar vildu ekki gefa
upp hvað þeir fengu mikið
fyrir Emil en orðuðu það
þannig að þeir myndu fá
pening fyrir hann
kæmist hann í liðið og
stæði sig vel sem þeir
hafa fulla trú á að
hann geri. Emil verður
annar Íslendingurinn sem gengur
í raðir Tottenham en Guðni Bergs-
son lék með félaginu á sínum
tíma. Emil, sem hefur haldið með
Liverpool frá því í
barnæsku, var
að átta sig á
hlutunum í
gær en hann
var að
vonum
kátur
enda
lang-
þ r á ð -
ur draumur
að rætast.
„Þetta er það sem
mig hefur dreymt um frá
því ég var krakki og það
er ótrúlegt að draumurinn
sé loksins að rætast. Mig
hefur alltaf langað til þess að
spila í Englandi enda er það
mekka fótboltans. Ég neita því
ekki að það er frekar skrítið að
þetta sé að gerast og ég veit að
þetta er tækifæri sem ekki allir
fá og því er ég staðráðinn í að
nýta það vel,“ sagði Emil Hall-
freðsson. henry@frettabladid.is
24 14. desember 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Við óskum...
... Hafnfirðingnum Emil Hallfreðssyni innilega til hamingju með að vera orðinn atvinnumaður hjá enska
úrvalsdeildarliðinu Tottenham. Emil hefur gert víðreist í vetur og meðal annars hafnað tilboðum frá bæði Everton
og hollenska liðinu Feyenoord. Hann virðist hins vegar hafa fundið rétta félagið í höfuðstað Englands og verður
gaman að fylgjast með honum feta í fótspor Guðna Bergssonar.
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
11 12 13 14 15 16 17
Þriðjudagur
DESEMBER
FÓTBOLTI Eiður Smári Guðjohnsen og
Margrét Lára Viðarsdóttir voru val-
in knattspyrnumenn ársins 2004 á
samkomu Knattspyrnusambands
Íslands sem haldin var í gær. Þetta
er í fyrsta sinn sem KSÍ verðlaunar
knattspyrnufólk með þessum hætti
en yfir 200 einstaklingar víðs vegar
úr íslenska knattspyrnuheiminum
tóku þátt í kjörinu.
Eiður Smári þótti bestur karl-
anna vegna þess árangurs sem hann
hefur náð í einni erfiðustu deild
heims í knattspyrnu en næstur hon-
um var valinn Hermann Hreiðars-
son. Í þriðja sæti hjá körlunum varð
svo Heimir Guðjónsson, fyrirliði
FH.
„Þetta er mikill heiður enda
standa að þessu vali fólk sem annað-
hvort er eða hefur komið nálægt
knattspyrnu gegnum tíðina,“ sagði
Eiður Smári eftir að valið var kunn-
gert. Hermann Hreiðarsson tók
undir orð Eiðs og sagði allar slíkar
viðurkenningar af hinu góða fyrir
íþróttamenn. „Það skiptir engu máli
við hvað viðkomandi starfar eða
gerir, allt slíkt er tvímælalaust mik-
ill heiður og af hinu góða.“
Hjá stúlkunum þótti Margrét
Lára hafa staðið sig best eftir frá-
bært tímabil með liði ÍBV og lands-
liðinu í ár en í öðru og þriðja sæti
urðu þær Laufey Ólafsdóttir úr Val,
og Olga Færseth hjá ÍBV.
Margrét Lára var upp með sér.
„Þetta er að sjálfsögðu frábært að
hljóta viðurkenningu á borð við
þessa og ýtir undir að ég haldi áfram
að standa mig eins vel og ég get og
án efa ein sú mesta viðurkenning
sem ég get fengið ásamt því að vera
valin í landsliðið. Fyrir alla þá sem
eru reiðubúnir að leggja sig fram í
þeim íþróttum sem þeir stunda er
svona lagað staðfesting á að það er
tekið eftir því sem vel er gert.“
Á sama tíma færði Knattspyrnu-
samband Íslands einnig SOS barna-
þorpunum styrk að upphæð 500
þúsund krónum en það er í sam-
ræmi við stefnu Alþjóðaknatt-
spyrnusambandsins FIFA og munu
þeir peningar koma sér vel fyrir
munaðarlaus börn í Úkraínu á
næstu misserum.
albert@frettabladid.is
Eiður og Margrét Lára valin
Eiður Smári Guðjohnsen og Margrét Lára Viðarsdóttir voru valin knattspyrnumenn ársins í hófi sem
Knattspyrnusamband Íslands hélt af því tilefni. Rúmlega 200 einstaklingar tóku þátt í kjörinu.■ ■ LEIKIR
19.15 Fjölnir og Þór Ak. mætast í
Grafarvogi í Bikarkeppni KKÍ &
Lýsingar í körfubolta karla.
19.30 ÍS og Drangur mætast í
Kennaraháskólanum í 1. deild
karla í körfubolta.
19.40 Njarðvík og Keflavík
mætast í Njarðvík Intersportdeild
karla í körfubolta.
■ ■ SJÓNVARP
17.45 Olíssport á Sýn.
19.00 Meistaradeildin í fótbolta á
Sýn. Fréttaþáttur um
meistaradeildina í fótbolta.
19.30 Íslenski körfuboltinn á Sýn.
Bein útsending frá leik Njarðvíkur
og Keflavíkur í Intersportdeildinni
í körfubolta.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.15 World Supercross á Sýn.
Getum bætt við okkur nokkrum
verkefnum. Þið getið bókað
í síma 895-6616 og á netfanginu
einnogatta@hotmail.com.
Kv, Kertasníkir og Stúfur
Skemmtum á jólaböllum og í heimahúsum
Styrktarforeldrar óskast - sos.is
SOS - barnaþorpin
S: 564 2910
Íslandsmeistarar FH í knattspyrnu selja sinn efnilegasta mann til Englands:
Emil á leið til Tottenham
Í FÓTSPOR GUÐNA BERGS-
SONAR FH-ingurinn Emil
Hallfreðsson verður væntanlega
annar Íslendingurinn sem leikur
með Tottenham Hotspur en Guðni
Bergsson hóf sinn atvinnumanna-
feril með þessu enska stórliði.
KNATTSPYRNUMENN ÁRSINS Margrét Lára þótti hafa staðið sig vonum framar með
liði ÍBV og landsliðinu í sumar og Eiður Smári þykir hafa sett mark sitt svo um munar á
eina erfiðustu knattspyrnudeild í heiminum, ensku deildina.
HÓPURINN ALLUR Formaður KSÍ segir að þessi tilhögun á vali á besta knattspyrnufólki
landsins hafi tekist vel en yfir 200 einstaklingar sem koma með einum eða öðrum hætti
að knattspyrnu hérlendis kusu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L