Tíminn - 07.11.1974, Page 5
Fimmtudagur 7. nóvember 1974.
TÍMINN
5
„Opið hús" fyrir
aldraða á Akureyri
FIMMTUDAGINN 14. nóvember
næstkomandi hefst ný starfsemi
hjá félagsmálastofnun Akur-
eyrar. Gera á tilraun með að
hafa „opið hús” fyrir aldraða I
veitingasal Hótels Varðborgar,
og er ætlunin að hafa opið þar frá
kl. 15.00 til kl. 19.00 á hverjum
fimmtudegi. Aldrað fólk getur þá
komið þar saman og spjallað,
fengið sér kaffi, spilað eða teflt og
litið í blöð og timarit. Gestum
„opins húss” verður allt að kostn-
aðarlausu nema veitingar, en
Dr. Hallgrimur Helgason tón-
skáld hefur verið skipaður dósent
I sálma- og messusöngfræði og
tónflutningi við guðfræðideild Há-
skólans.
Þá hefur Haukur Guðlaugsson
organisti og skólastjóri á Akra-
nesi verið skipaður söngmála-
stjóri þjóðkirkjunnar.
verði á þeim verður stillt i hóf.
Þessa dagana stendur yfir
námskeið fyrir væntanlegt starfs-
fólk heimilisþjónustu á vegum
félagsmálastofnunar. Þátt-
takendur eru 21. Kennd eru ýmis
átriði, sem koma eiga starfs-
fólkinu að gagni við heimilis-
þjónustuna, svo sem ýmis hjúkr-
unaratriði, þættir úr næringar-
efnafræði og um fæðuþörf, og
komið er inn á félagsleg viðhorf
og sálfræðileg atriði. Nám-
skeiðinu á að ljúka 16. nóvember,
og eftir það getur heimilisþjón-
ustan hafizt af fullum krafti.
Félagsmálastofnun Akureyrar
hvetur alla, sem þarfnast hjálpar
af einhverju tagi á heimilum
sinum, til að hafa samband við
stofnunina. Allir sem sækja um
heimilisþjónustu verða heim-
sóttir,og i samráði við þá verður
metið, hvaða hjálpar og hve
mikillarumsækjandinn þarfnast.
Úðafoss flytur í nýtt húsnæði
Vestmannaeyjakvik
myndin endursýnd
Hin nýja Vestmannaeyjakvik-
mynd feðganna Vilhjálms og
Osvalds Knudsen, verður sýnd
þrisvar sinnum til viðbótar á
sögusýningunni að Kjarvalsstöð-
um. Myndin hefur hlotið geysi-
góðar móttökur sýningargesta,
og var þvi ákveðið að sýna hana
\ aukalega i þessi þrjú skipti, en
það er lika eina tækifærið, sem nú
gefst til að sjá myndina, svo þeir
sem áhuga hafa ættu að bregða
gér á sögusýninguna.
Osvald Knudsen sagði að hann
hefði ekki hugsað sér að myndin
yrði sýnd meira hér á landi. í at-
hugun væri að selja hana erlend-
is, en ekkert er ákveðið enn.
Fyrsta sýningin var á þriðju-
dagskvöld, siðan á miðvikudags-
kvöld og föstudagskvöld, kl. 21.00
hverju sinni.
Sú breyting verður einnig á áð-
ur auglýstri dagskrá sýningar-
innar, að fyrirlestur Arnþórs
Garðarssonar, sem átti að vera á
Náttúru-
verkur
Félag verkfræðinema og félag
náttúrufræðinema við Háskóla
Islands hafa nýlega gefið út
fyrsta tölublað af sameiginlegu
riti, sem félögin gefa út og nefnist
blaðið: Náttúruverkur.
Er blaðinu einkum ætlað að
fjalla um málefni, sem snúa að
verkfræði- og náttúrufræðinem-
um og segir í ritstjórnargrein, að
leitazt verði við að f jalla um mál-
in I þjóðfélagslegu samhengi.
Meðal efnis i þessu fyrsta tölu-
blaði era viðtöl við Jakob Björns-
son, orkumálastjóra og Gunnar
Thoroddsen iðnaðar- og orku-
málaráðherra. Greinar um vist-
fræði, hagnýtingu jarðvarma,
auðhringi á íslandi, náttúruham-
farir og virkjanir og fleira.
Náttúruverkur er prentað á
vandaðan pappir og er hið
myndarlegasta blað.
Lítill hvolpur
fallegur og vel upp al-
inn, óskar eftir fram-
tíðarheimili. Upplýs-
ingar í síma 42014.
Nítján ára
stúlka
óskar eftir atvinnu
strax. Hefur unnið við
verzlunarstörf.
Upplýsingar í síma
81545.
þriðjudagskvöld, verður fluttur
til nk. laugardags kl. 17.00.
Á fimmtudagskvöld kl. 21.00
flytur dr. Sveinbjörn Rafnsson
fyrirlestur, Aldur Landnámabók-
ar. Það kvöld mun Gunnar
Hannesson einnig sýna litskugga-
myndir sinar og útskýra þær.
BH-Reykjavik. — Victor Borge
verður heiðursgestur Sinfóniunn-
ar á Sinfóniuballinu 1974. Þennan
sama dag heldur Victor Borge
tónleika ásamt sinfóniuhljóm-
sveitinni i Háskólabiói.
Victor Borge er ekki aðeins
snjall pianóleikari, heldur og
grinisti i sérflokki, og nafn hans
er þekkt um allan héim. Hefur
frægð hans borizt I útvarpi, sjón-
varpsþáttum, á hljómplötum og i
kvikmyndum.
Þriggja ára hóf hann kynni sin
við pianóið, og var það af völdum
móður hans. Faðir hans, sem var
fiöluleikari i Konunglegu dönsku
sinfóniunni hugðist siðar koma
honum til fiðlunáms, en Victor
var ekki á þeim buxunum að
fórna pianóinu fyrir fiðluna, og
átta ára hafði hann fyrir sakir
hæfni sinnar náð i námsstyrk við
tónlistarskóla i Kaupmannahöfn,
og meðan hann var enn unglingur
að árum nam hann tónlist i Vin og
Berlin.
Hann var farinn að vinna fyrir
sér sem orgelleikari — aðaliega
við jarðarfarir — þegar kimni-
gáfa hans uppgötvaðist, og eftir
það lá leiðin um Danmörku og
siðar önnur Norðurlönd, og gafst
það vel, að Victor lét hina alvar-
legri hlið málsins lönd og leið. En
striðið var skollið á, og við her-
nám Danmerkur var hann að
skemmta i Sviþjóð. Þaðan lá leið-
in til Bandarikjanna, þvi að hann
átti von á slæmri heimkomu
vegna skopatriða hans um Hitler
og nazismann. Ekki kunni hann
þó ensku, og peningar voru af
harla skornum skammti.
Fyrsta árið i Bandarikjunum
lifði hann við sult og seyru, en
FB— Reykjavik — Fatahreins-
unin Úðafoss fluttist nýlega i ný
húsakynni að Vitastig 13, en áður
hafði fyrirtækið verið rekið
handan við götuna i húsinu nr. 12
við Vitastlginn. (Jðafoss hefur
verið starfandi milli 30 og 40 ár,
en núverandi eigandi hreinsunar-
innar er Jón L. Guðmundsson, og
hefur hann rekið fyrirtækið I einn
áratug.
í hinum nýju húsakynnum
hefur verið komið fyrir vélum af
fullkomnustu gerð, og eiga þær að
geta margfaldað afköstin frá þvi
sótti kvikmyndahúsin af kappi og
lagði sig fram um að læra ensk-
una. Loks kom að þvi, að hann
var beðinn um að skemmta i
veizlu, sem leiddi til þess, að hann
kom fram sem gestur i útvarps-
þætti á vegum Bing Crosby.
í þessum þætti var hann i rúmt
ár, og frægð hans varð mikil, ekki
aðeins i útvarpinu, þar sem hann
kom fram I þáttum á eigin veg
um og annarra, en einnig
skemmti hann á skemmtistöðum
og hótelum fyrir troðfullu húsi
kvöld eftir kvöld — ár eftir ár.
Það hafði alltaf verið viðkvæð-
ið, að ekkert þýddi fyrir einn
mann að reyna að koma fram á
Broadway. Victor afsannaði
þetta. Árið 1956 hafði hann
skemmt i þrjú ár á Broadway,
alls ,849 sinnum.
Nýr kafli i lifi hans hófst fyrir
nokkrum árum, er hann hóf sin-
fóniustjórn sina, en á það hefur
hann lagt rika stund um skeið
með sinum sérstæða árangri — á
jafn sérstæðan hátt, — og þarf
naumast að taka fram, að hann
stjórnar hljómsveitinni ekki á
hefðbundinn hátt. Þetta hefur
hann iðkað viða um heim, við frá-
bærar undirtektir, mjög góða
dómaog miklar vinsældir.
Victor Borge á stóra fjölskyldu
og býr á tveim stöðum, aðallega
Greenwich i Connecticut og á
Jómfrúareyjum.
sem áður var. Starfsliði hefur
ekki verið fjölgað, en alls eru 7
manns starfandi I Úðafossi. Úða-
foss býður viðskiptavinum upp á
alla venjulega hreinsun , og er
afgreiðslufrestur stuttur, jafnvel
hægt að fá fllkina aftur sam-
dægurs ef mikið liggur við.
Ein nýjung er i Úðafossi, sem
léttir afgreiðslufólkinu mjög
störfin, en það er færiband, sem
er notað undir hreinsaðan fatnað.
Afgreiðslustúlkan stigur á fót-
hemil, færibandið snýst, og
stúlkan þarf ekki annað en biða
eftir þvi, að það sem hún ætlar að
taka niður, renni upp að hliðinni á
henni á færibandinu. Myndin er
úr afgreiðslu Úðafoss
(Timamynd GE)
A
i&j
Til leigu
í strætisvagnabiðskýlinu á miðbæjar-
svæði Kópavogs er til leigu 14,6 fermetra
aðstaða til sölu á sælgæti o.fl. Umsóknar-
frestur er til 17. nóvember n.k. og skal
skila umsóknum til undirritaðs, sem gefur
allar nánari upplýsingar.
Kópavogi 6. nóvember 1974
Bæjarritarinn í Kópavogi.
1 x 2 — 1 x 2
12. leikvika — leikir 2. nóv. 1974.
Úrslitaröð:
XI 1- 121 — 111 — Xll
1. VINNINGUR: 12 réttir — kr. 403.000,00
35697 (Reykjavik)
2. VINNINGUR: 11 réttir — kr. 28.700.00
163 8551 9518 36391 36705 37738
Kærufrestur er til 25. nóv. kl. 12 á hádegi. Kærur skulu
vera skriflegar. KærueyðublöO fást hjá umboösmönnum
og aðalskrifstofunni. Vinningsupphæðir geta lækkað, ef
kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 12. leikviku
verða póstlagðir eftir 26. nóv.
Handhafar nafnlausra seðla verða að framvisa stofni eða
senda stofninn og fullar upplýsingar um n'afn og heimilis-
fang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GETRAUNIR — tþróttamiðstöðin — REYKJAVÍK
GrleÓilegjól
á nýjan og skemmtilegan hátt
Gleðjið vini og ættingja með persónulegu jólakorti.
Sendið litmyndir eftir yðar eigin i'ilmum af fjölskyld-
unni, börnunum eða ur sumarleyfinu i
LI r.VIYN'DA-JÓLAKORTINU frá Myndiðjunni.
Pantanir og nánari upplýsingar:
MYNDIÐJAN ÁSTÞÓR HF
Suðurlandsbraut 20. simi 82733. Pósthólí 1104. r
M i
Sv
te?:
Victor Borge heiðurs-
gestur á Sinfóníuballi