Tíminn - 07.11.1974, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 7. nóvember 1974.
TÍMINN
11
„St. Otmar leikur
eins og Dukla Prag
— þegar það var upp á sitt bezta" ...segir
Geir Hallsteinsson um St. Otmar-liðið,
sem mætir FH á laugardaginn í
Laugardalshöllinni
„Ég get lofað áhorfendum þvi, að
leikurinn gegn St. Otmar verður
mjög skemmtilegur. St. Ot-
mar-liðið er eitt skemmtilegasta
handknattleikslið, sem ég hef
ieikið á móti — það er hægt að
likja þvi við Dukla Prag, þegar
það var upp á sitt bezta”...sagði
Geir Halisteinsson um St. Ot-
mar-liðið, sem leikur gegn FH I
Gunnar til
Göppingen?
Burkhardmaier, formaður Göppingen er væntanlegur til landsins á
morgun og mun hann dveljast hér yfir helgina. Hann er hingað kom-
inn til að ræða við Gunnar Einarsson, hinn unga handknattleiksmann
úr FH og horfa á hann leika með FH-liðinu gegn St. Otmar. Burk-
hardmaier hefur mikinn áhuga á að fá Gunnar til að leika með
Göppingen næsta keppnistimabil og ef Gunnar fellst á það. þá mun
hann fara til V-Þýzkalands næsta sumar.
Þá mun Burkhardmaier ræða við forráðamenn FH um væntanleg-
an leik FH og Göppingen, sem færi fram i Göppingen 24. nóvember,
eða daginn eftir sfðari leik FH gegn St. Otmar. —SOS
Evrópukeppninpi I Laugardals-
höilinni á laugardaginn. Geir
sagðisthafa leikiðgegn St. Otmar
með Göppingen og þá marði
Göppingen sigur yfir St. Otmar.
Þeir leika mjög skemmtilegan
handknattleik, eru hreyfanlegir
og snöggir, og leika opinn hand-
knattleik. Þetta verður leikur fyr-
Framhald á bls. 13 i
ST. OTMAR liðið skemmti-
lega, sem mætir FH á laugar-
daginn i Laugardalshöliinni.
BARCELONA ÁFRAM
— í Evrópukeppni meistaraliða. Liverpool úr leik í bikarkeppninni
Johan Cruyff og félagar hans i
Barcelona tryggðu sér rétt tii að
leika I 8-liða úrslitunum i Evrópu-
keppni meistaraliða, þegar þeir
unnu sigur yfir Feyjenoord 3:0 I
Barcelona á þriðjudagskvöldið.
FERENCVAROS sló Liverpool
út úr bikarkeppni Evrópu, með
þvi að gera jafntefli 0:0 I Ung-
verjalandi. Fyrri leik þeirra lauk
meö jafntefli 1:1 á Anfield Road
og heldur þvi Ferencvaros áfram
á útimarki.
V-þýzku liðin Borussia
Mönchengladbach, For. Diissel-
dorf og Hamborg gerðu það gott I
UEFA-keppninni. „Gladbach”
vann Lyon, Frakklandi 5:2,
Dússeldorf vann Raba Vasas,
Ungverjalandi 3:0. og Hamborg
vann Steagul Rosu Brasov,
Rúmeniu 2:1. 011 v-þýzku liðin
komust þvi áfram.
Aftur á móti tapaöi Frankfurt
fyrir Dynamo Kiew 1:2, i
Evrópukeppni bikarmeistara og
féll þvi úr keppni.
Landsliðsfyrirliðinn í
knattspyrnu gerir lítið
úr þrotlausu starfi
Alberts og Hafsteins...
— Viðtal við Jóhannes Eðvaldsson vekur geysilega athygli
Furðu-
legur
dómur
— Ólafur Einarsson
dæmdur í 6 mdn-
aða leikbann!
Alþjóðhandknattleikssambandið
hefur nú kveðið upp dóm I má'li
Ólafs Einarssonar handknatt-
leiksmann úr FH. Eins og menn
muna var Ólafur settur i bann
vegna slagsmála i leik FH gegn
Saab I Evrópukeppninni og var
Ólafur útilokaður frá alþjóðleg-
um leikjum. Endanlegur dómur
var kveðinn upp I gær og fékk
Ólafur strangasta dóm, sem
handknattleiksmaður hefur
fengið fyrr eða siðar — hann er
útilokaður frá alþjoðlegum hand-
knattleik þar til 10. april 1975.
íþróttasiðan hefur frétt, að
stjórn HSÍ ætli að taka þetta mál
föstum tökum og áfrýja dómnum,
sem er furðulegur. Það voru
dönsku dómararnir Henning
Svensen og Gunnar Nielsen, sem
sendu inn kæru á hendur Ólafi, en
þessir sömu dómarar koma
hingaðogdæma landsleiki íslands
og A-Þýzkalands. -SOS.
Glímt
að Gimli
— á íslendingadag-
inn í Kanada
Glimusamband tslands hefur
nú ákveðið að senda úrvalsfiokk
glimumanna til að taka þátt I
hátiðarhöldum á ts-
lendingadaginn að Gimli i
Manitoba 1975, en þá verður
minnzt 100 ára búsetu Vestur-ts-
iendinga I Kanada. Þetta kom
fram á ársþingi sambandsins, en
Kjartan Bergmann Guðjónsson
var kosinn formaður GSt, þar
sem Guðmundur Guðmundsson
baðst undan endurkjöri.
Viðtai við Jóhannes
Eðvaldsson, fyrirliða
landsliðsins í knatt-
spyrnu, sem birtist í
Mbl. sl. þriðjudag, hefur
vakið geysiiega athygli
og jafnframt furðu
manna, sem hafa fylgzt
með íslenzkri knatt-
spyrnu undanfarin ár. I
viðtalinu gerir Jóhannes
lítið úr þeirri þrotlausu
vinnu, sem Albert
Guðmundsson og Haf-
steinn Guðmundsson,
hafa unnið sl. ár fyrir
islenzka knattspyrnu.
En þessir tveir menn
hafa lagt hornstein að
árangri landsliðsins
gegn sterkustu þjóðun
heims undanfarin ár. Þá
gefur Jóhannes í skyn,
að þeir Albert og Haf-
steinn hafi ekki komið
fram við leikmenn
landsliðsins eins og
menn — heldur sýnt
þeim vantraust.
En nú skulum við gefa
Jóhannesi orðið, eins og hann
komst að orði i Mbl.:
— Hingað tii hefur aldrei
verið leikinn nein taktik
(leikaðferð) I þeim lands-
leikjum, sem ég hef verið með
I — okkur er bara sagt að fara
inn á völlinn og leika eins og
við gerum með félagsliðum,
sem er vita ógjörningur, ef ná
á einhverjum árangri. Núna
er hins vegar leikið eftir
ákveðinni taktik. Ef við miss-
um t.d. boltann, þá erum við
látnir taka ákveðna menn, en
slikt vorum við aldrei látnir
gera áður.”
Já.þetta segir Jóhannes um
leikaðferðina hjá landsliðinu i
sumar. Hann gefur þarna 1
skyn.aðþegar Albertog Haf-
steinn voru með landsliðið,
hefðu þeir sagt leikmönnum
landsliðsins, að fara inn á
völlinn og leika eftir sinu
höfði. Ennfremur lætur
Jóhannes i það skina, að hann
og félagar hans i Val leiki ekki
„taktik”, heldur eftir þvi,
hvaðhverjum og einum dettur
i hug hverju sinni, og það
broslegasta er, — að
Jóhannes virðist ekki hafa
fengið kennslu i undirstöðu
knattspyrnunnar — undir-
stöðu, sem menn byrja að læra
i 5. fl. og eru að læra allt fram
að meistaraflokki. Það er að
„dekka upp” ákveðna leik-
mennn, þegar knötturinn
tapast.
Þá segir hann, aö islenzka
landsliðiö hafi aldrei leikið
„taktik” áður. Það er ekki
annað hægt að segja, en þar
taki hann of djúpt i árinni.
Undirritaður veit ekki annað,
en Henning Enoksen, fyrrum
landsliðsþjálfari, sé þekktur
fyrir kunnáttu sina i leikskipu-
lagi — ekki einungis i Dan-
mörku, heldur i allri Evrópu.
Enoksen var þjálfari
landsliðsins 1973, þegar við
náðum frábærum árangri
gegn Svium og A-Þjóðverjum
— árangri, sem engu öðru er
að þakka, en þvi leikskipulagi,
sem hann lét Islenzka lands-
liðið leika eftir.
í viðtalinu bendir Jóhannes
einnig á þátt lands-
liðsþjálfarans Tony Knapps,
og undirbúning hans með
landsliðið. Þegar að er gáð,
þá var undirbúningur lands-
liðsins, fyrir ferðina til Dan-
merkur og A-Þýzkalands
fyrir neðan allar hellur. Leik-
menn landsliðsins komu ekki
saman i mánuð. áður en
haldið var i ferðina. Tony
Knapp kom hingað til landsins
tveimur dögum áður en haldið
var til Danmerkur. Hann
stjórnaði einni æfingu og ein-
um fundi, þar sem hann
spjallaði við leikmennina,
áður en haldiö var til Dan-
merkur. Það komu ekki allir
leikmenn liðsins á æfinguna,
þar sem þeir voru erlendis.
Þá má geta þess, að undir-
búningunnn var þannig, að
markvörður landsliösins fór
ekki út með landsliðshópnum
— heldur mætti hann til leiks 1
Danmörku, aðeins tveimur
timum fyrir leik. Að ætla svo
að halda fram að undirbúning-
ur hjá landsliðinu hafi gert
það að verkum, að jafn-
teflið gegn A-t>jóðverj-
um náðist — er hlægilegt.
Arangur landsliðsins I sumar,
er að mestu leyti að þakka
þeirri kennslu, sem leikmenn
liðsins fengu hjá erlendu
þjálfurunum sem þjálfuðu
félagsliðin — það voru þeir,
sem undirbjuggu leikmennina
fyrir átökin. Þá má einnig
minnast á þá staðreynd, að
leikmenn landsliðsins hafa
fengið góðan undirbúning
undanfarin ár hjá þeim Albert
og Hafsteini — Kjarni
landsliðsins er einmitt leik-
menn, sem hafa Ieikið undir
þeirra stjórn undanfarin ár og
hafa nú mikla reynslu sem
landsliðsmenn. Róm var ekki
byggð á einum degi, þannig er
það einnig með landsliðið.
-SOS.