Fréttablaðið - 16.12.2004, Síða 10
10 16. desember 2004 FIMMTUDAGUR
HÖFUÐSTÖÐVAR SKREYTTAR
Hluti af nýrri byggingu Duravit fyrirtækisins
er risastór eftirlíking af klósetti. Fyrirtækið
býður upp á hreinlætisvörur og ýmislegt til
nota á baðherberginu og því var hönnuð-
urinn Philippe Stark fenginn til að hanna
skreytingu á húsnæðið.
Aðgerðir til styrktar sjávarbyggðum:
Sveitarfélögin fái
veiðileyfagjald
FÓLKSFÆKKUN Átta bæjar- og
sveitarstjórar hafa sent Alþingi
og ríkisstjórn áskorun þess efnis
að veiðileyfagjald sjávarútvegs-
ins renni til sveitarfélaganna í
stað ríkissjóðs. Jafnframt gera
þeir tillögu um að vegna fólks-
fækkunar verði skuldir og eignir í
félagslega íbúðakerfinu yfirtekn-
ar af ríkinu sökum þess að íbúðir
standi tómar og því sé kostnaður
umfram tekjur.
Í áskoruninni kemur fram að
samhliða fólksfækkun hafi sveit-
arfélögin misst tekjur þó verkefn-
um hafi ekki fækkað á móti og
vegna kvótakerfisins hafi tæki-
færi til auðsköpunar færst frá
sjávarbyggðum til annarra
svæða. Því þurfi að grípa til sér-
tækra aðgerða svo sjávarbyggð-
irnar fái staðið undir þeirri þjón-
ustu sem þeim er ætlað að inna af
hendi.
Eftirtaldir undirrituðu áskor-
unina: Reinhard Reynisson, Húsa-
vík, Tryggvi Harðarson, Seyðis-
firði, Albert Eymundsson, Horna-
firði, Runólfur Birgisson, Siglu-
firði, Magnús B. Jónsson, Höfða-
hreppi, Bergur Elías Ágústsson,
Vestmannaeyjum, Halldór Hall-
dórsson Ísafjarðarbæ og Kristinn
Jónasson, Snæfellsbæ. -kk
Skipulagsmál í Kópavogi:
Sátt um Lund
í bæjarstjórn
Skoðanakönnun:
Svíar hafna
evrunni
SVÍÞJÓÐ, AFP Mun fleiri Svíar eru
andvígir því að taka upp evruna
en hlynntir því, samkvæmt nýrri
skoðanakönnun. Samkvæmt
henni myndu 49 prósent Svía
greiða atkvæði gegn upptöku
evrunnar ef kosið yrði í dag en
37 prósent myndu segja já við
því að taka evruna upp í stað
sænsku krónunnar.
56 prósent kjósenda greiddu
atkvæði gegn upptöku evrunnar
í þjóðaratkvæðagreiðslu í sept-
ember 2003 en 42 prósent
greiddu atkvæði með breyting-
unni. ■
FUNDU FJÖLDAGRÖF Írösk yfir-
völd hafa fundið fjöldagröf
nærri Sulaimaniyah í norðan-
verðu Írak. Talið er að lík um
500 manns sé að finna í gröf-
inni. Talið er að tugþúsundir
líka sé að finna í fjöldagröfum
víðs vegar í Írak frá valdatíð
Saddams Hussein.
FRÆNDI SADDAMS HANDTEK-
INN Ezzedine al-Majid, frændi
Saddams Hussein, var handtek-
inn í Falluja í síðustu viku. Þar
barðist hann við hlið uppreisn-
armanna. Al-Majid þjónaði í líf-
varðasveitum Saddams til 1995
þegar hann flúði til Jórdaníu
með fjölskyldu sinni og mági.
Mágurinn sneri síðar heim og
var myrtur af undirsátum
Saddams.
jólagjöf
Hugmynd að
fyrir alla
Smáralind
Sími 545 1550
Glæsibæ
Sími 545 1500
Kringlunni
Sími 575 5100
www.utilif.is
20% afsláttur
af brettapökkum
Betti, bindingar og skór.
Sessions brettafatnaður
fæst í Útilíf Kringlunni.
Vertu viss
...veldu Rossignol snjóbretti
um gæðin...
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
U
TI
2
66
32
12
/2
00
4
SKIPULAGSMÁL Bæjarstjórn Kópa-
vogs samþykkti einróma skipu-
lagstillögur Lundar í Fossvogsdal
á fundi sínum á þriðjudag. Fyrri
tillögur, sem gerðu ráð fyrir 460
íbúðum á lóðinni, reyndust mjög
umdeildar og var mótmælt af íbú-
um í nágrenni lóðarinnar.
Samkvæmt tillögunni sem var
samþykkt í bæjarstjórn er gert
ráð fyrir 384 íbúðum, 76 íbúðum
færra en ráð var fyrir í gömlu til-
lögunni. Byggðin verður blönduð,
með fjórum átta og níu hæða fjöl-
býlishúsum næst Nýbýlavegi.
Norðar á lóðinni verða lægri hús
og sérbýli austast.
Gunnsteinn Sigurðsson, for-
maður skipulagsnefndar Kópa-
vogs, segir að skipulagið hafi
verið unnið í samvinnu við íbúa-
samtök. Hann segist eiga von á
því að hafist verði handa við
byggingu húsanna fljótlega á
næsta ári. Þá segir hann að einnig
verði ráðist í ýmsar vegafram-
kvæmdir í tengslum við bygging-
arnar. Til dæmis verður Nýbýla-
vegur breikkaður og færður til
norðurs, auk þess sem ný aðrein
verður gerð frá Hafnarfjarðar-
vegi inn á Nýbýlaveg. Þá stendur
til að gera tvö ný hringtorg.
- ghg
FRÁ HÖFN Í HORNAFIRÐI
Bæjarstjórar átta sveitarfélaga skrifuðu
undir áskorun til Alþingis um að gripið
verði til sértækra aðgerða til að sjávar-
byggðir geti innt lögbundna þjónustu af
hendi.
LUNDUR
Á myndinni sést skipulagið á Lundi sem samþykkt var í bæjarstjórn Kópavogs í fyrradag.
■ ÍRAK
10-11 15.12.2004 20:20 Page 2