Fréttablaðið - 16.12.2004, Page 66
46 16. desember 2004 FIMMTUDAGUR
FRÉTTIR AF FÓLKI
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ KVIKMYNDIR■ TÓNLIST
Mariah Carey hefur hannað nýjalínu af nærfötum. Línan kallast
Kiss Kiss og verður fáanleg í
helstu tískubúðum erlend-
is árið 2005. „Mariah set-
ur nærfötin á markað um
leið og hún hefur gefið
út sína næstu plötu í
Júní. Nærfötin eru hönn-
uð fyrir konur af öllum
stærðum og gerðum,“
sagði heimildarmaður.
Charlotte Church reynir nú eins oghún getur að hætta að reykja.
Ástæðan er sú að kærastinn hennar
nöldrar sífellt í
henni yfir reyking-
unum. Hún hefur
prófað nikótín-
plástra, tyggjó og
fór einnig til dá-
leiðara til þess að
losna við fíknina,
en ekkert gengur.
„Kyle nöldrar í
henni yfir þessu
og hana langar að
hætta. En það
hefur reynst henni erfitt því margir í
fjölskyldunni reykja og þar á meðal
ég,“ sagði móðir söngkonunnar.
„Hún veit að reykingar eru slæmar
fyrir röddina hennar. Faðir hennar
nöldrar einnig í henni og hún vill
frekar hætta en að sætta sig við allt
nöldrið í þeim.“
David og Victoria Beckham hafanú leigt bryta fyrir 1000 pund á
dag, meðal annars til þess að opna
jólagjafirnar þeirra. „Fyrrum bryti
þeirra, John Giles-Larkin hætti fyrr í
mánuðinum og skyldi
fjölskylduna eftir frek-
ar órólega, sér-
staklega vegna
þess hversu stutt
er í jólin,“ sagði
heimildarmaður.
„Árið hefur verið
erfitt fyrir hjónin
og þau vilja að
hátíðirnar snúist
eingöngu um fjöl-
skylduna og ætla
að eyða eins mikl-
um tíma saman og hægt er.“ Brytinn
á að eyða hálfum deginum í að opna
gjafir sonanna og hjónanna. „Einnig
á hann að fjarlægja alla farsíma fyrir
jólamáltíðina svo engin truflun
verði.“
Ástæðan fyrir miklu djammi ColinsFarrells segir hann vera svefn-
erfiðleika sína. Villtar nætur eru það
eina sem þreyta hann
nógu mikið til þess
að sofna. „Ég á í
vandræðum með
svefn. Þess vegna
er ég mikið úti á
kvöldin því ég veit
að ég get ekki sofn-
að nema ég verði
virkilega þreyttur.
Ég hef átt í
e r f i ð l e i k u m
með svefn síð-
an ég var
krakki,“ sagði
Colin.
Skólaverkefni Britney Spears úrgrunnskóla er nú á uppboði. Verk-
efnið inniheldur margar stafsetning-
arvillur sem Britney gerði þegar hún
var aðeins átta eða níu
ára. Verkefnið er útdráttur
úr bókinni Raymonds
Run og inniheldur það
hinar ýmsu mál-
fræðivillur. Kennari
söngkonunnar hef-
ur ekki verið mjög
hrifinn af verkefninu
og hefur skrifað orð-
in „lesa yfir“, „subbu-
legt“ og „ekki skrifa
aftan á blaðið“ á rit-
gerðina og hefur
einnig límt spurning-
armerki á hana. Búist
er við að verkefnið
fari á að minnsta
kosti 1000 dollara.
Ljósmynd seldist
á 1,4 milljónir
Ljósmynd af hljómsveitinni U2
frá árinu 1982 hefur verið seld
á uppboði í Dublin á Írlandi
fyrir rúmar 1,4 milljónir króna.
Myndin, sem er árituð, var
tekin af sveitinni í háu grasi í
Svíþjóð af hollenska ljósmynd-
aranum Anton Corbijn.
„Við teljum að þetta sé elsta
ljósmynd Corbjins af hljóm-
sveitinni sem hefur komist
á uppboðsmarkaðinn,“ sagði
Jane Beattie, yfirmaður hjá
uppboðshaldaranum James
Adam & Sons. ■
Leikkonan Liv Tyler, dóttir rokk-
arans Steven Tyler úr Aerosmith,
er orðin móðir í fyrsta sinn. Hún
eignaðist dreng í New York á dög-
unum og heilsast móður og barni
vel. Gekk fæðingin jafnframt
prýðilega.
Tyler, sem er 27 ára, er gift Bret-
anum Royston Langdon sem er
fimm árum eldri. Að sögn tals-
manns Tylers, sem er meðal ann-
ars þekkt fyrir hlutverk sitt í
Hringadróttinssögu, eru þau hjón-
in hæstánægð með drenginn og
mun hann brátt fá nafn. ■
U2 Hljómsveitin U2 gaf nýlega út plötuna How to
Dismantle an Atomic Bomb.
Tyler eignaðist dreng
LIV TYLER Leikkonan Liv Tyler er orðin
móðir í fyrsta sinn.
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
66-67 (46-47) Fólk 15.12.2004 17.41 Page 2