Fréttablaðið - 19.12.2004, Blaðsíða 56
44 19. desember 2004 SUNNUDAGUR
Brynhildur spila
r og áritar kl. 14
.
Á móti sól spila
og árita kl. 15.
Mugison spilar o
g árita kl. 16.
Jagúar spila og
árita kl. 17.
Áritanir og tónle
ikar
Í Skífunni Laugavegi 26
verður gaman í allan dag!
Kíktu við og njóttu tónlistarinnar
Lifandi
Laugavegur!
...skemmtir þér ; )
Skífan Laugavegi 26 • Skífan Smáralind • Skifan Kringlunni • www.skifan.is
Brynhildur spila
r og áritar kl. 14
.
Á móti sól spila
og árita kl. 15.
Mugison spilar o
g árita kl. 16.
Jagúar spila og
árita kl. 17.
Áritanir og tónle
ikar
1.999,-
1.999,-
1.999,-
1.999,-
JÓNSI
Laumuspil í flugvél
JÓNAS JÓNAS SON
Járnbrautarlest frá jólasveininum
VALGERÐUR BJARNADÓTTIR
Gletta eftirminnilegust
Valgerður Bjarnadóttir, fyrrver-
andi jafnréttisstýra, segist hafa
fengið eftirminnilegustu gjöfina
þegar hún var ellefu ára gömul.
„Á þessum tíma héldum við jól-
in hjá afa mínum og ömmu. Fjöl-
skyldan var mikil hestafjölskylda
og ég átti mér þann draum að
eignast hest. Það var enginn stór
pakki undir jólatrénu frá foreldr-
um mínum þessi jól heldur bara
lítið umslag. Ég held ég hafi aldrei
orðið jafn hissa og glöð og þegar
ég las hvað stóð í bréfinu – ég
fékk hryssu í jólagjöf sem ég
nefndi síðan Glettu. Við fórum
strax upp í hesthús þetta aðfanga-
dagskvöld og þar sá ég í fyrsta
skiptið hana Glettu mína.
Þessi gjöf er sú fyrsta sem
kemur upp í hugann þó ég hafi oft
fengið margar góðar gjafir.“
„Eftirminnilegasta jólagjöfin er járnbrautar-
lest sem jólasveinninn gaf mér fimm eða sex
ára gömlum þegar ég bjó að Baugsvegi 26, sem
nú heitir Bauganes, í Skerjafirðinum,“ segir
Jónas Jónasson útvarpsmaður.
„Ég veit ekki hvað það var við þessa lest,
kannski það að hún gekk í hringi og veitti mér
þannig endalausa gleði. Er ekki lífið líka ein
endalaus hringferð? Síðan ég fékk þess gjöf
hef ég verið heillaður af lestum og nærri
hvergi líður mér betur en um borð í járnbraut-
arlestum.“
Jónas glataði lestinni fyrir löngu. „Það var í
tísku á þessum árum að flytja og ætli lestin
hafi ekki horfið í búferlaflutningum. Nema
hún hafi einhvern tímann sloppið úr hringnum
og horfið á braut.“
„Timberland-úr sem konan mín
gaf mér jólin 1997 er eftirminni-
legasta jólagjöfin,“ segir Jón Jós-
ep Snæbjörnsson söngvari.
„Úrið keypti hún í flugvél á
leiðinni til Edinborgar þar sem
við eyddum jólunum. Það var mik-
ið laumuspil að koma mér úr sæt-
inu við hliðina á henni meðan hún
keypti úrið. Ég veit ekki alveg
hvernig hún fór að þessu. Ég held
hún hafi skriðið út á væng eða
eitthvað og verslað þar á Saga
boutique.“
Jónsi segir úrið mjög fallegt,
hann hafi gengið mikið með það
síðustu ár og geri enn. Á því sé
stálskífa og leðuról en henni hefur
hann nokkrum sinnum skipt út.
Úrið beri ljósbrúna ól núna og
minni hann alltaf mjög mikið á
eiginkonuna.
Sumar jólagjafir breyta lífi manns. Sumt
dót gerir mann að vinsælasta krakkanum í
hverfinu. Breytir manni í stælgæja. Aðrar
kenna manni umhyggjusemi og ábyrgð.
Og til eru gjafir sem fá mann til að elska og
meta eitthvað fyrir lífstíð. Sérstakar gjafir
hitta mann beint í hjartastað og minna eilíft
á ástina. Fréttablaðið fann dæmi um allt
þetta hjá fjórum landsþekktum jólasálum.
Töfrar undir trénu
Myndlistarmaðurinn Þorlákur Morthens, betur
þekktur sem Tolli, þarf ekki að hugsa sig lengi
um þegar hann er spurður hver sé eftirminni-
legasta jólagjöfin sem hann hafi fengið.
„Það var skammbyssa sem ég fékk frá
ömmusystur minni í Danmörku,“ segir Tolli.
„Þetta var náttúrlega leikfangabyssa úr
massífu plasti. Ég var átta ára þegar ég fékk
byssuna og barnssálin gladdist yfir þessari gjöf
á degi frelsarans. Á þessum tíma var Danmörk
hinn stóri heimur. Hérna heima var þetta bara
Kron og kaupmaðurinn á horninu. Þeir sem áttu
ekki ættingja erlendis voru því oft í slæmum
málum.
Þessi knallettubyssa markaði ákveðin tíma-
mót hjá mér á þessum aldri. Ég varð aðalmað-
urinn í hverfinu og ég man að milli jóla og
nýárs þá skaut ég stanslaust úr þessari byssu
og var langflottastur.
Auðvitað hef ég fengið fullt af fallegum
gjöfum sem hafa verið merkilegri en þessi.
Þessi byssa er nú samt eftirminnilegust.“
TOLLI
Fékk byssu á degi frelsarans