Fréttablaðið - 20.12.2004, Blaðsíða 32
[ ]Sveittir gluggarSveittir gluggar geta verið vandamál á þessum árstíma. Raki myndast innan á rúðuþegar kalt er úti. Rakinn getur lekið í gluggakistuna og þá getur lakkið losnað. Ráðer að hafa litla rifu á glugganum og draga aðeins frá til að koma hreyfingu á loftið.
REYKJAVÍKURVEGI 66 • HAFNARFIRÐI • SÍMI 565 4100
Mikið úrval af sófasettum
Paula
Rebecca
ATH Opið alla daga til jóla
Rafmagnsgítarpakki
verð frá kr. 24.900.-
Rafmagnsgítar,
magnari, poki, ól,
snúra og gítarneglur.
Kassagítarar frá
kr. 9.900.-
Þjóðlagagítar með
poka, stillitæki,
kennslubók, ól,
gítarnöglum
kr. 16.900.-
Trommusett með öllu,
ásamt æfingarplöttum
og kennslumyndbandi
rétt verð kr. 73.900.-
tilboðsverð kr 54.900.-
BJÓÐUM UPPÁ RAÐ- OG LÉTTGREIÐSLUR
Úrvalið af baðherbergisgræjum
er alltaf að aukast og undanfarin
ár hefur hönnun baðherbergja
tekið nokkrum breytingum í takt
við nýja tískustrauma og aukið
vöruúrval. Hvíti liturinn ber höf-
uð og herðar yfir aðra liti í hrein-
lætistækjum. Vaskar, klósett og
baðkör eru nær undantekningar-
laust hvít en vaskarnir taka helst
á sig mismunandi mynd, gler og
stálvaskar eru farnir að sækja í
sig veðrið og svo er formið á vösk-
unum orðið afar fjölbreytt.
Verðin eru mjög mismunandi á
handlaugum og fer það helst eftir
formi, stærð og merki. Klassískir
hvítir vaskar eru í ódýrari kantin-
um en nýstárlegir vaskar frá virt-
um hönnuðum kosta aðeins meira.
Um þessar mundir er mestur
áhugi sýndur á ferköntuðum og
kringlóttum vöskum, eins konar
skálum sem standa á borði.
Þegar velja á vask inn á bað-
herbergið er best að lesa svolítið í
umhverfið, grænn glervaskur á
stálfótum passar til dæmis ekki
alls staðar og ekki heldur gamal-
dags breiður hvítur postulíns-
vaskur. Baðherbergisrýmið og
húsið sjálft leggja vissar línur og
svo er það hugmyndaflugið og út-
sjónarsemin sem taka við.
Fallegar handlaugar
fyrir heimilið
Úrvalið er alltaf að aukast.
Grænn glervaskur, Canna 65.981 kr.
Hvítur vaskur á fæti, Revue 29.510 kr. Kringlóttur vaskur á borði, Starck 55.914 kr.
Stálvaskur á glerborði, Touch 30.436 kr.
Hvítur kringlóttur vaskur, White Vessel
30.361 kr.
Blár glervaskur 75.327 kr.Vaskur og skápur, Arezzo 25.064 kr. vaskurinn, 14.805 kr. skápurinn.