Fréttablaðið - 20.12.2004, Blaðsíða 72
40 20. desember 2004 MÁNUDAGUR
■ FÓLK
■ FÓLK■ TÓNLIST
Suðurlandsbraut 32 • 108 Reykjavík • Sími 568 8611 • piano@piano.is
Píanó á verði sem þú
hefur ekki séð áður!
Goodway hljóðfærin eru frábær kostur
fyrir þá sem eru að kaupa si fyrsta píanó.
Í fyrsta sinn á Íslandi bjóðum við þér nú
upp á að kaupa píanó á vaxtalausum
greiðslum (til 15 mánaða). 2 ára ábyrgð.
Verð frá 15.867 kr.
í 15 mán. eða 238.000 kr. staðgrei .
121 og 123 cm. píanó í svörtu, hnotu og
mahony.
Leynist lítill snillingur
á þínu heimili?
Slowblow, múm og Stór-
sveit Sigríðar troða upp
Hljómsveitirnar Slowblow, múm og
Stórsveit Sigríðar Níelsdóttur halda
tónleika í Íslensku óperunni á
mánudag. Þeir eru haldnir í tilefni
þess að meðlimir Slowblow og múm
eru á leiðinni í ólíkar áttir eftir við-
burðaríkt ár. Báðar gáfu sveitirnar
út hljómplötu á árinu. Múm fylgdi
plötu sinni Summer Make Good
eftir með hljómleikaferð um Evr-
ópu, Asíu og Ameríku og Slowblow
sendi frá sér nýja breiðskífu í
sumar. Sveitin slóst í för með múm
og síðan hafa þessar systursveitir
leikið saman á tónleikum hérlendis
sem erlendis.
Stórsveit Sigríðar Níelsdóttur er
nýkomin fram á sjónarviðið. Fyrir
fáeinum árum tók kona á áttræðis-
aldri sig til og byrjaði að senda frá
sér plötur upp á sitt einsdæmi. Alls
eru þær orðnar 36 talsins og er ekk-
ert lát þar á. Tónlist hennar hefur
verið ákaflega vel tekið. Hljóm-
sveitir á borð við Múm og Tilrauna-
eldhúsið hafa flutt lög eftir hana
auk þess sem tvö laga hennar voru
notuð í kvikmyndinni Nói Albínói.
Sigur Rós og Björk hafa einnig far-
ið fögrum orðum um verk hennar í
viðtölum.
Þrátt fyrir góðar viðtökur harð-
neitar Sigríður að koma fram á tón-
leikum eða flytja svo mikið sem eitt
lag opinberlega. Þess vegna var
ákveðið að stofna Stórsveit Sigríðar
Níelsdóttur og á tónleikunum í Óp-
erunni kemur sveitin fram í fyrsta
sinn á Íslandi.
Miðasala á tónleikana fer fram í
12 tónum og verslun Smekkleysu.
Miðaverð er 2.000 krónur og hefjast
tónleikarnir klukkan 20.00. ■
Fyrrverandi Bítillinn Paul
McCartney hefur játað það að
setja á sig gervineglur svo hann
eigi auðveldara með að spila á gít-
arinn. Söngvarinn segist hafa
tekið þá ákvörðun að láta setja á
sig neglur á snyrtistofu eftir að
konan hans, Heather Mills, stakk
upp á því. Hann hafði víst oft
kvartað yfir því að margra
áratuga gítarglamur hefði eyði-
lagt hendurnar á honum.
„Það eyðir nöglunum mínum
alveg hrikalega hvernig ég strýk
fingrunum eftir strengjunum.
Fyrir nokkrum árum stakk
Heather upp á því að ég fengi
mér gervineglur. Ég brást
ókvæða við og sagðist ekki geta
gert það. En ég gerði það að lok-
um og það virkar ótrúlega vel,“
sagði McCartney. ■
ELTON JOHN OG DAVID FURNISH
Hyggjast bíða með að gifta sig þangað til
brúðkaup samkynhneigðra verða lögleidd.
Elton John
giftist ekki strax
Kærasti Elton Johns hefur kvatt
niður þann orðróm að þeir séu á
leiðinni í hnapphelduna.
Kanadíski kvikmyndaframleið-
andinn David Furnish hefur ver-
ið félagi Eltons í ellefu ár og
segir þá ekki hafa í huga að gift-
ast því þeir ætli að bíða eftir að
brúðkaup samkynhneigðra verði
lögleidd.
Einhverjir héldu að parið
myndi gifta sig í kapellu Beck-
ham-hjónanna en Furnish segir
þá aðeins munu fara þangað í
skírn. „Við erum að vonast til
þess að lögleiðingin verði raun-
veruleiki eftir um sex mánuði,“
sagði Furnish.
Einnig sagði hann að ef og
þegar þeir myndu gifta sig yrði
athöfnin alls ekki stór. „Við höf-
um ákveðið að allt í kringum at-
höfnina verði afar einfalt. Það er
engin umræða um að halda helj-
arinnar partí eða nokkuð þess
háttar.“
Elton taldi upp hverjum af
fræga fólkinu hann myndi bjóða
í brúðkaupið. „Ég vil að Lulu sé
brúðarmærin og að Victoria
Beckham sé svaramaður,“ sagði
hann. ■
QRIO Sony-fyrirtækið kynnti nýtt vélmenni
á sýningu í Tókíó fyrir skömmu. Vélmennið
heitir QRIO og verður væntanlega sett í
sölu innan skamms.
MÚM Hljómsveitin múm mun troða upp í
Íslensku óperunni ásamt Slowblow og
Stórsveit Sigríðar Níelsdóttur.
McCartney með gervineglur
PAUL MCCARTNEY Lætur setja á sig
gervineglur svo hann eyðileggi ekki sínar
eigin við gítarspil.