Fréttablaðið - 21.12.2004, Blaðsíða 57
ÞRIÐJUDAGUR 21. desember 2004 41
Háaleitisbraut 68,
sími 568 4240
á Íslandi
Í jólapakkann
Vandaður
útivistarfatnaður
frá Frakklandi
Alltaf eitthvað nýtt
Allir velkomnir
Handboltaæði greip um sig í Noregi á EM í handbolta:
Áttatíu prósent sáu
úrslitaleikinn
HANDBOLTI Það er óhætt að segja að
norska kvennalandsliðið í hand-
bolta hafi slegið í gegn á meðal
norsku þjóðarinnar á meðan Evr-
ópumótið í handbolta stóð yfir í
Ungverjalandi. Eins og flestir vita
varð norska liðið Evrópumeistari
eftir sigur á Danmörku, 27-25, í
úrslitaleik á sunnudaginn.
Það fór ekki framhjá norsku
þjóðinni því alls sáu um áttatíu
prósent af sjónvarpsáhorfendum
leikinn á meðan honum stóð. Það
voru tæplega 1,3 milljónir Norð-
manna sem fylgdust með stelpun-
um sínum vinna Dani í úrslita-
leiknum og voru forráðamenn
sjónvarpsstöðvarinnar TV2 him-
inlifandi með áhorfið.
„Þetta er frábært og greinilegt
að stúlkurnar hafa snert taug í
norsku þjóðarsálinni,“ sagði
Björn Taalesen, yfirmaður
íþróttasviðs TV2.
Alls sáum um 768 þúsund
manns að meðaltali leiki norska
liðsins og keppnin vakti það mikla
athygli að 640 þúsund manns
horfðu á undanúrslitaleik Dan-
merkur og Rússlands. ■
Ryan Giggs hjá United:
Fer ekki
fram á allan
heiminn
FÓTBOLTI Umboðsmaður Ryans
Giggs segir að umbjóðandi hans
fari ekki fram á mikið í saminga-
viðræðum sínum við Manchester
United og furðar sig á því að
félagið skuli ekki vera búið að
endurnýja samninginn við kapp-
ann, sem rennur út 2006.
Alex Ferguson, knattspyrnu-
stjóri Manchester United, bauð
Giggs eins árs framlengingu en
kappinn var ekki ánægður með
það. Giggs vill fá tveggja ára
samning og telur sig eiga hann
skilinn eftir frábæra þjónustu við
félagið en Ferguson er ekki á því
að gefa sig enda er
stefna félagsins að
leikmenn sem
komnir eru yfir þrí-
tugt fái aðeins eins
árs samning í
einu. ■
NORSKA KVENNALANDSLIÐIÐ FAGNAR GULLINU Frábær árangur norska kvennalandsliðsins í handbolta á Evrópumótinu í Ung-
verjalandi fór ekki framhjá Norðmönnum, sem fylgdust grannt með gangi mála. Fréttablaðið/AP
RYAN
GIGGS
Vill fá
lengri
samning.
56-57 (40-41) SPORT 20.12.2004 21:04 Page 3