Fréttablaðið - 21.12.2004, Blaðsíða 69
UPPISTAND Á BROADWAY
FIMMTUDAGINN 30. DESEMBER
MI ASALA Í VERSLUNUM SKÍFUNNAR, BT Á AKUREYRI & SELFOSSI,
Á SKIFAN.IS, EVENT.IS OG Í SÍMA 575 1522. MI AVER A EINS 3.500 KR.
Vinningar verða afhendir hjá Office 1 Superstore, Skeifunni. Með ví að taka átt ertu kominn í SMS klúbb BT. SMS kostar 199 kr .
VILTU MIÐA!
Sendu SMS skeytið
BTL JKF á númerið
1900 og þú gætir
unnið.
Vinningar eru
Miðar á Jamie Kennedy,
DVD myndir, CD ś og
margt fleira.
ÞRIÐJUDAGUR 21. desember 2004 53
Kammersveit Reykjavíkur hélt
jólatónleika í Áskirkju sl. sunnudag.
Á efnisskránni voru konsertar eftir
Francesco Manfredini, Antonio
Vivaldi og Johann Sebastian Bach.
Einleik léku þau Ásgeir Steingríms-
son og Eiríkur Örn Pálsson á
trompet, Daði Kolbeinsson, Peter
Tompkins og Eydís Franzdóttir á óbó,
Einar Jóhannesson og Rúnar Óskars-
son á klarinett, Rut Ingólfsdóttir og
Unnur Marís Ingólfsdóttir á fiðlu,
Inga Rós Ingólfsdóttir á selló, Jósef
Ognibene og Emil Friðfinnsson á
horn. Rut Ingólfsdóttir var konsert-
meistari.
Konsertinn var höfuðform hljóð-
færatónlistar á barokktímanum, eins
og kunnugt er. Til voru nokkrar gerð-
ir konserta en sú varð algengust þar
sem einleikara, einum eða fleiri, var
stillt upp andspænis hljómsveit.
Formið fékk á sig skýra mynd um
aldamótin 1700 og er ítalinn
Giuseppe Torelli talinn hafa haft þar
mest áhrif á. Meðal einkenna þess
eru reglubundin áköll og svör milli
hljómsveitar og einleikara, auk þess
sem kaflar eru yfirleitt þrír; hraður,
hægur, hraður.
Á tónleikunum gafst skemmtileg
yfirsýn yfir hve fjölbreytt tónlist var
samin í þessu formi í upphafi átj-
ándu aldar. Í konsertinum í D dúr
eftir Manfredini voru einleikshljóð-
færin tveir trompetar, en tvær fiðlur
og selló í jólakonsert hans í C dúr.
Manfredini var nemandi Torellis og
fyrrnefndi konsertinn er mjög í hans
anda. Í síðari verkinu er brugðið frá
reglunni að því leyti að fyrsti og ann-
ar kafli eru báðir hægir. Þessi verk
eru einföld, skýr og heillandi. Fyrsti
kaflinn í jólakonsertinum er fallega
ljóðrænn.
Í konsert Vivaldis í C dúr fyrir 2
óbó, 2 klarinett og hljómsveit er þó
töluvert meira kjöt á beinunum. Á
ytra borði kann tónlist Vivaldis að
virka hrá og formúlukennd. Einfaldir
þríhljómar og tónstigar oft mjög ráð-
andi. Þessi sýn víkur þegar við nánari
kynni. Eins og hjá Mozart þjónar ein-
faldleikinn markmiði. Það er að und-
irstrika og skýra megintóntegundir
svo að meira megi gera með frávik-
um þar frá undir gangi leiksins. Hryn-
rænum krafti í verkum Vivaldis er við
brugðið. Í þessu verki fer hann á flug
m.a. með skemmtilega notuðum
tríólum og synkópum. Þá tekst þess-
um ítalska meistara að skapa
dramatíska spennu milli hljómsveit-
ar og einleikara og jafnvel einleikar-
anna á milli.
Hápunktur þessara tónleika var
fyrsti Brandenburgarkonsertinn eftir
Bach. Hann var aðdáandi Vivaldis,
lærði af honum og bætti heilmiklu
við, eins og þarna gafst gott færi á að
heyra. Hér er hljómsveitin stærri og
vefurinn ríkari og kaflarnir fleiri. Með-
ferð stefjaefnis er afar hugvitssamleg
og skapar sterka heild. Þetta verk er
ein af perlum tónbókmenntanna.
Kammersveitin flutti þessi verk yf-
irleitt mjög vel. Trompetleikararnir
Ásgeir og Eiríkur Örn blésu af snöfur-
leika í Manfredini og sama má segja
um leik þeirra Einars, Rúnar, Daða og
Peters í Vivaldi. Það eru ekki margar
fjölskyldur sem bjóða upp á
strengjaleik eins og þær systur og
Ingólfsdætur, Rut, Unnur María og
Inga Rós, sýndu í jólakonsert Man-
fredinis, enda eins gott því á vara-
mannabekk meðal áhorfenda í sal
sátu ekki færri en þrír kórstjórar úr
sömu fjölskyldu. Rut fór auk þess
mjög á kostum í Bach. Hornleikar-
arnir Jósef og Emil komu í því sama
verki sínu mikilvæga hlutverki einnig
vel til skila.
Stuðtækið
vinsæla
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
1
3
9
6
úr Popptíví
3.990 kr.
KAMMERSVEIT REYKJAVÍKUR
Jólakonsertar hjá
Kammersveit
TÓNLIST
FINNUR TORFI STEFÁNSSON
Kammersveit Reykjavíkur
Áskirkja
!
" #$%&'
() &'*
('+
,-./0-#12345%*(-657*-"888
8889:*-;*(*<<*55=
3*->?6-;#*@5*;@- <*@(*@<"
A
8 B
:'! ! C>/)
5!)! ' D#$%
?
8'2!
BE'A
8
#! +E
+
B=
D#$%&'
@FGF
F
H
>#02"#6>:J55@5=
7)E! '
K8L
!
7 E B
,-./0-7:#1;=
>/2
2!:%
@2/F8
,E ! &B'
'
%?%M-GN
E &,-977
8OO8
) 8OO8
8OO8
)G8OO8
FO8OO8
)K8OO8
K8OO8
) 8OO8
O8OO8
)'FK8OO8
/&
P<B)!
/'
B( 2
FK Q8
E'FF
1B 50>/9#*270;"
RRR827*-78"2 (5@5*-793*- 23.-*#"5%
-64
<1*
56
2/-
*@7
68-69 (52-53) Menning 20.12.2004 21:10 Page 3