Fréttablaðið - 23.12.2004, Síða 1
● var ekki valinn til túnis
Snorri Steinn Guðjónsson:
▲
SÍÐA 24
Þýðir ekkert
að væla
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FIMMTUDAGUR
FRIÐARGANGA Íslenskar friðarhreyf-
ingar standa að blysför niður Laugaveg-
inn á Þorláksmessu. Safnast verður sam-
an á Hlemmi klukkan 17:30 og lagt af
stað klukkan 18. Eva Líf Einarsdóttir flytur
ávarp, fundarstjóri verður Davíð Þór Jóns-
son rithöfundur.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
23. desember 2004 – 351. tölublað – 4. árgangur
● á snjóþotum
Með hangikjöt
Reykfélag:
▲
SÍÐA 42
EKKI TRUFLANDI ÁHRIF Fréttir af
rannsókn lögreglu og skattyfirvalda hafa
ekki áhrif á viðskipti félagsins erlendis að
mati Hreins Loftssonar, stjórnarformanns
Baugs. Sjá síðu 2
SIÐLAUS STEFNA OG KALDAR
JÓLAKVEÐJUR „Siðlaus stefna og kald-
ar jólakveðjur“ segir Ögmundur Jónasson
alþingismaður um hækkanir á komugjöld-
um til lækna. Ný gjaldskrá tekur gildi um
áramót. Sjá síðu 4
FARSÆLLA FYRIR FLOKKA AÐ
BJÓÐA FRAM SÉR Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra segir að R-lista samstarfið
gagnist stjórnarandstöðuflokkunum betur
en Framsóknarflokknum. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 32
Tónlist 34
Leikhús 34
Myndlist 34
Íþróttir 24
Sjónvarp 40
● jólin koma ● heimili ● tíska
Býr til engla úr leir
Hafdís Brandsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÍSKALT OG VINDASAMT Þannig eru
horfurnar í veðrinu fram á annan í jólum.
Snjókoma eða él norðan til en bjart syðra.
Talsvert frost um allt land. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
1
Opið í dag
10-23
dagur til jóla
Jólagjafahandbókin
- vinningsnúmer dagsins:
49973
Ferð til San Francisco!
KJARAMÁL Félag leikskólakennara
og Launanefnd sveitarfélaga
skrifuðu undir kjarasamning í
gærkvöldi. Ef samningurinn
verður samþykktur í atkvæða-
greiðslum, mun hann gilda til 30.
september 2006. Atkvæða-
greiðslum þarf að vera lokið
fyrir lok janúar.
Tveir hópar leikskólakennara
munu fá mestar launahækkanir;
yngsti hópurinn og þeir sem
sinna deildarstjórn. Meðallauna-
hækkanir deildarstjóra verða
um 20 prósent við lok samnings-
tímans. Tekið verður upp allt að
tveggja prósenta mótframlag
vinnuveitenda vegna séreignar-
lífeyrissparnaðar. Þá verða
gerðir fastlaunasamningar við
leikskólastjóra á grundvelli
samningsins. Björg Bjarnadóttir
formaður Félags leikskólakenn-
ara segir það hafa verið baráttu-
mál lengi og slíkum samingum
sé því fagnað.
Launakostnaður sveitarfélaga
hækkar um rúman milljarð á
tímabilinu eða um 13 prósent.
Karl Björnsson, formaður
samninganefndar launanefndar-
innar, segir mikilvægt að samn-
ingar hafi náðst í vinsamlegum
kjarasamningum, án átaka. Þar
hafi skipt máli að ekki var samið
undir þeirri formlegu ógn sem
felst í því að félagar hafi boðað
til verkfalls. Björg segir samn-
inganefnd leikskólakennara
sátta við innhald samningsins
miðað við samningstíma, en vildi
lítið tjá sig um hann fyrr en hann
verði kynntur fyrir trúnaðar-
mönnum nú í dag.
- ss
Leikskólakennarar:
Mesta hækkunin til deildarstjóra
VERSLAÐ FYRIR JÓLIN Fámennt var á Laugaveginum í gærkveldi og kalt, nú síðustu dagana sem landsmenn hafa fyrir jólainnkaupin.
DÓMSMÁL Rúmlega þrítugur karl-
maður, Sigurbjörn Sævar Grétars-
son, var í gær dæmdur í fjögurra
ára fangelsi í Héraðsdómi Vest-
fjarða fyrir kynferðisbrot gegn
fimm drengjum á aldrinum tólf til
fjórtán ára.
Sigurbjörn var ákærður fyrir
brot gegn sjö drengjum en sak-
felldur fyrir að tæla fjóra þeirra til
kynmaka, annarra en samræðis og
að hafa brotið gegn blygðunarsemi
drengjanna fimm, meðal annars
með því að sýna þeim klámmyndir
af fullorðnu fólki og ungum drengj-
um.
Drengjunum fimm voru dæmd-
ar bætur, frá 50.000 krónum til
700.000 króna.
Brotin, sem Sigurbjörn var sak-
felldur fyrir, áttu sér stað á árun-
um 2002 til 2004. Hann var einnig
ákærður fyrir brot sem áttu að
hafa gerst á árunum 1991 til 1994,
en þeirri bótakröfu var vísað frá
dómi.
Maðurinn er fyrrverandi lög-
reglumaður á Patreksfirði og starf-
aði sem forstöðumaður félagsmið-
stöðvar bæjarins. Lögreglan gerði
húsleit á heimili hans fyrir ári síð-
an og í kjölfarið var hann yfir-
heyrður og úrskurðaður í gæslu-
varðhald.
Í dómi Héraðsdóms segir að við
ákvörðun refsingar hafi orðið að
líta til þess að maðurinn hafi sem
forstöðumaður félagsmiðstöðvar
haft boðvald yfir drengjunum og
þeir litið upp til hans. Þá hafi for-
eldrar drengjanna treyst honum
fyrir þeim en hann brugðist því
trausti. Sigurbjörn hafi rætt við
drengina um kynlíf og sýnt þeim
klámmyndir á viðkvæmu þroska-
stigi, að því er virðist undir því
yfirskini að hann væri að fræða þá.
Hann hafi með þessu virst á kerfis-
bundinn hátt hafa leitast við að
gera þá móttækilega fyrir kynmök-
um. Það hafi farið eftir viðnáms-
þrótti drengjanna hversu langt
hann gekk. Þykir Héraðsdómi sú
aðferð sýna skýran og einbeittan
brotavilja Sigurbjörns.
Í dómnum segir að ljóst þyki að
brotin gegn drengjunum séu til
þess fallin að valda þeim sálrænu
tjóni sem geti haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir sjálfsmynd þeirra og
þroska, en sumir þeirra hafi upp-
lifað skömm og sektarkennd vegna
brotanna. Ákærði þótti ekki eiga
sér neinar málsbætur. - ghg
Fjögurra ára fangelsi
fyrir kynferðisbrot
Fyrrverandi lögreglumaður og forstöðumaður félagsmiðstöðvar á Patreksfirði var í gær dæmdur
í fjögurra ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn fimm drengjum. Héraðsdómur segir hann hafa
sýnt einbeittan brotavilja. Brotin eru sögð hafa alvarlegar afleiðingar á sjálfsmynd drengjanna.
Vísindamenn:
Fundu nýjar
dýrategundir
INDÓNESÍA, AP Fjölþjóða hópur vís-
indamanna hafa uppgötvað fjölda
nýrra dýrategunda í hellum á af-
skekktum stað í Kalimantan-héraði
í Indónesíu. Meðal þeirra eru áður
óþekktar fisktegundir, ný kakka-
lakkategund, tvær sniglategundir
sem ekki hafa sést áður og plöntur.
Tegundirnar fundust eftir að-
eins fimm vikna rannsóknarvinnu
vísindamannanna á svæði þar sem
skógarhögg er stundað. Í kjölfar
rannsóknanna segja vísindamenn-
irnir gríðarlega mikilvægt að
vernda svæðið fyrir skógarhöggi,
námuvinnslu og eldi. Ef slíkt yrði
ekki gert, gætu fjölmargar
dýrategundir dáið út, án þess að
nokkur vissi að þær hefðu nokkru
sinni verið til. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
G
AR
Ð
U
R