Fréttablaðið - 27.12.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MÁNUDAGUR
ÍÞRÓTTAMAÐUR KEFLAVÍKUR
Í dag verður kjöri á íþróttamanni Keflavík-
ur lýst, en athöfnin fer fram í félagsheim-
ili Íþróttabandalags Reykjanesbæjar að
Hringbraut 108 í Keflavík og hefst stund-
víslega klukkan átta í kvöld. Útnefna á
íþróttamann hverrar deildar.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
27. desember 2004 – 353. tölublað – 4. árgangur
● er mikill rokkari í sér
Sigurvegari Popp-
punktskeppninnar
Stefán Máni:
▲
SÍÐA 46
FORELDRAR MEÐAL BRENNU-
VARGA Fullorðið fólk kveikti í áramóta-
brennunni í Grindavík á miðnætti á jóla-
dag. Slökkviliðstjórinn segir einkennilegt að
fræða börnin um eldhættur þegar foreldrar
sumra þeirra kveikja í ólöglegum brennum
á jólunum. Sjá síðu 6
JÚSJENKO SPÁÐ SIGRI Samkvæmt
útgönguspám hafði leiðtogi stjórnarandstöðu
Úkraínu, Viktor Júsjenko, 15 prósentum fleiri
atkvæði í annarri umferð forsetakosninga þar
í landi en andstæðingur hans, Viktor
Janúkovitsj forsætisráðherra. Sjá síðu 6
VÖKNUÐU VIÐ ÞJÓFA Brotist var inn
á fjórum stöðum í Reykjavík frá því klukkan
fimm á jóladagsmorgun og til klukkan ell-
efu um kvöldið. Húsráðandi í Breiðholti
vaknaði við þrusk og kom að þjófum í eld-
húsinu. Sjá síðu 4
Kvikmyndir 22
Tónlist 22
Leikhús 22
Myndlist 22
Íþróttir 22
Sjónvarp 24
Sigrún Ágústsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Góðhestar á
gardínum
● fasteignir ● hús ● heimili
Fimmtudagar
Me›allestur dagblaða
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
68%
43%
MorgunblaðiðFréttablaðið
KÓLNAR Á NÝ Éljagangur sunnan og
vestan til en bjartviðri allra austast. Hiti við
eða undir frostmarki. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
LÖGREGLUMÁL Berglind Kristins-
dóttir, lögreglufulltrúi í skatta-
og efnahagsbrotadeild Ríkislög-
reglustjóra, er útskrifuð úr lög-
regluháskóla bandarísku alríkis-
lögreglunnar, FBI.
Berglind var í hópi 249 nem-
enda frá 24 löndum sem útskrif-
aðist 10. desember, ein af átján
konum. Hún er fimmti Íslend-
ingurinn síðustu fimmtán ár
sem lýkur ellefu vikna námi við
skólann.
„Námið tók í. Ég valdi mér
áfanga og lauk þeim annað hvort
með prófi eða verkefnaskilum.
Námið var því töluverð vinna og
tímasókn mikil,“ segir Berglind:
„Ég valdi til dæmis að fara í
yfirheyrslutækni. Þar voru
margir nýir punktar og margt
sem maður getur tileinkað sér.“
Berglind segir starfsaldur
þeirra sem stunduðu námið að
meðaltali hafa verið um sautján
ár. Námið hafi hún stundað á
hervelli sem standi um 65 kíló-
metra utan Washington-borgar.
Hún hafi verið tilnefnd af Har-
aldi Johannessen ríkislögreglu-
stjóra til þess. Síðast hafi lög-
reglumaður frá Íslandi farið
utan árið 2001.
- gag
Meira en tíu
þúsund látnir
Ekki er talið að Íslendingar sem eru á slóðum
jarðskjálftans í Indlandshafi hafi meiðst.
HAMFARIR Talið er að yfir 10 þús-
und manns hafi látið lífið af völd-
um flóðbylgja sem gengu yfir sex
Asíuríki við Indlandshaf í gær í
kjölfar öflugasta jarðskjálfta síð-
ustu 40 ára. Talið er að hamfarirn-
ar hafi sett líf meira en milljón
manna úr skorðum.
Skjálftinn átti upptök sín
skammt vestur af eyjunni Súmötru
í Indónesíu. Á þeim slóðum mætast
jarðflekar þar sem svonefndur
Indó-Ástralíufleki gengur undir
Evrasíuflekann með tilheyrandi
umbrotum. Skjálftinn var 8,9 stig á
Richter-kvarða og námu jarð-
skjálftamælar hann um allan heim,
meðal annars hér á landi.
Við jarðskjálftann lyftist
sjávarbotninn þannig að gífurleg-
ar flóðbylgjur mynduðust og fóru
um sex metra háar á ógnarhraða
yfir Indlandshaf. Þær brotnuðu
svo á strandlengjum landanna
beggja vegna Bengalflóa. Í
Indónesíu, Sri Lanka og á Indlandi
skoluðust heilu þorpin á braut,
sóldýrkendur bárust á haf út og
snorkkafarar lömdust yfir kóral-
rif í túristalendum Taílands. Á
Maldíveyjum, eyjaklasa suður af
Indlandi sem er um 2.500 kíló-
metra frá upptökum skjálftans,
varð mikið tjón en eyjarnar rísa
hvergi hærra en 1,8 metra yfir
sjávarmál.
Neyðarvakt var komið á í utan-
ríkisráðuneytinu í gær vegna ís-
lensks ferðafólks sem er á ferð í
Asíu og setti fjöldi ættingja sig í
samband við ráðuneytið til þess
að spyrjast fyrir um afdrif Íslend-
inga sem staddir eru á hamfara-
svæðunum. Ekki er vitað til þess
að Íslendingar hafi skaðast í flóð-
unum, en í gærkvöld hafði þó ekki
náðst í nokkurn hóp fólks ennþá.
Á lista ráðuneytisins yfir Íslend-
inga á þessum slóðum voru um 65
manns. Símasamband við ham-
farasvæðin var stopult, en í utan-
ríkisráðuneytinu fengust þær
upplýsingar að reynt yrði að að-
stoða fólk eftir megni í gegnum
ræðismenn á viðkomandi stöðum
eða norrænu utanríkisþjónustuna.
Fregnir bárust þó af því að stöku
ferðamenn hefðu verið hætt
komnir og mörgum var mjög
brugðið. Talsvert er af erlendum
ferðamönnum á skjálftasvæðun-
um og er fjölmargra saknað.
-óká/shg/ht
Sjá síður 2, 4 og 8
BERGLIND KRISTINSDÓTTIR
Segir námið hjá FBI hafa verið strembið.
Það eigi örugglega eftir að nýtast henni
vel, sérstaklega við yfirheyrslur.
FLÓÐBYLGJAN Ómar Valdimarsson
vinnur á vegum Alþjóðasambands
Rauða krossins í Indónesíu. Hann
segir að eyðileggingin sé ótrúleg.
„Það kemur tveggja til fjögurra
metra hár vatnsveggur á 5-600 kíló-
metra hraða. Fólk er varnarlaust og
kastast fleiri hundruð metra.
Landið er algjörlega flatt eftir og
bara ræturnar standa upp úr.“
Hann hafði heyrt af konu sem var í
sólbaði á Phuket og lá á ströndinni
þegar hún sá vatnsvegginn allt í
einu yfir sér. Hún átti fótum fjör að
launa, komst inn í næsta hús sem
síðan fylltist af sjó og eyðilagðist.
Konunni varð ekki meint af.
Ómar segir náttúruhamfarir svo
tíðar á þessu svæði að eitthvað
gerist að meðaltali rúmlega tvisvar
á dag, jarðskjálftar vikulega.
Rauði krossinn hafði náð sam-
bandi við eitt hérað af sex seinni
partinn í gær. Neyðarsveitir höfðu
verið kallaðar út og svo fóru starfs-
menn á svæðisskrifstofum í Bang-
kok og Delí að skipuleggja viðbrögð
alþjóðahreyfingarinnar.
- ghs
Sjá nánar síðu 8
Var í lögregluháskóla bandarísku alríkislögreglunnar:
Íslensk kona útskrifast frá FBI
Ómar Valdimarsson:
Fólk er varnarlaust
AFLEIÐINGAR FLÓÐBYLGJU Á INDLANDI Sjálfboðaliðar að störfum eftir að flóðbylgja
gekk yfir strönd í borginni Madras í suðurhluta Tamil Nadu héraðs á Indlandi í gær.
ÍBÚAR FLUTTIR Á BROTT Íbúar í Lhokseumawe í Aceh-héraði í Indónesíu voru fluttir
burt í vörubílum lögreglu eftir að flóðbylgjur gengu yfir bæinn í gær. Yfirvöld og sjónarvott-
ar báru að þegar flæddi út hefði víða mátt sjá lík drukknaðs fólks skorðuð uppi í trjám.