Fréttablaðið - 28.12.2004, Síða 1
HAMFARIR Enn fjölgar þeim sem
týndu lífi í hamfaraflóðunum
sem brustu á eftir risaskjálftann
á annan dag jóla. Hátt í 24.000
manns eru talin hafa farist,
helmingur þeirra bjó á Srí
Lanka. Kraftur flóðbylgjunnar
var svo mikill að hún barst alla
leið til Sómalíu þar sem á annað
hundrað manns lést. Milljónir
íbúa hamfarasvæðanna eru
heimilislausar.
Stjórnvöld á svæðinu hafa
verið gagnrýnd fyrir að vara
ekki við flóðbylgjunni en það tók
hana tvær og hálfa klukkustund
að berast til Srí Lanka. Því hefði
átt að vera svigrúm til að rýma
svæði og bjarga mannslífum.
Neyðaraðstoð hefur borist
víða að, meðal annars frá ís-
lensku ríkisstjórninni sem í gær
ákvað að láta fimm milljónir
króna af hendi rakna. Þá hefur
Rauði kross Íslands safnað þre-
mur milljónum króna. Sjá síðu 4
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
BAROKKFYRIRLESTUR Klukkan hálf
níu í kvöld flytur Eyþór Ingi Jónsson, org-
anisti og kórstjóri í Akureyrarkirkju, fyrirlestur
á vegum Tónlistarfélags Akureyrar í Akureyr-
arkirkju þar sem hann fjallar um tónlist
barokktímans.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
28. desember 2004 – 354. tölublað – 4. árgangur
● snæddi steik á rossopomodoro
Slappar af í
Reykjavík
Kiefer Sutherland:
▲
SÍÐA 30
ÞRÁBIÐJA ÞURFTI UM AÐGERÐ Átt-
ræður karl var settur á forgangslista fyrir
hjartaþræðingu eftir skoðun um miðjan des-
ember, en átti að bíða fram í janúar eftir að-
gerð vegna fjárskorts. Sonur hans fékk að-
gerðinni flýtt með þrákelkni. Sjá síðu 12
GRUNUR UM BROT LÖGREGLU-
ÞJÓNS Aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá emb-
ætti ríkislögreglustjóra hefur verið leystur frá
störfum vegna rökstudds gruns um brot í
starfi. Maðurinn skráði bíl embættisins á
sambýlisbýliskonu sína, sem er lögreglufull-
trúi á höfuðborgarsvæðinu. Sjá síðu 6
SKRÍLSLÆTI VÍÐAR ÞEKKT Bæjar-
stjóri Grindavíkur segir allra leiða verða leit-
að til að koma í veg fyrir að ólæti um mið-
nætti á jóladag endurtaki sig. Skrílslæti hafa
áður þekkst í Hafnarfirði, á Selfossi og Sauð-
árkróki í kringum áramót þó að nokkuð
langt sé um liðið. Sjá síðu 8
NÝR FORSETI Í ÚKRAÍNU Viktor
Júsjenkó sigraði nafna sinn Janukovitsj í
forsetakosningunum í Úkraínu sem fram
fóru í fyrradag. Júsjenkó boðar nýja tíma í
frjálsu og fullvalda ríki. Verkefnalistinn sem
bíður hans er langur. Sjá síðu 10
Kvikmyndir 30
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
● áramót ● heilsa
Keypti hátíðarmat-
inn á bensínstöð
Dagur Kári Pétursson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
VÍÐA ÉLJAGANGUR Síst þó á austan-
verðu landinu þar sem búast má við björtu
veðri. Frost 1-8 stig í dag en skammvinn
hlýindi á morgun. Sjá síðu 4.
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
JARÐSKJÁLFTI Utanríkisráðuneytið
hefur ekki upplýsingar um 26 Ís-
lendinga í Asíu. Talið er að aðeins
nokkrir þeirra hafi verið á svæð-
um þar sem flóðbylgja reið á land
í kjölfar jarðskjálftans á annan í
jólum sem mældist níu á
Richterkvarða. Staðfest er að
rúmlega 23 þúsund manns hafi
látist.
Pétur Ásgeirsson, skrifstofu-
stjóri almennrar skrifstofu utan-
ríkisráðuneytisins, segir ekkert
benda til þess að Íslendingar hafi
slasast eða farist. Gert sé ráð fyr-
ir að meirihluti þeirra 26 sem eng-
ar spurnir hafi borist af hafi ekki
verið á hættusvæðum, eins og í
Pattaya og Singapúr, en ganga
verði úr skugga um það.
Pétur segir fjölskyldur nokk-
urra þeirra 26 hafa verið í sam-
bandi við ráðuneytið. Hér heima
óttist fólk af asískum ættum um
afdrif ættingja sinna. Somjai Siri-
mekha, túlkur hjá Alþjóðahúsi,
segir sjö taílenskar fjölskyldur
meðal þeirra. Rauði krossinn hef-
ur boðið þeim aðstoð við að leita
ættingja á hamfarasvæðunum.
Rauði krossinn fundaði með
áhyggjufullu fólki í húsakynnum
sínum í gærkvöld.
Þórir Guðmundsson, upplýs-
ingafulltrúi Rauða kross Íslands,
segir ríflega tvö þúsund hafa
hringt í hjálparsíma Rauða kross-
ins, 907 2020, og veitt þúsund
króna framlag. Stjórnvöld hafi
einnig ákveðið að veita fimm
milljónir til hjálparstarfsins.
Enginn Íslendingur hefur farið
utan til hjálparstarfa. Þorsteinn
Þorkelsson, sviðstjóri björgunar-
sviðs hjá Slysavarnarfélaginu
Landsbjörgu, segir krafta Íslend-
inga sem starfa í viðbragðsliði
Sameinuðu þjóðanna ekki hafa
verið óskað að þessu sinni.
Þórir segir um 130 manna
þjálfaðan hóp veraldarvaktar
Rauða krossins vera í viðbragðs-
stöðu. Ekki sé þó útlit fyrir að
hópurinn fari utan.
Pétur segir danska sendiráðið í
Bangkok ætla að hlutast til um Ís-
lendinga á svæðinu. Þeir geti haft
samband við danska hjálparmið-
stöð á eyjunni Phuket við Taíland.
- gag
Sjá síður 2, 4 og 6
STJÓRNMÁL Fréttatilkynning utan-
ríkisráðuneytisins númer tvö á
þessu ári hefur verið fjarlægð af
heimasíðu utanríkisráðuneytisins.
Í fréttatilkynningunni sem gefin
var út níunda janúar síðastliðinn,
var skýrt frá því að íslenskir
sprengjusérfræðingar hefðu
fundið kúlur sem hafi innihaldið
sinnepsgas. Danskir og enskir
sérfræðingar voru sagðir hafa
staðfest þá greiningu. Halldór Ás-
grímsson, þáverandi utanríkisráð-
herra, fagnaði þessum fundi í fjöl-
miðlum: „Ég tel að hér sé um að
ræða heimsatburð,“ sagði Halldór.
„Ég er stoltur og þakklátur ís-
lensku sérfræðingunum fyrir
þeirra stóra þátt í þessu máli.“
Nokkrum dögum síðar skýrðu
erlendar fréttastofur frá því að Ís-
lendingar hefðu haft rangt fyrir
sér. Ekki var gefin út nein frétta-
tilkynning um það að því er séð
verður en upphaflega fréttatil-
kynningin virðist hafa verið látin
hverfa.
Elínu Flygenring, skrifstofu-
stjóra upplýsingamála utanríkis-
ráðuneytisins, var ekki kunnugt
um að fréttatilkynningin hefði
verið fjarlægð þegar samband var
haft við hana í gær. Ekki náðist í
Gunnar Snorra Gunnarsson ráðu-
neytisstjóra.
- ás
18-49 ára
Me›allestur dagblaða
Allt landið
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
69%
43%
MorgunblaðiðFréttablaðið
Sjö Íslendingar
á hættusvæðum
7 af 26 Íslendingum í Asíu eru taldir hafa verið á
hættusvæði vegna skjálftans við Súmötru. Rauði
krossinn hér aðstoðar fólk við leit að ættingjum.
Sinnepsgasfundurinn í Írak:
Fréttatilkynningu eytt af heimasíðu
ÍSLENDINGA LEITAÐ: *
Óþekkt staðsetning á Taílandi 4
Pattaya á Taílandi 11
Taíland nálægt strönd 1
Suðurhluti Taílands 1
Cocin, Indlandi 1
Balí, Indónesíu 6
Singapúr 3
* Heimildir frá utanríkisráðuneytinu
FÓRNARLÖMB NÁTTÚRUHAMFARA Syrgjandi foreldrar gráta barn sitt sem skolaði í
gær á land við Silfurströnd í bænum Cuddalore, í suðurhluta héraðsins Tamil Nadu í Ind-
landi. Flóðbylgjur frá neðansjávarjarðskjálftanum við Súmötru í Indónesíu óðu yfir suður-
hluta Indlands á sunnudaginn og urðu hátt í 2.300 manns að bana, auk þess að valda gíf-
urlegri eyðileggingu. Tamil Nadu varð einna verst úti í Indlandi þar sem 1.705 biðu bana.
AP
M
YN
D
Hamfarir við Indlandshaf:
23.700 taldir látnir
SÆRÐIR FLUTTIR BURT Slasaður ferðamaður er fluttur um borð í þyrlu á Phi Phi eyjum
í Taílandi. Þar varð mikið tjón á annan í jólum þegar flóðbylgjur af völdum neðansjávar-
skjálftans sem þá brast á skullu yfir þennan vinsæla ferðamannastað sem er í héraðinu
Krabi í suðurhluta Taílands.
AP
M
YN
D
/A
PI
C
H
AR
T
W
EE
R
AW
O
N
G