Fréttablaðið - 14.01.2005, Side 2
SPURNING DAGSINS
Nei, rokkið er sko ekki dautt. Ég hélt einmitt
að rokkið væri svoldið inn núna, þannig að
ég held ekki að rokkið sé að drepa stöðv-
arnar. Það er alltof mikil einhæfni sem er að
drepa stöðvarnar.
Andrea Jóns hefur lengi verið einn helsti boðberi
rokksins í útvarpi. Síðustu vikuna hafa tvær út-
varpsstöðvar, Skonrokk og Radíó Reykjavík, sem
auglýstar voru sem rokkstöðvar, hætt starfsemi.
Andrea, er rokkið dautt?
2 14. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
Vinnumálastofnun:
Útgáfa atvinnuleyfa hefst eftir helgi
ATVINNA Gissur Pétursson, for-
stjóri Vinnumálastofnunar, seg-
ir að nú eftir helgina verði hafin
vinna til að veita atvinnuleyfi
handa einhverjum af þeim Kín-
verjum sem Impregilo hefur
sótt um leyfi fyrir.
Næstu mánuðina verði það
stöðug vinna að fara yfir um-
sóknir og samráðsferli sé hafið
þar sem Vinnumálastofnun og
Impregilo hittist hálfsmánaðar-
lega til að yfirfara umsóknir og
meta stöðuna varðandi áfram-
haldandi ráðningar og útgáfu á
leyfum.
Tvöhundruð umsóknir um
atvinnuleyfi hafi borist frá
Impregilo og fleiri eigi eftir að
koma. Því sé greinilega nokkuð
um laus störf. „Við höfum verið
að pressa á það að fyrirtækið
leiti að íslensku eða evrópsku
vinnuafli í þessi störf. Það hafa
þeir gert og munu halda áfram á
þeirri leið.“
Gissur segir að auglýsing í
Morgunblaðinu hafi skilað um
18 umsóknum, af þeim hafi um
tugur verið ráðinn. Þá hefur
Vinnumálastofnun hafi farið
yfir þær umsóknir sem Impreg-
ilo bárust frá Evrópu. Þetta dugi
ekki til að ráða í þessi 200 störf
og því verði að leita til þriðju
landa.
Nánast ekkert sé um að ís-
lenskir iðnaðarmenn sæki um
störf. Íslenskir og evrópskir
umsækjendur verði ráðnir, ef
þeir uppfylla hæfisskilyrði.
- ss
Framkvæmdir
raskast ekki
Úrskurður um að Fjarðaál verði að gangast undir
umhverfismat kemur forstjóranum á óvart.
DÓMSMÁL Engin röskun verður á
framkvæmdum við álverið í Reyð-
arfirði þrátt fyrir úrskurð Héraðs-
dóms Reykjavíkur um að Fjarðaál
verði að gangast undir umhverfis-
mat. Fyrirtækið hefur áfrýjað úr-
skurðinum til Hæstaréttar og
þangað til hann fellir úrskurð hefur
það sömu réttarstöðu og fyrir úr-
skurð héraðsdóms.
Forsendur dómsins voru meðal
annars þær að álverið sem hafði
áður gengist undir umhverfismat
var með annan mengunarbúnað og
því þyrfti Fjarðaál að gangast undir
annað. Tómas Már Sigurðsson, for-
stjóri Fjarðaáls, segir að þessi
niðurstaða komi sér á óvart. „Í
grundvallaratriðum er um að ræða
minna álver sem er ekki með raf-
skautaverksmiðju, en það er einn
mest mengandi þáttur í rekstri ál-
vera. Við erum með þurrhreinsun-
arbúnað og þau markmið sem við
og starfsleyfið setur okkur eru það
ströng að heildaráhrifin af verk-
smiðjunni eiga að vera minni eða
þau sömu og ef um vothreinsunar-
búnað væri að ræða.“
„Þetta er jákvæður úrskurður og
við eigum mikið að þakka þraut-
seigju og elju Hjörleifs Guttorms-
sonar að fara með þetta mál fyrir
dómstóla,“ segir Árni Finnsson,
formaður Náttúruverndarsamtaka
Íslands. Árni hefur fyrirvara á að
Hæstiréttur á eftir að fjalla um
málið en segir þó dóminn vera við-
urkenningu á málstað náttúru-
verndarsinna og staðfesta að um-
hverfisráðherra hafi farið offari á
sínum tíma við afgreiðslu málsins.
Siv Friðleifsdóttir var umhverf-
isráðherra í apríl 2003 og felldi
þann úrskurð að álverið í Reyðar-
firði þyrfti ekki að gangast undir
annað umhverfismat þar sem slíkt
mat hefði áður farið fram vegna
álvers Norsk-Hydro sem aldrei
reis. Hún telur ekki að úrskurður
Héraðsdóms Reykjavíkur sé áfell-
isdómur yfir ákvörðun hennar og er
hissa á niðurstöðunni. „Það hafði
áður farið fram umfangsmikið um-
hverfismat fyrir mun stærra álver
og þrátt fyrir öðruvísi mengunar-
búnað nýja álversins töldu Um-
hverfisstofnun og Skipulagsstofnun
ekki þörf á nýju mati og ég var sam-
mála því.“ bergsteinn@frettabladid.is
Indónesía og Andamaneyjar:
Stjórnvöld hamla
hjálparstarfinu
ASÍA, AP Sú krafa indónesískra
stjórnvalda að hermenn fylgi
hjálparstarfsmönnum á hamfara-
svæðum í Aceh-héraði getur orðið
til þess að grafa undan hjálpar-
starfi í héraðinu, sögðu talsmenn
hjálparsamtaka í gær. Þeir segja
að þetta geti hvort tveggja orðið
til að seinka ferðum hjálparstarfs-
manna og einnig til að tengja
hjálparstarfsmenn stjórnarhern-
um í hugum heimamanna í hérað-
inu þar sem borgarastríð hefur
verið háð í þrjá áratugi.
Indónesísk stjórnvöld segja
nauðsynlegt að hermenn fylgi
hjálparstarfsmönnum vegna
hættu á árásum uppreisnarmanna.
Uppreisnarmenn lýstu hins vegar
yfir vopnahléi í kjölfar flóðbylgj-
unnar og hafa ítrekað það boð sitt
nokkrum sinnum síðan þá.
Hjálparstarfsmenn segja nauð-
synlegt að bregðast fljótt við og
eitra fyrir moskítóflugum sem
geti dreift malaríu, verði það ekki
gert fljótlega segja þeir hættu á að
sjúkdómurinn kunni að leggja tugi
þúsunda að velli á komandi mán-
uðum.
Hjálparstarfsmenn á Anda-
maneyjunum indversku kvarta
undan því að yfirvöld komi í veg
fyrir að þeir geti veitt þá hjálp
sem þörf er á. Talsmenn ind-
verskra og erlendra hjálparsam-
taka segja yfirvöld hafa gert þeim
erfitt fyrir að ferðast til eyjanna. Í
gær kvartaði svo Basudev Dass,
einn forystumanna Indverska
rauða krossins, undan því að
stjórnvöld hefðu stolið hjálpar-
gögnum frá samtökunum. „Þeir
vilja taka öll hjálpargögn og
dreifa þeim. Við erum ákveðin í
því að við ætlum að fara og dreifa
þeim til þeirra sem þurfa nauð-
synlega á þeim að halda. ■
LEIFAR JÓLANNA
Starfsmenn Gatnamálastofu hafa hirt jóla-
tré borgarbúa síðan 6. janúar.
Gatnamálastofa:
Hirðir jólatré
í síðasta sinn
JÓLATRÉ Starfsmenn Gatnamála-
stofu munu annast hirðingu
jólatrjáa í Reykjavík í dag í síð-
asta sinn í ár en þeir hafa sinnt
því verki síðan á þrettándanum.
Þeir borgarbúar sem vilja nýta
sér þessa þjónustu eru beðnir um
að setja jólatrén út fyrir lóðamörk
og þau verða þá fjarlægð.
Eftirleiðis eru íbúar beðnir um
að snúa sér til gámastöðva Sorpu
til að losa sig við jólatré. Nánari
upplýsingar um hirðingu í hverju
herfi má nálgast í hverfabæki-
stöðvum Gatnamálastofu. Þá
hvetja starfsmenn stofunnar fólk
til að hirða upp leifar af flugeld-
um í nágrenni sínu. - bs
14 stöðvar
Útvarp:
Ný stöð í loftið
FJÖLMIÐLAR Ný útvarpsstöð, X-fm
hefur útsendingar á hádegi á
dag á tíðninni 91,9. Það er Pýrit
fjölmiðlun sem stendur að rekstri
hennar, en hún hefur rekið
Kiss fm og útvarpsstöðina Mix.
Matthías Már Magnússon verður
dagskrárstjóri stöðvarinnar, en
auk hans munu útvarpsmennirnir
Freysi og Búi, sem áður unnu á út-
varpsstöðinni X-ið, starfa á nýju
stöðinni.
Á bak við Pýrit fjölmiðlun
standa hinir kunnu útvarpsmenn
Siggi Hlö og Valli Sport. - ss
FRÁ REYÐARFIRÐI
Engin röskun verður á framkvæmdum við Reyðarfjörð í bili.
LEITAÐ SKJÓLS
Fólk sem missti heimili sitt í flóðbylgjunni á annan í jólum hlýjar sér við bálköst nærri
Marina-strönd í Madras á Indlandi. Staðfest hefur verið að 10.672 létu lífið á Indlandi.
GISSUR PÉTURSSON
Forstjóri Vinnumálastofnunar segir að
Impregilo verði að auglýsa eftir vinnuafli á
evrópska atvinnusvæðinu. Impregilo telji
sér það ekki skylt, en muni ekki skirrast við
að fara eftir óskum stofnunarinnar.
SJÓNVARP Sigurjón Sighvatsson,
Björn Steinbekk Kristjánsson og
fleiri íslenskir fjárfestar
hefja á næstunni
sjónvarpsrekstur
á hinum Norður-
löndunum. Stefnt
er að því að sjón-
varpsstöðin Big
TV nái til átta
milljón nor-
rænna heimila
fyrir lok næsta
á r s
og hefur þegar verið gengið frá
samningum um dreifingu útsend-
inga stöðvarinnar til tæpra
tveggja milljón heimila í Finn-
landi og Noregi.
Stöðin sérhæfir sig í fram-
leiðslu sjónvarpsefnis fyrir fólk
á aldrinum 12 til 24 ára og mun
senda samtímis út í sjónvarpi, á
netinu og í útvarpi. Einnig verð-
ur áhorfendum boðið upp á
niðurhal á lögum í tölvur og far-
síma auk þess sem boðið er upp á
niðurhal myndbanda í tölvur. Þá
horfa aðstandendur sjónvarps-
ins til að nýta möguleika sem
farsímar gefa til leikja og keppna.
Unnið hefur verið að undirbún-
ingi stöðvarinnar í sextán mánuði
og eru menn þegar farnir að horfa
til dreifingar í austanverðri og
suðaustanverðri Evrópu. Gert er
ráð fyrir að kostnaður við að
byggja upp stöðina nemi 750
milljónum króna næstu fimm
árin. - bþg
Sigurjón Sighvatsson og fleiri fjárfestar:
Hefja sjónvarpsrekstur
á Norðurlöndum
BJÖRN STEINBEKK KRISTJÁNSSON
Björn hóf að kanna möguleika á sjón-
varpsrekstri með efni sem beindist að tólf
til 24 ára Norðurlandabúum.
SIGURJÓN SIGHVATSSON
Sigurjón stendur í stórræð-
um, jók hlut sinn í 66˚
Norður fyrir skemmstu og
leggur nú í víking til
Norðurlanda.