Fréttablaðið - 14.01.2005, Qupperneq 23
Góðan dag!
Í dag er laugardagurinn 14. jan.,
14. dagur ársins 2005.
Reykjavík 10.56 13.37 16.18
Akureyri 11.02 13.22 15.42
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Sigurveig Káradóttir, einn
eigenda Litla ljóta andarungans,
er mikill matgæðingur sem
finnst skemmtilegra að elda
ofan í aðra en sjálfa sig.
„Ég hugsa stundum um konurnar sem
voru með kostgangara í gamla daga og
gæti vel trúað að það hafi verið gam-
an. Ég er ekki mikið að halda eiginleg
matarboð en ég bý miðsvæðis og fæ
oft óvænta gesti og svo hringi ég
stundum í fólk þegar ég er búin að
elda til að athuga hvort það vill ekki
kíkja,“ segir hún hlæjandi.
Sigurveigu þykir fiskur góður og
eldar hann oft í viku handa. „Mér
finnst þorskur miklu betri en ýsa og er
ofsalega hrifin af rauðsprettu og smá-
lúðu. Ég fer ekki eftir uppskriftum nú-
orðið heldur prófa mig áfram, oft með
skemmtilegum og óvæntum árangri.“
Sigurveig segist gjarnan borða kjöt
þó fiskurinn verði oftar fyrir valinu.
„Aðalatriðið er að hráefnið sé gott.
Góður fiskur er betri en vont kjöt og
öfugt,“ segir hún og hlær.
Sigurveig gefur okkur uppskrift að
þorskrétti sem hún segir að sé alveg
kjörinn eftir alla kjötneysluna um há-
tíðarnar. ■
Sigurveig Káradóttir hefur gaman af að elda og finnst það því skemmtilegra sem hún verður
djarfari í matseldinni.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
KRÍLIN
Það var svo
fallegur
regnbogapollur
undir bílnum hans
pabba en hann var
ekkert glaður!
Nýtt og gómsætt edik
BLS. 4 ][
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR
Góður fiskur betri
en vont kjöt – og öfugt
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 86 stk.
Keypt & selt 26 stk.
Þjónusta 33 stk.
Heilsa 9 stk.
Skólar & námskeið 1 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 4 stk.
Húsnæði 18 stk.
Atvinna 19 stk.
Tilkynningar 7 stk.
Heimilislegar vörur eins og
bútasaumsbækur, jóla-
útsaumur og bómull-
ardress eru á janú-
artilboði verslunar-
innar Dizu í Ing-
ólfsstræti 6.
Dressin, sem
samanstanda af
jakka og buxum,
eru meðal annars
til í stórum stærð-
um og nemur af-
sláttur af þeim 35
prósentum frá upphaf-
legu verði þannig að
þau eru nú á innan við
5.000 krónur.
Parkett, innihurðir og flísar á gólf og
veggi fást nú með verulegum afslætti í
versluninni Egill Árnason hf. sem er til
húsa að Ármúla 8 í Reykjavík. Flísarnar
eru seldar með 20-70% afslætti en
náttúrusteinn og granít með 20-30%
afslætti. Tilboð er líka á völdum
vörum í hreinlætis- og blöndunar-
tækjadeild og má sem dæmi nefna
60 cm vegghandlaug sem nú fæst á
3.700 krónur.
Útsölur hjá Toppskónum á Suður-
landsbraut 54, (bláu húsunum) eru
jafnan vinsælar og mikill handagangur
í öskjunni. Því er ekki úr vegi að
benda á að ein slík hófst í gær og á
henni eru skór af öllum stærðum og
gerðum.
Rita í Bæjarlind í Kópavogi
og Eddufelli í Reykjavík
er með útsölu og þar
er hægt að gera
reyfarakaup á
kvenfatnaði.
Kápur fást til
dæmis á
6.900, úlpur
á 5.900 og
samkvæm-
isbuxur
sem áður
kostuðu 11.900 eru
nú á 5.900. Bolir,
peysur og kjólar eru á
útsöluslám og meðal þess sem í boði
er eru fallegir jakkar utan yfir kjóla.
Heimilistæki eru á góðu verði hjá
Ormsson bæði í Lágmúla og Smára-
lind þar sem svokallaðir sparidagar
standa yfir til 20. janúar. Blásarar og
blandarar, brauðristar og kaffivélar,
leikjatölvur og leirvörur. Allt fæst á
lækkuðum prís og pottar og pönnur af
Tefal-gerð seljast nú á 25% afslætti.
LIGGUR Í LOFTINU
í tilboðum
tilbod@frettabladid.is
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
Þorskur Sigurveigar
1 kg þorskflök 2-3 súraldin (lime), safinn kreistur og notaður
5-6 stór hvítlauksrif, kramin 4-5 msk. rifin engiferrót
1-2 rauð chilli, fræhreinsuð og mjög smátt skorin 2-3 msk. fiskisósa
3-4 tsk. sítrónugras (lemon grass paste) 3-5 tsk. grænt karrímauk (green curry paste)
lítil dós af kókosmjólk 3 msk. taílensk sojasósa
smjör og olía til að steikja upp úr hveiti til að velta fiskinum upp úr
4-5 stk. kaffi súraldinlauf (fást þurrkuð, má sleppa ef finnst ekki)
Aðferð
Fiskurinn skorinn í um það bil handarþykk stykki. Öllu öðru en hveiti
og smjöri blandað saman. Fiskurinn settur út í löginn og látinn liggja
í að minnsta kosti hálftíma. Ágætt að sjóða hrísgrjón á meðan. Ekki
er verra að hafa brún hrísgrjón með þá passar að setja þau yfir strax
og fiskurinn er kominn í löginn. Passa að fljóti yfir
fiskinn þannig að hann marinerist allur. Síðan er
hann tekinn upp úr og velt upp úr hveiti. Gott
að leyfa sem mestu kryddi að vera á honum undir
hveitihjúpnum. Smjör og olía sett á pönnu fiskurinn steiktur á
báðum hliðum þar til kemur smá skorpa á hann. Þá er hitinn lækk-
aður og leginum hellt yfir. Látið malla þangað til fiskurinn er tilbúinn.
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000