Fréttablaðið - 14.01.2005, Side 34
Ljósaskipti í skammdeginu. Fréttablaðið/Vilhelm
SJÓNARHORN
Rólegheitaþeytingur
Birta Guðjónsdóttir, myndlistarmaður og rekstrarkona sýningarýmisins Gallerí
Dvergs, segist svo heppin að upplifa oft alls kyns draumahelgar og þarf því ekki
að halla undir flatt og láta hugann reika til þess að geta lýst þeim.
„Ég get í svipinn nefnt tvær helgar sem áttu sér stað fyrir ekki svo löngu og
voru alveg eins og draumur í dós. Fyrri helgina var ég í útlöndum og hitti þar
vinkonur mínar og samstarfskonur eftir nokkurra mánaða aðskilnað. Á daginn
settum við saman upp sýningu en um kvöldið vorum við í frábærum matar-
boðum og fórum á nokkra skemmtilega tónleika. Lukkunnar pamfíll sem ég er,
þá kom góður vinur minn frá öðru landi daginn eftir, sérstaklega til að hitta
mig en hann hafði frétt af mér á staðnum. Við fórum saman á fleiri tónleika og
var svo boðið í partý í risastóra óperuhöll í barokkstíl, þar sem við dönsuðum
fram á nótt við plötusnúninga og sérkennilegan grænlenskan koksöng og dans
ínúítakvenna.
Helgina strax á eftir stóð ég ásamt fleirum fyrir myndlistaropnun í sýningarým-
inu Gallerí Dvergi sem var mjög skemmtilegt, drakk kaffi með góðum vinum í
doppóttum kjólum, sem lét mér líða eins og það væri sumar, hitti aðra vini
sem sögðu súra brandara þannig að allt sem við gerðum og sögðum var fynd-
ið og skellti mér með þeim í karókí. Svo varði ég líka gæðatíma með fjölskyld-
unni minni. Draumahelgarnar mínar byggjast yfirleitt upp á pínkulítilli streitu og
þeytingi á laugardeginum en jafn miklum rólegheitum á sunnudegi og með-
fylgjandi þarfri tiltekt í hausnum fyrir komandi vinnuviku.“
BIRTA Í GALLERÍ DVERGI ER ALLTAF AÐ UPPLIFA SKEMMTILEGAR HELGAR.
DRAUMAHELGIN
14. janúar 2005 FÖSTUDAGUR12
Vissir þú ...
...að hæsta kona sögunnar hét Sen Jin-
lian frá Kína en hún mældist 2,48 metr-
ar þegar hún lést 13. febrúar árið 1982?
...að fyrsta árangursríka nýrnaígræðsl-
an var gerð í Little Company of Mary
Hospital í Chicago í Bandaríkjunum
17. júní árið 1950?
...að mesti hraði agna sem þrýstast út
í hnerra sem mældur hefur verið er
167 kílómetrar á klukkustund?
...að Alfred West í Bretlandi náði að
kljúfa mannshár sautján sinnum í
átján hluta við átta tækifæri en allar
skiptingar voru frá sama punkti?
...að Garry Hamilton í Bandaríkjunum
ruggaði sér látlaust í ruggustól árið
1999 í 21 tíma á Hilton-hótelinu í
Glasgow?
...að sú hæna sem lengst hefur lifað
af hauslaus var ameríska varphænan
Mike en hún lifði hauslaus í átján
mánuði árið 1947? Dánarorsök henn-
ar var köfnun á hnetukjarna.
...að kaldasti staður í Vetrarbrautinni
er í bjúgverpilsstjörnuþokunni, ryk- og
gasskýi fimm þúsund ljósár frá jörðu,
en þar er kuldinn mínus 272 ˚C?
...að lægsta hitastig á jörðu mældist
mínus 89,2˚C í Vostok á Suðurskauts-
landinu í 3.420 metra hæð 21. júlí
árið 1983?
...að stærsta kóraleyja í heimi er hið
mjóa en 283 kílómetra langa kóralrif
Kwajalein í Marshalleyjaklasanum?
...að górillan er stærsta dýr sem býr
sér hreiður?
...að stærsta geitungabú í heimi
fann Yoichiro Kawamura í Japan 18.
maí árið 1999 en það reyndist vera
2,45 metrar að þvermáli og vó átta
kíló?
...að hæsti og lengsti hundur í heimi
er stórdaninn Harvey í Brelandi en
hann er 105,41 sentimetrar á hæð og
231,14 sentimetrar að lengd frá nef-
broddi að rófuenda?
...að þyngsta gúrka í heimi var ræktuð
af Alfred J. Cobb í Bretlandi en hún
vó 12,4 kíló?
...að stærsta vörumerki heims er
Coca-Cola samkvæmt rannsókn AC
Nielsen? Velta Coca-Cola árið 2002
var 936 milljarðar en vörumerkið er
til í tvö hundruð löndum.
Hvar ætlar þú að auglýsa?
Á sunnudögum fylgja sérblöð bæði Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sem fjalla um atvinnumál og
eru atvinnuauglýsingar helsta efni þeirra. Bæði blöðin eru svokölluð innblöð, þ.e. þau eru í miðju
aðalblaðanna þannig að lesendur þeirra rekast á atvinnublöðin og ákveða þá hvort þeir skoða
þau eða ekki.
En hverjir fá blöðin?
Við leituðum svara í fjölmiðla- og neyslukönnunum Gallups. Fjölmiðlakannanir Gallups eru
gerðar í samvinnu við alla stærstu miðla landsins, Samtök auglýsenda og Samtök íslenskra
auglýsingastofa, og eru viðurkenndar af þeim sem eina rétta aðferðin til að bera saman
fjölmiðlanotkun landsmanna. Kannanirnar eru kynntar á heimasíðu Gallups sem niðurstöður en
ekki túlkun.
Ertu að leita að góðum starfsmanni?
65% Íslendinga á aldrinum 20-40 ára fletta ekki sunnudagsblaði Morgunblaðsins né heldur 72% kvenna undir 35 ára
aldri, sem getur varla hljómað vel fyrir fyrirtæki í leit að góðum starfsmönnum.
Tvær spurningar:
Hversu sennilegt er að fólk í atvinnuleit lesi ekki atvinnuauglýsingarnar í Fréttablaðinu (95% þeirra fá blaðið)?
Er ekki kominn tími til að laga birtingar á atvinnuauglýsingum að nýjum veruleika á blaðamarkaði eins og öll stærstu
fyrirtækin í landinu hafa gert með sínar venjubundnu auglýsingar?
1) Í árlegri neyslukönnun Gallups frá því í vor kemur í ljós
að 95% heimila í Reykjavík og í
nágrannasveitarfélögunum fá Fréttablaðið heim til sín á
morgnana, sem þýðir að 95% þeirra sem eru í atvinnuleit
fá atvinnublað Fréttablaðsins heim til sín á sunnudögum.
43% heimila á sama svæði fá bara Fréttablaðið en ekki
Morgunblaðið á morgnana.
2) Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallups í október
síðastliðnum eru 48% heimila með áskrift að
Morgunblaðinu, sem þýðir að 52% þeirra sem eru á
aldrinum 12-80 ára í atvinnuleit þurfa að fara út í búð og
ná sér í Moggann ef þeir vilja skoða atvinnublaðið sem
honum fylgir.
3) Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallups í október
síðastliðnum búa 72% Íslendinga á aldrinum 20-40 ára á
heimilum sem ekki eru með áskrift að Morgunblaðinu,
sem þýðir að 72% landsmanna á aldrinum 20-40 ára
sem eru í atvinnuleit ára þurfa að fara út í búð ef þeir vilja
skoða atvinnublað Morgunblaðsins á sunnudögum.
Samkvæmt neyslukönnuninni fá 95% sama hóps
Fréttablaðið heim til sín á hverjum morgni.
4) Ungt fólk er í langflestum tilfellum markhópur
atvinnuauglýsinga og svona les það sunnudagsblöðin,
samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallups í október
síðastliðnum:
Nokkrar niðurstöður: