Fréttablaðið - 14.01.2005, Side 35
23FÖSTUDAGUR 14. janúar 2005
AF NETINU
Létt & laggott er vi›bit me› litlu fituinnihaldi og brag›ast líkt og smjör. Nú á 20% afslætti í næstu verslun.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
Kjalar vogi • 104 Reykjav ík • S ími 535 8000 • Fax 535 8008 • www.jonar. is
Í dag taka Jónar Transpor t t i l star fa í ný ju
og stórglæsi legu húsnæði v ið Kjalar voginn.
Öl l aðstaða er e ins og best verður á kosið
enda er star f semin t i l húsa í fu l lkomnustu
vörumiðstöð landsins.
Sama s ímanúmer
535 8000
Fluttir í
Kjalarvoginn!
ar
gu
s
05
-0
01
4
Aðalbaráttumálið
Undirrituðum er spurn hvers vegna það
virðist aðalbaráttumál sumra Sjálfstæðis-
manna að leggja Forsetaembættið niður
og hvort sá ákafi sé sprottinn af sparnað-
arhugmyndum, fagurfræðilegum stjórn-
skipunarrökum eða frumstæðri þörf
manna, sem eru á góðri leið með að
þurrausa sinn pólitíska höfuðstól, fyrir að
búa til sameiginlegan óvin flokks og þjóð-
ar? Er það ekki þversögn að hreykja sér af
ávinningi minnkandi ríkisafskipta en heyja
um leið „heilagt stríð“ gegn einstökum
kaupsýslumönnum, frjálsum fjölmiðlum
og fyrrum kosningastjóra fyrrum sameign-
arsinna (sem virðist í seinni tíð hafa tekið
sönsum)? Í hræringum frjáls viðskiptalífs
var hinn bersyndugi fyrrum kosningastjóri
og nú fyrrverandi áróðursmeistari látinn
fjúka. Er það til marks um átök innan
„Mafíu Íslands“ eða var hún kannski aldrei
til? Hvort virðast mafíur annars þrífast bet-
ur í skjóli ríkisafskipta eða frelsis?
Kári Allansson á frelsi.is
Börn og gamalmenni
Þegar ég var að læra félagsfræði var kall
tímans að skipuleggja borgir og bæi
þannig að fólk byggi innan um hvert ann-
að. Ekki sér hverfi fyrir unga, gamla, ríka,
fátæka og svo framvegis. Það er langt síð-
an og hugmyndir hafa verið uppi margs-
konar. Nú er hins vegar í Evrópu að dúkka
upp þetta gamla sjónarmið að farsælast
sé að ungir séu með öldnum. Nú er aug-
ljóst að oft er rétt að gamlir menn og
gamlar konur búi í þjónustuíbúðum eða á
hjúkrunarheimilum. Jafnaugljós er sú
lausn sem Frakkar eru byrjaðir að innleiða
að byggja þá barnaheimili eða skóla eða
húsnæði fyrir barnafjölskyldur rétt hjá.
Þessi hugmynd var líka til í gamla daga en
því miður hefur hún lítt verið útfærð hér-
lendis. Það nærir nefnilega sálina að vera
í námunda við börn og við verðum að búa
þannig um hnútana að börn verði ekki
hrædd ef þau sjá hrukkótta manneskju.
Það er nákvæmlega það sem hefur víða
gerst þar sem tíðarandinn hefur dregið
alla sem hafa elst út úr hverfunum í sér
hverfi.
Baldur Kristjánsson á baldur.is
Samúðin með Pinochet
Ástæðan fyrir því að Pinochet nýtur sam-
úðar sumra manna er væntanlega eink-
um sú að sá sem hann velti úr sessi,
Salvador Allende, vildi koma á sósíalísku
hagkerfi en tókst það ekki fyrir vikið. Í
staðinn var komið á hagkerfi sem byggð-
ist á hugsjónum frjálshyggjumanna. En
hvort skiptir meira máli: Hagfræðiprinsípp
eða lýðræði? Hægrimennirnir, sem taka
málstað Pinochets, virðast ekki vera í
neinum vafa um það – já, þrátt fyrir að
þeir tali gegn forræðishyggju ristir það
ekki dýpra en svo að þeir styðja mann
sem beitti ofbeldi til að hafa vit fyrir al-
menningi og svipti hann lýðræðislegum
rétti sínum til að kjósa forseta í landi sínu.
Er hægt að ímynda sér meiri tvöfeldni?
Þórður Sveinsson á mir.is
Hvernig væri að vakna?
Þessi spurning vaknar hjá mér þegar ég
heyri sögur um það að á einu ári, frá
desember 2003 til desember 2004 hafi
Seyðfirðingum fækkað um 26 og þannig
sé íbúafjöldi bæjarins kominn niður fyrir
700. Þannig er þessi minnsti kaupstaður
landsins orðinn enn minni. 110 ár eru
síðan hann hlaut kaupstaðarréttindi, s.s.
árið 1895 bjuggu þar yfir 1000 manns.
Hækkaði sú tala fyrstu áratugi 20. aldar
en sá fyrsti á þessari öld virðist vera á
góðri leið með að ganga frá bænum.
Stefán Ómar Stefánsson á politik.is