Fréttablaðið - 19.02.2005, Síða 39

Fréttablaðið - 19.02.2005, Síða 39
LAUGARDAGUR 19. febrúar 2005 29 D EL TA LI G H T RÝMINGARSALA Á VÖLDUM DELTALIGHT LJÓSUM 30-50% AFSLÁTTUR OPIÐ LAU.: 11 - 17 OPIÐ SUN.: 13 - 17 z e t o r BREYTTUR HEIMUR Eva María Jónsdóttir dag- skrárgerðarkona bjó meðal annars í eitt ár í París þar sem fyrstu þrír mánuðirnir fóru í að gráta og leita að íbúð. Laugarásvegur, Reykjavík, 1971 til 1972 Foreldrar mínir voru það ungir þegar þeir eignuðust mig, að þau bjuggu enn í foreldrahúsum. Eftir að ég fæddist, urðu þau því að finna sér nýjan stað sem gæti rúm- að þessa nýju fjölskyldu. Rauðalækur, Reykjavík, 1972 til 1978 Það var greinilega mjög nauðsyn- legt fyrir mig að flytjast á Rauða- læk, því ég kynntist þarna einni af mínum bestu vinkonum, Mörtu Nordal, sem ég á að enn þann dag í dag. Hún var þriggja ára og ég tveggja ára. Hún átti ekki heima í þessu hverfi heldur var tímabund- ið í pössun í götunni þannig að það var algjörlega tilviljunum háð að við kynntumst og urðum svona góðar vinkonur. Úthlíð, Reykjavík 1978 til 87 Úthlíðin er æskugatan mín og þarna fór ég út að leika mér og eignaðist til viðbótar tvær góðar vinkonur, sem eru það enn í dag, Ilmi Stefánsdóttur og Nönnu Hlíf Ingvadóttur. Þetta var „einu krónu,vink vink“ gatan mín, heill ævintýraheimur og gömlu kelling- arnar alltaf að koma út á svalir til þess að skammast í okkur. Við hjól- uðum líka mikið og þá þótti aðal- sportið að sleppa höndum. Reyndar var allt reynt til þess að gera hlut- ina meira spennandi. Sjónvarpið var á þessum tíma byrjað að sýna náttúrulífsmyndir á daginn, en ég hneykslaðist alltaf mjög mikið á þeim krökkum sem stungu sér inn til þess að horfa á þær. Sjálf stalst ég reyndar inn á miðvikudögum og horfði þá á teiknimyndirnar um Bleika pardus- inn sem mér fannst mjög fyndnar. Chancellor Drive, Winnipeg, Mani- toba 1987 til 1988 Ég bjó hjá systur pabba og mannin- um hennar í Kanada og var eitt ár í menntaskóla. Ég man eftir því að það var alveg rosalega öfgafullt veður. Á sumrin var alveg rosalega heitt, sem var ágætis tilbreyting frá Íslandi. Þegar svo bar undir gekk ég um á næstum því nærföt- unum, stuttbuxum og ermalausum bol. Veturinn var hins vegar það kaldur, að það var nauðsynlegt að vera með snýtipappír innan á trefl- inum til þess að þurrka burt horið. Annars hefði það frosið fast við andlitið. Ég man eftir því að einhverju sinni vorum við nokkrar stelpur að keyra um í blæjubíl og syngja The Joker með Steve Miller Band, og mér leið eins og ég væri stödd í bandarísku menntaskólamyndinni Ferris Bueller’s Day Off. Ég komst svo auðvitað að því, að kvikmyndir endurspegla raunveruleikann. Þetta var gelgju- og djamm- tímabil sem í minningunni var al- veg rosalega skemmtilegur tími. Blómvangur, Mosfellsbær, 1988 til 1992 Þetta var lögbýli sem stóð við götu sem hafði ekki enn þá fengið nafn. Ég minnist þess sem aðallega tíma innilokunar, vegna þess að ég var byrjuð í menntaskóla og ef ég hafði ekki bíl, þá þurfti ég að hafa mjög stóra tösku sem varð að rúma allt það sem ég þurfti að nota yfir dag- inn og fara með rútu. En þetta var ekki eingöngu slæmur tími. Ég kynntist meðal annars heimamenn- ingunni, mála veggi og byrja að elda í stað þess að borða sjoppu- fæði. Ganga á fjöll, sem voru þarna í næsta nágrenni og virkja náttúru- barnið í sjálfri mér. Rue Lamarc, París 1992 til 1993 Þarna bjó ég í Montmartre-hverf- inu og lærði franskar bókmenntir í háskólanum í eitt ár. Þetta var mjög geggjaður tími og annars konar gelgja en sú sem hafði ver- ið í Kanada. Ég var reyndar grát- andi fyrstu þrjá mánuðina, þekkti engan og mér gekk ekkert að finna íbúð. Þessi íbúð á Rue Lamarc var því algjör himnasend- ing. Mér virtist sem öll húsin væru eins í París, fimm hæða há og allar með svalir. Á móti mér bjó mjög skemmti- legur náungi, samkynhneigður Frakki, sem ég átti í svalasambandi við. Hann átti það til að sprauta með vatnsbyssu í gegnum gluggann hjá mér á gestina sem ég var með í kvöldmat. Svo kom hann upp til okkar og drakk hvítvín á svölunum. Ég var svo heppin að hafa verið í frönsku í menntaskóla, auk þess að ég var í fjögurra mánaða kaþ- ólskum tungumálaskóla í Lyon, þannig að það tókst að komast inn í málið þótt það hefði auðvitað verið mjög erfitt til að byrja með. Ásvallagata, Reykjavík 1993 til 1995 Þarna bjó ég á meðan ég var í há- skólanum hérna heima og kynntist manninum mínum, Óskari Jónas- syni og hætti að reykja, en ég hafði vanið mig á þann ósið þegar ég var í París en þá eingöngu til þess að kynnast fólki. Ég var því að verða 25 ára þegar ég loksins fluttist úr foreldrahúsum, formlega, sem þykir væntanlega bara gamaldags núna. Smiðjustígur, Reykjavík 1995 til 1996 Ég myndi nú ekki kalla þetta heimilið mitt heldur var þetta fyrst og fremst piparsveinaíbúðin hans Óskars. Ég þreif aldrei þarna og því má kannski með réttu kalla þetta hang out staðinn minn. Ég var reyndar með tann- burstann minn þarna en engin föt og gekk því iðulega í fötunum og skónum hans, sem voru alltof stór á mig. Kárastígur, Reykjavík, 1996 til 2004 Við áttum þarna okkar hveiti- brauðsdaga og vorum með gríðar- lega gott útsýni yfir flóann, Snæ- fellsjökul, Keili og Bláfjöll. En þegar börnin voru orðin tvö, þá þurftum við að fara niður á jörð- ina, enda leiðigjarnt til lengdar að bera börnin og innkaupapokana upp tröppurnar. Bjarnarstígur, Reykjavík, 2004 - Núna búum við sem sagt enn þá í Stígahverfinu og kunnum mjög vel við okkur hérna. Ég verð að viðurkenna, að þetta er drauma- húsið, því við horfðum á þetta hús allan þann tíma sem við bjuggum á Kárastígnum og létum okkur dreyma um að búa þarna. Á hverj- um einasta degi þakka ég fyrir að þessi draumur skyldi rætast. Þetta er kannski ekki barnvænt hverfi, en inniheldur mjög fjöl- breytt mannlíf. Í húsunum við götuna býr fólk sem er frá því að vera erlendur auðkýfingur til al- íslensks hassræktanda sem notar lyktsterkan þörungaráburð sem veitir honum þó enga vörn gegn löggunni. EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR Á ÆSKUGÖTUNNI ÚTHLÍÐ Ég kynntist tveimur af mínum bestu vinkonum hérna. HANNIBAL LECTER Át aðrar manneskjur ekki einungis til að seðja hungrið, heldur einnig til að öðlast vald. Mannát á sér langa sögu Hvorki af illsku né neyð Upphaf mannáts er hvorki tengt neyð né illsku, heldur í langflest- um tilvikum nátengt helgiathöfn- um sem áttu að hafa áhrif á menn- ina, auka vald eða breyta eðli þeirra. Það er einungis samfélag- ið sem hefur þjálfað okkur í að bjóða við mannáti og líta á það sem svik við okkar eigin tegund. Elstu menjar þess að borða aðra manneskju eru allt að fimm hundruð þúsund ára gamlar, en veislugestir í hellinum Zhoukou- dian í Kína átu merginn úr bein- unum með því að kljúfa þau og vísbendingar þykja benda til þess að heilinn hafi einnig verið étinn. Orokavaia – fólkið á Papa Nýju Gíneu át fallna stríðsmenn, til þess að fanga anda þeirra og Gimi – konurnar í Nýju Gíneu, átu látna karlmenn til þess að varðveita frjósemina. Hua-fólkið á sömu slóðum, át hina dánu til þess að varðveita Nu – lífsvessana, sem ekki var hægt að endurnýja. Mannát í stríði var líka oft tákn- ræn athöfn, sem merki um sigur. Það er því sama hversu fjar- læg þessi athöfn er fyrir nútíma- manninn, mannát var fyrst og fremst vel ígrunduð hugmynd framkvæmd af hugsandi mann- verum. Byggt á bókinni Hugmyndir sem breyttu heiminum sem kom nýverið út hjá Eddu. GÖTURNAR Í LÍFI MÍNU: EVA MARÍA JÓNSDÓTTIR Býr í draumahúsinu FR ÉT TA B LA Ð IÐ /S TE FÁ N 40-41 (28-29)Helgarefni 18.2.2005 19:15 Page 3

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.