Fréttablaðið - 24.02.2005, Side 11

Fréttablaðið - 24.02.2005, Side 11
FIMMTUDAGUR 24. febrúar 2005 11 Heimsending lyfja: Hefur tíðkast í tvo áratugi LYF „Heimsendingarþjónusta apó- teka hefur tíðkast síðan árið 1982, þetta byrjaði í Laugavegsapóteki sem er núna Lyfja við Laugaveg,“ segir Þorbergur Egilsson, rekstar- stjóri Lyfju, um fréttir af Lyfjaveri, fyrsta apóteki sem sérhæfir sig í heimsendingarþjónustu. „Lyfja hefur frá upphafi sent lyf heim til fólks og þetta eru því engin ný tíðindi,“ segir Þorbergur. Lyfja- ver býður upp á ókeypis heimsend- ingarþjónustu en að sögn Þorbergs tekur Lyfja 420 krónur fyrir þjón- ustuna. „Við tókum upp gjaldið fyrir nokkrum mánuðum en munum fella niður gjald af heimsendingu til líf- eyrisþega,“ segir Þorbergur. Lyfjastofnun kannar nú hvort heimsendingar Lyfjavers standist ákvæði í lyfjalögum, sem kveða á um að sjúklingur veiti lyfjunum við- töku í lyfjabúð og séu lyf send lengri eða skemmri veg skal afhending vera í höndum þjálfaðs starfsfólks. Þorbergur segir að þar sem Lyfja sé með útibú úti á landi séu það ávallt þjálfaðir starfsmenn sem afhenda lyfin. „Athugasemdir Lyfjastofnun- ar lúta að því þegar þriðji aðili, til dæmis póstþjónusta, tekur að sér af- hendinguna,“ segir Þorbergur. - bs Vinstri grænir: Neita að selja Landsvirkjun STJÓRNMÁL Vinstrihreyfingin – grænt framboð áskilur sér rétt til að leggjast gegn sölu hlutar Reykjavíkurborgar í Lands- virkjun til ríkisins, verði það til þess að fyrirtækið verði einka- vætt. Í yfirlýsingu flokksins stend- ur að meginmarkmið hans sé að grunnþjónusta samfélagsins sé rekin á félagslegum forsendum og í almannaeigu. Nú þegar iðn- aðarráðherra hafi lýst því yfir að til standi að setja Landsvirkj- un á markað sé ljóst að flokkur- inn hljóti að leggjast gegn sölunni. - gag IÐNAÐARSAFNIÐ Á AKUREYRI Iðnaður var í miklum blóma á Akureyri um miðja síðustu öld og bærinn oft nefndur iðnaðarbærinn. Iðnaðarsafnið á Akureyri: Nýtt holl- vinafélag SAFNAMÁL Ákveðið hefur verið að stofna Hollvinafélag Iðnaðar- safnsins á Akureyri en safnið tók til starfa 17. júní árið 1998. Jón Arnþórsson safnvörður segir tilgang hollvinafélagsins að stuðla að eflingu safnsins og auka þekkingu um iðnað á Akur- eyri á liðinni öld. Á safninu eru kynnt rúmlega 70 iðnfyrirtæki sem skópu iðnsögu Akureyrar á tuttugustu öldinni og þar er að finna fjölda véla og tækja sem tekist hefur að varðveita. - kk Skorti byggingarleyfi: Hótaði bæj- arstjóra lífláti KRÓATÍA, AP Maður, sem var ósátt- ur við að fá ekki að byggja á landi sínu, ógnaði bæjarstjóran- um í króatíska hafnarbænum Rijeka með hríðskotariffli og handsprengjum á bæjarstjórn- arskrifstofum bæjarins. Maðurinn ósátti hótaði að myrða Vlatko Obersnel bæjar- stjóra ef hann næmi ekki úr gildi ákvörðun bæjarstjórnar sem bannaði að byggt yrði á landi sem hann hafði nýlega keypt. Maðurinn hélt bæjar- stjóranum í gíslingu í stundar- fjórðung áður en lögregla og ör- yggisverðir náðu að afvopna hann. Enginn meiddist meðan á þessu stóð. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /K K LYFJA VIÐ LAUGAVEG Hét áður Laugavegsapótek og hóf heimsendingar á lyfjum árið 1982. Bretland: Sjötíu pró- senta vextir BRETLAND Í Bretlandi hefur verið sett á markaðinn nýtt kreditkort sem ætlað er sérstaklega efna- minna fólki en sá galli er á gjöf Njarðar að sjötíu prósenta vextir eru á kortinu. Hafa neytendasamtök af þessu þungar áhyggjur enda líklegra en ekki að efnaminni aðilar lendi oftar í vanskilum vegna kreditkortaskulda en aðrir og með þetta háa vexti segja sérfræðingar að lítið þurfi til að lenda í skuldafeni til frambúðar. ■

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.