Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 24.02.2005, Blaðsíða 14
14 24. febrúar 2005 FIMMTUDAGUR Kennarastarfið er hugsjón Paloma Ruiz Martinez er nýkjörin í stjórn Félags grunnskólakennara. Hún er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum þar sem spænskur faðir hennar og íslensk móðir búa. Paloma ákvað ung að verða kennari og lifir fyrir starfið. Hún segir kennara enn vera að jafna sig eftir verkfallið í vetur. Paloma kennir krökkum í fyrsta bekk í Lindaskóla og er auk þess deildarstjóri yngstu deildarinnar í skólanum. Strax á unga aldri var hún staðráðin í að verða kennari og þakkar það meðal annars mörgum góðum kennurum sem hún sjálf hafði á sinni skólatíð. „Það kom ekkert annað til greina en að verða kennari,“ segir Paloma, sem er ánægð með lífið og tilveruna þó að launin mættu vera hærri. „Þetta er hugsjón og ég lifi fyrir starfið.“ Mikilvægast finnst henni að sjá vellíðan og árangur barnanna af skólastarfinu. „Það er ómetanlegt að fá að móta börn með foreldrum þeirra. Þetta er einstakt starf að því leyti.“ Eftir útskrift úr Kennarahá- skólanum fór hún aftur heim til Vestmannaeyja og kenndi þar í fimm ár áður en hún flutti á fasta landið. Og það var ekkert smávegis afl sem dró hana þaðan árið 2000. „Það var ástin, ég elti ástina,“ segir hún og hlær en skömmu áður hafði hún kynnst mannsefni sínu, Jóni Pétri Úlfljótssyni danskennara. Þau eiga hvort sinn soninn og búa ham- ingjusöm í Breiðholtinu. Paloma var beðin um að gefa kost á sér til stjórnarsetu í Félagi grunnskólakennara og lét til leiðast. Hún hafði áður sinnt trúnaðarstörf- um fyrir starfsstétt sína og alltaf verið með munninn opinn, eins og hún segir sjálf. Samningaviðræður kennara í vetur og verkfallið sem stóð í marg- ar vikur sitja enn í henni og starfs- systkinum hennar. „Það er langt í frá að kennarar hafi jafnað sig á verkfallinu og lögunum sem gerðu þeim að mæta aftur til starfa. Þetta var algjört áfall og við trúðum aldrei að þetta myndi fara svona.“ Hún segir málin ennþá mikið rædd á kennarastofunni og ekki annað að gera fyrir nýja stjórn Félags grunnskólakennara en að reyna að finna nýjan flöt á kjara- málunum. Faðir Palomu kom hingað upp úr 1960 og kynntist hér móður hennar. „Hann kom til að vinna og upplifa ævintýri og þau eru enn búsett í Vestmannaeyjum.“ Hún reynir að fara eins oft til Spánar með fjöl- skyldunni og mögulegt er enda er föðurfólk hennar búsett þar. Hún getur þó ekki farið árlega eins og hún helst vildi. „Það eru ekki til peningar til þess, kennarar hafa ekki efni á því,“ segir Paloma og brosir út í annað. Í staðinn heldur hún í spænska siði, þá helst matseldina enda Spán- verjar mikið matarfólk. Og svo er það dansinn sem gerir jú hvern mann glaðari. „Ég dansa samkvæmisdansa einu sinni í viku,“ segir hún og neitar staðfastlega þegar hún er spurð hvort hún sé góð. Bóndi hennar leiðbeinir henni á gólfinu en dans- félaginn er annar. „Ég er ekki nógu góður dansari til að dansa við Jón Pétur,“ segir lífs- glaði Vestmannaeyingurinn með spænska nafnið sem lifir fyrir kennsluna og börnin og þráir ekkert heitar en að kennarar njóti virðingar í samfélaginu. bjorn@frettabladid.is – hefur þú séð DV í dag? Hafnarfjarðarbær leigir listamiðstöð undir kannabisræktun LÖGREGLAN GERÐI PLÖNTUR UPPTÆKAR Listamaðurinn segist vilja vera sjálfbær STÚKUSÆTI Á TOSCU KOSTAR 6.500 Í sal og framarlega á svölum kostar 4.500 en 2.500 í öftustu sætin. HVAÐ KOSTAR ÞAÐ? „Það er bara allt rosalega fínt að frétta,“ segir Elín Gestsdóttir, fram- kvæmdastjóri Ungfrú Ísland. Líf hennar og starf snýst um fegurð og aftur fegurð, ekki síst nú um stundir enda margt á seyði. „Sigrún Bender, fulltrúi okkar í Ungfrú Evrópa, hefur verið í Túnis síðustu daga við undir- búning og fer yfir til Frakklands aftur í dag [í gær]. Hún verður eina nótt í París en fer svo með hópnum upp í frönsku Alpana. Henni er spáð góðu gengi í keppninni þannig að við erum ofsalega spennt.“ Keppnin fer fram í París þann 12. mars og fer Elín utan til að fylgjast með og styðja við bakið á Sigrúnu. Talsvert er líka að gera á heimavíg- stöðvunum hjá Elínu enda fer keppnin um Ungfrú Reykjavík fram um miðjan apríl. „Stelpurnar borðuðu saman á Broadway á laugardags- kvöldið og horfðu á sýninguna Með næstum allt á hreinu. Þetta eru svakalega flottar stelpur og gaman að vera með þeim.“ Elín segir ekkert mál að fá stúlkur til þátttöku í fegurðarsamkeppnum og nefnir sem dæmi að 80 ábendingar hafi borist fyrir keppnina í ár og úr þeim hafi átján verið valdar. „Það komast miklu færri að en vilja,“ segir hún. Þegar Ungfrú Reykjavík hefur verið valin hefjast Elín og hennar fólk handa við að finna þátttakendur í keppnina að ári. Og svo þarf vitaskuld að undir- búa stóru keppnina; Ungfrú Ísland. Sigrúnu er spáð góðu gengi HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? ELÍN GESTSDÓTTIR FRAMKVÆMDASTJÓRI „Mér líst ekkert á sameiningu Orku- búsins okkar hér fyrir vestan við önnur orkufyrirtæki, við höfum ekkert upp úr þessu, rafmagnið verður bara dýrara og er það nú nógu viðbjóðs- lega dýrt fyrir,“ segir Jón Kr. Ólafsson söngvari á Bíldudal. „Það er endalaust verið að sauma að okkur landsbyggðarfólkinu, það kæmi sko við fólk á höfuðborgarsvæðinu ef það sæi orkureikningana hjá okkur.“ Jón vandar þingmönnum ekki kveðj- urnar, sendir þeim raunar tóninn. „Það er ótrúlegt hvað þingmennirnir geta djöflast endalaust á landsbyggð- arfólkinu.“ Stórsöngvarinn úr Arnarfirðinum er sumsé andvígur sameiningu orkufyrir- tækja, svo ekki sé nú minnst á einka- væðingu þeirra. JÓN KR. ÓLAFSSON Rafmagnið við- bjóðslega dýrt SAMEINING ORKUFYRIRTÆKJA SJÓNARHÓLL PALOMA RUIZ MARTINEZ Hún elti ástina frá Vestmannaeyjum til höfuðborgarsvæðisins og kennir krökkum í fyrsta bekk í Lindaskóla. 1.PR Í LINDASKÓLA „Það er ómetanlegt að fá að móta börn með foreldrum þeirra. Þetta er einstakt starf að því leyti,“ segir Paloma. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Páfagaukur sem kostar nær hálfa milljón: Hrifinn af konum og illa við karla DÝRAHALD Tígulegur páfa- gauksungi býr í Dýraríkinu við Grensásveg og bíður nýs eiganda. Unginn sem er af hinni sjaldgæfu tegund, Cockatoo, kostar litlar 442 þúsund krónur. „Hann er ræktaður í Hollandi,“ segir eigandi Dýraríkisins, Gunnar Vil- helmsson. Páfagaukurinn hefur enn ekki fengið nafn og fær það ekki fyrr en nýr eigandi gefur honum það. Einn ljóður hefur verið á ráði ungans, að sögn Gunnars: „Hann er mikið upp á kvenhöndina, en honum hefur verið frekar illa við karlmenn. Til þess að koma vitinu fyrir hann hefur karl- kyns starfsmaður í Dýrarík- inu tekið hann heim með sér á kvöldin og haft hann hjá sér yfir nóttina.“ Páfagaukurinn er ræktað- ur í Hollandi, handmataður og kom hingað sem ungi. Hann þurfti í hefðbundna sóttkví, þegar hann kom til landsins, en er nú óðum að jafna sig eftir dvölina þar. Gunnar segir að strangar siðferðilegar reglur gildi um páfagauka og fleiri dýrateg- undir sem lifa villtar í öðrum heimsálfum. Þeir séu ekki undir neinum kringumstæð- um teknir úr umhverfi sínu, heldur einungis úr öruggri ræktun, eins og í Hollandi. - jss DÝRMÆTUR UNGI Cockatu- unginn dýri hjá Eldjárni Má Hall- grímssyni, starfsmanni í Dýraríkinu, sem vinnur að því að snúa páfa- gauknum frá villu síns vegar. Hún skapaðist af því að það var kona sem handmataði gaukinn í sótt- kvínni. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.