Tíminn - 03.01.1975, Page 1
Sanúerson
lyftarinn
komínn
HF HÖRÐUR GUNNARSSON
v- •' ’ ■ ■• • ■• ’.O.IfiO ,
l_______________:______:__:_*
- ... 1 1 1 mm\
Lofttjakkar
Olíutjakkar
Stjórnventlar
Landvélarhf
Borgarstjórinn þakkar ungu stúlkunni, sem afhjúpaði veggteppiö I
gær. Listakonan er lengst til vinstri. Timamynd: Gunnar.
Þjóðhátíðarteppið afhjúpað
BH-Reykjavik. t gær var af-
hjúpaö við hátiölega athöfn, i
fundarsal borgarstjórnar að
Skúlatúni 2, veggteppiö, sem
Vigdis Kristjánsdóttir hefur
orfið f tilefni Þjóöhátföarárs
eftir málverki Jóhanns Briem.
Við athöfnina i gær minntist
borgarstjórinn Birgir ísleifur
Gunnarsson forsögu málsins.
Tvö samstæð listaverk prýöa
nú vegg fundarsalarins, en
þaö fyrra var borginni gefiö á
'175 ára afmæli hennar 1961.
Eru bæöi verkin fögur og til-
komumikill vottur þjóölegrar
listgreinar, sem öllum er sómi
aö, er hlut eiga að máli. Að ósk
listakonunnar afhjúpaöi ung
stúlka Margrét Kærnested,
veggteppið, en móöir hennar
veitti listakonunni góða aðstoð
viö gerö þessa viðamikla lista-
verks. Ólafur B. Thors, forseti
borgarstjórnar þakkaöi lista-
fólkinu snilldarlega unnið
verk i snjöllu ávarpi.
Ætlunin er, að listaverk
þessi prýði væntanlegt ráðhús
Reykjavikur. bað mun hafa
verið hugmynd Ragnhildar
Pétursdóttur, en hún sá slikt
verk í ráðhúsinu f Osló, og
gekkst fyrir þvi, að Bandalag
kvenna lét gera eldra teppið
og færa borginni að gjöf.
Slðara veggteppið er hug-
mynd Þjóðhátíðarnefndar
Reykjavíkur, f tilefni
þjóðhátiðarársins og er það
gert á vegum borgarinnar
sjálfrar.
Fjögurra ára
drengur drukknaði
Gsal—Reykjavik. —Fjögurra ára
gamali drengur, Ingivald
Rúnarsson, til heimilis aö
Noröurgeröi 5, Hvolsvelli,
drukknaði i skurði skammt frá
heimili sfnu s.l. mánudag.
Farið var að sakna Ingivalds
um klukkan 6, en hann hafði
nokkru áður tilkynnt að hann ætl-
aði að skreppa i næsta hús. Um
þetta leyti var veður nokkuð
slæmt og talsvert rok. Er talið
liklegt, að Ingivald hafi hrakið
undan vindinum og fallið ofan i
skurðinn, en þetta hverfi er að
byggjast upp og illa upplýst.
Engir sjónarvottar voru að slys-
inu.
Rafveiturnar höfðu látið grafa
mikið af skurðum i þessu hverfi
og búið var að leggja leiðslur i
skurðina. Hins vegar var beðið
eftir því, að simaleiðslur yrðu
lagðar í skurðina og hefði það
verk af einhverjum ástæðum
dregizt talsvert á langinn. í
rigningartiðinni sem verið
hefur á Suðurlandi að undanförnu
fylltust umræddir skurðir af
vatni, þegar snjó leysti.
Eftir að litli drengurinn fannst
látinn var dælt upp úr flestum
skurðunum og þeir siðan fylltir
þótt simaleiðslur vanti enn.
Leitin að litla drengnum stóð i
tvo kiukkutima.
EKKERT FISKVERÐ
KOMIÐ ENN
Enn hefur fiskverð ekki verið
ákveðið. Gagnasöfnun i sambandi
við verðákvörðun yfirnefndar er
að mestu lokið, og er nú eftir að
fara yfir gögnin og samræma
margs konar atriði og viðhorf áð-
ur, en endanlegt fiskverð verður
ákveðið.
Liklegt má telja að ákvörðunin
dragist eitthvað fram eftir
mánuðinum og að verð á fiski
verði ákveðið á sama tima, það er
að segja bæði á loðnu og þorski og
öðrum vertiðarfiski.
Forsætisráðherrar
Norðurlanda ræða
orkumálin í Osló
HHJ-Rvik. — Trygve Bratteli,
forsætisráöherra Noregs, skýrði
fréttamönnum I Osló frá þvf i
gær, að sögn fréttastofu Reuters,
að forsætisráðherrar Norður-
landanna kæmu saman til fundar
í Osló hinn 31. janúar. Bratteli
skýrði ekki frá þvi, hvaö yrði til
umræöu á fundinum, en
heimiidarmenn Reuters i Osló,
töldu sennilegt, aö á fundinum
yrði m.a. rætt um aukið samstarf
Norðurianda á sviöi orkumála,
ekki sizt með tilliti til norsku
Noröursjávaroliunnar.
—■ Já, það er rétt, að á þessum
fundi,sem Bratteli hefur boðið til,
verður sumpart rætt um sam-
vinnu á sviði orkumála, sagði
Geir Hallgrimsson forsætis-
ráðherra i viðtali við Timann.
Undanfarið hefur staðið yfir
gagnasöfnun um stöðu Norður-
laridanna á orkusviðinu á vegum
iðnaðarráðuneytis hvers lands
um sig. Ég á þó ekki von á þvi,að
hugsanleg oliukaup veröi til
umræðu fyrr en siðar.
Annars verður rætt um Norður-
landaráðsfundinn, sem haldinn
verður i Reykjavik 15.-20. febrúar
n.k.
Þá verður þann 30. janúar
haldinn i Osló fundur sam-
starfsráðherranna. þ.e. þeirra
ráðherra, sem hafa með höndum
málefni Norðurlandaráðs, en af
Islands hálfu er það forsætis-
ráðherra, sagði Geir.
Skaftárhlaupið um
200—220 aígalítrar
•SJ—Reykjavik. Áætlað er að um
200-220 milljónir teningsmetra af
vatni og aur renni til sjávar I
Skaftárhlaupi þvi, sem nú er aö
ljúka. Þessar upplýsingar gaf
Sigurjón Rist okkur I gær en þá
var hlaupið ekki alveg búiö. t
Skaftárdal fór aö draga úr hiaup-
inu um ki. 12 þann 30. des. og sfö-
degis á gamiársdag haföi iækkað
um einn metra I ánni niöri viö Ás-
eldavatn viö vestari brúna á
hringveginum.
— Þetta hlaup hagaði sér mjög
likt og venjuleg Skaftárhlaup,
sem hafa komið núna, sagði
Sigurjón Rist. Þau hafa þó orðið
aðeins meiri bæði að vatnsmagni
og rennslistoppi. Hlaupið fór ekki
alveg eins hátt og Skaftárhlaupið
i júli 1972, en þá var hásumar og
leysingin bættist við.
Hlaupið núna er sennilega það
þriðja I röðinni af þeim ellefu
Skaftárhlaupum, sem orðið hafa
siðari ár.
Farvegur árinnar var að-
þrengdur af is og það gerði að
menn héldu að Skaftárhlaupið nú
væri meira en það raunverulega
var. ísinn pindi vatnsborðið
svona hátt. —Það er mjög hættu-
legt að fá svona vatnsgusur i árn-
ar I klakaböndum, sagði Sigurjón
Rist. — Það var þvi heppni að
ekki fór verr. Þegar vatnið kemst
ekki áleiðis fyrir þykkum is, flýt-
ur það upp á bakkana og virðist
miklu meira en það i raun er, og
þarna gerðist það.
Nákvæmar tölur um hlaupið I
Skaftá kvaðst Sigurjón ekki hafa
fyrr en eftir rúma viku þegar tek-
ið hefði verið úr vatnshæðarmæl-
unum, sem eru tveir, annar uppi
hjá Skaftárdal, en hinn austur við
Kirkjubæjarklaustur, og unnið
hefði verið úr upplýsingunum um
rennslið klukkustund fyrir
klukkustund.
— Lækkunin er mjög eðlileg,
sagði Sigurjón, og áin er nú að
mestu ótrufluð af is.
Aurinn sem hlaupið bar fram
AFTAKAVEÐUR af vestri var
á Eskifirði i fyrrinótt, og ætlaði
allt um koil aö keyra um tima.
Talsvert tjón varð lika i
kaupstaðnum af völdum
veðursins, og sleit einkum
þakplötur af húsum.
verður rannsakaður með tilliti til
hverrar ættar hann er, hvort hann
er úr sjálfu jökulstálinu eða hvort
þarna er um að ræða efni, sem
berst frá eldstöð. Hlaupið var
mjög aurblandað.
Svo vitað sé hefur enn ekki ver-
ið flogið yfir ketilsigin i Vatna-
jökli, sunnan Bárðarbungu, en
þar undir á Skaftá upptök sin. Á
þessu svæði 8 km V-NV af
Grimsvötnum hafa alltaf komið
sig I jökulinn í fyrri Skaftárhlaup-
um. Forvitnilegt er að sjá hvort
svo er ekki einnig nú og eins hvort
þarna er gufa eða eldf jallið undir
jöklinum hafi opnað sig.
Mikil veðurhæö var viða annars
staðar á Austurlandi, og má með
sanni segja, að þar séu miklar
sveiflur á veðurfarinu. Má þar
minnast þess, að einn daginn,
komst hiti á Dalatanga upp i
fjórtán stig.
Aftakaveður
á Eskifirði
Jósafat Arngrímsson
höfðar mál á hendur
Vilmundi Gylfasyni
HHJ-—Reykjavik. — Jósafat Arn-
grimsson i Keflavik hefur ákveöið
að höföa mál á hendur Vilmundi
Gylfasyni vegna ummæla i sjón-
varpsþættinum Kastljósi 20.
desember s.l.
— Ég er staðráðinn i þvi að
höfða mál, sagði Jósafat i viðtali
við Timann i gær. Vilmundur
gerði sig sekan um grófar mis-
sagnir, m.a. hvað varðar upp-
hæðir ávisana, sem og það, að ég
hefði ekki reynzt borgunarmaöur
fyrir þeim. Hann talaði lika um,
að dómar hefðu fallið trekk i
trekk en sannleikurinn er hins
vegar sá, að einungis er um einn
dóm að ræða. Ég er heldur ekki
viðriðinn tollsvikamál það sem nú
er á döfinni eins og látið var
liggja að.
Hér er þvi um að ræða persónu-
legar svivirðingar, sem ég get
ekki unað. Samkvæmt kröfu lög-
fræðinga hefur þess þvi verið far-
ið á leit, að spólan með viðtali
Vilmundar við Baldur Möller
veröi ekki eyðilögð og ég er stað-
ráðinn i þvi að höfða mál.
Ég hef rætt þetta mál við Emil
Björnsson fréttastjóra sjónvarps-
ins og einnig rætt við Vilmund. Ég
fór þess á leit, að ég fengi að
koma fram i sjónvarpinu — þó að
þvi tilskildu, að Vilmundur
stjórnaði ekki þvi viðtali. Þessu
var hafnað og þess vegna verður
höföað mál.