Tíminn - 04.01.1975, Side 6

Tíminn - 04.01.1975, Side 6
6 TÍMINN Laugardagur 4. janúar 1975 Land án laga og réttar Hvítir menn ganga fyrir um alla hluti, næstir koma kynblend- ingar, en svertingjar búa við þröngan kost á öllum sviðum. fttgnntun þeirra ert.d. mjög léleg, Hin s.k. svertingariki (bantustans) sem komið hefur verið á fót bæta ekki úr skák. Svertingarikin eru nú þrjú, en verið er að undirbúa fleiri Hviti minnihlutinn hefur lagt undir sig viöáttumikil landflæmi, þar sem gróðurlendi er bezt og mest von um málma og önnur auðæfi i jörðu. Litið er um atvinnu i svert- ingarikjunum, þannig að margir fara á brott i atvinnuleit. Vinnu er helzt að fá i námum, iðnaði eða við fiskveiðar. Fjölskyldur sinar verða menn hins vegar að skilja eftir segir Nangolo. Mönnum er lika bannað að sækja sjálfir um vinnu — allar atvinnuumsóknir verða að ganga i gegnum sér- staka vinnumiðlunarskrifstofu. Verkamennirnir búa i búðum, sem minna helzt á þrælabúðir nasista, Launin eru lág og matur skorinn við nögl, þannig að margir eru vannæröir. Með þessu móti veröa Suður-Afrikumenn sér úti um ódýrt vinnuafl. Afrikönsku verkamennirnir eru nánast réttlausir. Þeim er ekki leyft að mynda verkalýðsfélög og verkföll eru bönnuð. Þrátt fyrir þaö kom til verkfalla 1971 og 1972 og engan skyldi furöa, þótt innan tiðar yrði enn efnt til verkfalla, segir Nangolo. Þessari vinnu má helzt likja við þrælahald. Oft liður hálft annað til tvö ár að verkamönnunum er ekki leyft að fara heim til sin. Þótt einhver i fjölskyldunni sé dauðvona kemur fyrir að mönnum sé bannað að fara. Yfir- vinnu fá menn ekki greidda nema meö höppum og glöppum og sama máli gegnir, ef unnið er á sunnudögum. Aðbúnaður á vinnu- stöðum er laklegur og i námunum deyja margir úr lungnasjúk- dómum, þvi að oft er of seint að bjarga mönnum, þegar loks er um þá skeytt. Heilbrigðisþjónustan er- mjög léleg þegar svertingjar eiga i hlut, segir Nangolo. Með geð- sjúklinga er svo farið að þeir eru einfaldlega lokaðir inni, þar til þeir róast. Siðan eru þeir látnir fara eöa neyddir til þess að vinna á sjúkrahúsunum. Læknishjálp fá þeir ekki. A Robben-eyju situr fjöldi fanga, Við fáum annað veifiö fregnir af liöan þeirra, sem er ekki upp á marga fiska, þvi aö læknishjálp fá þeir ekki. Þeir fá hvorki aö leita til tannlæknis, augnsérfræðings, né venjulegra lækna, þótt þörf krefji. Sem dæmi má nefna, aö fóturinn var eitt sinn tekinn af einum þeirra manna sem styðja okkur. Hægt hefði veriðað bjarga fætinum, en það var einfaldlega ekkert um það skeytt, fyrr en allt, var um seinan. Þá hafa margir veikzt af völdum pyndinga. Algengt er að menn séu pynd- aðir með raflosti. Þá eru leiöslur festar við kynfærin og siðan er mönnum gefið hvert lostið á fætur öðru. Þessar leiðslur eru lika stundum skrúfaðar á fing- urna. Margar þeirra pyndingaaðferöa sem beitt er tíðkast i fasista- rikjunum, en hér hafa þær veriö „endurbættar” á ýmsan máta. Ég get einnig skýrt frá þvi, að yfirvöldin hafa fengið til liðs viö sig pyndingasérfræðing úr annarri heimsálfu, segir Nangolo. Hann starfar á Robben- eyju, þar sem 50 fangar frá Namibiu eru niður komnir. Margir sitja í fangelsi án þess að hafa komið fyrir rétt eða veriö dæmdir. Þá má minna á aö mönnum er ósjaldan refsaö meö svipuhöggum. Þaö nægir að hafa gert sig sekan um aö syngja söng þjóðfrelsisfylkingarinnar eöa nefna oröið Namibia. Fyrir yfir- sjónir að þessu tagi fá menn 20-30 svipuhögg. Við krefjumst frelsis, segir Nangolo. Namibia er auðugt land og þess vegna er það arðrænt af suður-afrlkönskum, evrópskum, bandariskjum kanadiskum og japönskum auöfélögum. 1 jöröu leynast demantar, gull kopar, úranium, vanadium, germanium, sink, og blý, svo að nokkuð sé nefnt. Viö reynum nú að efla þekkingu og skilning fólks á ástandinu 1 landinu, segir Nangolo. Fyrst kom til vopnaðra átaka með þjóö- frelsisfylkingunni og Suöur-- Afrikönum i ágúst 1966. Siöan hefur baráttan geisað og farið harðnandi. En betur má ef duga skal og þess vegna erum viö þakklátir, öllum, sem leggja okkur lið á einhvern máta. Ráðamenn I Suður-Atríku og Ródesíu eru nú mjög uggandi um sinn hag eins og sjá á samningaum- leitunum Ian Smiths for- sætisráöherra Ródesiu nú fyrir skemmstu. Þjóðfrelsis- hreyfingar þær sem herir Ródesiu og Suður-Afriku eiga 1 höggi við, eflast með degi hverjum og um leið magnast ótti þeirra, sem við stjórnvölinn sitja. — Suður-Afrika hefur lagt Namibiu undir sig i trássi viö lög og rétt og þrengt mjög kost innbyggja lands- ins. En þár.I landi hefur einnig sprottið upp þjóðfrels- ishreyfing, sem berst með oddi og egg gegn ,Suður- Afrikumönnum, þótt við ofurefli sé að etja. Einn talsmanna þjóð- frelsisfylkingarinnar heitir Muvula ya Nangolo. Hann ritstýrir blaði, sem nefnist Namibia i dag. Nangolo lýstir hér ástandinu i Namibiu. MvuU ya Nangolo — einn liösmannn þjóMrehisfylkUgarUaar f Namibiu, sem berst gegn Suöur-Afriku Húsakynnl ir nbyggja Namibiu eru ekki af stásslegra taginu. Innanlands- flug liggur niðri gébé—Reykjavik. — Seinnihluta dags I gær, iá allt innanlandsflug niðri. Aætlaö hafði verið að fljúga fjórar feröir til isafjarðar, en þangað hefur ekki verið hægt að fljúga siðan fyrir áramót. A fimmtudagskvöld var loksins unnt að fljúga til Akureyrar, en þá biðu fjöldi manns eftir flug- fari. Sex ferðir voru farnar þá um kvöldið, sú siðasta fór úr Reykja- vík um kl. hálf tólf. t gær var áætlað að fljúga 3 ferðir til Akureyrar, fjórar til tsafjarðar, þrjár til Patreksfjarð- ar, 2 til Húsavikur og svo til Sauð- árkróks, Vestmannaeyja, Egils- staöa, Raufarhafnar og Þórs- hafnar. En eins og fyrr segir þá lá allt flug niöri vegna veöurs. o Hafnargerðir Þýðingarmesta ákvæði reglu- geröarinnar er skipun þriggja manna nefndar um málefni hafn- anna. t henni skulu eiga sæti full- trúi tilnefndur af Hafnasambandi sveitarfélaga og tveir fulltrúar til nefndir af samgönguráðherra. Skal annar þeirra vera starfs- maður samgönguráðuneytisins og er hann jafnframt formaður nefndarinnar.1 Með nefndinni er stefnt að þvi aöauðvelda samskipti ráðuneytis, Hafnamálastofnunar og ein- stakra hafna og komið verulega til móts við fyrri óskir Hafnasam- bands sveitarfélaga i þessu efni, en sambandið haföi við setningu hafnalaganna óskað eftir, aö Hafnamálastofnuninni yrði sett sérstök stjórn. Verkefni nefndarinnar er i stór- um dráttum tviþætt: Annars veg- ar að fjalla um öll meiri háttar reksturs- og fjárfestingarmál Hafnamálastofnunarinnar sjálfrar og fylgjast með rekstri hennar og framkvæmdum. Hins vegar skal nefndin vera ráögef- andi um fjögurra ára áætlanir um hafnargerðir, um framkvæmda áætlanir fyrir einstök ár, svo og fjármál hafnanna, þar á meðal gjaldskrármál. I nefndinni eru Olafur S. Valdi- marsson, skrifstofustjóri, for- maður, Guðmundur G. Þórarins- son, verkfræöingur, og Gunnar B. Guðmundsson, hafnarstjóri, til- nefndur af Hafnasambandi sveit- arfélaga. Gert er ráð fyrir aö hafnaáætl- unin sem nær til ársins 1978 hljóði upp á 3,4-4 milljarða kr. Aætlunin nær ekki yfir Reykja- vikurhöfn né landshafnirnar i Njarövikum, höfnina á Rifi á Snæfellsnesi né Þorlákshöfn, en þar standa nú yfir mestu hafnar- framkvæmdir hér á landi og á að verða lokið 1976. Aðalsteinn Júllusson vita- og hafnamálastjóri sagði, að fram- kvæmdir þar væru nú svolitið á eftir áætlun, sem aðallega stafaði af slæmu tiöarfari i haust, en ekki væri ástæða til að ætla að sú töf hefði veruleg áhrif á heildar- framkvæmdir verksins. O Fjárþörf dísilstöðva á undanförnum árum. A Vestfjörðum m.a. til byrjunar- framkvæmda við Mjólkárvirkj- un. Á Norðurlandi var m.a. lögö tengilina milli Laxárvirkjunar og Sauðárkróks. Að undanförnu hef- ur veriö lögð megináherzla á raf- orkuframkvæmdir á Austurlandi og þar hefur einkum verið varið fé til Lagarfossvirkjunar auk disilstöðva. Rafveitusvæðiö vestan Núps- vatna hefur verið tengt Vik i Mýr- dal, en sú tenging er veik vegna efnisvandræða. Oliukostnaður Rarik (Raf- magnsveitna rikisins) á þessu ári er áætlaður 252 milljónir kr. eða svipaður og 1973, þó'tt áætlaö sé aö nokkrar disilstöðvar verði teknar úr notkun. Háspennulinur Rarik eru nú samanlagt 8.000 km að lengd 11- 132 þúsund kilóvolt. Er þetta nálægt þvi sama vegalengd og héöan til Peking. ,,Er þvi ekki að undra að eitthvað gefi sig á allri þessari löngu linu”, sagði orku- málastjóri. Annars .var það ánægjulega ástand I gær að hvergi var bilun á Suðurlandi, Vesturlandi og Vest- fjöröum um þrjúleytið i gærdag. Og hvergi á landinu var raf- magnsskömmtun. o Póstur og sími viö gerð tillagna um skipulag pósts og sima. Megininntakið i þessum skipulagshugmyndum, sem nefndin hefur mótað og byggt er á áliti framangreindra sérfræðinga, en endurskipulagn- ing aöaldeilda stofnunarinnar og ennfremur að meiri áherzla verði lögð á dreifingu hinna daglegu starfa stofnunarinnar út i póst- og simaumdæmin. Jafnframt er á- herzla lögö á, að áætlanagerö verði aukin. Akveðið var að láta fyrsta á- fanga þessara skipulagsbreyt- inga koma til framkvæmda með breytingu á reglugerð um stjórn og skipulag pósts og simamála. Gaf samgönguráðherra út nýja reglugerð þann 20. desember sl. Með þessari reglugerð eru simatæknideild og radiotækni- deild stofnunarinnar sameinaöar i eina tæknideild, en sú breyting var aö nokkru komin áður til framkvæmda. 1 reglugerðinni eru ákveðin mörk umdæmis I, þ.e. svæöiö frá sýslumörkum Snæfellsness- og Dalasýslu aö vestan og á Skeiöar- ársandi að austan. Hefur allur póst- og fjarskiptarekstur á þessu svæði verið settur undir eina stjórn, umdæmisstjóri i umdæmi I, sem heyrir beint undir póst- og simamálastjóra. Mun þaö em- bætti verða auglýst laust til um- sóknar og þvi ráðstafað varan- lega frá marslokum að telja. Frá sama tima sameinast ritsima- og langlinumiðstöðin annarri sima- starfsemi i Reykjavik undir dag- legri stjórn simstjórans i Reykja- vik og heitiö Bæjarsiminn i Reykjavik fellur niður. Eins og áður getur er hér um aö ræða fyrsta áfanga margvislegra breytinga á skipulagi og rekstri stofnunarinnar. Er nú unniö aö endurskoðun skipulags pósts og sima, miðaö við þegar ákveönar breytingar I Reykjavfk. Jafnframt er unnið að þvi aö kanna málefni annarra umdæma og gerð tillagna um, hvernig hin- um daglega rekstri verði dreift á önnur umdæmi landsins. En gert er ráð fyrir að þær tillögur verði tilbúnar á komandi hausti. 1 nefndinni, sem starfað hefur að þessari skipulagningu, eru Jón Skúlason, póst- og simamála- stjóri, sem er formaður, Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneyt- isstjóri og Hörður Sigurgestsson, framkvæmdastjóri. Ritari nefndarinnar er Jón Böðvarsson, deildarstjóri, fjárlaga- og hag- sýslustofnunar. © Áhrifamikil flokknum, sem er stjórnarflokk- urinn á Indlandi, og þvi valda- mikill af þeim sökum. Háværar kröfur komu fram um, að hann segðiaf sér ráðherraembætti árið 1973, þegar i ljós kom, að mikil spilling hafði ráðið rikjum i vatnsveituframkvæmdum I Bihar. Þá var Mishra mjög gagn- rýndur á nýafstöðnu þingi, en hann visaði öllum ásökunum á bug.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.