Tíminn - 04.01.1975, Síða 16

Tíminn - 04.01.1975, Síða 16
Laugardagur 4. janúar 1975'- Timlnner penlngar Auglýsid iTtmannm SIS-FODIIR SUNDAHÖFN m- ÍIUO tftti É r — ^2- GEÐI fyrirgóÓan maí $ KJÖTIONAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS Callaghan ræðir við Vorster Brezki utanríkisrdðherrann segist hafa dhuga d að hitta sendinefnd blökkumanna frd Ródesíu að mdli Reuter-Lusaka. í sameiginlegri fréttatilkynningu brezkra og zamblskra ráöamanna, sem gefin var út I gær, segir m.a., að James Callaghan, utanrikisráöherra Bretlands, haldi til fundar viö John Vorster, forsætisráðherra Suður-Afriku, til viöræöna um vandamál Ródesiu. Callaghan neitaði að skýra frá, hvenær fundurinn yrði haldinn, en fréttaskýrendur töldu, að hann yrði i dag, þá liklega i Pretoriu eða á búgarði Vorsters I grennd við Port Elisabet. Fimmtán ár eru siðan háttsettur brezkur ráð- herra sótti Suður-Afriku heim. :itooRNA ^ÁMILLI NTB/Reuter-Washington. At- vinnuleysi eykst stöðugt i Bandarikjunum. t gær var til- kynnt, að 7,1% vinnufærra Bandarikjamanna hefði veriö atvinnulaus i siðasta mánuði, þ.e. 6,5 millj. manna. Atvinnumálaráðuneyti Bandarikjanna upplýsti, að tala atvinnulausra hefði ekki verið svo há siðan i mai árið 1961. Og efnahagssérfræðing- ar telja, að eftirstriðsmetið frá árinu 1958, þegar atvinnu- leysi nam 7,4% verði eflaust slegið fyrir árslok. Gerald Ford Bandarikjafor- seti hefur að undanförnu setið á fundum með sérfræðingum slnum. Fréttaskýrendur búast við, að á næstunni grípi Bandarikjastjórn til þess ráðs að lækka tekjuskatt til að örva viðskipti og bæta þannig efna- hagsástandið. Sú breyting þýddi kúvendingu I stefnu stjórnarinnar, þar eð hún beitti sér fyrir hækkun á tekjuskatti há- og miðlungs- tekjumanna I haust. Reuter-Parls. Valery Giscard d’Estaing Frakkiandsforseti lét svo um mælt I gær, að Brct- ar yrðu að likindum aðal höfuðverkur Efnahagsbanda- lags Evrópu i náinni framtið. Callaghan, sem dvalizt hefur fjóra daga I Lusáka, höfuðborg Zamblu, og átt m.a. viðræður við Kenneth Kaunda forseta, hélt fund með fréttamönnum I gær, áður en hann lagði af stað til Botswana, sem er næsti viðkomu- staður ráðherrans á ferðalagi hans um sunnanverða Afríku. Callaghan var hóflega bjartsýnn á lausn vandamála Ródeslu, en stjórn Ian Smiths sagði sig sem kunnugt er úr lögum við Bretland árið 1965. — Enn er löng leið fyrir höndum, svaraði ráðherrann, þegar hann var spurður um horf- ur á ráðstefnu um stjórnskipun Giscard d’Estaing Forsetinn lét ummæli þessa efnis falla á fundi með frétta- mönnum, þar sem hann til- kynnti heimsókn sina til Bandarikjanna á árinu 1976. Jafnframt lét hann þess getið, að hann kæmi til með að ávarpa Bandarlkjaþing á enskri tungu. Þessi ákvörðun Giscard d’Estaing brýtur I bága við hefð fyrirrennara hans á forsetastóli, sem neit- uðu að tala ensku (þótt þeir kynnu hana mæta vel), til að halda uppi heiðri franskrar tungu. Þá upplýsti forsetinn, að hann legði nú stund á ensku- nám tvö kvöld i viku, til að liðka enskukunnáttu sina fyrir heimsóknina vestur um haf. Reuter-Addis Ababa. Land- stjórinn i umdæminu Begem- der i norðvesturhorni Eþiópiu er horfinn, eins og jörðin hefði gleypt hann. Landstjórinn er sagður hafa gengiö I liö með fyrri land- stjóra I umdæminu Tigre, sem nú er landflótta, enda eftir- lýstur af herforingjastjórn þeirri, er nú fer með völd i Eþlóptu. Landstjórarnir eru báðir tengdir Haile Selaisse, fyrrum Eþíópíukeisara. Ras (þ.e. her- togi) Mengesha Seyom, fyrr- um landstjóri I Tigre-um- dæmi, hefur lýst yfir stofnun skæruliðahreyfingar til frels- unar héraði þvi, er hann réð yfir, en hertoginn er mjög vin- sæll meðal ibúa i Tigre. Frétt- ir herma nú, að Nega Tegeon, hershöfðingi og fyrrum land- stjóri I Begemder-umdæmi, hafi nú gengið I lið með Men- gesha hertoga. Þess má geta, að bæði Begemder og Tigre liggja að Eritreu, en sem kunnugt er hefur verið mjög róstusamt I þvi héraði að undanförnu. Areiðanlegar fréttir herma, að foringjar skæruliða- hreyfinganna tveggja, er berj- ast fyrir sjálfstæði Eritreu, hafi lofað að styðja baráttu skæruliða Mengesha greifa, þótt þá greini á við hertogann I stjórnmálaskoðunum. Ástandið i Asmara, höfuð- borg Eritreu, er enn þrungið spennu. Talsmaður herfor- ingjastjórnarinnar sagði i fyrradag, að ekki hefðu borizt neinar fréttir frá Asmara. Þess má geta að lokum, að Eþiópia á aðeins aðgang að sjó I Eritreu, þar sem hafnar- borgirnar Massawa og Assab eru — sú fyrrnefnda I 120 km fjarlægð frá Asmara. A leið- inni er fjalllendi, sem talið er kjörinn staður fyrir skæru- liöabaráttu. Ródeslu með þátttöku fulítrúa blökkumanna og hvitra manna. Callaghan sagði, að góð sam- búð Bretlands og Zambiu gerði samningaumleitanir auðveldari, en Itrekaði, að enn væru mörg Ijón á veginum til varanlegrar lausnar á vandamálum Ródesiu. Aðspurður um fundinn með Vorster, kvaðst Callaghan hafa áhuga á að heyra viðhorf suður- afriska forsætisráðherrans til hugsanlegrar lausnar á vanda- málum nágranna sinna. Hann sagði og, að Zambíustjórn hefði hvatt sig til að fara á fund Vorst- ers. Hann upplýsti jafnframt, að hann sneri aftur til Lusaka að loknum fundinum. Callaghan kvaðst hafa áhuga á að hitta sendinefnd afriska þjóð- frelsisráðsins I Ródesiu að máli, en stjórn Smiths hefur meinað nefndinni að halda til fundar við brezka utanrikisráðkerrann, eins og fram kom i Timanum i gær. í fréttatilkynningu brezkra og zambiskra ráðamanna segir, að nauðsyn sé á nánari afskiptum Breta af lausn mála I Ródesíu, en Callaghan vék sérhjá að svara i hverju nánari afskipti yrðu fólg- in. Indverskur ráðherra myrtur: Áhrifamikill, en umdeildur Indira Gandhi kennir stjórnarandstöðunni óbeint um morðið Reuter—Nýju Delhi. LalitNarain Mishra, járnbrautamálaráðherra Indlands, lézt i gær af völdum sprengjutilræðis i fyrrakvöld. Ráðherrann var mjög umdeildur, enda var hann einkum bendlaður við þá spillingu, sem sögð er rikj- andi innan indversku stjórnarinn- ar. Mishra hafði nýlokið við að flytja ávarp I tilefni af opnun nýrrar járnbrautar til bæjarins Samastipur i Bihar-héraði þegar sprengjan sprakk. Svo kald- hæðnislega vill til, að ráðherrann átti einmitt afmæli þennan dag, að auki er hann ættaður frá Bihar-héraði. Nltján manns til viðbótar særðust af völdum sprengingarinnar, þ.á.m. bróðir Mishra, sem gegnir embætti landbúnaðarráðherra i Bihar. t fyrstu var talið, að meiðsli Mishra væru minni háttar, en nokkrum klukkustundum siðar var tilkynnt, að hann hefði látizt. Þá höfðu læknar árangurslaust reynt að fjarlægja sprengjubrot, er lent höfðu I maga ráðherrans. Lögreglan hefur nú handtekið yfir tuttugu manns, sökuð um aðild að sprengjutilræðinu. Mishra er fyrsti indverski ráð- herrann sem ráðinn er af dögum frá því Indland hlaut sjálfstæði. Mahatma Gandhi, friðarhöfðing- inn mikli og aðalsjálfstæðishetja Indverja, féll að visu fyrir morð- ingjahendi árið 1948, en Gandhi gegndi aldrei ráðherraembætti. Indira Gandhi forsætisráðherra hefur óbeint kennt andstæðingum indversku stjórnarinnar I Bihar um morðið á Mishra. Hún kvað orsök þess vera það andrúmsloft, er stjórnarandslaðan hefði skapað með sifelldum árásum á spillingu innan stjórnarinnar. Jayaprakash Narayan, leiðtogi stjornarandstöðunnar i Bihar, hefur visað ásökunum af þessu tagi á bug. Hann hefur krafizt víðtækrar rannsóknar á morðinu, og jafnframt gefið i skyn, að ekki hafi verið allt með felldu i sam- bandi við sprengjutilræðið. Aðrir stjórnarandstæðingar hafa tekið I sama streng. Mishra var mjög áhrifamikill I indverskum stjórnmálum, eink- um i Bihar. Hann er talinn hafa stutt mjög við bakið á Kongress- Framhald á 6. siðu. Óánægja í Arabaríkjum Ummæli Kissingers um hugsanlega valdbeitingu Bandaríkjanna í AAiðjarðarhafslöndum vekja athygli NTB/Reuter—Beirut. Ummæli Henry Kissingers, sem fram koma i viðtali við bandariska timaritið Business Week, hafa vakið mikla athygli. t viðtalinu gefur bandariski utanrikisráð- herrann i skyn. að Bandarikin kunni að beita vopnavaldi i Mið- jarðarhafslöndum, en aðeins I Itr- ustu neyð. Talsmenn rlkisstjórna Araba neituðu yfirleitt að segja álit sitt á ummælum Kissingers, en fyrstu viðbrögð I Arabarlkjunum benda til nokkurrar óánægju I garð utanrlkisráðherrans. Viðbrögð blaða I Arabarlkjun- um voru fremur óljós, en þau falla aðallega i tvo farvegi: Ýmist leggja þau áherzlu á, að Kissinger sé andvigur valdbeit- ingu gegn Aröbum eða hann úti- loki hana ekki, ef sérstaklega standi á. Hótanir um valdbeitingu eru yfirleitt litnar alvarlegum augum i Arabarikjunum og leiðtogar nokkurra þeirra hafa lýst yfir, að olluvinnslustöðvar og þvilik mannvirki verði umsvifalaust sprengd I loft upp, komi til vopna- átaka, þar sem Arabar standi höllum fæti. Talsmaður Gerald Fords Bandarikjaforseta sagði I gær, að forsetinn teldi viðbrögð þau, er Kissinger drap á i blaðaviðtalinu, einkar eðlileg I neyðartilfelli. Talsmaðurinn gat ekki svarað þeirri spurningu, hvort utanríkis- ráðherrann hefði borið ummælin undir forsetann, áður en þau voru birt. Callaghan: Enn löng leið fyrir höndum, unz lausn fæst á vanda- málum Ródesiu Blaðburðarfólk vantar á: Bergstaðastræti Suðurlandsbraut Túnin Austurbrún Laugarásveg Voga Sundlaugaveg Kleppsveq (frá 118) Upplýsingar í síma 1-23-23 Kópavogi Blaðburðarfólk óskast í eftirtalin hverfi: Digranesveg Skálaheiði Tunguheiði T raðirnar Umboðsmaður sími 42073

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.