Tíminn - 09.01.1975, Blaðsíða 2

Tíminn - 09.01.1975, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Fimmtudagur 9. janúar 1975. Fimmtudagur 9. janúar 1975 Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr.) Þú ert hálfringlaöur í dag, og þér er þaö naum- ast láandi. Þaö eru ýmsar blikur á lofti, og þú veizt ekki, hvar þú hefur ákveöna vini þina. Þetta er bezt aö melta meö sér og bíöa, og sjá, hvaö gerist. Fiskarnir: (19. febr-20. marz) Þaö hefur einhver áhrif á þig i dag, en þú skalt fara varlega í þessum efnum. Þaö eru ýmsir greiöar, sem þú hefur gert vissum aöila, sem kunna aö orsaka furöulega atburöarás, og þú skalt hafa augun opin. Hrúturinn. (21. marz-19. april) Þér hættir til þunglyndis I dag, og þaö er anzi hætt viö þvi, aö þú veröir aö hrista af þér sleniö, þvi aö þetta gengur aö sjálfsögöu ekki. Þú skalt hugsa máliö, og þá séröu, aö þetta er bannsett I- myndun. Nautið: (20. april-20. mai) Þú ættir ekki aö hætta á neitt i dag, þvi aö hann er sannarlega ekki gróöavænlegur þessi. Kunn- ingjar þinir og vinir gætu fariö I taugarnar á þér, og þú ættir aö foröast þá, þvl aö þetta er óþarfi. Tviburamerkið: (21. mai-20. júni) Þaö gæti ýmislegt oröiö til þess aö gleöja þig I dag, eins og til dæmis jákvæöar fréttir eöa ný kynni. Þá er ekki útilokaö aö áhugi þinn á áöur óþekktu málefni gæti aukizt verulega. Krabbinn: (21. júni-22. júli) Þú gerir réttast I þvl að láta þér ekki koma neitt á óvart, þvl aö þaö er að likindum hagnaöarvon I aösigi. Þér er heppilegast aö halda þig aö þeim vinum og kunningjum, sem hafa svipaðar skoö- anir og þú. Ljónið: (22. júli-22. ágúst) Þaö litur út fyrir, að þú getir notfært þér ýmsar leiðir til þess að ná góöum árangri I alls konar braski, — en einlægnin er þér nú samt heppileg- ust. Góöur dagur til hvers konar uppbyggingar. Jómfrúin: (22. ágúst-22. sept) Þaö lltur út fyrir, aö hvers konar samvinna viö maka þinn eöa félaga sé afar hagstæö I dag. Þér er nefnilega hollt aö hafa það hugfast, aö það er ekki alltaf þaö heppilegasta aö hugsa um sjálfan sig. Vogin: (22. sept-22. oktj Þú skalt ekki rasa um ráö fram I dag. Aö vísu þarftu aö leggja þig allan fram, en engu aö slöur verður þú aö fara hægt aö öllu. Þaö er rétt eins og þú þurfir aö sannfæra einhvern um eitthvaö mikilvægt. Sproðdrekinn: (22. okt.-21. nóv.) Dagurinn lofar góöu, þaö er alls ekki útilokaö, aö óskir geti rætzt, og þú skalt ekki linna á sókn þinni eftir þvl sem þú þráir. Þú stefnir I athafna- átt, og hikaöu ekki viö aö taka þátt I fram- kvæmdum. Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.) Þaö er einhver smáferö á döfinni. Llklega ferö þú hana ekki I dag, en þaö er eins og drög séu lögö aö henni I dag, og þessi ferö skiptir þig tals- veröu máli, af þvi aö hún býöur upp á sérstakan möguleika. Steingeitin: (22. des-19. jan.). í dag skaltu vara þig á þvi aö ögra ekki neinum. Þaö er friösemdin, sem máli skiptir I dag, og einhver sameiginlegur atburöur kemur sér af- skaplega vel á einhverju sviöi. Kynni viö ein- hvern, sem máli skiptir. Timlnner peningar | Auglýsitf l í limanum: „Gamall Seyðfirðingur” hefur skrifað Landfara bréf, og er til- efniö hin geigvænlegu snjóflóð I desembermánuði. Hann talar varnaðarorðum, sem hann beinir einkum til samborgara sinna á Seyðisfirði frá fyrri tið. Snjóflóð og skipulag nýbyggðar „Það er mikils vert, að við kunnum að búa i landi okkar meö kostum þess og göllum, og reynum að sjá við þeim háska, sem að okkur getur steðjað. Hugur minn hefur hvarflað heim til Seyðisfjarðar, þegar snjóflóöafregnirnar hafa borizt. En það knýr mig til þess að hripa þessar linur, að mér finnst einsýnt, að meira sé hugsað um snjóflóðahættuna en gert hefur veriði kröppum fjörðum á fann- komusvæðum, þegar byggð er skipulögð og mannvirkjum ákvaröaðir staðir. Vafalaust hefur svo verið fyrr á tiö, að landsmenn hafa staðiö mjög berskjaldaðir gagnvart snjóflóðahættu viöa um land á þvl skeiði, er skógur og kjarr eyddist úr fjallshliðum vegna búsetunnar, svo að bæir, sem áöur höfðu verið langt til örugg- ir undir fjallshliðum, hafa sóp- azt burt. En um þetta skeið i þjóðarsögunni höfum við ekki heimildir um slika atburði. Aft- ur á móti kunnum við allglögg skil á þvi, hvar snjóflóð, er tjóni hafa valdið á seinni öldum, hafa fallið. Og það er vitneskja, sem ber að hafa rikt i huga. En svo að ég snúi mér aftur að Seyðisfirði, þá vil ég láta i ljós, að mig undrar, hvers vegna ekki er byggt á Vestdalseyri, þar sem ekki er snjóflóðahætta, en aftur á móti mannvirkjum valinn staður undir rótum hinna hæstu fjalla, þar á meðal stór- um verkstöðvum. Markmið mitt með þessum llnum er sem sagt að koma þvi á framfæri, að á stað eins og Seyðisfirði verði byggð og athafnalifi beint á sem öruggasta staði. Og þau varnaðarorð eiga auðvitað við um önnur byggðarlög, þar sem hætta af þessu tagi getur vofað yfir, þótt ég þekki þar ekki svo til, að ég geti nefnt sérstök dæmi”. Ljúfar annir jólanna Richard Beck er enn sem fyrr með hugann heima, og að frónskum sið gripur hann oft til Iþróttar sinnar, visnagerðarinn- ar, þegar ættlandið kallar á hann úr fjarlægð. Þessar visur sendi hann okkur núna um hátlðarnar: Að mér jólaannir sækja, yfir djúpið hugann leiða, frændaþel skal fagurt rækja, fjölda vina þakkir greiða. Liðið sumar lifir I minni, landið fagra I röðulglóðum, endurnýjuð ástrik kynni yngdu hug á feðra slóðum. Jólaönn mér yljar hjarta, andans vængjum flugþrótt gefur, mitt á vetri vortrú bjarta vekur, er i barmi sefur. CAV Olíu- og loftsíur í flestar tegundir bifreiða og vinnu- véla ----3ILOSSB--------------- Skipholti 35 • Simar. 8-13-50 verzlun • 8-13-51 verkstæði • 8-13-52 skrifstofa — Rafgeymar í miklu úrvali Bújörð óskast Óska eftir f járjörð til kaups, helst á Suður- landi, að vori komanda eða næsta haust. Þriggja herbergja ibúð i Reykjavik gæti komið upp i. Upplýsingar i sima 37695. Kona vön matreiðslu óskast á vistheimili Bláa bandsins að Viði- nesi á Kjalarnesi sem fyrst. Laun eftir samkomulagi. Reglusemi skil- yrði. Upplýsingar hjá forstöðumanni i sima 6-63-31 og á kvöldin i sima 6-63-32. Vinningsnúmerin i happdrætti Styrktarfélags vangefinna: R-48155 — Chevrolet Nova. R-44931 — Toyota Corona. R-30015 — Mazda 616. - í-281 — Renault 12. G-8006 — Austin Mini. L 33LOSSK---------- Skipholtl 35 • Simar: 13-50verzlun • 8-13-51 verkstgðj^8-13-52skritstoU^ SJAIST með endurskini Kvenfólk óskast til Hornafjarðar til fiskvinnslu. — Húsnæði á staðnum. — Upplýsingar i sima 97-8200. Kaupfélag Austur-Skaftfellinga Hornafirði. Óskilahestur í Hvalfjarðarstrandarhreppi er jarp blesóttur óskilahestur. Mark blað stýft framan vinstra. Verði hestsins ekki vitjað og greiddur áfallinn kostnaður, verður hann seldur á opinberu uppboði 20. janúar kl. 14. Hreppstjórinn.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.