Tíminn - 15.01.1975, Síða 1

Tíminn - 15.01.1975, Síða 1
vBlarhitarmn í frosti og kulda HF HÖRÐVR 6VNNARSS0N SKÚLATÚNI 6 - SÍMI (91)19460 Þök sligast undan snjóþunga fjórskaði á Árbakka í Hróarstungu JK-Egilsstöðum. — Enn er blind- bylur og mikil veöurhæö á Fljóts- dalshéraöi, og hefur viöa hiaöizt ákaflega mikill snjór á húsþök. Á Árbakka i Hróarstungu hefur fjárhúsþak sligazt undan snjóþunganum ofan á féö, sem inni var, og oröiö einhverju af þvi aö fjörtjóni. Bóndi á Árbakka er Hafsteinn Kröyer, en ekki er vit- aö, fyrir hversu miklum fjár- skaöa hann hefur oröiö, þvi aö litiö hefur verið aöhafst vegna veöurofsans. Viöar á Héraöi eru flöt og stór húsþök talin i hættu vegna snjóþungans á þeim, og er sums staöar farið að setja styttur undir þök stórra útihúsa til þess að styrkja þau. Þannig eru bændur á Egilsstööum að slá stoðum undir þök fjóss og hlöðu, og hið sama hefur viöar verið gripið til bragös. Simabilanir eru þó nokkrar á Fljótsdalshéraði, og eru þess vegna óljósar eða alls engar spurnir úr sumum byggðar- lögum, og vegir allir eru ófærir eins og gefur að skilja. Rafmagnslaust er uppi á Jökuldal, og ekki er kunnugt, hvað bilað hefur þar, en annars staðar mun rafmagn vera yfir- leitt. Hvammstangi: Allt raf- magns- laust og síminn bilaður BS—Hvammstanga. Ibúar á Hvammstanga hafa verið raf- magnslausir frá þvi klukkan 10 á sunnudagskvöldið, og voru það enn kl. 7 i gær. Nær rafmagns- leysiö til Hvammstanga og Vatnsness, norðan Hvamms- tanga. Þá hafa Hvammstangabú- ar verið simasambandslausir frá þvi skömmu eftir að rafmagniö fór þar til um 6 i gær. Sjálfvirki siminn hefur verið úr sambandi vegna rafmagnsleysis, en á hinn bóginn hefur gengið ágætlega að ná sambandi frá simstöðinni sjálfri og út um sveitir. A mánudaginn var reynt að sækja hér innan staðar, rafstöð, sem Vegagerð rikisinsá, en menn urðu frá að hverfa vegna veðurs. Siðan var aftur reynt á þriöju- dagsmorgun. Var þá lagt af stað á stærsta veghefli staðarins, til þess að ná stöðinni, sem var rúm- an hálfan km. frá simstöðinni. Lagt var upp kl. 9 i morgun, og um fjögurleytið var fyrst hægt að fara að tengja hana. Eftir það komst fjölsiminn i samband. Ekki gátu menn þeir, sem voru að sækja stöðina komizt heim i mat, vegna þess hve færðin var erfið, heldur fengu þeir hressingu i mjólkurstöðinni, vegna þess að mjólkurstöðin, slökkvistöðin og eitt ibúðarhús eru með rafmagn. Frh. á bls. 15 f Lofttjakkar Olíutjakkar Stjórnventlar Landvélar hf Vesturgafl flugskýlisins á Reykjavlkurfiugvelli, sem brann I fyrra kvöld. Viötöl og nánari frásagnir af eldsvoöanum á bis. 3. Timamynd: Róbert. Vopnafjörður: Miklar skemmdir á hafnar- garði og mannvirkjum SS-Vopnafiröi. Aftakaveöur hefur verið á Vopnafiröi frá þvi á iaugardagskvöld, og hefur sett niöur mikinn snjó. Allar götur i þorpinu eru ófærar, svo og vegir i nágrenninu. Mjólk hefur ekki borizt hingaö siöan á föstudag, og er nú mjólkurlaust. Snjóbill átti aö sækja mjólk á næstu bæi, en varö aö snúa viö sökum illviðris. Oliubirgöir eru nú á þrotum hér, og ekki er til olia nema tii nokkurra daga. i þessum veður- ham hafa oröiö veruiegar skemmdir viö höfnina, og er ekki séö fyrir þær enn. Saman hefur fariö aftakabrim, svo aö menn muna vart annað eins, og stór- straumsflóö. Brimiö hefur rofið tvö skörð i hafnargarðinn, og óttazt er, að sjórinn haldi áfram að brjóta garöinn, því að veður fer enn harðnandi. Þá hefur sjórinn brotið að mestu húseignir við gömlu hafskipabryggjuna, sem áður var söltunarstöðin Hafblik hf., en er nú i eigu kaupfélagsins. Einnig hefur sjór flætt inn I eina af vöruskemmum kaupfélagsins, þar sem m.a. voru geymdar fóðurvörubirgðir. Var unnið að þvi I gær, að bjarga fóðurvörun- um. Var ekki vitaö seint i gær, hversu miklar skemmdirnar voru. Þá hefur og margt annað gengið úr lagi við höfnina, sem ekki hefur verið hægt að kanna sökum illveðursins og brims, þvi að segja má, að allar bryggjur I höfninni séu á kafi I sjó. Ekki hefur frétzt um tjón á öðrum mannvirkjum á landi uppi. Or sveitinni hafa nú verið heldur litlar fréttir, en ekki hefur fretzt um skaða. Þó hafa bændur átt i einhverjum örðugleikum við að fara til gegninga og dæmi eru um, aö þeir hafi þurft að skriöa milli húsa. Skólar hafa legið hér niðri, og börn úr heimavistarskólanum, sem keyrö voru heimá föstudags- kvöld, hafa ekki komizt aftur i skólann. Sjónvarp hefur ekki sést héi siðan á laugardag. Er það ekkert nýtt, þvi að ekki virðist mega koma snjókorn úr lofti, þá bilar stöðin á Gagnheiði, og er hún svo oft I ólagi dögum saman. SKRIÐBELTI Á JEPPANN OG HANN ER ORÐINN SNJÓBÍLL Nýr búnaður, sem getur orðið notadrjúgur, ef vel reynist HHJ-Rvik. — Undanfarna mánuöi hafa samgöngur i heiium landshlutum veriö I iamasessi sökum óvenju mikiliar snjókomu — oft svo dögum hefur skipt og sums staöar hefur jafnvel allt veriö ófært á landi vikum saman. Ekki þarf aö tiunda fyrir mönn- um, hvert óhagræöi hefur leitt af þessu, svo aö ekki sé fastar aö orði kveöiö. — Nú er hins vegar hafinn innflutningur á tækja- búnaði, sem æíti aö geta bætt verulega úr skák hvaö sam- göngur áhrærir. Hér er um aö ræða skriðbelti, sem setja má undir hvaöa fjögurra drifa jeppa, sem er. Meö þessum útbúnaöi komast menn flestra sinna feröa á jeppa, hvort heidur er í snjó, á sandi eöa votiendi. Skriðbeltin, sem nefnast Una-Track, eru bandarisk uppfinning og gegnir raunar furðu, að þessi útbúnaður skuli ekki hafa veriö fluttur inn fyrr en nú, þvi að uppfinningin er fimm ára gömul. Hvert skriðbelti er 180 sentimetrar á lengd og breiddin er 44 sm. Þyngd hvers beltis er 130 kilógrömm. Þannig er að verki staðið, að hjól og felgur eru teknar undan bilnum og skriðbeltin fest á felgu- boltana. Tveir menn setja beltin undir bilinn á stundarfjóðungi, en sé maður einn sins liðs tekur nælonefni, framleidd hjá hinu annað ár miðað við akstur á auðu. verkið um 45 mínútur. kunna bandariska fyrirtæki Á beltunum er hægt að aka með Sjálf beltin eru úr sérstöku DuPont, og eiga að endast hálft Frh. á bls. 15 Bíll á skriöbeltum kemst flestra sinna feröa I snjó. Þyngd á flatareiningu er svipuö og hjá manni á skiö- um, þ.e. átta sinnum minni en hjá gangandi manni. Buröarþoliö er hiö sama og blilinn væri á hjólum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.