Tíminn - 18.01.1975, Síða 1

Tíminn - 18.01.1975, Síða 1
HF HÖRÐUR GUNNARSSON SKULATUNI 6 - SIMI (91)19460 14. tbl. — Laugardagur 18. janúar 1975 — 59. árgangur Hörmulegt slys í nógrenni Reykjavíkur í gærmorgun: Sjö manns fórust þyrlu á Kjalarnesi Gsal-Reykjavik — Rétt fyrir klukkan ellefu i gærmorgun hrapaði þyrla til jarðar skammt frá Hjarðarnesi á Kjalarnesi. í þyrlunni voru sex farþegar — auk flugmanns — og létust allir. Orsakir slyssins eru ókunnar. Þyrlan sem fórst var af gerð- inni Sikorsky og kom hingað H' lands með Brúarfossi á nýársdag. Þyrlan var i eigu Þyrluflugs h.f. Um klukkan 10.3C i gærmorgun hóf þyrlan sig á loft á Reykja- vfkurflugvelli og var ferðinni Svo virðist sem þyrlan hafi ekki hrapað úr mikilli hæð, þvi að flak hennar dreifðist mjög litið. Hins vegar gjöreyðilagðist þyrlan og fátt heillegt var að finna i flakinu. Um leið og þyrlan snerti jörðina, gaus upp gifurlegt eldhaf og brann allt á svipstundu sem brunnið gat. Þessi mynd var tekin á slysstað skömmu fyrir hádegi i gærdag. Tímamyndir: Róbert ÆNGIRf Áætlunarstaðír: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 $2 með heitið að Vegamótum á Snæfells- nesi, þar sem verið er að reisa spennistöð á vegum Rafmagns- veitna rikisins og skyldi jafn- framt hugað að linustæði vestur yfir Kerlingarskarð til Stykkis- hólms. Oðrum þræði var ferðin reynsluferð, en forráðamenn Rafmagnsveitna rikisins höfðu hug á að hagnýta sér þyrluna og hafði þyrlan m.a. i sinni fyrstu ferð stuttu eftir áramótin farið inn að Búrfelli á vegum Raf- magnsveitnanna. Þessi ferð var þriðja ferö þyrlunnar. Um nákvæma timasetningu á slysinu er ekki vitað, en talið að slysið hafi verið nálægt 10.55. Nokkrir sjónarvottar voru að slysinu og ber þeim saman i öll- um aðalatriðum. Viðtöl við sjónarvotta eru á bls. 3. Samkvæmt lýsingum þeirra virtist vélin vera stjórnlaus og láta mjög einkennilega i loftinu. Strax þótti sjónarvottum einsýnt, að vélin væri að hrapa, — og um leið og hún rakst i jörðina gaus upp mikill eldur. Lætur nærri að þyrlan hafi . hrapað um 600 metra frá Hjarðarnesi; en ibúar þar létu simstöðina á Brúarlandi strax vita af þvi sem gerzt hafði, sem siðan kom skilaboðunum áleiðis til lögreglu og slökkviliðs. Samkvæmt lýsingu sjónar- votta, sem komu fyrstir á slys- staðinn, var ekkert hægt að gera, vegna eldhafsins. Við rannsókn á slysstaðnum kom i ljós, að allir voru i sætum sinum þegar þyrlan hrapaði, og má af þvi leiða þær likur, að slysið hafi gerzt mjög óvænt. Vélarflakið var tiltölulega litið dreift um jörðina, en stélið var þó -nokkuð frá aðalflakinu og eins voru hjól þyrlunnar i talsverðri fjarlægð. Strax og kunnugt var um slysið fóru lögreglumenn úr Reykjavik á staðinn, ásamt sjúkrabil og s.ökkviliðsbill úr Árbæjarhverfi. Þegar slökkviliðsbillinn kom var allt brunnið sem brunnið gat og verk slökkviliðsmanna einungis i þvi fólkið að slökkva siðustu log- ana. Um hádegið i gær voru rann- sóknarmenn Loftferðaeftirlitsins komnir á slysstað. Þegar við ræddum við þá i gær- kvöldi var ekki hægt að skýra frá neinu um orsakir slyssins að svo komnu máli, þar sem rannsóknin var svo stutt á veg komin. Vitna- leiðslur fóru fram I gærdag og ýmsir munir úr þyrluflakinu voru fluttir til Reykjavikur til rann- sókna. Rannsóknarnefnd dauðaslysa Frh. á bls. 15 Frekari fréttir af flugslysinu eru á bls. 3 og 16

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.