Tíminn - 18.01.1975, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 18. janiiar 1975.
Föstudagur 17. janúar 1975
Vatnsberinn: (20. jaa-18. febn)
Þú ert hálfringlaöur i dag, og þér er þaö naum-
ast láandi. Þaö eru ýmsar blikur á lofti, og þú
veizt ekki, hvar þú hefur ákveöna vini þina.
Þetta er bezt aö melta meö sér og blöa, og sjá,
hvaö gerist.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Þaö hefur einhver áhrif á þig i dag, en þú skalt
fara varlega i þessum efnum. Þaö eru ýmsir
greiöar, sem þú hefur gert vissum aöila, sem
kunna aö orsaka furöulega atburöarás, og þú
skalt hafa augun opin.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Þér hættir til þunglyndis I dag, og þaö er anzi
hætt viö þvi, aö þú veröir aö hrista af þér sleniö,
þvi aö þetta gengur aö sjálfsögöu ekki. Þú skalt
hugsa máliö, og þá séröu, aö þetta er bannsett I-
myndun.
Nautið: (20. april-20. mai)
Þú ættir ekki aö hætta á neitt I dag, þvi aö hann '
er sannarlega ekki gróöavænlegur þessi. Kunn- !
ingjar þinir og vinir gætu fariö I taugarnar á þér, !
og þú ættir aö foröast þá, þvl aö þetta er óþarfi. j
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Þaö gæti ýmislegt oröiö til þess aö gleöja þig i
dag, eins og til dæmis jákvæöar fréttir eöa ný
kynni. Þá er ekki útilokaö aö áhugi þinn á áöur
óþekktu málefni gæti aukizt verulega.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Þú gerir réttast i þvi aö láta þér ekki koma neitt
á óvart, þvl aö þaö er aö likindum hagnaöarvon I
aösigi. Þér er heppilegast aö halda þig aö þeim
vinum og kunningjum, sem hafa svipaöar skoö-
anir og þú.
Ljónið: (23. júIí-23. ágúst)
Þaö litur út fyrir, aö þú getir notfært þér ýmsar
leiöir til þess aö ná góöum árangri i alls konar
braski, — en einlægnin er þér nú samt heppileg-
ust. Góöur dagur til hv-srs konar uppbyggingar.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þaö lltur út fyrir, aö hvers konar samvinna viö
maka þinn eöa félaga sé afar hagstæö I dag. Þér
er nefnilega hollt aö hafa þaö hugfast, aö þaö er
ekki alltaf þaö heppilegasta aö hugsa um sjálfan
sig. f
Vogin: (23. sept-22. oktj
Þú skalt ekki rasa um ráö fram I dag. Aö visu
þarftu aö leggja þig allan fram, en engu aö siöur
veröur þú aö fara hægt aö öllu. Þaö er rétt eins
og þú þurfir aö sannfæra einhvern um eitthvaö
mikilvægt. 7
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.) i
Dagurinn lofar góöu, þaö er alls ekki útilokaö, aö í
óskir geti rætzt, og þú skalt ekki linna á sókn
þinni eftir þvl sem þú þráir. Þú stefnir I athafna-
átt, og hikaöu ekki viö aö taka þátt I fram- i
kvæmdum.
■
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. de&)
Þaö er einhver smáferö á döfinni. Liklega ferö
þú hana ekki I dag, en þaö er eins og drög séu
lögö aö henni I dag, og þessi ferö skiptir þig tals-
veröu máli, af þvl aö hún býöur upp á sérstakan
möguleika.
Steingeitin: (22. des.-19. janj.
t dag skaltu vara þig á þvl aö ögra ekki neinum.
Þaö er friösemdin, sem máli skiptir I dag, og
einhver sameiginlegúr atburöur kemur sér af-
skaplega vel á einhverju sviöi. Kynni viö ein-
hvern, sem máli skiptir.
Snjóflóðasöfnun ó Húsavík
nemur 380 kr. ó hvern íbúa
Gjafir I snjóflóöasöfnun Rauöa
kross íslands nema nú samtals
23.060.000 kr. Stærstu gjafir nú
siöustu vikur eru frá Grimsey
130.000, frá Elliheimilinu Grund
100.000, frá Höfn I Hornafirði,
378.000, áhöfninni á Þorsteini RE
100.000 og viðbótargjöf frá Hús-
víkingum að upphæö 167.108 kr.
Áöur höföu 634.500 kr. borizt frá
Húsavik. Söfnunarfé þaðan nem-
ur nú 380 kr. á hvert mannsbarn i
bænum.
Raddir hafa verið uppi um
þaö, aö svonefndur torfæruakst-
ur, sem nú er talsvert farið að
tiöka, sé ekki llklegur til góðra
áhrifa, enda fer þar saman
þjösnaleg meöferð á dýrum
tækjum og oft og tiöum þjösna-
leg meöferö á landinu.
Eins og kunnugt er má svo að
segja hvar, sem farið er um
landiö, sjá þess merki, aö spjöll
hafa verið unnin meö akstri ut-
an vega. Nú fer hinn skipulagöi
torfæruakstur aö vlsu fram á af-
mörkuðum svæöum. En hvaö
liggur beinna viö en torfæru-
akstur yfirleitt veröi einhverj-
um hvöt til þess aö beita svipuð-
um aöferöum i akstri utan
þeirra?
„íþrótt á
villigötum”
Um þetta hefur Landfára bor-
izt bréf frá Bjarna Guðmunds-
syni á Hvanneyri. Hann segir:
„Sjónvarpiö okkar hefur lagt
þaö I vana sinn aö bjóöa sjáend-
um upp á ágæta Iþróttaþætti,
meöal margs annars efnis. Um
slöustu helgi ákváðu sjónvarps-
Iþróttamenn aö sýna mynd um
keppni i torfæruakstri á Suöur-
nesjum. Var raunar búiö að
fetta rækilega fingur út i nefnda
„keppni” I sumar leiö, og litu
þvi flestir á þetta sem afgreitt
mál. En svo einfalt var það nú
ekki. Sjónvarpinu þótti ástæða
til aö kynna máliö enn betur, og
víst var þaö tilkynnt nær sjö
sinnum i útvarpi og sjónvarpi,
hvilikum menningarviðburði
mætti eiga von á kl. 21.25 á
mánudagskvöldiö hinn þrett-
ánda. Til þess aö róa andófs-
menn frá þvl I fyrrasumar, var i
upphafi þáttarins greint frá þvi,
að aðstandendur „keppninnar”
heföu lagfært og sáö i allar
skemmdir á landi aö atburðin-
um þegar orönum, svo fyrir
þann lekann væri nú girt.
Svo hófst „iþróttin”: Fáeinir
einbeittir menn, á jafnmörgum
jeppum, þeystu þar um torleiöi,
og virtist sá hljóta flest stigin,
er greiöast og djarfast ók. Þær
aögeröir, sem þarna voru hafö-
ar I frammi, voru á sliku menn-
ingarstigi, aö út yfir allt tekur
aö flokka með Iþróttum. Sam-
kvæmt almennum skilningi
miöa íþróttir aö þvl aö efla og
bæta. Boðskapur „mánudags-
Iþróttar” sjónvarpsins var
þessu markmiöi gersamlega
öndveröur. „Iþróttamennirnir”
þjösnuöust þarna áfram, án
sýnilegrar viröingar fyrir um-
hverfi, hvaö þá þeim „Iþróttaá-
höldum”, sem beitt var.
Leiðbeining
i náttúruspjöllum
Þaö er ömurlegt aö fá
„Iþrótt” sem þessa innan um
jafngöfugar greinar og hand-
knattleik, skiðaiþróttir og
fimleika. ömurlegra er þó aö
jafn viösýnn og skynsamur
maöur og hann ómar okkar
Ragnarsson skuli láta sjá sig viö
svo dapurlega iöju, sem hér gat
að lita. Hans hlutverk hefur þó
hingað til veriö aö bæta sitt um-
hverfi, bæöi meö spaugi sinu og
skilmerkilegum Iþróttaskýring-
um.' En ömurlegast er, að
áhrifarikasti fjölmiöill landsins
skuli á þessum náttúruverndar-
tlmum detta I þá ógæfu að bera
á borö óæti sem þetta,
leiöbeiningu I náttúrspjöllum og
verömætaspillingu. Kannski má
bæta land og bæta bil, en
hvatimar aö baki „Iþróttinni”
eru svo lágar, að til skammar er
aö tengja nafni iþrótta og ann-
arrar menningar.
Ég skora á sjónvarpiö að láta
„Iþróttamyndir”, sem þá, er
sýnd var sl. mánudagskvöld,
ekki sjást á slnum skjá I
framtlöinni. Þaö var úldinn
fiskur, sem bezt er geymdur
undir steini.”
Nú er nóg komið
„Viö greiðum háa skatta af
öllu sem viö vinnum okkur inn,
aö minnsta kosti þeir, sem fá
laun sin greidd af öörum,” segir
Disa I bréfstúf. „Jafnvel þótt
ekki sé ennað en viö hlaupum I
skrápana eina kvöldstund fyrir
einhverja kunningja, sem for-
fallast, þá er þaö tiundaö.
Happdrættisvinningar eru
aftur á móti skattfrjálsir, og
vegna tilgangs happdrættanna
er ekkert við þvl að segja, á
meöan þeir eru innan hóflegra
marka. En nú siðast fékk ein-
hver nlu milljónir skattfrjálsar.
Þá fannst mér nóg um, og ekki
slzt vegná þess, aö slíkir
vinningar hljóta langtíðast aö
falla I skaut auðugu fólki, sem
getur keypt mikið af
happdrættismiðum.
Þaö veröur að setja eitthvert
hámark s k a 11 f r j á 1 s r a
vinninga”.
Þóra Borg, Guömundur Pálsson, Helga Stephensen og Guörún Ásmundsdóttir I hlutverkum sinum i
„Selurinn hefur mannsaugu.”
Frumsýning á þriðjudag:
„Selurinn hefur mannsaugu"
BH-Reykjavik. — Næstkomandi
þriöjudag, 21. janúar, frumsýnir
Leikfélag Reykjavikur leikrit
Birgis Sigurössonar, „Selurinn
hefur mannsaugu”. Hefur frum-
sýningar þessarar veriö beöiö
meö nokkurri eftirvæntingu
meöal leiklistarunnenda, þvi aö
færri sáu leikritiö en vildu, er þaö
var sýnt fjórum sinnum á lista-
hátlö síöast liöiö vor. Hlaut leik-
ritiö þá veröskuldaö lof og mjög
góöa dóma, og var þvl mjög vel
tekiö á þessum sýningum.
Þær breytingar hafa orðið á
hlutverkaskipan, að Jón Sigur-
björnsson kemur i staö Steindórs
Hjörleifssonar I hlutverki Gamla
og Helga Stephensen I stað Val-
geröar Dan I hlutverki Systu.
Þetta er annað leikrit Birgis
Sigurössonar, sem sett er á svið,
og af þvi tilefni fengum viö Birgi
til aö segja okkur örlitiö um leik-
ritiö.
— Þetta leikrit fjallar um fólk i
samtlmanum og samtimann I
fólkinu, sagöi Birgir. Aðalpersón-
urnar eru hjón i Reykjavik, fólk
eins og ég og þú. Svo kemur
stúlka aö vestan meö móöur
sinni, og þá fer allt I gang. Þetta
er afskaplega einfalt og auöskiliö
verk öllum þeim, sem eru læsir og
skrifandi. Þaö viröast bara svo
margir, sem ekki eru læsir á ann-
aö en fimmþúsundkalla....
Birgir er skólastjóri I Asaskóla
I Gnúpverjahreppi. Áhugi hans á
leiklist er yfirgripsmikill, og nú
nýverið hefur hann sett upp skop-
leikinn „Saklausi svallarinn” eft-
ir Arnold og Bach i Arnesi, og
njóta sýningarnar mikilla vin-
sælda fyrir austan.
Birgir Sigurösson.