Tíminn - 18.01.1975, Blaðsíða 13
Laugardagur 18. janúar 1975.
•TÍMINN
T3
„TAKMARKIÐ ER EVR-
ÓPUMEIST ARATITILLIN N"
o
— segja þjdlfarar ASK Vorwarts Frankfurt. „FH-liðið er fyrsta hindrunin d þeirri braut"
„OKKAR takmark er að
verða Evrópumeistarar",
sögðu þjálfarar ASK
Vorwarts Frankfurt, á
blaðamannafundi á
f immtudagskvöldið. —
FH-liðið verður fyrsta
hindrunin, sem við verðum
að yfirstíga á þeirri braut.
Við þekkjum ekki FH-liðið
og getum við því ekki spáð
um úrslit leiksinsá laugar-
daginn. Þjálfararnir .
Manfred Förster og
Waldemar Pappusch, sem
tvisvar sinnum hefur orðið
heimsmeistari með A-
Þýzkalandi í handknattleik
utanhúss og á 70 landsleiki
að baki, sögðust vera mjög
ánægðir með að fá tæki-
færi til að koma með lið sitt
til Islands — sérstaklega
vegna þess að liðið hefur
ekki leikið hér áður.
Þegar þeir voru spurðir að þvi,
hvort leikmenn ASK Vorwarts
Forráöamenn FH-liðsins og A-
Þjóðverjarnir Hans-Jiirgen
Losensky, blaðamaður. Papp-
usch og Förster, þjálfarar og
Peter Gorny, fararstjóri á blaða-
mannafundinum. (Timamynd
Gunnar)
Frankfurt hefðu vonast til að fá
einhverja ákveðna mótherja i
Evrópukeppninni, áður en dregið
var i 8-liöa úrslitin, sögðu þeir: —
Nei, við töldum, að öll þau liðin i
8-liða úrslitunum væru álika
sterk. öll hefðu þau svipaða
möguleika á að komast áfram i
undanúrslitin.
— Eruð þið búnir að afla ykkur
uppiýsinga um styrkleika FH-
liðsins?
— Nei, ekki getum við sagt það
— FH-liðið er óþekkt lið fyrir okk-
ur. Við vissum að visu að fjórir
leikmenn úr FH, höfðu leikið með
islenzka landsliðinu gegn A-
Þýzkalandi i Laugardalshöllinni i
desember. Þá vissum við, að FH-
liðið hafði slegið SAAB og St. Ot-
mar út i keppninni og staðið sig
mjög vel á útivelli gegn liðunum.
Það eitt nægir til að benda á
styrkleika FH-liðsins.
Þegar þeir voru spurðir að þvi,
hversu oft lið þeirra æfði i viku,
sögðu þeir: — Það æfir 10-12 tima
á viku, og þar að auki falla leikir
liðsins i a-þýzku meistarakeppn-
inni inn i æfingaprógrammið”.
Frankfurt-liðið æfir handknatt-
leik alit árið, og hann er mjög vin-
sæll i A-Þýzkalandi. Það sést bezt
á þvi, að um 110 þús. manns æfa
þar handknattleik.
Förster og Pappusch sögðu
einnig að fjögurra tíma æfing á
viku (eins og hjá FH-liðinu), væri
að þeirra mati ekki nægileg til að
ná góðum árangri. Þegar þeir
sögðu þetta, voru þeir ^purðir að
þvi, hvort þeir væru þá ekki
öruggir með sigur gegn FH. Þeir
svöruðu: — Við erum ekki örugg-
ir með sigur, þvi að við þekkjum
ekki FH-liðið, og þess vegna get-
um við ekki spáð neinu um úrslit.
Að lokum má geta þess, að þeir
Pappusch og Manfred hafa verið
þjálfarar Frankfurt-liðsins i tæpt
ár. Þeir sögðust vera ánægðir
með þann árangur, sem þeir
hefðu náð með liðið. Þann árang-
ur fá islenzkir handknattleiks-
unnendur að sjá i Laugardalshöll-
inni i dag.
— SOS
„Sóknarleikurinn er
okkar sterkasta hlið
FH-LIÐIÐ leikur gegn hinu
sterka a-þýzka meistaraliði ASK
Vorwarts Frankfurt I Laugar-
dalshöllinni f dag. Frankfurt-
liöiö, sem er skipaö mönnum úr
landher A-Þýzkalands, er eitt
sterkasta félagsliö Evrópu um
þessar mundir. 1 liöinu eru 3 leik-
menn, sem léku úrslitaleikinn i
HM-keppninni gegn Rúmenum —
segir Waldemar Pappusch, þjdlfari
Frankfurt-liðsins, sem mætir FH í dag
kl. 3
JOACHIM PIETZSCH. . . fyrirliöi
ASK Vorwarts Frankfurt, hefur
leikiö 65 landsleiki.
þaö eitt gefur bendingu um styrk-
leika liösins. Tekst FH-liðinu aö
sigra þetta sterka liö? Þeirri
spurningu getur enginn svaraö,
þvi aö fslenzkt félagslið hefur
ekki leikið áöur gegn félagsliði
frá A-Þýzkalandi. Hins vegar er
vitaö, aö A-Þjóöverjar eru meöal
sterkustu handknattleiksþjóöa
heims, og ber frammistaða
þeirra í sföustu HM-keppni órækt
vitni um þaö.
Takist FH-liðinu upp, er engin
ástæða til svartsýni. Vörnin hjá
FH-liðinu hefur verið geysilega
sterk undanfarið, og ef Hjalti
Einarsson og Birgir Finnbogason
eru i essinu sinu, þá eru þeir
vörninni traustur bakhjarl. Og á
morgun koma Gunnar Einarsson
Loftur verður dfram
með Haukum
hann hefur hætt við að ganga yfir í raðir FH-inga
AAarkaskorarinn mikli úr
Haf narf irði Lof tur
Eyjólfsson, sem var mark-
hæstur í 2.deildarkeppninni
sl. keppnistímabil, hefur
nú gengið aftur yf ir í raðir
LOFTUR EYJÓLFSSON. . . skor-
aði 15 mörk fyrir Iiauka i 2. deild
sl. keppnistimabil.
Hauka. Loftur gekk yfir í
FH, eftir sl. keppnistíma-
bil, eins og hefur komið
fram. Hann mun því leika
áfram með félögum sínum
úr Haukum i sumar, en
þeir ætla sér stóra hluti —
nefnilega 1. deildarsæti.
Róbert Jónsson, hinn kunni
unglingaþjálfari úr Val, hefur
verið ráðinn þjálfari Haukaliðs-
ins og tekur hann við starfi félaga
sins Þorsteins Friðþjófssonar,
sem verður með Breiðabliksliðið.
Tvö önnur 2. deildarlið hafa nú
ráðið til sin þjálfara. Sölvi ósk-
arsson, fyrrum þjálfari Breiða-
bliks, verður með Reykjavikur-
liðið Þrótt og Keflvikingurinn
Hólbert Friðjónsson, verður með
Ármannsliðið.
— sos
og ólafur Einarsson, sem hefur
verið i banni i Evrópukeppninni,
inn I liðið á nýjan leik. Vonandi
eiga þeir, ásamt Viðari Simonar-
syni og Geir Hallsteinssyni, eftir
aö velgja A-Þjóðverjunum undir
uggum með langskotum sinum.
Þjálfarar A-Þjóðverjanna, þeir
Waldemar Pappusch og Manfred
Förstern, hafa lýst yfir þvi, að
ASK ';orwarts Frankfurt-liðið
leiki ekki kerfisbundinn hand-
knattleik, heldur leiki leikmenn
liösins eftir aöstæöum hverju
sinni. Sterkasta hlið liðsins er
sóknarleikurinn, en varnarleik-
urinn er veikari. Þessar upplýs-
ingar þeirra borgar sig ekki að
taka alvarlega, þar sem þeir eru
einir til frásagnar. Þá sögðu þeir,
aö Wilfried Waber væri aðal
markaskorari liðsins, sem er nú i
efsta sæti i 1. deildarkeppninni i
A-Þýzkalandi, einu stigi á eftir
Magdeburg, að 6 umferðum
óloknum. Þeir vildu ekki segja,
hvernig Waber skoraði flest mörk
sin, það myndi áhorfendur fá að
sjá I dag. Við vitum, að islenzkir
áhorfendur eru mönnum sinum
mikill styrkur i leikjum — þeir
hafa hátt og láta heyra i sér. Við
vonum, að við verðum ekki fyrir
aðkasti frá þeim.
AFRAM FH!
Ahorfendur láta FH-inga
örugglega njóta þess, aö þeir
leika á heimavelli. Meö þvi aö
hvetja FH-liðiö til dáöa, veita
áhorfendur leikmönnum liðsins
mikinn stvrk, sem getur oröið til
þess, aö FH-liöiö beri sigur úr
býtum. — SOS