Tíminn - 18.01.1975, Page 16

Tíminn - 18.01.1975, Page 16
— Laugardagur 18. janúar 1975. - Pdll Halldórsson, þyrluflugmaður hjd Landhelgis- gæzlunni: Aðkoman var hroðaleg Páll Halldórsson þyrluflug- mabur hjá Landhelgisgæzl- unni flaug upp á Kjalarnes skömmu eftir aö kunnugt varö slysiö til þess aö kanna hvort gæzluþyrlan gæti oröiö aö ein- hverju liöi. — Þegar upp eftir kom var ljóst, að við gætum ekkert gert, sagði Páll, og við fórum þess vegna skömmu siöar aft- ur til Reykjavikur. Aðkoman þar efra var hroðaleg. Ég get ekki gert mér i hugarlund hvað komið hefur fyrir. Að visu var veður þann- ig, sviptivindar og anzi harðir hnútar annað kastið — að ekki er loku fyrir það skotið, að slikt gæti hafa valdiö slysinu, þótt ekkert sé hægt að full- yröa. Leifarnar af vélinni voru hins vegar svo illa leiknar, aö greinilegt er að eitthvað of- boðslegt hefur gerzt. Annað hvort hefur oröið sprenging i vélinni, eða hún hefur fallið til jaröar eins og steinn. Páll Ilalldórsson þyrluflug- maöur: Aökoman var hroöa- leg. Nútíma búskapur þarfnast BAUER haugsu Guöbjörn Guöjónsson fyrirgóóan mat $ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS i Sikorskyþyrlan var 20 ára, en endurbyggð árið 1971 FB-Reykjavfk. Sikorsky-þyrlan, er fórst, var smíöuð áriö 1954, en endursmlðuð áriö 1971. Hún haföi veriö i eigu Orlando Helecopter Airways i Florida, og notuö þar til farþegaflugs, aö þvi er Guöjón Sigurgeirsson flugvirki tjáöi blaðinu. Guðjón sagði, að þyrlan hefði komið hingað til lands á nýársdag með Brúarfossi. Hún hefði komið samsett, og hefði þetta verið þriöja ferð hennar. Fyrsta ferðin var farin fyrir Rafmagnsveiturn- ar inn að Búrfelli. Að sögn Guðjóns hafði vélin verið i eins fullkomnu lagi og hægt var að hugsa sér. Hún hafði verið notuð til farþegaflugs I Florida, og gat hún tekið 11 far- þega og 2 flugmenn. Lúðvik Karlsson flugmaður og eigandi vélarinnar hafði réttindi til þyrluflugs, og hafði hann m.a. verið I Orlando hjá Orlando Hele- Allt brann, sem brunniö gat, enda voru mörg hundruö litrar af bensini í vélinni. Timamynd Róbert. copter Airways og lokið þaðan prófi með góðum vitnisburði á þyrluna. Flughraði vélarinnar var um 140 km á klukkustund, en flugþol rúmlega fjórar klukkustundir. •Tlmamynd: Róbert. Þyrlan var öll sundurtætt eftir slysiö Brakiö i móunum viö Hjaröarnes. Timamynd Róbert Þannig leit Sikorsky-þyrla Þyrluflugs h.f. út. TimamyndGunnar Þau létu lífíð í fíugslysinu 1 ^ Indriöi H. Einarsson y firverkfræöingur I Framkvæmdadeild Rafmagnsvcitna rikis- ins, Sævarlandi 6 Reykjavik, fæddur 09-08 1932. Lætur eftir sig konu og tvö börn, sjö ára dreng og fimm ára stúlku. Tómas Sigurösson deildarverkfræðingur RARIK, Arahólum 2, Rcykjavlk, fæddur 07-12 1938. Ókvæntur. Lætur eftir sig foreldra. Guðmundur E. Hannes- son yfirverkstjóri Llnu- deildar IIARIK, Hjalla- vegi 18, Reykjavik, fæddur 12-09 1933. Kvæntur og lætur eftir sig 4 börn, tvo drengi og tvær stúlkur á aldrinum 9-16 ára. Stefán ó. Ólafsson, verkfræöingur RARIK, Sporðagrunni 14, Reykjavik, fæddur 21-07 1924. Lætur eftir sig konu og fimm börn, þrjá drengi og tvær stúlkur á aldrinum 9-25 ára. Sigurbjörg Guömunds- dóttir, matráöskona RARIK, Vesturbergi 81, Re.ykjavik, fædd 24-05 1911. Lætur eftir sig átta uppkomin börn. Lúövik Karlsson, flug- maöur, Sæviöarsundi 52, Reykjavik, fæddur 11-03, 1943. Lætur eftir sig konu og þrjú börn. Kristján S. Helgason framkvæmdastjóri, Nesvegi 64, Reykjavlk, fæddur 08-02 1945. Lælur eftir sig konu og þrjú börn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.