Tíminn - 22.01.1975, Blaðsíða 1

Tíminn - 22.01.1975, Blaðsíða 1
diesel rafstöðvar HF HÚRÐUR GUNNARSSON SKULATUNI 6 - SÍMI (91)19460 ÆNGIRf Áætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 $2 Bilanir hrjá pólsku skuttogarana: Landvélin ið rúmum lengur — í Hrönn RE-10 Gsal-Reykjavik — Við Granda- garð liggur skuttogarinn Hrönn við bryggju. Togarinn er orðinn landlegunni vanur, þvi frá af- hendingu hefur hann legið við bryggju i 150 daga, en verið mun skemur á veiðum. Landvél Hrannar hefur gengið rúmum þúsund klukkutimum lengur en aðalvél togarans, — og sú stað- reynd segir sina sögu um allar þær bilanir, sem orðið hafa i tog- aranum. Timamenn heimsóttu skipverja um borð i Hrönn RE-10 f gærdag. Þeir voru þrir við vinnu, — og kokkurinn var einnig kominn, að visu i öðrum tilgangi, hann var kominn til að kveðja. — Af hverju ég er að hætta? hefur geng- þúsund klst. en aðalvélin Þetta er svo ótryggt. Það eru ekk- ert nema bilanir. Ég hef verið sjómaður i áraraðir, og nú ætla ég á 100 tonna bát, sem ég var á i fjögur ár, áður en ég byrjaði hérna. Þótt það sé ekki stór bátur, fær maður samt sæmilegar árs- tekjur þar. Hrönn RE-10 er pólskur skut- togari, og 2. april 1974 var hann afhentur eigendum sinum, sem eru Hraðfrystistöð Reykjavikur, og fleiri. Hrönn var afhent i pólsku hafnarborginni Gdanzk, og 20. april hélt togarinn i sina fyrstu veiðiferð. 1 fjórðu veiði- ferðinni, 27, júni, varð bilun i tog- vindu togarans, og hann lagðist að bryggju. Landlegan varð löng, og það var ekki fyrr en 10. októ- ber, að séð var fyrir endann á henni. Þá var haldið á miðin, en i þriðju veiðiferðinni, þann 9. desember, varð aftur bilun i tog- vindunni, og aftur varð togarinn að leggjast að bryggju. Ekki er enn séð fyrir endann á þeirri landlegu. — Það sem amar að eru bilanir i aðaltogvindu togarans. Skipta þarf um öxla, og ýmislegt annað smávægilegt þarf að betrum- bæta, sögðu skipverjar. — Við höfum heyrt, að vara- hlutirnir séu væntanlegir með Tungufossi, og hann á að koma til landsins i dag, — en við höfum hins vegar engar sannanir fyrir þvi, að það sé rétt. Hvenær við búumst við að halda aftur á mið- in? Það fer eftir þvi, hvort hér verður unnið bæði nótt og dag, eða bara i dagvinnu, við viðgerð- ina. Ef eigendurnir ákveða, að unnið verði bæði dag og nótt, ætti viðgerðin ekki að taka langan tima, en ef unnið verður eingöngu i dagvinnu, gæti viðgerðin tekið um hálfan mánuð. Eins og áður er frá greint, eru bilanir skipsins núna samskonar og i sumar. Skipverjarnir veittu okkur þær upplýsingar, að svip- Framhald á 14. siðu. Verksmiðja Hafsíldar á Seyðisfirði: NÝTIST EKKI Á ÞESSARI VERTÍD SJ-Reykjavik — Ég tel óhugs- andi, að verksmiðjan komist i gang á þessari vertíð, sagði Vilhjálmur Ingvarsson, for- stjóri Hafsíldar á Seyðisfirði, i viðtali við Tímann i gær. Unnið hefur verið að þvi að moka út úr húsunum og gera sér grein fyrir skemmdum á vélum og byggingum, og er nú orðið ljóst, að þær eru það miklar, að starfræksla á vetr- arvertiðkemur vart til greina. Við vinnum nú að athugun á þvi, hvort efni til viðgerða fæst hér á landi, eða hvort fá verð- ur eitthvað af þvi frá útlönd- um. Vilhjálmur Ingvarsson sagði, að fullvist væri talið, að einhvers konar snjóflóð hefði fallið á verksmiðjuna, en hún hefði ekki farið undan fann- fergi. VOTMÚLIÁ NAUÐ- UNGARUPPBOÐ JH-Reykjavik. — Votmúli I Flóa komst á hvers manns varir i fyrra, þegar hreppsnefnd Selfoss samþykkti kaup á þessari jarð- eign fyrir verð, sem hærra var en þekkzt hafði á hinum mestu höfuðbólum. Seinna varð þeirri samningsgerð hnekkt með al- mennri atkvæðagreiðslu Selfoss- búa að fyrirlagi sýslunefndar Ar- nessýslu. Votmúli var þvi áfram i eigff Þórkels Björgvinssonar, er hugð- ist selja hann Selfosshreppi, og hefur verið hljótt um þessa jarð- eign siðan. Nú er Votmúh aö komast á dagskrá á ný, þar eð hann hefur verið auglýstur til sölu á nauðungaruppboði, að undan- gengnu fjárnámi i sumar er leið. Uppboðsins krefjast fjórir aðil- ar vegna fimm skuldahafa, og nema skuldir þessar samtals tæp um tvö hundruð og sjötiu þúsund krónum. Uppboð verður sett I skrifstofu sýslumannsembættis- ins á Selfossi 28. febrúar, en fer siðan fram á eigninni sjálfri sam- kvæmt ákvörðun uppboðsréttar- Nokkrir skipverja um borð i togara num i gærdag. Eins og glöggt má sjá, er búið að fjarlægja togvindur skuttogarans, — en bilanir i þeim hafa nú I annað sinn á stuttum tima valdið langri land- iegu. Nýju Bláfjallalyfturnar opnaðar innan skamms Hrönn RE-10 við bryggju úti í örfirisey. Timamyndir: Gunnar. HHJ-Rvik — Tvær nýjar skiða- lyftur verða opnaðar i Bláfjöllum innan skamms. Að sögn Stefáns Kristjánssonar iþróttafulltrúa hjá Reykjavikurborg, er nú að- eins eftir að ganga frá öryggis- tengingum. Það verk tekur ekki nema fáeina daga, ef skapiega viðrar, þannig að nú er það undir veðrinu komið, hvenær hægt verður að setja lyfturnar af stað. önnur lyftan er skammt frá Borgarskálanum, þar sem IR var með lyftu i fyrra. Borgarskála- lyftan er 300 metrar á lengd. Hin liggur upp úr Kóngsgili hálfa leið upp á Hákoll og er rösklega 300 metrar á lengd. Aætlað er, að i framhaldi af Kóngsgilslyftunni komi siöan önnur, sem nái alla leið upp á tindinn. . Sú lyfta kemur þó ekki á næsta ári, þvi að þá er fyrirhugað að endurbæta veginn og hækka hann, þar sem snjóþyngst er og verður fjárveitingu varið til þess. Nýju lyfturnar eru austurriskar og eru frá sama fyrirtæki og lyfturnar i Skálafelli, Hveradöl- um og á Akureyri, en þó full- komnari hvað dráttarbúnað áhrærir. Bláfjallalyfturnar kostuðu i innkaupi um 7 milljónir króna, en uppsetning mun kosta um fjórar milljónir að áætlað er. Lyfturnar eru hannaðar með það fyrir aug- um, að þær geti farið um 700 ferð- ir á klukkustund. Seld verða 10 og 20 ferða kort. Verð fyrir fullorðna verður 150 og 300 krónur, þ.e. 15 krónur ferðin. Börn fimmtán ára og yngri greiða helmingi minna, þ.e. 75 og 150 krónur fyrir kortin. Þá verða einnig seld sérstök kvöldkort, frá kl. 18-22 á kvöldin þau kvöld, sem lyfturnar verða opnar. Kvöldkortin munu kosta 200 krónur fyrir fullorðna og 100 fyrir börn. Þeir félagar skiðafélaganna I Reykjavik, sem greitt hafa til- skilin gjöld til félaganna geta keypt árskort, sem munu kosta 4000 fyrir fullorðna og 2000 fyrir börn. Borgin hefur skuldbundið sig til þess að hafa lyfturnar opnar á jiriðjudags og fimmtudagskvöld- um — ef veður hamlar ekki — vegna æfinga skiðafélaganna. Annars verður opið laugardaga og sunnudaga frá 10 að morgni til sjö að kvöldi, ef veður leyfir. Reynt verður einnig að hafa lyfturnar opnar aðra daga, ef þannig viðrar, að búast megi við skiðafólki. Hyggi skólar á skiða- ferðir verða lyfturnar t.d. opnað- ar. Að lokum skal þess getið að Ar- mann og IR verða með eigin lyft- ur I Bláfjöllum. Tíu hesta saknað Þrjú hross hröpuðu fram af bökkum hestur og folald héldu lífi JJ-Skagaströnd. 1 óveðrinu I byrjun siðustu viku hröpuðu þrjú hross niöur af sjávarbökkum fyrir neðan Höskuldsstaði í Vind- hælishreppi. Ein hryssan var dauð, þegar hrestarnir fundust i gilskorningi i sjávarmálinu, en taminn hestur og folald náðust lif- andi, og aö þvi er virtist heil á húfi, en svöng og köld. Um tiu hesta i viðbót er saknað frá bæj- um hér I nágrenninu, og hafa menn leitað þeirra nú I vikunni. Talið er, að hestana þrjá frá Höskuldsstöðum hafi hrakið undan veðri fram af bökkunum. Þegar að var komið, stóð folaldið ofan á dauðu hryssunni, og var þvi ekki á kafi i snjó. Þaö var dregið upp og hesturinn teymdur upp bakkana með stuðningi. Fjögurra hrossa er saknaö frá Ytra-Hóli, en þar eru háir kletta- bakkar við sjó fram. Fimm hest- ar frá Bakka, sem geymdir voru I giröingu nálægt eyðibýlinu Háa- gerði, finnast ekki, og er trúlegt, að þeir hafi farið fram af háum bökkum, sem þar eru. Þá er einn- ig saknaö folalds frá Felli.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.