Tíminn - 29.01.1975, Síða 2
2
TÍMINN
Miðvikúdagur 29. janúar 1975.
Miðvikudagur 29. janúar 1975
Vatsnberinn: (20. jan. - 18. febr)
Þú skalt vera litillátur i dag. Þaö er kominn timi
til þess, að þú gerir lát á þvi að reyna að koma
vitinu fyrir aðra, og aö likindum hefur þetta að-
eins verið tekið sem áróður. Þú skalt einbeita
þér að hag sjálfs þin.
Fiskarnir: (19. febr. - 20. marz)
Þér er alveg öhætt að taka það rólega sérstak-
lega seinni hluta dagsins. Þú lýkur öllum þeim
störfum, sem þú þarftað koma frá fyrri hlutann,
og siðan ekki söguna meir. Athugaðu, hvað þú
getur gert fyrir þá, sem verr eru settir.
Hrúturinn: (21. marz — 19. april)
Þú skalt gera þér grein fyrir þvi, að þér tekst
ekki alltaf að vera hrókur alls fagnaðar, og það
er sannarlega kominn timi fyrir þig til þess að
hugsa þitt ráð. Þú skalt bjóða gömlum vinum til
fundar um landsins gagn og nauðsynjar.
Nautið: (20. april - 20. mai)
Þú verður aldeilis önnum kafinn i dag. Þú þarft
ekki að kviða verkefnaleysi. Það er nóg fram-
undan lika, þegar þessu sleppir, og þú skalt ekki
gera þér miklar vonir um að geta slakað á.
Mundu, að allt er bezt i hófi.
Tviburamerkið: (21. mai - 20. júni)
Það er list út af fyrir sig að geta látið aðra i friði,
og það er gott að kunna hana, sérstaklega á degi
eins og þessum. Hins vegar eru útilif eöa iþróttir
að komastá dagskrá hjá þér, hvort sem þú gerir
þér grein fyrir þvi eða ekki.
Krabbinn: (21. júni - 22. júli)
Það er ekki allt gull sem glóir, og sannleikurinn
sá, að það er ekki allt eins og það litur út fyrir að
vera, þótt þér finnist það fint núna. Þú verður að
gjöra svo vel og skoða hug þinn vandlega, ef ekki
á illa að fara.
Ljónið: (23. júli - 23. ágúst)
I dag er þér nauösynlegt að syna fram á það, að
þú hefur sjálfstæðan vilja, og það er ekki alltaf
heppilegt að hlaupa eftir þvi, sem aðrir segja.
Aukin hvild gæti orðið þér gagnleg til að takast á
við aukinn vanda.
Jómfrúin: 23. ágúst - 22. sept.)
Það eru einhverjar ráðageröir uppi. Þær horfa
til heilla, og það væri alveg fráleitt af þér að
reyna að koma i veg fyrir þær. Hitt er annað
mál, að þessi dagur er þess eðlis, að það getur
verið fullt eins skynsamlegt að flýta sér hægt.
Vogin: (23. sept. - 22. okt.)
Þú skalt ganga að þinum störfum i dag með
jafnaðargeði. Það er engin ástæða til þess að
láta á sér bera af þvi tilefni. Það er ekkert sér-
stakt við þetta, og þú kemst meira að segja hjá
deilum. Lofaðu öðrum að komast að I dag.
Sporðdrekinn: (23. okt. - 21. nóv.)
Þú skalt hlusta eftir þvi, sem samvizka þin býð-
ur þér i dag. Það eru viösjárveröir hlutir að ger-
ast, en þú þarft engu að kvlöa, ef þú gætir þin.
Siðari hluta dagsins verður þú önnum kafinn við
að undirbúa eitthvað — skemmtilegt?
Bogmaðurinn: (22. nóv. - 21. des.)
I dag skaltu nota hvert tækifæri, sem þér gefst til
þess að afla þér stuðnings. Það er einhver áætl-
un, sem þú þarft að endurskoða og reyna að bæta
eftir megni, helzt þannig að hún komi sem flest-
um að notum.
Steingeitin: (22. des. - 19. jan.)
Þú skalt ekki láta þaö á þvi fá, þótt einhverjum
verði þaðá að kalla þig letingja, þvi að þetta eru
orð að sönnu, og þú þarft að fara að athuga þinn
gang sérstaklega. Þér veitir ekki af að koma þér
á strik likamlega.
/imi 28818
IAUGLYSINGASTOFAI
iHAFNARSTRÆTI 5 • REYKJAVIK
.1'
■ ■ 11,1 Unrl Iill
mi 1^1 B.ffl,.
Viða um lönd hafa að undan-
förnu staðið miklar deilur um
fóstureyðingar, og er svo enn.
Hér á landi er þetta mál ekki til
lykta leitt, og þess vegna ekki
nema að vonum, að það sé tals-
vert á dagskrá, og sýnist sitt
hverjum, eins og að likum lætur
um deilumál, þar sem fylkingar
standa á öndverðum meiði.
Töfraorö/ sem enginn
skilur
Bréf um þetta efni hefur
Landfara borizt frá Þorsteini
Guðjónssoni. Þar segir:
,,f fyrra og hitteðfyrra mætti
fóstureyðingarfrumvarpið
almennri andstöðu hér á landi.
Það er óhætt að segja, að
almenningsálitið hafi þá knúið
þing og stjórn til að láta mál
ið niður falla — hafi það ekki
verið svo, aö þingmenn væru i
rauninni jafnandsnúnir frum-
varpinu og kjósendur þeirra.
Það er dálitiö undarlegt, að
slikt frumvarp skuli koma fram
að nýju, engu betra en áður,
eftir að almenningsálitið hefur
komið svo berlega fram, sem
raun hefur á orðið.
Asatrúarfélagið hefur lýst
yfir andstöðu sinni, fyrst i
upphafi árs 1973, siðar með
aðalfundarsamþykkt 1974.
Prestastefna og kirkjuþing hafa
lýst yfir andstööu sinni, og ekki
er þaö sfður athyglisvert, að
læknar snerust gegn
frumvarpinu. En sé nú allur al-
menningur mótfallinn sliku
frumvarpi, ásamt ýmsum sér-
staklega ábyrgum aðilum,
hvaðan kemur þá sú nauðsyn,
að stefna hér að stórauknum
fóstureyðingum?
Þingmaöurinn, sem talaði
fyrir þessu máli i kvöldfréttum
útvarpsins þ. 24. janúar s.l.,
hafði I rauninni ekkert fram að
færa þvi til stuðnings. Menn gái
að þvi, að þaö var hægrimaður,
sem þarna talaði. Hægrimenn,
eru þeir ekki oftast heldur með
kirkjunni? En það var
auðfundið, að yfirlýstar
skoðanir kirkjunnar manna
réðu ekki feröinni hjá þessum
hægri alþingismanni i þetta
sinn, heldur voru einhverjar
aðrar ástæður þyngri á
metunum. En gallinn var sá, að
þær ástæður komu ekki fram.
Töfraorðið „félagslegur” var
hér látið koma i staðinn fyrir
rök. Það er óhætt að segja að
90% þjóðarinnar hafa ekki
hugmynd um, hvað við er átt
með því oröi, — ef þeir eru þá
nokkrir til, sem vita það.
örlög mannkyns
Norðmenn hafa fellt fóstur-
eyðingafrumvarp með eins
atkvæðis meirihluta i Stór-
þinginu. Það mun vera óhætt að
gera ráð fyrir, að meðal
almennings sé andstaðan miklu
meiri, og mætti jafnvel láta sér
til hugar koma, að hið islenzka
fordæmi hafi vakið Norömenn
af dvala i þessu efni.
Norðmenn og fslendingar
hafa, hvorir i sinu lagi, öðrum
þjóðum betur staðið af áér ýmsa
þá faraldra, sem nú eru verstir.
Það stafar af þvi að báðar
þessar þjóðir eru af norrænu
kyni. Hið norræna kyn er hér
öflugra og nær upprunanum en i
öðrum stöðum. örlög mann-
kynsins ráðast hér, og það er
undir þingmönnum komið,
hvaða stefna verður tekin i einu
hinu örlagarikasta máli.”
Permobel
Blöndum
bílalökk
8-13
13LOSSI?—
Skipholti 35 - Símar:
50 verzlun 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa
-<
4
Kveikjuhlutir
í flestar tegundir
bíla og vinnuvéla
frá Evrópu og Japan.
BLOSSH----------------
Skipholti 35 - Simar:
-50 verzlun • 8-13-51 verkstæöi • 8-13-52 skrifstofa
Lögtök
Eftir kröfu tollstjórans I Reykjavik og aö undangengnum
úrskurði veröa lögtök látin fara fram án frekari fyrirvara,
á kostnað gjaldenda en ábyrgð rikissjóðs, að átta dögum
liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöld-
um gjöldum:
Aföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi,
svo og söluskatti af skemmtunum, vörugjaldi af innlendri
framleiðslu, skipulagsgjaldi af nýbyggingum, söluskatti
fyrir október, nóvember og desember 1974, svo og nýlögð-
um viðbótum við söluskatt, lesta-, vita- og skoðunargjöld-
um af skipum fyrir árið 1975, gjaldföllnum þungaskatti af
dísilbifreiðum samkvæmt ökumælum, almennum og sér-
stökum útflutningsgjöldum, aflatryggingasjóðsgjöldum,
svo og tryggingaiðgjöldum af skipshöfnum ásamt skrán-
ingargjöldum.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
27. jan. 1975.
Slökkviliðsst jóri
Starf slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum
Árnessýslu erilaust til umsóknar.
Umsóknum, ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf, skal skila fyrir 10.
febrúar n.k. til undirritaðs, sem veitir
nánari upplýsingar um starfið.
Selfossi 25. janúar 1975.
Sveitarstjóri Selfosshrepps.
LbV^Snjó-hjólbarðar
til sölu í flestum stærðum
góð snjó-mynstur
HAGSTÆTT VERÐ
Sólum flestar
stærðir
ÁBYRGÐ Á SÓLNINGU
Sendum í póstkröfu
sólnhmsm
Nýbýlaveg 4 • Sími 4-39-88
Kópavogi