Tíminn - 29.01.1975, Page 3
Miövikudagur 29. janúar 1975.
TÍÍSIINN
3
Framkvæmdir hafnar við
hinar nýju byggingar DAS
gébé—Reykjavik. — A þriöjudag-
inn, hófust framkvæmdir viö
byggingu hins nýja dvalar-
heimilis aldraöra sjómanna i
Hafnarfiröi. Pétur Sigurösson, I
Sjómannadagsráöi, sagöi i viötali
viö Tlmann, aö vonazt væri til aö
hægt yrði aö taka fyrsta áfanga I
notkun á sjómannadaginn 1977,
en þá veröur sjómannadagurinn
fjörutiu ára.
Unnið hefur veriö að teikning-
um og undirbúningi að þessum
byggingum um nær tveggja ára
skeiö. Jarðvegsframkvæmdir
sem Þórisós hf., sér um, byrjuðu
á þriöjudaginn, en arkitektarnir
vonast til að hægt verði að bjóða
út sjálfa bygginguna I april n.k.
Sjálfar framkvæmdirnar ættu þá
að geta byrjað á miðju árinu.
Arkitektarnir eru Gisli Halldórs-
son og Bjarni Marteinsson.
Byggingarnar verða þrjár I
alltl fy sta áfanganum eða fyrstu
byggingunni, verður kjallari sem
er 1133 fermetrar, en þar verður,
auk rafmagns- og hitainntaka,
verkstæði, geymslur og veiðar-
færagerð. A fyrstu hæð, sem er
1117 fermetrar verða föndursalir,
kennslustofur og aðstaða fyrir
dagvistarfólk. Það siðastnefnda
er nýjung, að fólk geti komið utan
úr bæ og dvalízt daglangt við
föndurgerð eða aðra vinnu. Auk
þess verður Ibúð húsvarðar á
þessari hæð.
Á annarri, þriðju og fjórðu hæð
verða svo ibúðir, en á hverri hæð
fyrir sig verða setustofur. I allt
veröa i húsinu 27 hjónaibúðir,
sem er 50.2 fermetrar nettó að
stærð, og 30 einstaklingsibúðir,
24,6 fermetrar nettó. Er þvi þarna
húsnæði fyrir 84 manneskjur.
Tvær lyftur verða i húsinu.
I næstu tveim áföngum verða
svo tvö hús, og er hjúkrunardeild
og heilbrigðisþjónuta i öðru
þeirra.
Jarövegsframkvæmdirnar viö nýja DAS-heimiliö I Hafnarfiröi hófust á þriðjudag. Hér ræöa saman
Pétur Sigurðsson, Sjómannadagsráöi og Páli Hannesson, Þórisós hf., en þaö er einmitt fyrirtæki Páls,
sem sér um jarövegsframkvæmdirnar. Tfmamynd: Róbert
Níu áríðandi ábendingaratriði
Sjóslysanefndar varðandi öryggi
sjómanna á skuttogurunum
FB-Reykjavik. Rannsóknarnefnd
sjóslysa.sem starfað hefur I þrjú
ár, hefur aö undanförnu fjallað
um öryggismái sjómanna á skut-
togurum vegna alvarlegra slysa,
sem oröiö hafa um borö I slfkum
skipum. Nefndin boöaöi blaða-
menn á sinn fund, og skýröi frá
nokkrum atriöum, sem hún telur
brýnt aö gaumur veröi gefinn nú
þegar til þess aö koma i veg fyrir
slys.
Atriðin sem nefndin bendir á,
eru niu talsins, en hún tekur skýrt
fram, aö þetta sé ekki endanleg
niðurstaða, þar sem gagnasöfnun
varðandi slys, sem orðið hafa hér
við land, og einnig söfnun gagna
erlendis, standi enn yfir,og verði
starfi nefndarinnar þvi haldið
áfram.
Abendingaratriði nefndarinnar
eru sem hér segir, en þess skal
getið, að Tfminn mun birta siöar
itarlega greinargerð nefndar-
innar og frekari upplýsingar, sem
hún veitti blaðamönnum.
1. Settur verði skutrennuloki I
alla skuttogara, sem eru i
smiðum og jafnframt þá, sem
eldri eru, sé þess nokkur kostur.
2. Sami maður sinni aldrei
samtimis stjórn skips og stjórn
togvindu.
3. Skyldað verði, að þeir
sjómenn, sem vinna á afturþilfari
skuttogaranna noti öryggisbelti
viö störf sin, þar sem viö verður
komið.
4. Gerðar verði ráðstafanir til
að draga úr hálku á þilfari skut-
togaranna.
5. Komið verði fyrir bjarg-
hringum aftast á skuttogurunum,
beggja vegna skutremnu.
6. Skylt verði að nota öryggis-
hjálma við vinnu á þilfari skut-
togara.
7. Sjómönnum á skuttogurum,
og á öðrum skipum verði gert
skylt að bera þar til gerð
björgunarvesti innan hlifðarfata,
sem verði eins létt og lipur og
kostur er.
8. Tryggt verði að kallkerfi
milli stjórnpalls og afturþilfars á
skuttogurunum sé jafnan gott og
öruggt.
9. Skylt verði að hafa reyk-
köfunartæki um borð I öllum
skuttogurum.
Þessar ábendingar nefnarinnar
verða sendar til skipstjóra og
áhafna á skuttogurum, og enn-
fremur til Samgönguráðuneytis,
Siglingamálastofnunar rikisins,
Slysavarnafélags íslands,
Sjómannasambands íslands,
Farmanna og fiskimannasam-
bands íslands, Landssambands
Islenzkra útvegsmanna auk fjöl-
miðla i von um að allir þessir
aðilar vinni að kynningu þessara
mikilvægu öryggistækja.
Tíu þús. tonn af loðnu
á land á Eskifirði
Viðskiptin í Pöntunarfélaginu tvöfölduðust
bil frá Norðfirði og nú sjóleiðis frá
Akureyri.
Bezta veður var á Eskifirði á
þriðjudag, sólskin og frostleysa.
þegar vertíðin hófst
SJ-Reykjavik — Hér er búiö aö
landa um 10.000 tn af loðnu og
þrærnar eru aö fyilast, sagöi Arn-
þór Jensen framkvæmdastjóri
Pöntunarfélags Eskfiröinga I
simtali viö Timann i gær. Búast
má við að löndunarbið fari að
verða á EskifirÖi.
— Viðskiptin i Pöntunarfélag-
inu tvöfölduðust eftir að loðnu-
vertiðin hófst og mikið var um
skipakomur. Strandferðaskipun-
um seinkaði mjög i siðustu ferð-
um þeirra og var orðið tómlegt i
verzluninni, en þó kom ekki vöru-
skortur að sök, og hægt var að
anna loðnuskipunum og heima-
fólki. Esja kom siðan til Eski-
fjarðar á mánudag og Hekla um
helgina og nú er nóg af öllu.
Nokkuð hefur borið á mjólkur-
leysivegna samgönguörðugleika.
Þó hefur fengizt mjólk með snjó-
Fyrsta loðnan
til Raufarhafnar
og Vopnafjarðar
FB-Reykjavik. t gærkvöldi voru
komin á land um 27 þúsund lestir
af loðnu. Siðasta sólarhringinn
höfðu þá komiö á land 6805 lestir
úr 30 bátum.
Þróarrými var farið að
minnka á þeim þremur höfnum,
sem lagt hafði verið upp i til
þessa, Seyðisfiröi, Reyðarfirði og
Eskifirði, og einn bátur hélt i gær
til Raufarhafnar meö 380 lestir,
og þrir bátar fóru með afla sinn til
Vopnafjarðar.
Orkumálin á
Norðurlandi
Ingi Tryggvason alþingis-
maður skrifaöi nýlega grein
um orkumálin á Noröurlandi.
Þar segir m .a :
,,Til frekari áherslu þykir
mér rétt að telja hér upp aö
lokum þær aðgerðir, sem llk-
legastar og nauðsynlegastar
eru að minum dómi, til aö losa
Norölendinga úr þessari
spennitreyju, sem orkuskort-
urinn hefur búið þá nú um
skeið.
1. Gera þarf áætlun um,
hvaða þéttbýlissvæöi geta not-
aö jarðvarma til upp-
hitunar húsa og hvaöa svæöi
verða hituð með raf-
magni. Stærsta spurning-
in I þessu efni er upp-
hitun húsa á Akureyri og er
mikil nauðsyn, að ákvöröun
verði sem fyrst tekin um,
hvort lögð verður hitaveita til
Akureyrar eða ekki.
2. Byggingu orkuvers á
Kröflusvæðinu veröi hraðað
svo sem kostur er, svo að
orkuframlciðsla þar geti haf-
izt haustið 1977.
3. Byggðallna verði lögð á
árinu 1975 og framkvæmd þess
verks ekki skipt á fleiri ár.
Vafalaust eru ýmis vandkvæöi
á, aö þetta verk veröi unnið á
þessu ári, svo sem skortur
fjármagns, þjálfaðs vinnuafls
og langur afgreiöslufrestur
efnis. Á árinu 1906 lögöu ts-
lendingar simalinu frá Seyöis-
firöi til Reykjavlkur, fullkom-
lega vanbúnir tækni og
reynslu. Hvl skyldi okkur ekki
geta tekizt nú, sjötlu árum siö-
ar, aö leggja raflinu á einu ári,
sem liklega er meira en helm-
ingi styttri en simallnan, sem
lögð var á einu sumri?
4. Disilstöövar til fram-
leiðslu rafmagns veröi reistar
á öllum þéttbýlisstööum á
Norðurlandi, þar sem þær eru
ekki fyrir eöa skortur er á
varaafli. Þegar rafllnur eru I
lagi nýtast þessar rafstöövar
hcildarkerfinu, hvar sem þær
eru staðsettar, en þegar llnur
bila dregur fjölgun disilstöðv-
anna úr þeirri hættu, aö heil
byggðarlög veröi án raforku
lengri eöa skemmri tima.
5. Unniö veröi skipulega aö
styrkingu og endurnýjun á
dreifikerfi rafmagnsveitn-
anna, þannig aö skortur á
flutningsgetu raflina hindri
ekki notkun rafmagns til upp-
hitunar eöa annarra þarfa
nokkurs staðar á svæðinu.
6. Leyst veröi á viöunandi
hátt þörf þeirra sveitabýla,
sem enn hafa ekki fengið raf-
magn frá samveitum.
7. Stefnt veröi að þvi aö allir
notendur rafmagns eigi kost á
þriggja fasa rafmagni, en
mjög mikill munur er á kostn-
aði ogýmsum möguleikum viö
notkun eins og þriggja fasa
rafmagns.
8. Stefnt veröi aö jöfnun á
verði raforku til sameigin-
legrar notkunar.
9. Sveitarfélög á Noröur-
landi öllu sameinist um stofn-
un Norðurlandsvirkjunar,
sem verði framkvæmdaaðili
og forystuafl um öflun og
dreifingu raforku i landsfjórð-
ungnum”.
AAörg verkefni
Ingi Tryggvason segir enn
fremur:
,,Af þessari upptalningu má
sjá, aö verkefnin eru mörg
brýn og kostnaöarsöm. Ef viö
Norðlendingar viljum halda
okkar hlut gagnvart öörum
landshlutum um þróun byggöa
og atvinnulifs, megum viö
ekki standa öörum aö baki i
öflun og nýtingu vatns- og
varmaorku. Náttúran hefur
ekki slður gefið okkur mögu-
leika en íbúum annarra lands-
hluta.
Aöurnefnt dæmi um bann
viö rafmagnshitun I nýbygg-
ingum á Noröurlandi setur
okkur skör lægra gagnvart
neyzlu landsins gæöa en þá
ibúa landsins, sem engri sllkri
takmörkun lúta. Þess sjást aö
vlsu merki, aö úr orkuskortin-
um rætist. En verður þaö svo
fljótt og myndarlega gert, aö
ekki hljótist varanlegt tjón af
drættinum, umfram þaö sem
oröiö er?
öflug samtök og samstaða
Norölendinga sjálfra eru lik-
legust til að hafa úrslitaáhrif
til úrbóta. Þess vegna er e.t.v.
stofnun Noröurlandsvirkjunar
nú llklegasta ráðiö til aö flýta
fyrir viðunandi úrbótum I hin-
um vanræktu orkumálum
okkar Norðlendinga”.
Þ.Þ.
Ráðstefna um kjör láglaunakvenna:
ALLAR KONUR FÁI 3JA
AAÁNAÐA FÆÐINGARORLOF
Fleiri konur í stjórnir og samninganefndir launþegasamtakanna
■SJ—Reykjavik. — A ráöstefnu um
kjör láglaunakvenna, sem haldin
var I Lindarbæ á sunnudag, var
sett fram sú krafa aö allar konur
njóti a.m.k. þriggja mánaöa
fæöingarorlofs á fullum launum,
og litu þátttakendur I ráöstefn-
unni svo á, aö eðlilegast væri aö
framkvæmd falli undir
tryggingakerfi rlkisins. Þá var
hvatt til að hraðaö yröi uppbygg-
ingu góöra dagvistunarheimila,
svo aö öll börn geti átt kost á dvöl
þar. Ráðstefnan benti, á aö sú
jiróun væri varhugaverö að
barnaheimilisrekstur I heima-
húsum færi sifellt I vöxt.
Ráöstefnuna héldu ASB félag
afgreiðslustúlkna i brauð- og
mjólkurbúðum, Iðja félag verk-
smiðjufólks, Starfsstúlknafélagið
Sókn, Starfsmannafélag rikis-
stofnana og Rauðsokkahreyfing-
in.
Ráöstefnan átaldi þá stað-
reynd, að fjöldi kvenna i stjórnum
og samningnefndum launþega-
samtakanna er ekki i réttu hlut-
falli við tölu þeirra i félögunum og
taldi ekki vansalaust, að i niu
manna nefnd ASl skuli engin
kona eiga sæti.
Ráðstefnan skoraði á verka
lýðsfélögin að gera félögum sin-
um kleift að taka þátt i námskeið-
um Félagsmálaskóla alþýðu með
þvi að greiða fyrir þá þátttöku-
gjöld og bæta þeim upp það kaup,
sem þeir verða af vegna þátttöku
i þessum námskeiðum. Einnig
skoraði ráðstefnan á Félags-
málaskólann aö halda námskeiö
um jafnréttismál á þessu ári.
Þá varaði ráðstefnan viö afleið-
ingum bónuskerfisins, þar sem
komiö hefur i ljós, að það veldur
likamlegri og andlegri þreytu og
hefur neikvæö félagsleg áhrif.
Á ráöstefnunni voru samþykkt
ar ályktanir um tryggingamál,
sem beindust einkum i þá átt, að
konur fái meðlag og barnsfarar-
kostnað greitt frá Trygginga-
stofnuninni þegar i stað, en þurfi
ekki að biða þangað til meðlags-
úrskurður liggur fyrir sem stund-
um dregst á langinn. Ennfremur
skuli meðlag greitt meðan reynt
er að feðra barn. Svo og með
börnum, sem ekki tekst að feðra,
enda hafi allt verið til þess reynt.
Á ráðstefnunni um kjör lág-
launakvenna var samþykkt
ályktun um að allir lifeyrissjóðir
skuli verðtryggðir, allir lifeyris-
þegar njóti sömu réttinda án til-
lits til kyns eða atvinnustéttar, og
að ávaxta skuli fé sjóðanna til
félagslegrar uppbyggingar t.d.
með byggingu leigu- og söluibúða
á svipuðum grundvelli og fram-
kvæmdanefnd byggingaáætlunar
vann eftir.
Þá taldi ráöstefnan það sjálf-
sagða kröfu að heimilisstörf verði
metin sem starfsreynsla, þegar
konur hefja hliðstæð störf á
vinnumarkaðnum. Brýn nauðsyn
væri á námskeiðum i ýmsum
starfsgreinum, svo og endurhæf-
ingu og fullorðinsfræðslu.
Umræður og fræðsla um réttindi
og skyldur og kjaramál skuli fara
fram á vinnustað.
Mergt fleira bar á góma á ráð-
stefnunni, m.a. umbætur i skóla-
málum fólgnar i samfelldum
skólatima og sömu námsskrá
fyrir pilta og stúlkur.
Ráðstefnan lýsti undrun sinni á
þvi, að i nefnd þeirri, sem rikis-
stjórnin hyggst setja á stofn i til-
efni kvennaársins til að fjalla um
stööu kvenna i þjóðfélaginu eru
ýmsir hópar til nefndir, án þess
að fulltrúar Verkalýðshreyfing-
arinnar séu þar með. Ráðstefnan
taldi að einmitt innan Verkalýðs-
hreyfingarinnar séu þær konur,
sem með vinnu sinni stuðla hvað
mest að uppbyggingu þjóöfélags-
ins, og þess vegna beri þeim rétt-
ur til að eiga fulltrúa i nefndinni.
A ráðstefnunni var bent á að
Frh. á bls. 15