Tíminn - 29.01.1975, Síða 7

Tíminn - 29.01.1975, Síða 7
Miðvikudagur 29. janúar 1975. TÍMINN 7 r Útgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm). Jón Helgason. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur I Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300 — 18306. Skrif- stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verð i lausasölu kr. 35.00. Askriftargjald kr. 600.00 á mánuði. Blaðaprent h.f. J Dettifoss eða Hrauneyjarfoss? Þess var nýlega minnzt i fjölmiðlum, að tvö ár voru liðin siðan Vestmannaeyjagosið hófst. Hekla hefur gosið tvivegis á tæpum þremur áratugum, og aðeins áratugur er siðan Surtseyjargosinu lauk. Þetta sýnir gleggst, hve mikil goshætta er á þess- um slóðum. Það minnir alvarlega á þá staðreynd, að eftir að Sigölduvirkjun er lokið, verða tvö mestu orkuver landsins nábúar á mesta gossvæði lands- ins. Ráðgert er svo, að þriðja stóra orkuverið, Hrauneyjarfossvirkjun, bætist við á þessum slóð- um innan tiðar. Vonandi verða þessi orkuver aldrei fyrir neinum skakkaföllum af völdum nátt- úruaflanna, en eigi að siður er rétt að gera sér hættuna ljósa og átta sig á þvi, hvernig komið væri högum landsmanna, ef þrjú mestu orkuverin yrðu fyrir áföllum samtimis. Harðindin austanlands og vestan vekja jafn- framt til umhugsunar um annað atriði. Þvi getur óneitanlega fylgt mikil áhætta, ef dreifbýlið þarf aðallega að búa við orku frá stórum orkuverum, sem öll eru á sama stað. Raflinur geta hæglega bilað i ofsaveðrum, og jafnvel á nokkrum stöðum samtimis. Þess vegna er það tvimælalaust hyggi- leg stefna að dreifa orkuverum hæfilega um land- ið. Að þessu er stefnt með þeim orkuverum, sem á- kveðið hefur verið að reisa næst á eftir Sigöldu- virkjun, en þar er átt við Kröfluvirkjun og Bessa- staðaárvirkjun. Nokkrar smærri virkjanir þurfa svo að koma til viðbótar. En jafnframt þessu þarf svo að fara að leiða hugann að þvi, hvar næsta stórvirkjun á að risa. Þar geta að sjálfsögðu ýmsir möguleikar komið til greina, en sennilega mun valið einkum vera á milli Hrauneyjarfossvirkjun- ar og Dettifossvirkjunar. Rannsókn beggja er vel á veg komin, þótt mikil tregða og óeðlileg hafi stundum sýnt sig i sambandi við rannsókn og undirbúning Dettifossvirkjunar. Fleiri möguleikar geta einnig komið til greina, eins og virkjun Blöndu, en liklegt er þó, að valið verði á milli Dettifoss og Hrauneyjarfoss, þegar næsta stór- virkjun verður ákveðin. Við slikt val er ekki aðeins sjálfsagt að hafa landsbyggðarsjónarmiðin i huga, heldur lika hitt, hvort æskilegt sé að hafa öll helztu orkuverin á nær einum og sama stað á helzta eld- gosasvæði landsins. Annars er nú staðan i orkumálum heimsins þannig, að Islendingum ber áreiðanlega að sýna i- hugun og gát i þessum málum. Orkugjafana i landinu eiga þeir fyrst og fremst að nýta i eigin þágu. Orkukreppan veldur þvi, að auðhringar reyna nú eftir megni að ná yfirráðum yfir orku- lindum, og sýna stundum ótrúlega ósvifni i þeim efnum. T.d. mun einn auðhringurinn hafa gengið svo langt, að hann hefur boðizt til að gerast með- aðili íslendinga að rannsókn á stórvirkjunarmögu- leikum i landinu! Slikri frekju verður náttúrlega ekki svarað nema á einn veg. Þótt reynsla Islend- inga i þessum efnum sé ekki mikil, er framkoma forráðamanna álbræðslunnar i Straumsvik i sam- bandi við mengunarmálin slik, að hún hvetur til fyllstu varúðar i skiptum við óbilgjarna auð- hringa. Sú bitra reynsla hefur hins vegar komið okkur að gagni i samningunum um málmblendi- verksmiðjuna. Gott getur verið að fá reynslu af þeirri framkvæmd, áður en lengra er haldið. Þ.Þ. Spartak Beglov, APN: Verulegur árangur hefur náðst í Genf Hittast þjóðarleiðtogarnir senn í Helsingi? Frá fundi þeirra Brézneffs og d’Estaings I Ramboillet I desember siðast liönum. Fyrirskömmu hófust að nýju eftir jólahlé fundirráðstefnui Genf, sem fjallar um öryggis- og sambúðarmál Evrópu. Skömmu fyrir jólin náðist samkomuiag um ýmis ágreiningsatriði, og þykir nú liklegt, að ráðstefnunni ljúki með fundi æðstu manna þátt- tökurikjanna i Helsinki I sumar. í eftirfarandi grein Beglovs virðist koma fram meiri bjartsýni á árangur en oft hefur áður gætt I skrifum rússneskra blaðamanna um ráðsetefnuna: ÞATTTAKENDUR i lokaþætti annars hluta ráðstafnunnar um öryggis- og samstarfsmál Evrópu hafa hafið störf aö nýju i Genf i andrúmslofti mikillar eftirvæntingar og góðra fyrirboða. Áramótayfir- lýsingar ábyrgra leiðtoga rikisstjórna i mörgum höfuð- borgum — Helmut Schmidt kanslara Vestur-Þýskalands, leiðtoga Tékkóslóvakiu og Búlgariu á fundi þeirra i Sofiu, og Jean Sauvagnargues, utan- rikisráðherra Frakklands — fela i sér mikilsverðan stuön- ing við skoðun, er látin var i ljós, rétt áður en nýja árið gekk i garð, á sovézk-banda- risku og sovézk-frönsku leið- togafundunum i Vladisvostok og i Rambouillet, að góðar for- sendur væru fyrir þvi að ljúka Evrópuráðstefnunni með góð- um árangri innan skamms. ÞEGAR hugleidd er þýðing þess timabils, sem nú stendur yfir I Evrópu, með sérstöku tilliti til þess, að á þessu ári er 30 ára afmæli sigursins yfir fasismanum og loka blóðug- ustuheimsstyrjaldar, sem háð hefur veriö, er réttmætt að tengja þessar miklu vonir beint þeim sögulegu umskipt- um, er nú standa yfir og skipta sköpum fyrir gamla megin- landið. Avinningur friðarþró- unarinnar er augljós. Hann vekur sérstaka ánægju þeirra Evrópubúa, sem lita á hann sem sameign sina. En þótt sú staðreynd sé með réttu viður- kennd, að Evrópubúum hefur tekizt að lifa lengsta friðar- timabil á þessari öld, megum við engan veginn loka augun- um fyrir annarri staðreynd. Viss stjórnmálaöfl I Evrópu og utan endimarka hennar trúa þvi enn, að þetta timabil beri að skoða einungis sem stund milli striða en ekki sem inn- gang að sögulega löngu tima- bili varanlegs friðar. ARIÐ 1975 var tæpast tveggja vikna, er leiðtogar Maóista I Kina ákváðu að „gleðja” heiminn með enn nýrri forspá um „óhjákvæmilega heims- styrjöld”. Það er þessi andi, sem auðkennir eina af kenn- ingum Chou En-lai i skýrslu hans 13. janúar sl. á fundi þjóðþings Alþýðulýðveldisins Kina I Peking. Stjórnendurnir I Peking eru sannarlega ör- látir I opinberunar „boð- skap”. Sl. ár reyndi Teng Hsiao-ping einnig að innræta sendinefnd vestur-þýzka þingsins þaö, að „sérhver kynslóð yrði að heyja sina styrjöld”. Og mönnum ber ekki siður að vera á varðbergi sökum þess, að það ber upp á sama tíma, að Shou En-lai flytur áhrinsboðskap sinn um „óhják væm ilega heims- styrjöld”, og Franz Josef Strauss, leiötogi hægri arms vestur-þýzku stjórnarand- stöðunnar, gistir Peking. Þegar hafa birzt ýmsar fréttir I blöðum, sem staðfesta „ein- drægni” skoðana Maóistaíeið- toganna og Strauss varðandi „hættuna”, er stafi af friðar- þróuninni i Evrópu. Þetta sýn- ir, að það er langt frá þvi, að allir hafi gefið upp vonina um, að Evrópu verði snúið aftur til hinna gömlu daga styrjalda og átaka. Nú, er stund mikilvægra á- kvarðana fyrir allar Evrópu- þjóðir nálgast, hvilir sérstak- lega mikil ábyrgð á þátttak- endunum i viöræðunum i Genf, að þeir sjái til þess, að 'hiðmikilvæga uppbygging- arstarf, sem þeir hafa unnið, beri verðugan árangur, er tryggi meginlandinu traustan grundvöll friðsamlegrar sam- búðar og samvinnu, sem er öllum hagstæð. Þátttakendur I ráðstefnunni hafa komizt verulega áleiðis við að orða meginreglur þessara gagn- kvæmu samskipta, m.a. ákvæði um friðhelgi landa- mæra, um friðsamlega lausn. deilumála, Ihlutunarleysi um innanrikismál, o.s.frv., svo og viö að marka meginreglur viðtækra langtima efnahags- samvinnu, þar sem tillaga að lokaályktuninni er I raun til- búin, að þvi er varðar megin- ákvæði hennar. SKIPULEGA og raunsætt hef- ur einnig verið unnið að þvi að ganga frá flestum grund- vallarákvæðum varðandi vandamál samvinnu á sviði mannúðarmála (þriðja nefnd). Aður en hlé var gert um áramótin, hafði þegar fundizt lausn á mörgum vandamálum varðandi orða- lag viðurkenndra reglna um samvinnu á sviði upplýsinga, um samskipti er varða fjöl- skyldumál, svo og reglur og aðferðir á sviði menningar- samskipta. Þannig hafa jákvæð um- skipti átt sér stað á erfiðustu sviðum samninganna (með tilliti til óliks þjóðskipulags, Ufshátta og þjóðlegra venja). Sameiginleg leit hefur fært þátttakendum heim sanninn um nauðsyn þess að byggja á gagnkvæmt aðgengilegum til- lögum og orðalagi. Sú aðferð að þröngva upp á aðra skilmálum, sem eru ósamræmanlegir viðurkennd- um reglum um friösamlega sambúö og afskiptaleysi um innanlandsmál annarra rikja, hefur ekki ^annað réttmæti sitt. Það væri gagnlegt fyrir þá fulltrúa vestrænna rikja, sem ekki hafa enn látiö af þvi að taka einhliða afstöðu til vandamála, er krefjast sam- hljóða álits, að kynna sér gaumgæfilega þá lærdóma, er draga má, 'bæði jákvæða og neikvæða, af þróun samskipta rikja með ólikt þjóðskipulag. Skortur á Ihugun, áður en tek- in er ósæmileg afstaöa til meginreglna, er verja full- veldi rikja, hefur komið glöggt i ljós, sérstaklega i sambandi viðnýlegar, misheppnaðar til- raunir vissra afla i Bandarikj- unum til þess að þröngva upp á Sovétrikin auðmýkjandi pólitiskum skilmálum á sviði verzlunarviðskipta. ÞÓTT fravinda starfa Evrópuráðstefnunnar sé rétti- lega metin, má ekki gera of litið úr þeim erfiðleikum, sem enn eru óleystir I sambandi við aö móta sameiginlega af- stöðu til nokkurra mála. Þrátt fyrir það eru erfiðleikarn- ir, sem upp koma i sam- bandi við það flókna vanda- mál að samræma skoð- anir 35 rikja, eitt. Annar og ólikur hlutur er það, þegar sumir vestrænir fjölmiðlar reyna á ný að breiða út þá skoðun, að enn séu fyrir hendi „miklir erfiðleikar”, i þeim augljósa tilgangi að hvetja Vesturveldin til að beita hinn aðilann þrýstingi. Slikar tilraunir eru I mót- sögn við þann anda gagn- kvæms skilnings og gagn- kvæmrar leitar að aðgengi- legri lausn, er byggist á virö- ingu fyrir afstöðu hins samn- ingsaöilans, sem verið hefur mjög áberandi I Genf. Þessi vaxandi gagnkvæmi skilning- ur er einnig að verulegu leyti árangur ráðstefnunnar, ekki siöur en sú staðreynd, aö þessi ráðstefna, sem er hin fyrsta sinnar tegundar i sögu Evrópu, hefur með starfi sinu skapað góða möguleika á sameiginlegri, raunhæfri niðurstöðu, eftir 30 ár frá striöslokum og jafnlanga leit að varanlegum friöi, svo og á þvi að tryggja þann árangur, er náðst hefur, ekki aðeins til handa núverandi, heldur og komandi kynslóðum Evrópu- búa. Sovézkir fréttaskýrendur og fulltrúar sovézks almennings, er rita um endurupptöku Genfarviðræðnanna og fagna nýjum ábendingum frá Helsinki um að finnska höfuð- borgin sé þess albúin að vera gestgjafi þátttakenda i loka- þætti ráðstefnunnar, ala sömu vonir i brjósti og starfsbræður þeirra og almenningur i öðr- um löndum og telja, að það væri verðugur árangur af yfir- standandi tilraunum allra vel- viljaðra Evrópubúa, — til- raunum er hafa sögulega þýð- ingu, — að þjóðarleiðtogar sitji siöasta stig ráðstefnunn- ar.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.